Morgunblaðið - 06.11.2002, Page 2

Morgunblaðið - 06.11.2002, Page 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ LISTASÖFN EINKAVÆDD? Yfir þúsund listaverk eru í eigu Landsbankans og Búnaðarbankans, þar á meðal mörg fágæt og dýrmæt verk. Ólafur Örn Haraldsson alþing- ismaður segir um menningarverð- mæti að ræða, sem eigi að verða áfram í eigu þjóðarinnar þótt bank- arnir verði seldir einkaaðilum. Boðað til kosninga í Ísrael Boðað hefur verið til kosninga í Ísrael í janúar. Sharon forsætisráð- herra segist ekki hafa átt aðra kosti, því að ekki hafi hann getað gengið að kröfum harðlínuflokka. Þyngri refsingar Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra boðar frumvarp um að dæma megi menn til þyngri refs- ingar en áður fyrir kynferðisafbrot gegn börnum. Þá hyggst hún leggja til aukna vernd fyrir fórnarlömb mansals. 1,7 milljarða hagnaður Búnaðarbankinn hagnaðist um tæplega 1,7 milljarða fyrstu níu mánuði ársins. Þetta er mun betri afkoma en á sama tíma í fyrra, er hagnaður var 205 milljónir. Tvísýnar kosningar vestra Þing- og ríkisstjórakosningar fóru fram í Bandaríkjunum í gær. Tví- sýnt er um úrslit en repúblikanar vona að vinsældir Bush forseta tryggi þeim áfram meirihluta í full- trúadeildinni. Börn fá gula spjaldið Foreldrar gagnrýna Lækjarskóla í Hafnarfirði fyrir að veita börnum „gul og rauð spjöld“ fyrir agabrot. Þeir sem fá rauða spjaldið verða að sitja inni í frímínútum. Þrettán ára fíkniefnasali Framkvæmdastjóri Barnavernd- ar Reykjavíkur segir vaxandi vanda- mál að börn leiðist út í fíkniefna- neyzlu. Þrettán ára snáði er grunaður um fíkniefnasölu. Örtröð hjá eina lækninum Þegar eini starfandi heilsugæzlu- læknirinn á Suðurnesjum mætti í vinnuna í gærmorgun biðu 22 sjúk- lingar fyrir utan dyrnar. EES kostar 770 milljónir Kostnaður Íslands af rekstri samningsins um Evrópska efna- hagssvæðið er um 770 milljónir á árinu. ESB gerir kröfur um hærri framlög vegna stækkunar sam- bandsins. Arnar, sem gekk til liðs við Dun-dee United í sumar frá Stoke g hefur aðeins komið við sögu í veimur leikjum liðsins á leiktíðinni, egir að hann eigi enga framtíð hjá élaginu. Eftir að Alex Smith, knatt- pyrnustjórinn sem ákvað að fá Arn- r til liðs við félagið, var rekinn fyrir mánuði, hefur Arnar ekki verið í leikmannahópi liðsins. Paul Hegarty tók við stjórn liðsins af Smith, fyrst til bráðabirgða en í gær var hann formlega skipaður knattspyrnustjóri liðsins. „Ég nenni ekki að standa í þessu lengur. Ég ætlaði að bíða eftir því hver tæki við og nú þegar það er frá- gengið er mér óhætt að hringja í um- boðsmann minn og láta hann kanna markaðinn,“ sagði Arnar í samtali við Morgunblaðið í gær en hann seg- ir að stjórinn hafi farið þá leið að tefla frekar fram ungum leikmönn- um uppöldum hjá félaginu. „Ég hef ekki verið í betra formi síðan ég var hjá Bolton og þegar ég sé að ég er ekki inni í myndinni hjá stjóranum er ekki annað að gera en að reyna að finna annað félag til að fara í. Það er samt hægara sagt en gert. Með nýju félagaskiptareglun- um er orðið erfiðara um vik að fara á milli félaga en vonandi hleypur eitt- hvað á snærið innan tíðar. Mig lang- ar mest að komast aftur til Englands og fá að spila sem framherji en það var einhver skrýtinn misskilningur þegar ég kom hingað. Ég var látinn spila sem varnartengiliður og þeir sem þekkja mig sem leikmann vita að sú staða hentar mér alls ekki,“ sagði Arnar. Arnar á enga fram- tíð hjá Dundee Utd. RNAR Gunnlaugsson, knattspyrnumaður, sem er á mála hjá koska úrvalsdeildarliðinu Dundee United, er mjög ósáttur við töðu sína hjá félaginu og hann hyggst komast í burtu þaðan þegar eikmannamarkaðurinn opnast að nýju í janúar. 2002  MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER BLAÐ C Berglind varði 21 í Slóveníu BERGLIND Hansdóttir varði 21 skot í gærkvöld þegar kvennalandsliðið í hand- knattleik tapaði, 29:24, fyrir Slóveníu í vináttulandsleik. Þetta var þriðja og síðasta viðureign þjóðanna í Slóven- íuferð íslenska liðsins og vann heimaliðið þá alla en leikurinn í gærkvöld var mjög góður af hálfu Íslands, að sögn fararstjóra. Hanna Stefánsdóttir skoraði 7 mörk og Dröfn Sæmundsdóttir, sem lék sinn fyrsta landsleik, gerði 6 mörk. SVEN Göran Eriksson landslið- seinvaldur Englendinga í knatt- spyrnu hefur mikinn áhuga á að velja Wayne Rooney, táninginn í liði Everton, í landslið sitt og sjá hvernig piltur spjari sig en Roo- ney er á allra vörum á meðal knattspyrnuáhugamanna á Bretlandseyjum, og þótt víðar væri leitað, eftir glæsilega inn- komu í leikjum Everton á leik- tíðinni. Rooney, sem á dögunum hélt upp á 17 ára afmæli sitt, skoraði eftirminnilegt sigur- mark þegar Everton batt enda á sigurgöngu Arsenal í síðasta mánuði og um helgina skoraði hann eina mark Everton í sigri á Leeds með frábæru einstak- lingsframtaki. Englendingar spila tvo vin- áttuleiki í febrúar á móti Dönum og Austurríkismönnum og er talið mjög líklegt að Rooney fái að spreyta sig í öðrum hvorum leiknum og þá yrði hann yngsti leikmaðurinn til að klæðast ensku landsliðstreyjunni frá því á 19. öldinni. Michael Owen framherji Liverpool er sá yngsti en hann var 18 ára og 59 daga þegar hann lék sinn fyrsta landsleik á móti Chile í febr- úarmánuði 1998. Rooney mun á næstu dögum skrifa undir þriggja ára samn- ing við Everton. Rooney undir smá- sjánni Reuters David Beckham ákvað að þiggja ekki boð knattspyrnustjóra Manchester United, Alex Fergusons, sem ætlaði að gefa honum vikufrí þegar upp komst um áætlanir um að ræna eiginkonu hans og sonum. Beckham lék því með United gegn Leicester í enska deildabikarnum í gærkvöld og skor- aði fyrra mark liðsins í 2:0 sigri. Hér sendir hann stuðningsmönnum liðsins fingurkoss. ÓLAFUR Gottskálksson, markvörður hjá enska knattspyrnufélaginu Brentford, hafnaði í gær boði um að leika með íslenska landsliðinu gegn Eistlandi í Tallinn þann 20. nóvember. Ólafur fór í aðgerð vegna meiðsla á öxl í haust og er ekki búinn að ná sér. Frá þessu var skýrt á heimasíðu Brentford í gær en félagið hafði þá fengið beiðni frá KSÍ um að fá Ólaf lausan í leikinn. „Það eru mér mikil vonbrigði að geta ekki svarað kallinu og tekið þátt í leiknum. Um leið er ég mjög ánægður með þann heiður sem mér er sýndur með þessu, það er gott að vita að ég skuli enn vera inni í myndini, en það væri ekki rétt af mér að fara í leikinn og geta ekki lagt mig 100 prósent fram,“ sagði Ólafur við Morg- unblaðið í gær. „Það hefði verið tilvalið að fá Ólaf í þennan leik, við ætluðum að skoða hann í Tallinn og það er miður að hann skuli ekki geta komið þangað,“ sagði Guðmundur Hreiðarsson, mark- varðaþjálfari landsliðsins. Ólafur komst ekki til Tallinn VIÐRÆÐUR um möguleg kaup þýska knattspyrnufélagsins Nürn berg á landsliðsmanninum Mare Baldvinssyni frá Stabæk í Noreg stóðu yfir síðdegis í gær og fram á kvöld. Marel gekkst undir læknis skoðun á mánudag, norskir fjöl miðlar sögðu í gær að hann hefð staðist hana en Marel sagði við Morgunblaðið í gær að hann hefð ekki fengið neina niðurstöðu sjálfur og að hann biði fregna af viðræðum umboðsmanns síns við forráðamenn Nürnberg. Erik Loe, formaður Stabæk, sagð við netútgáfu Asker og Bærums Budstikke í gær að norska félagið biði eftir næstu viðbrögðum frá Nürnberg. „Það væri ekki rétt að segja að hann væri á förum en við bíðum átekta. Við erum ekki með það á stefnuskránni að selja Mare en hann er til sölu ef um gott tilboð er að ræða,“ sagði Loe. Ennfremur var eftir honum haft að Nürnberg hefði fylgst grannt með Marel haust, meðal annars í leikjum Sta bæk við Molde og Anderlecht. Mjög mismunandi upphæðir hefðu verið nefndar í sambandi við mögu leg kaup þýska félagsins á honum eða allt frá 40 til 150 milljóna ís lenskra króna. Stabæk greidd Breiðabliki á fjórða tug milljóna fyr ir Marel þegar hann fór til norska fé lagsins fyrir rúmum tveimur árum. Viðræður um Marel í Nürnberg var skrifuð stærri og að flestu leyt veigameiri ævisaga en aðra menn íslenska, lýðveldið Ísland var stofnað á fæðingardegi hans og dagurinn gerður að þjóðhátíðar- degi. Á 17. júní prýðir mynd Jóns gjarnan búðarglugga víða um land og fastir liðir hátíðarhalda í höfuð- staðnum eru að verulegu leyt helgaðir minningu hans. Skóla- börnum er kennt, að Jón sé þjóð- hetja Íslendinga, en flestir vita þó næsta lítið um manninn og sá mis- skilningur er ótrúlega útbreiddur að hann hafi verið fyrsti forseti lýð- veldisins. Það kann að stafa að nokkru af tíðarandanum, og ekk síður hinu að á síðari hluta 20. ald- ar var miklum mun minna fjallað um Jón og sjálfstæðisbaráttuna „VIÐ eigum ekki nema einn mann,“ sagði Jón Marteinsson í Ís- landsklukkunni við nafna sinn Hreggviðsson, þar sem þeir sátu að sumbli í einum af kjöllurum Kaupmannahafnar. Líkt mun mörgum Íslendingum hafa verið farið í þann mund er endurreist Al- þingi var sett í fyrsta skipti árið 1845 og Þjóðfundur haldinn sum- arið 1851. Þá áttum við að sönnu ness meðtöldum). Skáldin mærðu hann í kvæðum sínum, um hann fleiri menn sem eitthvað kvað að, en fáum blandað- ist hugur um að einn fór fremstur og drjúgan spöl á undan hinum: Jón Sigurðsson. En hver var Jón Sigurðsson? Þeirri spurningu er hætt við að næsta fáir núlif- andi Íslendingar hafi getað svarað hiklaust fram undir þetta. Á Jón hefur að líkindum verið hlaðið meira lofi en flesta aðra Íslendinga (að Halldóri Lax- Þjóðhetja verður til Persónurnar ráða stílnum Hávar Sigurjónsson ræðir við Vigdísi Grímsdóttur. Marta smarta er fyrsta barnabók Gerðar Kristnýjar Guðjóns- dóttur, en hún hefur áð- ur sent frá sér skáld- sögu, smásögur, einleik, og ljóð. Hér segir af Mörtu sem er ósköp venjuleg tíu ára stelpa sem býr hjá mömmu sinni, hittir pabba sinn um helgar, á bestuvinkonu og lífið gengur sinn vanagang. En eftir jólafrí- ið er allt í lausu lofti. Mamman stefnir til útlanda í nám, Hekla vinkona gufar upp á enn dularfyllri hátt og pabbinn … ja, eitt- hvað hrjáir hann líka. Marta kemst að því að tilveran getur aftur orðið bærileg með því að blanda saman furðulegustu hlutum. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 154 bls, prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. Halldór Baldursson myndskreytti og gerði kápu. Verð: 2.490 kr. Marta smarta Gerður Kristný Næturstaður nefnist ný skáldsaga Sigurðar Pálssonar. Lesandinn slæst í för með Reyni sem hefur dvalið árum saman á meginlandinu en snýr nú aftur til heimabyggð- arinnar á hjara veraldar til að vera viðstaddur jarðarför föður síns. Þar ólgar hafið við strönd, jökulsá byltist um sanda og draugar setjast að vegfarendum á heiðum. Aðalpersónan hefur forðast þessa náttúru eins og hann hefur alla tíð forðast að takast á við fortíðina. Í sögunni af þessari heimsókn fléttast at- vik úr æviferli manns saman við hugleið- ingar um tímann og framvinduna í heim- inum. Næturstaður er þriðja skáldsaga Sig- urðar, en hann er kunnur af ljóðagerð sinni, en hefur að undanförnu vakið athygli fyrir skáldsögur sínar. Útgefandi er JPV-útgáfa. Bókin er 176 bls., prentuð í Odda. Hönnun kápu: Jón Ás- geir. Verð: 3.980 kr. Næturstaður Sigurður Pálsson Jón Sigurðsson Guðjón Friðriksson SAGNFRÆÐI Jón Sigurðsson. Ævisaga. GUÐJÓN FRIÐRIKSSON Jón Sigurðsson. Ævisaga. Fyrra bindi. Mál og menning, Reykjavík 2002. 565 bls., myndir. BÆKUR SÉRRIT MORGUNBLAÐSINS UM BÆKUR miðvikudagur 6.nóvember2002  „Einn af okkar betri höfundum” ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - ED D 1 92 46 11 /2 00 2 Stefán Máni „Stefán Máni hefur með nýrri bók sinni Ísrael – saga af manni fest sig í sessi sem einn af okkar betri höfundum. Má Einar Kárason fara að vara sig sem aðal töffarinn í íslenskum bókmenntaheimi því Ísrael er umfram allt töffaraleg bók.“ Jakob Bjarnar Grétarsson, kistan.is „Gríðarlega vel skrifuð.“ Súsanna Svavarsdóttir, Ísland í bítið „Áhrifamikil og grípandi.“ Úlfhildur Dagsdóttir, Kastljós „Afar góð skáldsaga.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Helgar-DV „…skrifuð af innsæi og ríkri samúð með viðfangsefninu.“ Þórarinn Þórarinsson, Fréttablaðið 2. sæti Penninn/Eymundsson Skáldverk Yf ir l i t HÓPUR Íslendinga leggur nú stund á nám í margmiðlunarhönnun í CEU-tækniháskólanum í Kolding í Danmörku. Um er að ræða tveggja ára alþjóðlegt nám þar sem nem- endur læra undirstöðuatriði heima- síðugerðar. Íslensku nemendurnir hófu nám við skólann í haust sem væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að í 24 manna bekk á fyrsta ári eru 23 Íslendingar og einn Dani. Upphaflega var gert ráð fyrir að í bekknum væru tveir Danir til við- bótar og tveir Afríkubúar. Þegar Morgunblaðið hafði samband við Ingibjörgu Kristínu Halldórs- dóttur, nema í margmiðlunarhönn- un í Kolding, fyrir skömmu höfðu Afríkubúarnir hins vegar ekki haf- ið nám við skólann og Danirnir tveir höfðu flutt sig yfir í annan bekk. Að sögn Ingibjargar var skól- inn með kynningu í Reykjavík í júní sl. á alþjóðlegu námi í margmiðl- unarhönnun þar sem auglýst var eftir umsóknum. Fjölmargir mættu á kynningarfundinn og segir hún að áhuginn hafi komið skóla- yfirvöldum í opna skjöldu. Námið fer fram á ensku en auk Íslend- ingabekkjarins er annar fyrsta árs bekkur í margmiðlunarnámi og tveir bekkir á öðru ári. Aðspurð segir hún að Daninn í bekknum hafi það ágætt innan um alla Íslendingana í Kolding og að stemningin sé góð og hópurinn samheldinn. Hún segir að Íslend- ingarnir hafi vakið athygli út fyrir skólann og til að mynda hafi bæj- aryfirvöld reynst nemendum mjög hjálpleg og meðal annars boðið þeim upp á kynnisferð um Kolding. „Það er allt gert fyrir okkur til að við getum komið okkur vel fyrir hér og allir eru mjög hjálpsamir,“ segir hún að lokum. Hluti af Íslendingabekknum í CEU-tækniháskólanum í Kolding í Dan- mörku. Daninn var fjarverandi þegar myndin var tekin. 23 Íslendingar í 24 manna bekk Hönnunarnám í Danmörku FÉLAG íslenskra atvinnuflugmanna beindi ný- lega þeim tilmælum til flugmanna sem starfa hjá Flugleiðum að þeir tækju ekki að sér vinnu á frí- dögum. Að mati FÍA hafa Flugleiðir gengið allt of langt við fækkun flugmanna og of fáum flugmönn- um verið ætlað að sinna verkefnum félagsins í vet- ur, að sögn Jóhanns Þ. Jóhannssonar, formanns FÍA. Eftir fundarhöld í gær ákváðu Flugleiðir að draga uppsagnir sex flugmanna til baka. Jóhann segir menn þokkalega sátta við þessa niðurstöðu, að sinni a.m.k. Að sögn Jóhanns sögðu Flugleiðir upp hópi flug- manna í tveimur áföngum sl. sumar og tóku síð- ustu uppsagnirnar gildi um síðustu mánaðamót. ,,Okkur fannst þeir vera svolítið knapplega mannaðir fyrir veturinn, þannig að við skrúfuðum aðeins upp hitann á þá um að draga uppsagnir til baka,“ sagði hann. Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Flug- leiða, segir málið snúast um hvað gert sé ráð fyrir mörgum flugmönnum við störf hjá félaginu í tengslum við þau verkefni sem framundan eru. „Það hafa verið viðræður í gangi á milli félagsins og FÍA. Svo urðu veikindaforföll meðal flugmanna og í framhaldi af því var tekin ákvörðun um að draga uppsagnir sex flugmanna til baka.“ Fjöldi flugmanna hefur misst atvinnu sína vegna uppsagna á þessu ári og því síðasta. Skv. upplýsingum Jóhanns er sá hópur flugmanna sem sagt var upp á þessu tímabili og ekki hefur fengið endurráðningu um 50 manns. 34 flugmönnum var sagt upp störfum í sumar og fyrir voru um 20 flug- menn sem fengu uppsagnarbréf í fyrra og hafa ekki verið ráðnir að nýju, að sögn Jóhanns. ,,Þetta er auðvitað ófremdarástand en við erum í viðræðum við félagið um ákveðin atriði og sér- stakan samning varðandi útrás félagsins í leigu- flugi sem er ætlað að afla frekari verkefna og reyna að jafna út þessa árstíðasveiflu, sem virðist vera komin til að vera í rekstri félagsins,“ sagði hann. Hætt við sex uppsagnir FÍA mæltist til þess við flugmenn Flugleiða að þeir tækju ekki aukavaktir Að sögn lögreglu fóru drengurinn og maðurinn saman til Akureyrar með flugi á laugardag. Þeir fengu síðan far með bíl til Sauðárkróks og loks til Blönduóss þar sem þeir voru að reyna að útvega sér far til Reykja- víkur þegar lögregla handsamaði þá. Á mánudag hafði móðir drengsins haft samband við lögregluna á Sauð- árkróki og spurst fyrir um hann en drengurinn mun ekki eiga ættingja á Sauðárkróki eða í nágrenni. Dreng- inn var hvergi að finna í bænum en lögregla hafði þó fregnir af því að hann hefði farið þar um. Um kvöldið frétti lögreglan á Blönduósi af því að ungur drengur og karlmaður af er- lendu bergi brotinn væru að ferðast saman. Þótti ástæða til að hafa af þeim afskipti og voru þeir færðir á lögreglustöð. Við athugun kom í ljós að móðir drengsins hafði spurst fyrir um hann á Sauðárkróki og þar höfðu komið fram upplýsingar um að þeir væru að bjóða hass til sölu. Maðurinn var þá handtekinn en fulltrúi félags- málayfirvalda kallaður til svo að hægt væri að yfirheyra drenginn. Hvorugur játaði að hafa ætlað að selja fíkniefnin og gáfu þeir litlar skýringar á ferðum sínum. Þar sem drengurinn er ekki sakhæfur verður honum ekki refsað fyrir að hafa hass í fórum sínum. 13 ára dreng- ur grunaður um hasssölu EFTIR að upplýsingar bárust um að 13 ára drengur og 31 árs karlmaður væru hugsanlega að selja fíkniefni hafði lögreglan á Blönduósi afskipti af þeim í fyrrakvöld og við leit fundust um 13 grömm af hassi á drengnum. Hass- ið var í 13 pakkningum og greinilegt að það var ætlað til sölu. Að loknum yfirheyrslum var drengnum ekið á meðferðarheimilið Stuðla í Reykjavík en manninum á heimili sitt í Reykjavík. Drengurinn hefur þrátt fyrir ungan aldur áður komið við sögu fíkniefnamála. UPPSÖGN oddvita og bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Ágústar Þórs Bragasonar, úr starfi umhverfis- og æskulýðsfulltrúa bæjarins, var stað- fest á bæjarstjórnarfundi á Blöndu- ósi í gærkvöldi um leið og tillaga um breytt skipurit fyrir Blönduósbæ var samþykkt með atkvæðum meirihluta H-lista og Hnjúka gegn tveimur at- kvæðum sjálfstæðismanna. Valgarð- ur Hilmarsson, forseti bæjarstjórn- ar og oddviti H-listans, segir að málið snúist ekki um Ágúst Þór, meginkjarninn snúist um að breyta skipuritinu og koma á skilvirku starfi þar. „Það er ósanngjarnt að segja að við getum ekki hagrætt vegna þess að bæjarfulltrúi á þarna hlut að máli. Þetta er lítið samfélag og á fundinum voru t.d. þrír vara- fulltrúar af sjö bæjarfulltrúum vegna tengsla aðalfulltrúa þeirra við málið.“ Sigurður Jóhannesson, varabæj- arfulltrúi D-lista, segir að mönnum þyki þetta frekar óeðlilegir stjórn- unarhættir. „Við bárum upp tillögu um að fresta afgreiðslunni þangað til skrifleg svör við fyrirspurnum okkar lægju fyrir. Við bárum einnig upp til- lögu um að afturkalla uppsögn Ágústar á þeim forsendum að orsök uppsagnarinnar var skipurit sem hvorki hafði hlotið umfjöllun né sam- þykki. Það má líkja þessu við að lög- reglan hefði farið að sekta menn vegna farsímanotkunar áður en lög þar að lútandi tækju gildi.“ Bæjarstjórnarfundur á Blönduósi Þrír bæjarfull- trúar viku sæti GUÐRÚN Frí- mannsdóttir, framkvæmda- stjóri Barna- verndar Reykja- víkur, staðfestir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem mál drengsins, sem tekinn var með fíkniefni á Blönduósi, kemur til kasta barnaverndar. „Drengur sem er kominn út á land og grunaður um fíkniefnasölu með fullorðnum manni á aug- ljóslega í miklum vanda,“ segir hún. Á þeim tveimur árum sem Guðrún hefur unnið hjá Barna- vernd Reykjavíkur hefur hún ekki áður séð dæmi um að svo ungt barn sé grunað um fíkniefnasölu. Á hinn bóginn séu þess dæmi að 12–13 ára börn hafi leiðst út í neyslu fíkni- efna. „Þetta er vandamál sem er alveg klárlega að aukast og sífellt yngri börn verða fyrir þessu. Efnin verða harðari og neyslan er að aukast jafnt hjá unglingum sem fullorðna fólkinu,“ segir hún. Vandi sem eykst sífellt Í dag Sigmund 8 Umræðan 31/34 Viðskipti 16/17 Minningar 36/37 Erlent 18/20 Staksteinar 38 Höfuðborgin 21 Bréf 40 Akureyri 22 Kirkjustarf 41 Suðurnes 23 Dagbók 42/43 Landið 24 Fólk 44/49 Listir 24/30 Bíó 46/49 Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50 Viðhorf 30 Veður 51 * * *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.