Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 48

Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                        !         BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. EIN aðalfrétt ríkissjónvarpsins miðvikudaginn 9. okt. snerist um „nýsannaða“ skaðsemi hormóna- meðferðar; meðul sem hingað til hafa verið ráðlögð konum, bæði til að bæta úr vanlíðan sem skapast við hormónatap við tíðahvörf, einn- ig til varnar gegn beinþynningu og hjarta- og æðasjúkdómum. Konum, sem leitað hafa til sérfræðinga á sviði kvensjúkdóma, hefur verið ráðlagt að nýta sér hormónalyf, jafnvel þótt einhverjar líkur hafi talist á að þær geti ýtt undir hættu á brjóstakrabbameini. Þessari frétt var síðan fylgt eftir í Kastljósi Sjónvarpsins kvöldið eftir. Þar voru til kvaddir tveir sér- fræðingar, prófessor í heimilis- lækningum og sérfræðingur í kven- sjúkdómum, og voru þeir spurðir af tveimur stjórnendum Kastljóssins. Er skemmst frá því að segja að á ísmeygilegan hátt var því komið á framfæri að hin mikla notkun hormóna stafaði ekki af því að læknar hefðu ráðlagt konum, sem til þeirra leituðu vegna vanlíðunar, hormóna, heldur vegna ágangs kvenna sem vildu halda í æsku- blóma með inntöku hormóna! Mér blöskraði svo hvernig þess- ar umræður fleyttu allri ábyrgð yf- ir á konur, ábyrgð á að eyða millj- ónum úr heilbrigðiskerfinu til að „púkka upp á útlitið“. Það að konur hafi leitað til lækna vegna vanlíð- unar, allt frá smávægilegum óþæg- indum upp í alvarleg andleg og lík- amleg veikindi, átti þarna lítt upp á pallborðið. Hormónagjöf hafi ekki verið beitt til lækninga, heldur var hér um lítið annað að ræða en þjóna hégómagirnd kvenna sem vildu viðhalda æskublóma og ung- legu útliti. Engin kona var tilkvödd í þessar umræður, hvorki læknir, þ.e. sér- fræðingur á þessu sviði, né hinn skeleggi, réttsýni og vel máli farni stjórnandi Kastljóss, Eva María, sem hefði eflaust liðið „sérfræðing- unum“ þennan ísmeygilega heila- þvott. Eflaust á eftir að kynna frekar niðurstöður þessara nýju rann- sókna og er illt til þess að vita, að niðurstöður geti svo gjörsamlega snúist við; í gær voru hormónar fyrirbyggjandi gagnvart hjarta- og æðasjúkdómum, í dag stórauka þeir hættuna. Hvað sem rétt er í þessu, hafa læknar hingað til ráð- lagt hormóna, mælt með þeim í góðri trú og það hefur verið megin ástæða þess að konur hafa tekið þá inn, þrátt fyrir að þeir hafi um leið haft ýmsar aukaverkanir, svo sem þyngdaraukningu og vökvasöfnun, sem telst nú e.t.v. hluti af því að viðhalda æskublómanum! ÁSRÚN DAVÍÐSDÓTTIR, Sunnubraut 18, Kópavogi. Hormónar til góðs eða ills Frá Ásrúnu Davíðsdóttur: Í ÁRDAGA mælti Kristur: „Gangið inn um þrönga og mjóa veginn“ og hann varaði jafnfamt við breiða veg- inum sem fjöld- inn streymdi eft- ir. Á þetta ekki einnig við í dag. Sterk öfl þrýsta ungu efnisfólki að þeim eiturnautn- um sem viðheldur böli mannkyns. Þrýstingurinn eykst frekar en hitt og allt of margir ánetjast áfengi og eiturlyfj- um, slökkva öll ljós í óhörnuðum sál- um. Jafnvel kirkjan okkar er orðlaus og á einatt erfiðara með að boða Guðs orð hreint og ómengað. Boð- skapurinn steytir á skerjum þar á bæ og til að halda fólkinu góðu verð- ur að fara milliveginn til að styggja sem fæsta og gæta þess að verða ekki dæmd fyrir hroka og þröng- sýni. Væru ekki félagslegar aðstæður flestra viðunandi ef við færum veg- inn sem Kristur benti okkur á og ávallt heldur gildi sínu. Amos spámaður sagði þessi fleygu orð: „Getur fuglinn komist í gildruna á jörðinni ef engin snara er þar fyrir hann og hrekkur snaran upp af jörð- inni nema að eitthvað hafi í hana fengist?“ Nú heyrir maður lítið talað um að bera hvers annars byrðar eða leggj- ast á eitt með að leiðbeina um holla og heilnæma vegi. Þess í stað eru lagðar snörur fyrir fólkið og jafnvel gerist það á Alþingi að kraftar og málæði þingmanna fara í að koma áfenginu nær neytandanum. Þetta kalla ég að sofna á verðinum og halda sig stikkfrí gagnvart þeim al- varlegu afleiðingum sem lög þeirra geta leitt af sér. Ég hef oft bent á það að því nær sem áfengið er manninum því fyrr og þeim mun meira hallar á ógæfu- hliðina. Og þeir veikustu fá ekki við neitt ráðið. Hvað stoðar þá að efla lögreglu og löggæslu þegar siðferð- ismatið er á hröðu undanhaldi hjá háum sem lágum. Ránsmenn helteknir vímu eitur- lyfja og áfengis ráfa blindgötuna og enginn borgari virðist óhultur í sínu nánasta umhverfi. Þjóðin þarf og hún getur tekið á gegn spillingu til að upphefja bætt þjóðlíf. Hver tími er dýrmætur og enginn hefur efni á að eyða honum á glapstigum Bakkusar. Bindindi er farsælasta og hagsýnasta lausnin. ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Eitrið viðheldur böli mannkyns Frá Árna Helgasyni: Árni Helgason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.