Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 44
FRÉTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Afgreiðslustarf
Okkur vantar nú þegar góðan starfsmann til af-
greiðslustarfa. Upplýsingar gefa Kristjana í síma
699 5423 eða Margrét í síma 561 1433.
TILKYNNINGAR
Jóga sem lífsstíll
á 21. öldinni
3. Tilfinningaleg tengsl —
fyrirlestur — 2 tímar
í kvöld kl. 20.10 á Grand Hóteli.
Hluti af 14 vikna námskeiði. Hægt er að kaupa
sig inn á stakan fyrirlestur á kr. 2.200.
Jóga hjá Guðjóni Bergmann.
Nánari upplýsingar á www.gbergmann.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Samstarf
Íþróttafélagið Fylkir, fyrir hönd allra deilda
þess, leitar að samstarfsaðila með keppnis-
og íþróttavörur.
Áhugasamir geta fengið upplýsingar um
áætlaða þörf félagsins, auk nánari upplýsinga
hjá framkvæmdastjóra félagsins í Fylkishöll
milli kl. 08.00 og 16.00 virka daga.
Upplýsingar verða afhentar til föstudagsins
18. október nk. Tilboðum skal skilað eigi síðar
en fimmtudaginn 24. október kl. 12.00 á skrif-
stofu framkvæmdastjóra.
Íþróttafélagið Fylkir,
Fylkisvegi 6,
110 Reykjavík.
ERNA Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, SAF, og Jón Karl
Ólafsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Íslands, hafa und-
irritað samning um vildarkjör
fyrir félagsmenn SAF. Flug-
félagið gefur út Flugkort – raf-
rænt greiðslu- og viðskiptakort í
þessu skyni og veitir það fé-
lagsmönnum 25% afslátt af fullu
flugverði, kortið veitir forgang á
biðlista, afslátt hjá samstarfsfyr-
irtækjum Flugkortsins s.s. hót-
elum og bílaleigum, 15% afslátt
af frakt o.fl.
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón
Karl Ólafsson, forstjóri Flugfélags Íslands, undirrituðu samning um vild-
arkjör fyrir félagsmenn SAF.
SAF og Flugfélag Íslands
semja um vildarkjör
KRABBAMEINSFÉLAG Hafnar-
fjarðar og Samhjálp kvenna, hópur
til stuðnings konum sem greinast
með brjóstakrabbamein, boða til
sameiginlegs fræðslufundar í
Strandbergi, safnaðarheimili Hafn-
arfjarðarkirkju við Strandgötu, í
dag, þriðjudaginn 15. október, kl. 20.
Áður en fundurinn hefst verður
kveikt á bleikri lýsingu á kirkjunni, í
tilefni af árveknisátaki um brjósta-
krabbamein, og mun séra Þórhildur
Ólafs flytja stutta hugvekju.
Anna Pálína Árnadóttir vísna-
söngkona segir frá reynslu sinni af
sjúkdómnum. Pallborðsumræður
með þátttöku Önnu Pálínu, Önnu
Bjargar Halldórsdóttur röntgen-
læknis, Guðrúnar Sigurjónsdóttur
formanns Samhjálpar kvenna og
Helga Sigurðssonar krabbameins-
læknis. Kaffiveitingar eru í boði
Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar,
segir í fréttatilkynningu.
Fræðslufundur
um brjósta-
krabbamein
LAUF, félag flogaveikra, heldur
námskeið um að lifa með flogaveiki
mánudaginn 21. október. Er það ætl-
að fólki á aldrinum 18 til 25 ára.
Leiðbeinandi er Jónína Björg
Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi. Um
er að ræða 7 vikna námskeið þar sem
hópurinn hittist vikulega. Skráning
er á skrifstofu félagsins, segir í
fréttatilkynningu.
Að lifa með
flogaveiki
UM ÞRIÐJUNGUR starfsmanna
finnur fyrir vanlíðan sem rekja má til
vinnustreitu. Þess vegna verður
sjónum beint að vinnustreitu á Evr-
ópsku vinnuverndarvikunni, 21.–25
október.
Evrópska vinnuverndarstofnunin
átti frumkvæðið að vinnuverndará-
takinu sem framkvæmt er í öllum
Evrópulöndum nú í október. Átakið
ber yfirskriftina „Vinna gegn
streitu“. Á Íslandi sér Vinnueftirlitið
um framkvæmd átaksins.
Í frétt frá Vinnueftirlitinu segir að
orsakir vinnustreitu geti verið
margs konar, þ.m.t. inntak vinnunn-
ar, vinnuaðstæður, of mörg verkefni,
óljós verkaskipting, of lítið sjálfræði
og fleiri þættir sem tengjast vinnu-
skipulagi. Íslensk rannsókn, sem
Gallup gerði í samvinnu við Vinnu-
eftirlitið fyrr á þessu ári, sýndi að um
27% starfsmanna segjast oft eða allt-
af búa við vinnustreitu, sem svipar til
þess sem er í öðrum Evrópulöndum,
og 42% segjast hafa of mikið að gera
í vinnunni. „Það að vera undir tíma-
bundinni pressu getur verið bæði
gagnlegt og gaman, einkum þegar
tekist er á við verkefni sem fela í sér
jákvæða áskorun. En ef streitan
verður mikil og á sér stað yfir langan
tíma getur hún haft í för með sér
veruleg óþægindi fyrir starfsmenn
og jafnvel valdið alvarlegum heilsu-
farsvandamálum, aukinni fjarveru
frá vinnu og dregið úr starfsánægju.
Streita getur því haft mikinn kostn-
að í för með sér, bæði fyrir starfs-
menn og fyrirtæki,“ segir í frétt
Vinnueftirlitsins.
Heimsókn í fyrirtæki
Starfsmenn og stjórnendur á
vinnustöðum eru hvattir til að efna
til umræðna um hvernig hægt er að
vinna gegn streitu og stuðla þannig
að öruggari og heilsusamlegri vinnu-
stöðum.
Í vinnuverndarvikunni mun
Vinnueftirlitið heimsækja fyrirtæki
og ræða við stjórnendur og fulltrúa
starfsmanna um vinnustreitu og
kynna fræðsluefni.
Mánudaginn 21. október nk. verð-
ur haldinn opinn morgunverðarfund-
ur undir kjörorðinu Vinna gegn
streitu. Fundurinn verður á Grand
hóteli í Reykjavík kl. 8:30–10. Þar
verður m.a. fjallað um tálsýnina um
tímasparnað tækninnar, tilfinninga-
viðbrögð og hegðun og forvarnir
gegn streitu á vinnustöðum. Þátt-
tökugjald er kr. 2000 og morgun-
verður er innifalinn í því. Þátttak-
endur þurfa að skrá sig fyrir
kl. 16 föstudaginn 18. okt. nk. í
síma 550 4600 eða senda upplýsingar
um nafn og vinnustað á netfangið
vinnueftirlit@ver.is.
Evrópska vinnuverndarvikan
beinist í ár gegn vinnustreitu
Tæplega þriðjung-
ur Íslendinga býr
við vinnustreitu
FRÆÐSLUFUNDUR verður
haldinn hjá Foreldrafélagi mis-
þroska barna í dag, þriðjudag-
inn 15. október, kl. 20, í aðalsal
safnaðarheimilis Háteigs-
kirkju.
Stefán J. Hreiðarsson barna-
læknir fjallar um fylgiraskanir
athyglisbrests með eða án of-
virkni, s.s. hegðunarröskun,
kvíða og þunglyndi.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Foreldrafélag
misþroska
barna fundar
Fyrsti fundur ungra Vinstri-
Grænna um velferðarmál. Fram-
sögumenn: Garðar Sverrirsson, for-
maður Öryrkjabandalag Íslands, og
Sigursteinn Másson, formaður Geð-
hjálpar. Fundurinn verður á Hótel
Loftleiðum miðvikudaginn 16. októ-
ber kl. 20 í þingsal 8 og er öllum op-
inn. Fundurinn markar upphafið að
málefnastarfi UVG en hreyfingin
hefur sett velferðarmál á oddinn fyr-
ir komandi alþingiskosningar og á
þessi fundur að veita innsýn í nokk-
ur þeirra viðfangsefna sem þar blasa
við.
Kaffi verður á boðstólum. Allir eru
velkomnir.
Í DAG STJÓRNMÁL
Aðalfundur VG í Kópavogi verður
haldinn miðvikudagskvöldið 23.
október kl. 20.30 í sal Kvenfélags
Kópavogs, Hamraborg 10. Gengið
inn baka til. Á dagskrá venjuleg að-
alfundarstörf.
Áhrif atvinnu-
missis á
líðan fólks
BISKUPSSTOFA stendur fyrir
fræðslu- og umræðufundi í Hall-
grímskirkju miðvikudaginn 16. októ-
ber kl. 13.30 um atvinnumissi – áhrif
hans á líðan fólks og hvernig skyn-
samlegt er að bregðast við. Fyrir-
lestur heldur Pétur Tyrfingsson sál-
fræðingur. Þátttakendum verður
gefinn kostur á umræðum sem
skipulagðar verða í samræmi við
fjölda fundargesta. Fundarstjóri er
Bryndís Valbjarnardóttir guðfræð-
ingur. Allir velkomnir.
GRASAGARÐUR Reykjavíkur og
Garðyrkjuskóli ríkisins hafa gert
með sér samstarfssamning. Nem-
endur Garðyrkjuskólans fá kennslu
í Grasagarðinum um íslenskar
plöntur auk þess sem sérhver
námsbraut fær fræðslu og verkefni
sem sniðin er að viðkomandi braut.
Í staðinn munu nemendur vinna
að stein- og torfhleðslu fyrir Grasa-
garðinn í verklegum tímum undir
leiðsögn kennara Garðyrkjuskól-
ans. Tveggja ára bóklegt nám við
Garðyrkjuskóla ríkisins hófst í
september og eru námsbrautir sex;
skrúðgarðyrkju-, umhverfis-, skóg-
ræktar-, garðplöntu-, ylræktar- og
blómaskreytingarbraut.
Við undirritun í garðskála Grasagarðsins. Nokkrir af nemendum
Garðyrkjuskólans og starfsmönnum Grasagarðsins, fremstir til vinstri
Þórólfur Jónsson deildarstjóri og Sveinn Aðalsteinsson skólameistari.
Samið um garðyrkju