Morgunblaðið - 02.10.2002, Page 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss og Dettifoss koma
og fara í dag. Ophelia
kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Pol-
ar Siglir og Nikolay Af-
anasyev komu í gær.
Stella Rigel kom og fór í
gær. Florinda fór í gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataúthlutun
og fatamóttaka opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. kl. 14–17, s.
552 5277
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og postulín kl. 9,
postulín kl. 13. Kynning
frá Lyfjum og heilsu
verður eftir hádegi
föstud. 4. okt. kaffiveit-
ingar.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofa, kl. 13
spilað, kl. 10–16 pútt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–10.30 Bún-
aðarbankinn, kl.
13–16.30 spiladagur
bridge/vist, kl. 13–16
glerlist. Haustfagnaður
verður fimmtud. 17. okt.
Hlaðborð. Skráning á
skrifstofu fyrir kl. 12
miðvikud. 16. okt.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Línudans byrjar 5. okt.
kl. 11. Námskeið í
postulínsmálun byrjar
18. nóv. Uppl. og skrán-
ingar Svanhildur, s.
586 8014 e.h.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Spilað í Holts-
búð kl. 13.30. Fimmtud.
Bútasaumur byrjar kl.
13.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð
við böðun, kl. 10–10.45
leikfimi, kl. 14.30–15
bankaþjónusta, kl. 14.40
ferð í Bónus, hár-
greiðslustofan opin kl.
9–16.45 nema mánu-
daga.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9 silki-
málun, kl. 13–16 körfu-
gerð, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13.30 banka-
þjónusta Búnaðarbank-
ans.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
kl. 13.30 enska.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tré-
skurður kl. 9, myndlist
kl. 10–16, línudans kl.
11, glerskurður kl. 13,
pílukast kl. 13.30. Opið
hús á morgun kl. 14, fé-
lagar frá Gerðubergi
koma í heimsókn.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
verður lokuð vegna
breytinga í Glæsibæ
þessa viku. Miðvikud:
Göngu-hrólfar ganga frá
Hlemmi kl. 9.45. Söng-
félag FEB kóræfing kl.
17. Fimmtud: Brids kl.
13. Námskeið í fram-
sögn kl. 16.15. Föstu-
dagur: Félagsvist kl.
13.30. Bridsnámskeið
hefst fimmtudaginn 10.
október kl. 19.30, þátt-
taka tilkynnist skrif-
stofu FEB s. 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, mosaik,
gifs og ísl. steinar,
postulínsmálun, hár-
greiðslu- og fótaaðgerð-
arstofur opnar. Farið
verður að sjá kvikmynd-
ina Hafið mánud 7. okt.
kl. 13.30, skráning til kl.
16.30 miðvikud. 3. okt.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Selið
Vallarbraut 4, Njarðvík,
kl. 14 félagsvist alla mið-
vikudaga.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnaðar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn,
allar upplýsingar um
starfssemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 9.30
boccia, kl. 10.45 hæg
leikfimi, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 15.15 söng-
ur, kl. 15–16 viðtalstími
FEBK, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 9.05 leikfimi
kl. 9.55 stólaleikfimi, kl.
13 keramikmálun.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
hárgreiðsla og fótaað-
gerð, kl. 13 bridge, búta-
saumur, harðangur og
klaustur.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
og kl. 10 jóga, kl. 9 böð-
un og föndur, kl. 15
teikning og málun.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
10–11 samverustund, kl.
9–16 fótaaðgerðir, kl.
13–13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffiverðlaun.
Farið verður að sjá
kvikmyndina Hafið í
Sambíóunum mánud. 7.
okt. Sýningin hefst kl.
13.30, lagt af stað kl. 12.
Skráning í síma
568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16 fóta-
aðgerð og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10.30–11.30 jóga, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 spurt
og spjallað, kl. 13–16
tréskurður. Föstudag-
inn 4. okt. verður
fræðslu- og kynning-
arfundur kl. 14 um lyf
og inntöku þeirra, bein-
þynningu og beinþéttn-
imælingu, lyfjafræð-
ingur og
hjúkrunarfræðingur
annast fræðsluna. Bíó-
ferð verður mánud.
7.okt. kl. 13.30, að sjá
kvikmyndina Hafið, lagt
af stað kl. 13. Skráning
hafin. Glerlistanámskeið
byrjar fimmtud. 10. okt.
kl. 9.15–12. Fimmtud.
3.október er 13 ára af-
mæli þjónustumiðstöðv-
arinnar, í því tilefni er
gestum og velunnurum
boðið í morgunkaffi kl.
9–10.15.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerðir, morg-
unstund, bókband, búta-
saumur, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 14.10
verslunarferð.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl.
19.30 félagsvist.
Vinahjálp, brids spilað á
Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Kvenfélagið Hrönn,
skemmtifundur
fimmtud. 3. okt. kl. 20 í
sal Flugvirkjafélags Ís-
lands. Borgartúni 22, 3.
hæð. Gestur Edda
Björgvinsdóttir.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju. Fundur verður
fimmtud. 3. okt. í safn-
aðarsal kl. 20. Gestur
fundar, Ingibjörg Berg-
sveinsdóttir, les úr ljóð-
um fyrsta formanns
Kvenfélagsins, Guð-
rúnar Jóhannsesdóttur
frá Brautarholti.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Skemmti-
fundur verður laugard.
5. okt. kl. 13.30 í Húna-
búð, Skeifunni 11. Fé-
lagsvist, kaffi og
skemmti- og fræðslu-
efni.
Bústaðakirkja, starf
aldraðra. Kl. 13–16.30
Handavinna spilað,
föndrað. Gestir frá
Kirkjukórnum þeir sem
vilja láta sækja sig,
skráning í s. 553 8500
kirkjuvörður, eða s. 864
1448 Sigrún.
ITC deildin Korpa Mos-
fellsbæ kynning-
arfundur kl. 20 í Safn-
aðarheimili
Lágafellssóknar, Þver-
holti 3. Allir velkomnir.
Húnvetningafélagið.
Sunnudaginn 6. okt kl.
13.30 opið hús í Húna-
búð, Skeifunni 4, 3. hæð,
fjölbreytt dagskrá um
Arinbjörn Árnason frá
Neðri-Fitjum í Miðfirði.
Umsjón Árni Arinbjarn-
ar. M.a. harmónikku-
leikur, Grettir Björns-
son, flauta og píanó,
Joanne og Arinbjörn
Árnason, upplestur,
Karl Á. Sigurgeirsson
frá Hvammstanga.
Í dag er miðvikudagur 2. október,
Leódegaríusmessa, 275. dagur
ársins 2002. Orð dagsins: Og þá
munuð þér vera mín þjóð, og ég
mun vera yðar Guð.
(Jer. 30, 22.)
LÁRÉTT:
1 skoðunarmun, 8 stúlka,
9 blámaður, 10 niðja, 11
var á floti, 13 aulann, 15
lafa, 18 hey af óræktuðu
landi, 21 dans, 22 doki við
23 látnu, 24 mannkostir.
LÓÐRÉTT:
2 syrgja, 3 rengja, 4 end-
ast til, 5 duga, 6 óhafandi,
7 vangi, 12 ótta, 14 smá-
vegis ýtni, 15 höfuðfat, 16
skíra, 17 eldstæði, 18
morkni, 19 kona, 20 hiti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skíra, 4 gómur, 7 æðina, 8 öskur, 9 lem, 11
agns, 13 vinn, 15 völl, 17 tekt, 20 gró, 22 gumar, 23 gol-
an, 24 akrar, 25 tunga.
Lóðrétt: 1 slæða, 2 ísinn, 3 aðal, 4 gröm, 5 múkki, 6 rýr-
an, 10 elgur, 12 sel, 13 vit, 15 vægja, 16 lemur, 18 eklan,
19 tanna, 20 grær, 21 ógát.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
ORÐIÐ sérstakur líður að matiVíkverja nokkuð fyrir það að
vera ofnotað. Á það bæði við í mæltu
og rituðu máli. Oft má sjá skrifað í
blöðum sérstakur skóli, sérstakt
námskeið, sérstakt þetta og hitt án
þess að sérstaklega þurfi að nota
sérstakur.
Hér í blaðinu var t.d. í gær,
þriðjudag, talað um sérstakan skóla
sem samtök í útlandinu reka. Þar
var fjallað um skóla fyrir fasteigna-
sala og ekki að sjá að hann væri sér-
stakur nema að því leyti að í hann
fara aðeins þeir sem ætla sér að
læra fasteignasölu. Það er kannski
mjög sérstakt. En að mati Víkverja
hefði nægt að skrifa þarna að sam-
tökin rækju skóla o.s.frv. – orðið
sérstakur hafði enga þýðingu og var
óþarft.
Víkverji er nefnilega þeirrar
skoðunar að við skrifum og tölum
hugsunarlaust alls konar óþarfa.
Það er kannski ekkert óeðlilegt í tal-
máli þar sem við látum eitthvað út
úr okkur oftast nær löngu áður en
við hugsum. Í rituðu máli er þetta
hins vegar hvimleitt og mættum við
gjarnan staldra við og gera tilraun
til að gera mál okkar hnitmiðaðra.
Það verður líka miklu skemmtilegra
aflestrar og það reynir ögn meira á
heilagrautinn að setja mál sitt fram í
sem knöppustu formi.
x x x
ÞETTA var nöldurkaflinn. Næster komið að hróskaflanum.
Hann fær Vegagerðin fyrir sam-
göngubót á suðurhluta Vestfjarða,
nýjan veg um Kleifaheiði sem var
opnaður formlega fyrir helgi. Ætti
hann að auka möguleika á akstri um
Barðastrandasýslur lengra fram eft-
ir vetri með aukinni vetrarþjónustu
Vegagerðarinnar. Eftir sem áður er
nóg eftir í uppbyggingu vega þar
vestra og á það raunar bæði við um
suður- sem norðurhluta Vestfjarða-
kjálkans. En hverjum spotta er
fagnað um leið og ráðamenn eru
brýndir til frekari dáða.
x x x
AÐ lokum kemur að ferðakaflan-um. Víkverji hefur tvisvar í
haust farið að Fjallabaki í hópi
jeppamanna. Fjallabaksleiðirnar og
allir útúrdúrar sem fara má af þeim
leiðum eru með fjölbreyttari svæð-
um sem landið býður, hvort sem á
það er litið með augum ferðalangs
sem njóta vill náttúrunnar eða
jeppaökumanns sem vill fara fjöl-
breytta leið sem reynir á farartækið.
Bílaumboð sem flytja inn jeppa
hafa síðustu árin skipulagt hópferðir
fyrir eigendur bíla frá þeim. Er far-
inn þokkalegur hringur inn á
óbyggðavegi þar sem reynir á ýmsar
hliðar ökumanns og bíls, ár og tor-
færur. Er þetta ágæt leið fyrir þá
sem ekki eru mjög vanir torfærum
því með í för eru vanir menn sem
leiðbeina þar sem á þarf að halda og
þar sem halda þarf yfir ár.
En þetta var ekki aðalatriðið hjá
Víkverja heldur að minnast á hversu
haustið er oft skemmtilegur tími til
slíkra ferða, bæði hvað veðrið snert-
ir og ekki síður fjölbreytilega litina í
gróðrinum. Þessi tvö skipti var rign-
ing og suddi á höfuðborgarsvæðinu
og við suðurströndina. Að fjallabaki
var hins vegar sól og blíða, skúra- og
skýjaveður í kring sem gaf þessa
skemmtilegu andstæðu og birtu.
Víkverji hvetur því til fjallaferða á
haustin – að vísu með fyrirvara um
ákveðnar öryggisráðstafanir, svo
sem að vera ekki einir á ferð og til-
kynna öðrum fyrirætlanir sínar.
Coca-Cola
sumarleikur
SNEMMA sumars hóf Víf-
ilfell svokallaðan Coca-Cola
sumarleik þar sem safna
átti einingum til að geta
„keypt“ hinar ýmsu vörur
merktar Coke.
Börnin tóku þetta að
sjálfsögðu alvarlega og
söfnuðu sem mest þau
máttu.
Þegar kom að því að fara
að borga og leysa út vör-
urnar í verslun Elko varð
þar fátt um svör hjá geð-
vondu starfsfólki, ekki voru
nema upptakarar í boði þar
sem allt annað var búið.
Ætla mætti að Vífilfell
myndi nú hafa einhverja
hugmynd um umfang þessa
leiks og gæti staðið við aug-
lýsingar sínar um að geta
afhent vörur sem auglýstar
voru.
Jú, að lokum var okkur
boðið að greiða fyrir vör-
urnar og fá afhent seinna.
Ég greiddi þetta með sem-
ingi, hvaða fyrirtæki krefur
viðskiptavini sína um að
greiða fyrirfram fyrir smá-
vörur, í þessu tilviki tæpa 2
mánuði, og ætla svo að af-
henda seinna.
Vil ég benda Vífilfelli á
að þessir verslunarhættir
hafa ekki tíðkast á Íslandi
siðan einokunarverslun
Dana leið undir lok.
Vörurnar átti að vera bú-
ið að afhenda núna 11. sept-
ember en ekkert hefur ból-
að á þeim.
Nú er kominn tími til að
Vífilfell hysji upp um sig
brækurnar og standi í skil-
um við börnin sem söfnuðu
merkjum og greiddu fyrir
vörur.
Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson var einnig með
sumarleik þar sem börnin
gátu safnað sér töppum af
Pepsíflöskum sem þau
gerðu og gátu fengið Pepsí
fótboltatreyju eða bolta
gefins. Það stóð á afhend-
ingu þessara bola en eitt
mega þeir Pepsímenn eiga
að þeir sendu öllum börn-
um treyjurnar sínar, sem
kostuðu ekki neitt, í pósti,
ef þau gátu ekki komið á
sérstaka Pepsíhátíð sem
haldin var, og fylgdi pakk-
anum ein kippa af Pepsí-
Twist og var það frábært
framtak hjá þeim.
Birna Ýr Thorsdóttir,
Keflavík.
Ábending til foreldra
STELLA hafði samband
við Velvakanda og vildi hún
koma á framfæri ábend-
ingu til foreldra um að þeir
brýndu vel fyrir börnum
sínum að hleypa ekki fólki
inn á heimili sín. Sagðist
hún þekkja dæmi þess að
ungur drengur hleypti
manni, sem kynnti sig sem
viðgerðarmann, inn á heim-
ilið og stal þessi maður far-
tölvu.
Varst þú á Iona
í ágúst?
VARST þú á Iona í ágúst á
þessu ári? Við hittumst en
ég hafði ekki tíma til að tala
við þig það kvöld þar sem
ég var að vinna. Nú vildi ég
gjarnan ná sambandi við
þig. Ef þú vilt geturðu haft
samband á netfanginu:
diana.baillie@talk21.com –
hlakka til að heyra frá þér.
Hver er með svartan
leðurjakka?
STÚLKAN sem fékk
svartan leðurjakka lánaðan
vegna kulda á menningar-
nótt er beðin að hafa sam-
band í síma 866 1386.
Dýrahald
Páfagaukur týndist
LJÓSGRÆNN páfagauk-
ur (gári) týndist sl. mánu-
dag frá Dalseli 11. Þeir sem
hafa orðið varir við fuglinn
hafi samband í síma
567 8184 og 690 3184.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG var að lesa grein Sig-
rúnar Ármanns Reyn-
isdóttur sem birtist í Vel-
vakanda 27. september.
Það eru orð að sönnu
sem fram kemur í grein-
inni að mikil fátækt og
eymd ríkir hér.
Þeir eru líka margir sem
hafa það mjög gott. Ekki
öfunda ég það fólk en hin
mikla misskipting fjár-
muna og græðgi verður
til þess að breikka bilið
milli þeirra sem lifa við
allsnægtir og hinna sem
varla draga fram lífið.
Á meðan fyrirtækin
borga toppunum of-
urlaun fáum við verka-
fólkið smánarlaun.
Það er rétt sem Sigrún
segir að það eru ótrúlega
margir sem ekki fengu
bita af góðæriskökunni
frægu.
Það þarf að stokka kerf-
ið allt upp frá a til ö. Það
getur ekki gengið lengur
hérna í þessu ríka þjóð-
félagi að fjármagnið fari
á fárra manna hendur og
öryrkjar, eldri borgarar
og fullvinnandi fólk þurfi
að standa eins og bein-
ingarmenn í biðröðum
fyrir utan hjálparstofn-
anir. Við hljótum að
krefjast réttlætis.
Að lokum vil ég þakka
Sigrúnu Ármanns Reyn-
isdóttur fyrir greinina.
Hún er sönn baráttuköna
og verðugur talsmaður
þeirra sem minna mega
sín. Slíka konu vil ég sjá
á Alþingi.
Halli.
Góðæri – réttlæti
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16