Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÍSLENSK erfðagreining krefst þess að Persónuvernd leggi fram nákvæma tímaáætlun sem stofn- unin telji raunhæfa til að ljúka ör- yggisúttekt á miðlægum gagna- grunni á heilbrigðissviði. Vegna „ástæðulausra tafa og ómálefna- legrar meðferðar“ Persónuverndar á málinu lýsir Íslensk erfðagrein- ing því yfir, í bréfi til Persónu- verndar, að fyrirtækið áskilji sér allan rétt til að hafna því að greiða áfallinn kostnað Persónuverndar og annarra opinberra aðila og krefja Persónuvernd og/eða rík- issjóð um bætur vegna tjóns og tapaðra tekjumöguleika Íslenskrar erfðagreiningar af miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði. Ekki unnt að halda áfram samningaviðræðum Íslensk erfðagreining hefur sent bréf til Persónuverndar, þeirra heilbrigðisstofnana sem fyrirtækið hefur þegar samið við um flutning gagna í grunninn og stofnana sem fyrirtækið hefur átt í samninga- viðræðum við. Í bréfunum til heil- brigðisstofnananna segir m.a., að þrátt fyrir að brátt séu liðin fjögur ár frá samþykkt laganna um gagnagrunn á heilbrigðissviði og þrjú ár frá útgáfu rekstrarleyfisins hafi til þess skyldir opinberir að- ilar enn ekki veitt Íslenskri erfða- greiningu heimild til þess að hefja starfrækslu gagnagrunnsins. Á meðan ekki sé ljóst hvort tillögur ÍE um uppsetningu gagnagrunns- ins muni hljóta tilskilda öryggis- úttekt og samþykki opinberra að- ila geti fyrirtækið ekki haldið áfram samningaviðræðum, eða unnið áfram að þeim verkefnum sem búið var að hrinda af stað. Sjö mánaða tafir Í bréfinu til Persónuverndar er látin í ljósi sú skoðun að Persónu- vernd hafi dregið afgreiðslu máls- ins á ómálefnalegan hátt, þar á meðal í sjö mánuði á þessu ári. Í ljósi tafanna og þess gífurlega kostnaðar sem ÍE hafi lagt í vegna þessa verkefnis telji fyrirtækið að því beri ekki skylda til að greiða frekari kostnað sem kann að hljót- ast af því að Persónuvernd ljúki því hlutverki sínu að taka út ör- yggiskerfi miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði að því er varðar verndun persónuupplýsinga. ÍE gagnrýnir öryggisúttekt á miðlæg- um gagnagrunni á heilbrigðissviði Áskilur sér bótarétt vegna tafa  „Ítrekaðar og ástæðulausar tafir“/12 ALLS hafa 29 manns látist í um- ferðarslysum það sem af er árinu, sem er eitt versta slysaár sem komið hefur í íslenskri umferð- arsögu. Fjöldi látinna er orðinn meiri en árin 1998, 1999 og 2001. Í fyrra létust 24 í umferðarslysum en 32 árið 2000. Árið 1999 lést 21 og árið 1998 27 manns. Þess má geta að flest voru bana- slysin árið 1977, þegar 37 létust. Það vekur þó athygli að í október það ár voru færri látnir í umferð- inni en það sem af er þessu ári. Því til viðbótar hafa fleiri látist fyrstu tíu mánuði þessa árs en nokkru sinni fyrr. Athygli vekur einnig hversu fjöldaslys hafa verið áberandi á þessu ári, en tíu hafa látist í þrem- ur slysum, þar af voru tvö slysanna útafakstur, þar sem sjö manns fórust, þar af þrjú börn. Júnímánuður var versti slysamán- uður ársins, en þá rak hvert slysið annað og sjö létust í fjórum slys- um. Apríl og september liðu hins vegar án þess að nokkurt banaslys yrði, en í ágúst létust sex manns í fjórum slysum. Áberandi mörg banaslys í árekstri jeppa og fólksbíla Þegar litið er á upplýsingar um tegund ökutækja í banaslysum á árinu sést að í þeim tilvikum þar sem tvö ökutæki lenda í árekstri eru banaslys langalgengust í árekstrum jeppa og fólksbíla. Á þessu ári hafa orðið sex banaslys í slíkum árekstrum en eitt í árekstri tveggja fólksbíla. Sömuleiðis hefur eitt banaslys hlotist af í árekstri fólksbíls og vörubíls, fólksbíls og rútu og jeppa og vörubíls. Ágúst Mogensen, formaður rannsóknanefndar umferðarslysa, segir að í flestum tilvikum séu það ökumenn eða farþegar fólksbíl- anna sem láta lífið þegar banaslys verður í árekstri jeppa og fólks- bíla. „Í 90% tilvika láta þeir lífið sem eru í léttara ökutækinu,“ seg- ir hann. „Það er mjög erfitt að taka á þessu, en ökumenn stórra ökutækja verða þó að gera sér grein fyrir því hversu voldug öku- tæki þeirra eru. Þar með er ekki sagt að ökumenn þeirra séu verri ökumenn en aðrir eða valdi fleiri slysum. Það hefur verið rætt um að lækka hámarkshraða stórra ökutækja, en þá má spyrja á móti hvort verið sé að skapa umferð- aröngþveiti með því að láta suma í umferðinni aka á 80 en aðra á 90 svo dæmi sé tekið. Við þær að- stæður eykst hætta á framúrakstri með tilheyrandi slysahættu.“ Aðgreina mætti víðar umferð úr gagnstæðum áttum Ágúst segir augljóst að aðgreina þurfi umferð úr gagnstæðum átt- um til að fækka banaslysum, þó ekki nauðsynlega með því að setja upp vegrið allan hringveginn. „70% af þeim banaslysum eftir framanákeyrslur sem starfsmenn rannsóknanefndar umferðarslysa hafa skoðað eru á svæði innan 50 km radíuss frá Reykjavík. Það hef- ur verið bent á að e.t.v. sé skyn- samlegra að leggja 2+1-veg með aðgreiningu á Reykjanesbraut, Vesturlandsvegi og Suðurlands- vegi í stað þess að tvöfalda Reykjanesbrautina.“ 29 látnir á versta slysaári til þessa / 8     0 "    .   9 1    9 -   8 5    8  #  : 0 ; < = <   -   8 > #:   #? #  " ÞAÐ viðraði ágætlega til útiveru á höfuðborg- arsvæðinu í gær. Þessar stúlkur notuðu tæki- færið og drógu fram sippubandið og sýndu listir sínar í heimkeyrslu á Langholtsveginum í Reykjavík. Tvær taka sig saman og sippa báðar í einu. Á meðan bíða vinkonurnar óþolinmóðar eftir því að röðin komi að þeim og þær geti líka sýnt hvað í þeim býr. Morgunblaðið/Golli Sippað á Langholtsvegi ALÞJÓÐAHVALVEIÐIRÁÐIÐ samþykkti í gær aðildarumsókn Ís- lands að ráðinu á aukaaðalfundi sem haldinn er í Englandi. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að um áfangasigur sé að ræða og vonar að vísindaveiðar á hval geti hafist hér við land fyrr en seinna. Nokkuð var tekist á um aðildar- umsókn Íslendinga við upphaf fund- arins í gær. Formaður ráðsins, Sví- inn Bo Fernholm, lagði að lokum fram tillögu um að niðurstaða aðal- fundarins frá í maí sl., um að Ísland hefði aðeins áheyrnaraðild að ráðinu, yrði staðfest. Tillagan var hins vegar felld með eins atkvæðis mun, 19 at- kvæðum gegn 18, og greiddu Svíar m.a. atkvæði gegn tillögunni og þar með formanninum. Íslendingar eru þar með fullgildir aðilar að ráðinu, með fyrirvara um bann við hvalveið- um í atvinnuskyni. Þó skuldbinda Ís- lendingar sig til að hefja ekki hval- veiðar í atvinnuskyni fyrr en í fyrsta lagi eftir árið 2006. Árni segir það vera grundvallarat- riði að eiga aðild að Alþjóðahvalveiði- ráðinu til að geta stundað hvalveiðar á löglegan hátt. „Þetta opnar okkur leið til að hefja hvalveiðar í vísinda- skyni. Næsta skref er að gera áætlun um vísindaveiðarnar og leggja fyrir ráðið, þótt við séum reyndar óbundin af afstöðu þess,“ segir Árni. Vonar að vísindaveiðar hefjist fyrr en seinna  Ísland fær/21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.