Morgunblaðið - 02.10.2002, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákveðinn í að sigrast
á öllum þeim hindrunum
sem á vegi þínum verða.
Sýndu tillitssemi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert vel upplagður og allt
virðist ganga upp hjá þér.
Vertu því óhræddur að taka
að þér erfið verkefni sem
aðrir leggja ekki í.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það má ýmislegt gera til að
gleðja sjálfan sig og aðra án
þess að kosta miklu til.
Taktu því vel eftir og
reyndu að skilja kjarnann
frá hisminu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einhver sem þú hélst að
væri horfinn úr lífi þínu fyr-
ir fullt og fast kemur fyr-
irvaralaust inn í það aftur.
Lengi lifir í gömlum glæð-
um.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það skiptir þig miklu máli
að koma vel fyrir og líta vel
út. Mundu að útlitið er ekki
allt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt gott með að umgang-
ast aðra svo þú skalt nýta
þér þann hæfileika sem best
þú getur. Farðu gætilega í
fjármálum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samstarfsmaður þinn er
með ónot í þinn garð svo
best væri að ganga hreint til
verks og spyrja hvað búi að
baki. Leitaðu aðstoðar ef
eitthvað vefst fyrir þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér er óhætt að hafa háleit-
ar hugmyndir ef þú hefur
fæturna bara á jörðinni.
Þetta er nauðsynlegt svo þú
getir haldið ótrauð(ur)
áfram.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að standast allar út-
gjaldafreistingar, því þú
þarft á öllu þínu að halda
sem stendur. Horfðu fram á
veginn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft að koma þér upp
dagbók og skipuleggja tíma
þinn betur. Vertu samt
óhrædd(ur) því þú hefur alla
burði til þess að leysa málin
og klára verkið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það væri gaman að hóa
saman gömlu vinunum og
eiga með þeim kvöldstund
og rifja upp gamlar minn-
ingar. Mundu samt að ekk-
ert fær staðist til eilífðar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þurfir þú á hjálp að halda í
dag muntu auðveldlega fá
samúð annarra. Njóttu þess.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Margar hendur vinna létt
verk en stundum getur
ringulreiðin orðið einum of
mikil. Láttu samt ekki deig-
an síga.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í gær,þriðjudaginn 1. októ-
ber, varð fimmtug Elsa
Jónsdóttir verslunarmaður,
Dælengi 9, Selfossi. Eigin-
maður hennar er Árni Bene-
diktsson verslunarmaður.
Þau taka á móti gestum í
Oddfellow-húsinu, Vallholti
19, Selfossi, laugardaginn 5.
október frá kl. 20.
LJÓÐABROT
ÍSLENDINGALJÓÐ
Land míns föður, landið mitt,
laugað bláum straumi,
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
Þetta auglit elskum vér,
– ævi vor á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.
Hvíslað var um hulduland
hinzt í vestanblænum:
hvítan jökul, svartan sand,
söng í hlíðum grænum.
Ýttu þá á unnarslóð
Austmenn, vermdir frelsisglóð,
fundu ey og urðu þjóð
úti í gullnum sænum.
– – –
Jóhannes úr Kötlum
1. d4 g6 2. e4 Bg7 3. Rc3 c6
4. Be3 d5 5. f3 a6 6. Dd2 b5
7. a3 Be6 8. h4 dxe4 9.
Rxe4 h5 10. Re2 Bd5 11.
Rg5 Bc4 12. 0-0-0 Rd7 13.
Rf4 Rb6 14. d5 Bxf1 15.
Bxb6 Dxb6
Staðan kom upp í Evr-
ópukeppni taflfélaga sem
lauk fyrir skömmu í Halki-
diki í Grikklandi. Graham
Burgess (2.309) hafði hvítt
gegn Ágústi Sindra Karls-
syni (2.347). 16. d6! Bc4.
Kóngur svarts
hefði einnig orðið
of berskjaldaður
eftir 16. – exd6.
17. Dxd6. 17.
d7+ Kd8 18. b3!
Rh6. 18. – Dc5
var ekki mögu-
legt vegna 19.
Da5+ og hvítur
mátar. 19. bxc4
Kc7 20. c5! Da7
20. – Dxc5 gekk
ekki upp vegna
21. Rge6+. Í
framhaldinu
lendir svartur í
ógurlegri úlfa-
kreppu og getur ekki rönd
við reist. 21. Rge6+ fxe6
22. Rxe6+ Kb7 23. Da5
Be5 24. d8=D Haxd8 25.
Hxd8 Hxd8 26. Dxd8 Rf5
27. Hd1 Db8 28. Db6+ og
svartur gafst upp. Loka-
staða efstu sveita varð
þessi: 1.–2. Bosna Sarajevo
og Nirilsky 12 stig af 14
mögulegum 3.–4. Polonia
og NAO 11 stig 5.–7. Don-
bass, Kazan og Skopje 10
stig. Með sigursveitinni
Bosna Sarajevo tefldu
Michael Adams, Alexey
Shirov, Ivan Sokolov, Serg-
ey Mosvesjan, Teymour
Radjabov og Zdenko Kozul.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
SVEITIR Þórólfs Jónas-
sonar og Guðmundar Sv.
Hermannssonar mættust í
undanúrslitum Bikar-
keppninnar á laugardag-
inn. Leikurinn var jafn og
opinn allt til enda, en Guð-
mundur og félagar höfðu
betur og unnu með 18
IMPa mun, 130–112. Sem
er ekki mikill munur í 48
spilum. Lítum á bráð-
skemmtilegt spil úr leikn-
um:
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ G97
♥ Á93
♦ G4
♣KG765
Vestur Austur
♠ D4 ♠ K108652
♥ 62 ♥ D1084
♦ K9875 ♦ 10
♣10984 ♣Á2
Suður
♠ Á3
♥ KG75
♦ ÁD632
♣D3
Á öðru borðinu vakti
liðsmaður Þórólfs í austur
á einum spaða með 9
punkta, en góða skiptingu.
Það var vel heppnuð
ákvörðun, því útspil í spaða
snardrepur þrjú grönd ef
NS láta sér detta í hug að
reyna þann samning. Suð-
ur doblaði og vestur lyfti í
tvo spaða í tvílitinn. Þar
með voru þrjú grönd ekki
lengur inni í myndinni, en
NS teygðu sig full langt og
enduðu í fimm tíglum, sem
vestur merkti með rauða
doblmiðanum. Þrír niður
og 800 til AV.
Hinum megin voru Þór-
ólfur og Björn Þorláksson í
NS gegn Ásmundi Pálssyni
og Guðm. P. Arnarsyni.
Greinarhöfundur kaus að
passa með austurspilin í
upphafi í þeirri von að fá
annað tækifæri síðar. En
það kom aldrei:
Vestur Norður Austur Suður
Ásmundur Þórólfur Guðm. Björn
– Pass Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Þetta var versta þróun
sagna sem hugsast gat fyr-
ir AV, því nú blasti við að
vestur myndi hefja vörnina
með útspili í tígli.
Ásmundur kom út með
tígulsjöu, fjórða hæsta.
Björn stakk upp gosanum,
spilaði laufi á drottninguna
og aftur laufi á kóng blinds
og ás austurs. Nú er gæfu-
ríkast fyrir vörnina ef
austur spilar spaða, en
greinarhöfundur sá litla
framtíð í þeim lit þar sem
makker átti í mesta lagi
tvíspil og skipti yfir í
hjartatíu. Hugmyndin var
að veiða gosann þriðja í
suður. Svo var ekki. Björn
lét gosann, sem hélt. Spil-
aði svo hjarta að Á9 í borði
og velti málinu fyrir sér.
Eftir íhugun taldi hann
ósennilegt að austur hefði
skipt yfir í hjartatíu frá
tvíspili og stakk upp ás.
Tók svo laufgosann og sá
leguna.
Nú var kominn tími til
að telja. Austur hafði
greinilega byrjað með einn
tígul. Hann átti aðeins tví-
spil í laufi og þar með tíu
spil í hálitunum. Fjögur
þeirra virtust vera hjörtu
og þar með voru hin sex
spaðar. Björn sá sér leik á
borði. Hann dúkkaði fyrst
spaða yfir til vesturs. Ás-
mundur tók á lauftíuna og
spilaði sér út á spaða. En
það var aðeins frestun á
hinu óhjákvæmilega, því
nú tók Björn hjartakóng-
inn og spilaði litlum tígli að
heiman. Ásmundur var inni
og þurfti að spila upp í ÁD.
Níu slagir: einn á spaða,
þrír á hjarta, þrír á tígul
og tveir á lauf.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Tvær ungar stúlkur, Sara Dögg Árnadóttir og Pálína
Agnes Kristinsdóttir, héldu á dögunum tombólu. Ágóðinn
rann til Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Suðurlandi. Þær
stöllur afhentu Svani Ingvarssyni ágóðann, alls 3.546 krón-
ur, á stjórnarfundi Sjálfsbjargar fyrir skemmstu, f.v. Pál-
ína Agnes, Jórunn Erla gjaldkeri, Svanur Ingvarsson for-
maður og Sara Dögg.
Hlutavelta
Vanir og óvanir keppnis-
spilarar taka höndum saman
hjá Munin í Sandgerði
Hjá félaginu hefir verið spilað á
fimmtudögum í haust. Nk. fimmtu-
dag lýkur þriggja kvölda tvímenningi
þar sem tvö bestu kvöldin gilda til
verðlauna.
Fimmtudaginn 10. október verður
tvímenningur þar sem vanir og óvan-
ir keppnisspilarar spila saman og
fimmtudaginn 17. október verður
sama snið á en þá spiluð sveitakeppni.
Spilarar bæði vanir og óvanir keppn-
isbrids eru hvattir til að mæta. Einn-
ig má hafa samband við Þröst Þor-
láksson ef spilara vantar samherja.
Að þessum mótum loknum hefst
þriggja kvölda tvímenningur sem
spilaður verður út nóvember.
Fimmtudaginn 5. des. hefst tveggja
kvölda Board-A-Match sveitakeppni
og 19. des. er „Crazy“ brids. Síðasta
spilakvöld ársins er svo laugardaginn
28. desember en þá er spilað svokall-
að Einarsmót til heiðurs elzta spilara
félagsins, Einari Júlíussyni.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, mánud. 23. sept.
2002. 22 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 249
Sigurður Pálss. - Ásta Erlingsd. 240
Hilmar Valdimarss. - Magnús Jósefss. 237
Jón Karlss. - Valur Magnúss. 237
Árangur A-V
Björn E. Péturss. - Hilmar Ólafss. 255
Eysteinn Einarss. - Viggó Nordquist 251
Sæmundur Björnss. - Olíver Kristóferss.243
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 26. sept. 18 pör. Meðal-
skor 216 stig.
Árangur N-S
Sæmundur Björnss. - Olíver Kristóferss.277
Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 265
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 251
Árangur A-V
Alda Hansen - Jón Láruss. 245
Elín Jónsd. - Soffía Theódórsd. 238
Hilmar Valdimarss. - Magnús Jósefss. 229
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnss. 251
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu brids á 11
borðum að Gullsmára 13 mánudag-
inn 30. september sl. Miðlungur 220.
Efst vóru:
NS
Þórhallur Árnas. – Kristinn Guðmundss. 274
Díana Kristjánsd. – Ari Þórðarson 256
Haukur Barnason – Hinrik Láruss. 236
AV
Valdimar Lárusson – Einar Elíasson 235
Heiður Gestsd. – Þórdís Sólmundard. 234
Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónsson 233
Spilað mánu- og fimmtudaga.
Mæting kl. 12.45 á hádegi.
Félag eldri borgara
í Hafnarfirði
Eldri borgarar í Hafnarfirði spila
brids, tvímenning, í Hraunseli,
Flatahrauni 3, tvisvar í viku á þriðju-
dögum og föstudögum.
Það vantar fleiri spilara. Mæting
kl. 13.30.
Spilað var 24. sept. þá urðu úrslit
þessi:
Auðun Guðmunds. – Bragi Guðbjörnss. 115
Sigurlína Águstsd. – Guðm. Guðmunds. 111
Árni Bjarnason – Þorvarðurs. S. Guðm. 109
27. sept.
Árni Bjarnason – Þorvarðurs. S. Guðm. 84
Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannsson 70
Árni Guðmundss. – Sigurlína Ágústsd. 69
Það vantar fleiri spilara.
Fundur vegna prófkjörs
Fundur í Verði - Fulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
verður haldinn í Valhöll
miðvikudaginn 9. október kl. 17.30.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar Varðar - Fulltrúaráðsins um
að fram skuli fara sameiginlegt prófkjör í
Reykjavíkurkjördæmunum tveimur vegna framboðs til
alþingiskosninganna vorið 2002.
2. Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins,
Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra.
Vinsamlega athugið að fundurinn er eingöngu opinn þeim er
setu eiga í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Stjórnin.
Vörður
- Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
Kjördæmisráð Norðvesturkjördæmis ákvað á aðalfundi sínum 28.-29.
september sl. að viðhafa prófkjör við val frambjóðenda til alþingiskosninga
10. maí 2003. Prófkjörið verður haldið 9. nóvember 2002.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð er tillaga til kjörnefndar fyrir fimmtudaginn 10. október nk.
kl. 18.00. Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn
flokksmann.
b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar
frambjóðendum skv. a-lið hér að ofan.
Í samræmi við prófkjörsreglur Sjálfstæðisflokksins er hér með auglýst eftir
frambjóðendum vegna prófkjörsins skv. a-lið. Tilkynningum um framboð skal
skilað skriflega, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu æviágripi, til formanns
kjörnefndar, Jóhanns Kjartanssonar, Gunnlaugsgötu 16, 310 Borgarnesi.
Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir
skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs.
Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosningum. Framboð
skal vera borið fram af 20 flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
Nánar verður auglýst síðar hvar kjörstaðir verða, hvar kjörskrár munu liggja
frammi, hvar utankjörfundarskrifstofa verður staðsett o.s.frv.
Frekari upplýsingar um prófkjörið er hægt að fá hjá formanni
kjörnefndar eða á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir
frambjóðendum vegna prófkjörs
fyrir alþingiskosningar vorið 2003