Morgunblaðið - 15.10.2002, Qupperneq 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KONANGI Veera Babu er tíu ára
indverskur drengur sem hefur alist
upp við mikla fátækt. Nýlega breytt-
ust þó aðstæður hans verulega þegar
hópur krakka í Laugarneshverfi
ákvað að gerast fóstursystkini hans
með því að styrkja hann til betra lífs.
Babu dvelur á heimili sem rekið er
á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar
um 30 kílómetrum frá þorpinu Mup-
palla þar sem hann ólst upp. Í gær
hófu krakkarnir í TTT (sem útleggst
„tíu til tólf ára“) í Laugarneshverfi
söfnun fyrir þennan nýja vin sinn
með því að halda flóamarkað í kirkj-
unni sinni, Laugarneskirkju.
Þegar litið er inn á markaðinn úir
og grúir af alls kyns dóti á borðum
sem stillt hefur verið upp í safnaðar-
heimilinu; púsluspilum, litum, bolla-
súpum, hárskrauti, tindátum og svo
má lengi telja. Bak við borðin standa
lágvaxnir sölumenn sem leggja sig
alla fram um að bjóða varninginn og
verðið er ákaflega sanngjarnt. Inn á
milli er svo gert hlé til að koma
skemmtiatriðum á borð við hljóð-
færaleik og dans að.
Fær peninga til að kaupa
mat og ganga í skóla
„Við erum búin að safna 10 þús-
undum og eitthvað sem dugar fyrir
hann í fjóra eða fimm mánuði,“ segir
Selma Harðardóttir, sem er 11 ára
og er þar að vísa til heildarsölunnar á
markaðinum fyrsta klukkutímann.
„Við gætum kannski náð inn hálfu
ári.“
Jafnaldri hennar, Heiðar Jónsson,
uppfræðir blaðamann um þaðhvað
gera skuli við aurana. „Við ætlum að
senda þá út og þá fær Babu pening
til að kaupa mat og ganga í skóla og
svoleiðis.“
Krakkarnir eru mjög ánægðir
með söluna enda úrvalið fjölbreytt.
„Þetta er alls konar dót sem við leik-
um okkur ekki lengur með og yngri
krakkar vilja kannski nota,“ segir
Heiðar sem er að hjálpa vinum sín-
um að selja varning á borð við Póké-
mon spil og fleira forvitnilegt. Selma
og vinkonur hennar bökuðu hins
vegar kökur. „Síðan kom ég með alls
konar liti og svoleiðis dót,“ segir hún.
En hverjir kaupa svo varninginn?
„Það eru aðrir krakkar sem eru að
selja ekki neitt,“ útskýrir Heiðar
þolinmóður fyrir blaðamanni.
Krakkarnir segjast ætla í fram-
haldinu að skrifa Babu bréf í félagi
við vini sína og eru ekki í vandræðum
með hvernig frekara fjármagni verð-
ur safnað þegar markaðspeningarnir
ganga til þurrðar. „Við getum safnað
flöskum,“ segir Selma ákveðin. „Það
voru strákar sem gerðu það og létu
700 krónur í söfnunina,“ bætir hún
við og finnst greinilega mikið til
komið. „Svo getur maður safnað
peningum fyrir hann heima hjá sér
með því að hjálpa mömmu sinni eða
eitthvað,“ segir Heiðar.
Þau segjast alveg til í að láta svo-
leiðis laun ganga til nýja vinarins á
Indlandi. „Það er betra en að eyða í
nammi,“ segir Selma skælbrosandi
og Heiðar tekur undir enda sammála
um að þannig megi slá tvær flugur í
einu höggi, passa upp á tennurnar og
styrkja gott málefni.
Reyndar kom í ljós í lok dags að
nokkuð er í að krakkarnir þurfi að
fara að huga að nýjum tekjumögu-
leikum því markaðurinn skilaði
20.500 krónum til handa Babu vini
þeirra sem dugar til framfærslu
hans í tíu mánuði.
Tíu til tólf ára börn styrkja fátækan indverskan dreng til betra lífs í heimalandi sínu
„Betra en
að eyða í
nammi“
Indverski drengurinn Konangi
Veera Babu eignaðist nýverið tugi
vina sem allir eiga heima í Laug-
arneshverfinu á Íslandi.
Jón Birgir Gunnarsson, formaður foreldrafélagsins, og séra Bjarni Karls-
son, sóknarprestur í Laugarneskirkju: Kirkjan og foreldrarnir hafa skipu-
lagt uppákomur í tengslum við ýmsa óhefðbundna daga í skólanum.
Morgunblaðið/Sverrir
Selma Harðardóttir og Heiðar Jónsson ætla að skrifa Babu bréf og hyggjast halda áfram söfnuninni fyrir hann.
Laugarneshverfi
SÖFNUNARÁTAKIÐ fyrir Babu
er samstarfsverkefni Laugarnes-
kirkju og Foreldrafélags Laug-
arnesskóla en að sögn Jóns
Birgis Gunnarssonar, formanns
félagsins var frumkvæðið kirkj-
unnar. „TTT, sem eru tíu til tólf
ára krakkar í kirkjunni, eru
búnir að vera að undirbúa mark-
aðinn en hann er byrjunin á
söfnuninni. Við í foreldrafélag-
inu höfum svo reynt að vera
dugleg að starfa með kirkj-
unni.“
Markaðurinn var skipulagður
í tengslum við starfsdag í skól-
anum og hefur slíkt samstarf átt
sér stað milli kirkjunnar og for-
eldrafélagsins áður. „Það þarf
að brúa þetta bil því krakkarnir
eru svolítið í lausu lofti þegar
þessir dagar eru. Reyndar byrj-
aði þetta með öskudeginum en
þá var mikið grímuball hér í
kirkjunni þar sem var eiginlega
betri mæting en húsið leyfði.“
Svo hefur kirkjan staðið fyrir
vorferð í samstarfi við foreldra-
félagið þar sem börnum og eldri
borgurum var boðið með.“
Hann tekur þó fram að ekki sé
skipulögð dagskrá alla starfs-
daga í skólanum. „En við erum
alltaf að taka meira og meira
upp í því sambandi,“ segir hann.
Samstarf
kirkju og
foreldra
STEFNT er að breyttum
áherslum í kynningar- og sam-
ráðsferli skipulagsmála í borg-
inni en skipulags- og bygginga-
nefnd samþykkti í síðustu viku
að setja á fót starfshóp sem ynni
að því máli. Í bókun formanns
nefndarinnar segir að undirbún-
ingsvinna varðandi slíkar breyt-
ingar hafi staðið yfir að und-
anförnu.
Það voru sjálfstæðismenn sem
lögðu fram tillögu á fundinum
þess efnis að stofnaður yrði
starfshópur til þess að gera til-
lögur um breytingar á verklagi
við kynningu á aðal- og deili-
skipulagi með það að markmiði
að íbúar og hagsmunaaðilar
kæmu að málum á fyrsta stigi
skipulagsvinnunnar.
Fagnar samstarfi
við minnihluta
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, að það lægi fyrir að núver-
andi vinnulag, eins og það birtist
t.d. í Norðlingaholti, Suðurhlíð-
um, áætlunum um Landssímahús
o.fl. væri ekki í þágu íbúanna og
hagsmunaaðila.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
formaður skipulags- og bygg-
inganefndar, sagði að hún fagn-
aði tillögu minnihlutans, með
henni væri hann að lýsa því yfir
að hann vildi starfa með meiri-
hlutanum sem hefði m.a. lagt
áherslu á þetta í aðdraganda
kosninganna í vor. „Ég hef sjálf
talað fyrir því í skipulagsnefnd,
og á fundum, þar með talið á
fundinum um skipulagsmál í
Norðlingaholti, að við þurfum að
vinna með öðrum hætti að skipu-
lagsmálum en gert hefur verið.“
Í breytingartillögu hennar frá
því á fundinum í síðustu viku
segir að um nokkurt skeið hafi
undirbúningsvinna staðið yfir um
samráðsferli í skipulagsmálum
sem geri ráð fyrir breyttum
áherslum í þeim efnum. Sjálfsagt
væri að skipa formlegan starfs-
hóp sem kæmi að þeirri vinnu.
Var tillagan samþykkt en hún
gerir ráð fyrir því að í hópnum
sitji einn kjörinn fulltrúi frá
meirihluta og annar frá minni-
hluta auk formanns nefndarinnar
og sviðsstjóra skipulags- og
byggingasviðs.
Hagsmunaaðilar
komi fyrr að
skipulagsmálum
Reykjavík