Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 25

Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 25 FINNSKIR rannsóknarlögreglu- menn, sem rannsaka sjálfsmorðs- sprengjutilræðið sem ungur finnskur námsmaður framdi í verzlanamiðstöð í Vantaa hjá Hels- inki á föstudag, kveðast engu nær um það hvað tilræðismanninum hafi gengið til. Ásamt sjálfum sér banaði hann sex manns, þar á meðal einu barni, og slasaði hátt í 100. Finnskir fjölmiðlar greindu frá því í gær, að hinn 19 ára gamli efnafræðistúdent Petri Erkki Tap- io Gerdt, sem lögreglan upplýsti að hefði framið verknaðinn, hefði verið tíður gestur á heimasíðu á Netinu þar sem finna má leiðbein- ingar um sprengjugerð. Hin heimasmíðaða sprengja innihélt allt að tvö kíló af sprengi- efni og var málmhöglum blandað í það til að sprengjan ylli hámarks- manntjóni. „Lögreglan er að rannsaka net- spjallsíðu fólks sem hefur áhuga á efnafræði og heimagerðum sprengiefnum,“ skrifar Hufvud- stadsbladet, sem gefið er út á sænsku í Helsinki, í gær. Blaðið hefur það eftir Tero Haapala, sem stýrir rannsókninni, að þetta sé eitt þeirra spora sem lögreglan sé að kanna. Á sunnudag hafði Haapala ekki viljað staðfesta að tilræðismaður- inn hefði sótt leiðbeiningar um sprengjugerð á Netið, en sagði að tölvugögn, sem gerð hefðu verið upptæk á heimili hans, yrðu tekin til nánari rannsóknar eftir helgina. Var einn að verki Tilræðið átti sér stað á jarðhæð Myyrmanni-verzlanamiðstöðvar- innar í Myyrmäki-hverfinu (Myr- backa á sænsku) í Vantaa, 12 km norður af Helsinki, á miklum ann- atíma sl. föstudagskvöld. Er talið að um 2.000 manns hafi verið þar innandyra er sprengjan sprakk. Margir hinna særðu voru enn á sjúkrahúsi í gær, en enginn lengur í lífshættu. Á meðal hinna alvar- legast slösuðu eru átta börn. Hinn 19 ára gamli efnafræði- stúdent Gerdt bjó heima hjá for- eldrum sínum í einbýlishúsahverfi í Dickursby, öðrum útbæ Helsinki, og hafði aldrei áður komið við sögu lögreglu. Af þeim vísbendingum að dæma sem lögregla fann heima hjá honum var hann einn að verki og tengdist fórnarlömbum tilræðisins ekki á neinn hátt. „Það var ekkert sérstakt við persónuleika hans,“ sagði Haapala. Samkvæmt upplýsingum Hufv- udstadsbladet var tilræðismaður- inn fámáll og hlédrægur og stund- aði körfuknattleik. Hann útskrifaðist stúdent sl. vor og hóf í september nám í efnafræði við fagháskólann EVTEK, sem er rétt hjá verzlanamiðstöðinni á Mýrar- bakka. „Hann var næstum því of venju- legur,“ hefur blaðið eftir einum af skólabræðrum hans. Segir blaðið skólafélaga Gerdts ennfremur hafa sagt að skammt væri síðan slitnað hefði upp úr sambandi hans og vinkonu hans. Rannsóknin á sprengjutilræðinu í Finnlandi Engu nær um tilefnið Tilræðismað- urinn sagður hafa aflað sér leiðbeininga um sprengju- gerð á Netinu Helsinki. AFP. Reuters Lögreglubifreið fyrir utan heimili hins 19 ára gamla tilræðismanns í Dick- ursby við Helsinki um helgina. Sjö manns biðu bana í sprengjutilræðinu. Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 533 2020 www.vatnsvirkinn.is HAUSTTILBOÐ 20-40% afsláttur af hreinlætistækjum, stálvöskum, sturtuklefum, sturtuhurðum, blöndunartækjum, baðáhöldum o.fl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.