Morgunblaðið - 15.10.2002, Page 55

Morgunblaðið - 15.10.2002, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 55 AFKVÆMI guðanna vöktu athygli á síðasta ári fyrir breiðskífu sína Dæmisögur, en lag af henni varð meðal annars vinsælt meðal hiphop- vina. Á næstu dögum kemur út ný breiðskífa Afkvæmanna, Ævisögur, en sveitin leikur einnig á sérstöku hiphopkvöldi Airwaves á fimmtu- dagskvöld. Þeir Elvar Gunnarsson og Kristján Þór Matthíasson verða fyrir svör- um þegar leitað er upplýsinga um diskinn nýja en aðrir í sveitinni eru þeir Hjörtur Már Reynisson og Páll Þorsteinsson. Edda gefur Ævisögur út, en disk- inn á síðasta ári gáfu þeir félagar út sjálfir og framleiddu eftir því sem pantanir bárust. Að þessu sinni tóku þeir plötuna upp að öllu leyti og unnu sjálfir, en Edda sér um eig- inlega útgáfu og dreifingu; þeir segj- ast ekki hafa haft fjármagn til að gefa þetta sjálfir út. Á síðustu skífu var mikið undir í textum, glímt við hinstu rök tilver- unnar, trúna og efann og þeir segja að enn sé verið að fást við þungar spurningar á plötunni nýju, tilgang- ur lífsins er meðal viðfangsefna, stríðsástand og ógnir, en trúmál hafa ekki sama vægi og á fyrri skíf- unni, þeir segja að þeir séu búnir að afgreiða þau mál í bili. „Þegar kom að því að velja lög á plötuna völdum við lög sem voru með svipað yrkis- efni eða voru að fjalla um eins alvar- lega hluti, slepptum djóklögunum sem við eigum alltaf eitthvað af. Það er samt eitt grínlag á plötunni, kannski tvö.“ Af Dæmisögum varð lagið Ekki hringja í mig verulega vinsælt og þeir segja að það hafi svo sem haft sína kosti að eiga vinsælt lag, „við áttum pening til að éta“, segja þeir, „það var fínt að fá pening, en það var ekki aðalmálið. Okkur fannst reynd- ar svolítið pirrandi að það skyldi verða svona vinsælt og við reynum að komast hjá því núna, reynum að vera leiðinlegir,“ segja þeir og kíma. Það er býsna alvarlegur blær á plötunni og nærtækt að spyrja þá fé- laga hvort lífið sé í raun svo alvar- legt. „Lífið er fokking hart,“ segir Elvar og skellir svo uppúr. „Nei, en flestallt sem við sömdum fyrir þessa plötu var samið á erfiðum tíma- punkti og við látum hitt mæta rest, geymum það,“ segir hann. Helst má segja að þeir félagar hafi verið gagn- rýndir fyrir að vera of alvarlegir, fyrir að sleppa ekki fram af sér beisl- inu, en það gerðu þeir þó á safnskíf- unni Rímnamíni sem kom út í vor. Þeir segjast alla jafna taka gagnrýn- inni létt, en þó hafi þeim leiðst hvað fáir skildu grínið á bak við Rímnam- ínslagið. „Þegar fólk er ekki að kvarta yfir því að við séum of alvar- legir þá er það að kveina yfir því að við séum of gamansamir. Við hlust- um á allar gerðir af hiphopi og höf- um ekkert á móti þeim sem eru að gera öðruvísi hluti, en það er bara ekki okkar, við erum bara að gera þetta fyrir okkur. Það er allt of al- gengt að menn séu að tapa innihaldi fyrir rím, leggja of mikla áherslu á rím og flæði en minna á innihaldið.“ Á plötunni nota þeir meira lifandi spilamennsku en áður, lifandi bassa-, trommu-, gítar- og hljómborðsleik. „Það gekk mjög vel, eiginlega betur en við áttum von á,“ segja þeir, „og það gerði plötuna líka persónulegri að okkur fannst.“ Alla jafna troða þeir þó upp fjórir félagarnir, en segj- ast ætla að vera með fullskipaða hljómsveit á útgáfutónleikunum. Eins og fram kemur koma Af- kvæmi guðanna fram á hiphopkvöldi Airwaves á fimmtudagskvöld, þar sem leika auk þeirra O.N.E., Skytt- urnar, Kritikal Mazz, Bent og 7berg, Forgotten Lores og bandaríski rímnamaðurinn J-Live. Áhersla á innihaldið Meðlimir Afkvæma guðanna slaka á við Árbæjarstífluna.  GAUKUR Á STÖNG: Buff, Moon- styx, Dead Sea Apple og hljóm- sveitin Ég kl. 22. Frítt inn.  KRINGLUKRÁIN: Hrólfur Vagnsson harmónikku- leikari og Blue brazil með tón- leika þriðju- dagskvöld kl. 21.  VÍDALÍN VIÐ INGÓLFSTORG: hljómsveitirnar Panik, Suð og Örkuml spila þriðjudagskvöld kl. 21.30. Í DAG Hrólfur Vagnsson Sýnd kl. 8 og 10.10. Nýjasta meistaraverk Pedro Almodovars 1/2HL MBL SG DV ÓHT Rás2 www.regnboginn.is Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2 Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök. Missið ekki af þessari! Nicholas Cage hefur aldrei verið betri! Sýnd kl. 7 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.50 og 8. Sýnd kl. 5.30. Hverfisgötu  551 9000 Maðurinn sem getur ekki lifað án hennar leyfir henni ekki að lifa án hans. Hvernig flýrðu þann sem þekkir þig best? Magnaður spennutryllir í anda Sleeping With the Enemy. Einn óvæntasti spennutryllir ársins! „DREP FYNDIN“ ÞÞ. FBL 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 10.10 B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6, 8,30 og 10.50. B. i. 16. . Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Þegar Shaun er neitað um háskólavist gerir klikkaði bróðir hans allt til að hjálpa. Frábær grínmynd með hinum villta Jack Black úr Shallow Hal og syni Tom Hanks, Colin. SK. RADIO-X Frábær rómantísk gamanmynd FRÁ FRAMLEIÐENDUM „Bridget Jones’s Diary“ og „About A Boy“. í I i ’ i . Slepptu villidýrinu í þér lausu…og Þegar hann talar, hlusta konur. l illi i í l l , l . www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 6 með ísl. tali. SV Mbl „DREP FYNDIN“ ÞÞ. FBL 1/2Kvikmyndir.is Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.