Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 27

Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 27 WISH Litir: Svart og brúnt - St. 40-47 Verð 8.990 CAESAR Litir: Svart, brúnt og drapplitað St. 40-47 Verð 10.990 EVELYN Litir: Svart, rautt og hvítt St. 36-41 Verð 8.990 WHAM Litir: Hvítt/rautt, blátt/grátt og svart/hvítt - St. 36-41 Verð 7.990 DOLL Litir: Svart, drapplitað og grátt - St. 36-41 Verð 8.990 SOLDIER Litir: Svart, blátt, rautt og hvítt - St. 36-41 Verð 8.990 SOOZIE Litur: Svart - St. 36-41 Verð 11.990 Kringlunni - Laugavegi 568 9017 511 1717 533 1727 S K Ó R N I R K O M N I R 4. flokki 1992 – 36. útdráttur 4. flokki 1994 – 29. útdráttur 2. flokki 1995 – 27. útdráttur Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Koma þessi bréf til innlausnar 15. desember 2002. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. Útdráttur húsbréfa Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is BRESK stjórnvöld leystu í gær upp heimastjórnina á Norður-Ír- landi en þetta er í fjórða skipti frá því að samið var um frið í hér- aðinu vorið 1998 sem þau hafa neyðst til að grípa til þessa úrræðis. Ákvörð- unin tók gildi á miðnætti en John Reid, ráðherra Norður-Írlandsmála, kvaðst vona að hægt yrði að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið innan skamms. „Ég vona að ákvörðun mín í dag gefi mönnum tíma til að draga andann djúpt – öðlast nýjan kraft – svo fleyta megi friðarferlinu fram á við á ný,“ sagði Reid þegar hann til- kynnti um ákvörðun sína í gær. Sakaðir um njósnir Ástæður þess að heimastjórnin var leyst upp að þessu sinni víkja að ásökunum í garð erindreka Sinn Féin, stjórnmálaarms Írska lýðveldishersins (IRA), um að þeir hafi stundað njósnir fyrir IRA á skrifstofum heimastjórn- arþingsins í Belfast. Hafa fjórir embættismenn Sinn Féin verið ákærðir í málinu. Sambandssinnar á Norður-Írlandi höfðu krafist þess að tveimur fulltrúum Sinn Féin í stjórninni yrði gert að standa upp úr stólum sínum vegna málsins. Þar sem flokkur SDLP, flokkur hófsamra kaþól- ikka, var ekki reiðubúinn til að styðja slíkar aðgerðir ákváðu bresk stjórnvöld að leysa heima- stjórnina upp tímabundið, í von um að finna megi lausn á vand- anum, fremur en horfa upp á að tilraunir kaþólikka og mótmæl- enda til að stjórna í héraðinu í sameiningu færu algerlega út um þúfur. Heimastjórnin á Norður-Ír- landi leyst upp Belfast. AFP. John Reid LÖGREGLAN í Maryland í Banda- ríkjunum hefur fengið margar vís- bendingar eftir að hún birti mynd eða teikningu af sendibíl, sem sést hefur nærri þeim stöðum þar sem leyniskytta hefur myrt átta manns og sært tvo. Er mikill ótti meðal fólks í Washington og nágrenni en athygli vekur, að morðinginn lét ekkert á sér kræla um síðustu helgi, ekki fremur en þá fyrri. Lögreglan birti teikningu af bíln- um á laugardag en hún sýnir hvítan sendibíl með máðu lakki, dældaðan afturstuðara og með ill- eða ólæsi- legu letri á hliðum. Samkvæmt lýs- ingu vitnis var slíkum bíl ekið á miklum hraða burt af bílastæði í Silver Spring í Maryland 3. október sl. rétt eftir að 34 ára kona var skot- in þar til bana. Voru tveir menn í bílnum að sögn vitnisins. Lögreglan ætlar einnig að birta teikningu af öðrum bíl, litlum sendibíl af gerðinni Chevrolet Astro, sem sást nálægt einum morðstaðnum og að auki leitar hún að gömlum bíl af gerðinni Chevr- olet Caprice. Tekur sér „helgarfrí“ Athygli vakti um fyrri helgi, að morðinginn lét þá ekkert á sér bæra en strax á mánudeginum skaut hann á og særði alvarlega 13 ára dreng. Þannig var það líka um síðustu helgi, að hann hafði hljótt um sig á laugardag og sunnudag, og því voru menn búnir undir það versta í gær. Glæpasérfræðingar telja, að hugsanlega segi þetta eitt- hvað um morðingjann og geta sér til, að hann búi á Maryland-svæðinu og stundi vinnu, sem skýri „helg- arfríin“. Aðrar vísbendingar um morðingjann eru helst þær, að hann leitar gjarnan fórnarlambanna á bensínstöðvum og til þessa hefur hann ekki látið tvo virka daga líða án þess að reyna að myrða ein- hvern. Þar að auki fannst tarot-spil, svokallað dauðaspil, á einum morð- staðnum. Á það hafði verið skrifað: „Kæri lögreglumaður! Ég er guð.“ Að síðustu má nefna, að í öll skiptin var notaður árásarriffill með 5,56 mm hlaupvídd. Eftirgrennslan innan hersins og athugun á mönnum, sem þjálfaðir hafa verið sérstaklega sem leyni- skyttur, hefur engan árangur borið enda segja talsmenn hers og lög- reglu, að líklegast sé, að morðing- inn hafi séð um sína eigin þjálfun í meðferð skotvopna. Ástandið verra en eftir hryðjuverkin Á öllu Washington-svæðinu og raunar víða ríkir mikill ótti meðal fólks og í skoðanakönnun, sem birt- ist í tímaritinu Newsweek, kemur fram, að almenningur óttast nú morðóðar leyniskyttur meira en hryðjuverk og hefur meiri áhyggj- ur af þeim en ástandinu í efnahags- og atvinnumálum. Fólk reynir að forðast bensín- stöðvar, einkum sjálfsafgreiðslu- stöðvar í úthverfunum, en sums staðar hafa félagar í Verndarengl- unum, samtökum, sem vinna að samfélagsmálum, tekið að sér að dæla bensíni á bíla. Fólk er líka tek- ið að sneiða hjá opnum leikvöllum og veitingahúsum og heilsuræktar- stöðvum með stóra glugga. „Ástandið er verra en eftir hryðjuverkin í fyrra. Enginn veit á hverju hann getur átt von og það er eins og fólk vilji helst fara í felur,“ sagði Mary Kay Rick. Hún starfar sem leiðsögumaður gönguhópa en sú iðja hefur nú lagst niður á Wash- ington-svæðinu. Í skólum á svæðinu er nemend- um bannað að fara út í frímínútum og skólaferðir er engar, ekki frem- ur en margs konar aðrar samkomur og atburðir utandyra. Nú vinna að rannsókn þessa máls meira en 1.000 lögreglumenn og hafa verðlaun fyrir vísbendingar, sem leitt geta til handtöku ódæð- ismannsins, verið hækkuð í hálfa milljón dollara, um 43,5 milljónir ísl. kr. Óttinn við leyniskyttur meiri en við hryðjuverk AP Maður í hlífðarfatnaði hreinsar bensíndælu á stöð þar sem eitt morðanna var framið. Fólk á Washington-svæðinu reynir að forðast bensínstöðvar. AP Þessa mynd hefur lögreglan birt og á bíllinn að líkjast þeim, sem morðing- inn notar. Hann hefur myrt átta manns í Washington og nágrenni. Washington. AP, AFP. Meira en 1.000 lögreglumenn leita fjöldamorðingjans í Bandaríkjunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.