Morgunblaðið - 06.11.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.11.2002, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 31 ÞAÐ má á sumum heyra að hinir illu Ameríkanar séu enn einu sinni að fara með heiminn til helvítis. Við- komandi eru ekki hrifnir af Saddam Hussein, en segja samt að George Bush sé meiri ógn við heimsfriðinn. Hverskonar rugl er þetta eiginlega? Ef marka ætti fréttir, er eins og leið- togar Evrópu séu að reyna að halda aftur af froðufellandi stríðsæsinga- manni, í Washington. Sem geti ekki beðið eftir að dreifa bombum í allar áttir. Þetta segja þessir blessaðir friðarsinnar meðan fjöldamorð eru framin út um allan heim. Allt frá Balí til Bagdad. George Bush hefur sagt það eitt að ríkisstjórn Íraks sé ill, og að heiminum, ekki síst Írök- um, sé fyrir bestu að Saddam Huss- ein hverfi. Er það slæmt? Bush hefur margoft sagt að hann muni ráðfæra sig við bandamenn, áður en til hernaðar komi. Enginn „alvöru“ undirbúningur undir innrás í Írak er hafinn. Engu að síður lætur fólk eins og ráðist verði á Írak í næstu viku, ef ekki verði hægt að koma vitinu fyrir George Bush. Spurningin er fyrir hvern þarf að koma vitinu? Væri ekki nær að koma vitinu fyrir Saddam Hussein? Bush er á nokkuð góðri leið með það, með því að hóta honum. Heldur einhver að ljúflingurinn Saddam hefði allt í einu tekið það upp hjá sjálfum sér að leyfa vopnaleitar- mönnum Sameinuðu þjóðanna að koma til Íraks? Eftir Flóabardaga dró Saddam Hussein Sameinuðu þjóðirnar á asnaeyrunum í mörg ár, þar til hann að lokum sparkaði vopnaleitarsveit- um þeirra endanlega úr landi. Frakkar, Rússar og Kínverjar lögð- ust allir á eitt, til að hindra að beitt yrði hervaldi, til þess að knýja Íraka til þess að fara að ályktunum sam- takanna. Þessar sömu þjóðir hamast í dag gegn því að öryggisráðið sam- þykki að Írakar verði beittir her- valdi, ef þeir hlýði ekki samþykktum þess. Það er það sem Bandaríkja- menn biðja um. Miðað við forsöguna er þetta dálítið skrýtið. Á Íslandi er alltaf til hópur manna sem berst hatrammlega gegn því að Vesturlönd snúist til varnar, hvað sem á gengur. Þessi hópur hefur nú enn risið upp á afturlappirnar, til þess að fordæma hugsanlegar að- gerðir gegn vini vorum Saddam, jafnvel áður en náðst hefur sam- komulag um að ganga svo langt að snupra hann. Mér dettur ekki í hug að þetta fólk styðji Saddam. En fjöldamorðinginn í Bagdad brosir út að eyrum. George eða Saddam Eftir Óla Tynes „Fjölda- morðinginn í Bagdad brosir út að eyrum.“ Höfundur er fréttamaður. Í MORGUNBLAÐINU 2. nóv- ember fer Kristinn H. Gunnars- son, formaður þingflokks fram- sóknarmanna, fram á að þeir sem gagnrýnt hafa niðurstöðu heil- brigðisráðherra varðandi ráðningu í stöðu framkvæmdastjóra Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja geri grein fyrir hæfi umsækjendanna tveggja og leggi síðan fyrir les- endur blaðsins að meta málsatvik. Kristni hlýtur að vera ljóst að gagnrýnendur hafa ekkert með mat á hæfi umsækjenda að gera. Það er í verkahring matsnefndar og stjórnar HSS og liggur fyrir. Valdið er svo í höndum ráðherrans samkvæmt lögum og hann hefur beitt því. Ég vil hins vegar minna þingflokksformanninn á að í lýð- ræðissamfélögum ríkir hefð fyrir því að almenningi sé frjálst að hafa skoðanir á og efasemdir um réttmæti aðgerða stjórnvalda. Gagnrýni mín og efasemdir byggj- ast eingöngu á þeim staðreyndum sem fyrir liggja í málinu. Þær eru að matsnefnd mat alla umsækj- endur hæfa. Tveir voru taldir hæf- astir og þeir kallaðir til viðtals. Þverpólitísk stjórn HSS, skipuð báðum kynjum, mælti með Skúla Thoroddsen sem hæfari umsækj- anda að undanskildum fulltrúa ráðherra. Skyldi það hafa verið til- viljun ein? Heilbrigðisráðherra hunsar vilja stjórnarinnar og ræð- ur Sigríði Snæbjörnsdóttur í stöð- una. Hann beitir fyrir sig jafn- réttislögum, forréttindalögum kvenna, til að réttlæta ráðninguna. Það virðist geðþóttaákvörðun hverju sinni hvenær tekið er mark á niðurstöðu stjórnar eða mið af umræddum lögum í málum af þessu tagi. Það skyldi þó aldrei hafa verið vitlaust gefið enn einu sinni? Ég hirði ekki um að rit- höggvast frekar við Kristin H. Gunnarsson. Var vit- laust gefið? Eftir Jórunni Tómasdóttur „Gagnrýni mín og efa- semdir byggjast eingöngu á þeim staðreyndum sem fyrir liggja í málinu.“ Höfundur er kennari við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. HVAÐ kostar að leigja íbúð? Þessi spurning hefur brunnið á mörgum undanfarnar vikur og sýn- is sitt hverjum hvað sé dýrt og hvað sé ekki dýrt. Til þess að fjalla um leiguverð er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir einni mjög mikilvægri staðreynd. Hún er sú að leiga á íbúðarhúsnæði er óháð tekjum þess er býr í hús- næðinu. Íbúð er eins og hver önnur neysluvara sem kostar ákveðna upphæð og hefur ekkert með greiðslugetu neytandans að gera. Ástæða þess að ég nefni þessa staðreynd er sú að húsaleigu er alltof oft stillt upp sem kosti fyrir tekjulága einstaklinga og fjölskyld- ur og enga aðra. Af sömu ástæðu er gerð krafa um að húsaleiga sé lág og hafi ekkert með að gera hvað íbúðin kostar í innkaupum og rekstri. Með sömu rökum mætti reikna með því að það væri mun ódýrara að leigja sér bíl en raun ber vitni, bara vegna þess að við- skiptavinirnir hafa ekki ráð á að kaupa bíl! Að leigja sé húsnæði getur verið kostur fyrir alla þá er þurfa þak yf- ir höfuðið. Með tilkomu leigufélaga sem ætla sér að byggja og reka leiguhúsnæði næstu áratugina er búið að víkja frá helsta ókosti þess að leigja, óörygginu. Með faglegri þekkingu á rekstri íbúða er leiga að verða að veruleika sem væn- legur kostur fyrir alla tekjuhópa. Hvort það sé betra að kaupa eða leigja verður áfram spurning sem verður aðeins svarað af viðskipta- vinunum sjálfum. Við það eru kost- ir og gallar sem hver og einn gerir upp við sig. Ef einungis fjárhags- leg sjónarmið myndu ráða myndu flestir leigja sér húsnæði og festa sína peninga í öðrum fjárfestingum sem gæfu betri arð. En hvernig er húsaleiga reiknuð, hvað veldur því að hver fermetri kostar rúmar 1.000 krónur? Ef tekið er dæmi um 3ja her- bergja íbúð sem er 84m2 að stærð þá má reikna með að slík íbúð kosti á höfuðborgarsvæðinu um 12 millj- ónir króna. Það breytir engu hvort hún er keypt til eigin nota eða til að leigja hana öðrum. Það breytir heldur ekki aðalatriðunum hvort notað er eigið fé til kaupanna eða lánsfé. Ef um er að ræða eigið fé þá þarf t.d. að gera ráð fyrir töp- uðum vöxtum af því. Til einföld- unar er því reiknað með lántöku á bestu kjörum sem bjóðast leigu- félögum. Í boði er 90% lán til 50 ára á 4,5% vöxtum og 10% bjóðast á 6,5% vöxtum til 25 ára. Greiðslu- byrði af þeim er um 53.000 kr. Ef íbúðin væri hins vegar keypt af einstaklingi á bestu kjörum sem honum byðust væri greiðslubyrðin af lánunum nær 66.000 kr. En það kostar líka að eiga og reka fasteignir. Það þarf að greiða um 2.200 kr. á mánuði í tryggingar, fasteignagjöld eru um 6.400 kr. á mánuði og meðalviðhaldskostnaður er vart undir 1,2% af brunabóta- mati eignarinnar árlega eða 12.000 kr. á mánuði. Hússjóð þurfa allir að greiða um 6.000 kr. Hjá leigufélagi má gera ráð fyrir að einhverjar kröfur tapist og einn- ig þarf félagið að hafa tekjur til að standa undir rekstrinum. Gert er ráð fyrir 3.000 kr. á mánuði í af- skriftir og 1.600 kr. í tekjur fyrir félagið. Samtals kostar því 3ja her- bergja íbúð að verðmæti 12 millj- ónir um 84.200 kr. á mánuði. Það breytir engu hverjar tekjur íbúans eru í því samhengi. Hins vegar er það skoðun forráðamanna Búseta að nauðsynlegt sé að hækka húsa- leigubætur fyrir þá er minnst hafa milli handanna til að allir lands- menn getir átt kost á vönduðu íbúðarhúsnæði á viðráðanlegum kjörum. Húsaleiga er óháð tekjum Eftir Gunnar Jónatansson „Hvort það sé betra að kaupa eða leigja verður áfram spurn- ing sem verður aðeins svarað af viðskiptavin- unum sjálfum.“ Höfundur er framkvæmdastjóri Búseta. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Jólin á Kanarí 19. desember frá kr. 60.262 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina um jólin til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann 17. eða 19. desember, og þú getur valið um viku, 9 nætur, 2 vikur eða 3 vikur á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga. Hér nýtur þú 20-25 stiga hita og veðurblíðu við frábærar aðstæður og getur kvatt veturinn í bili á þessum vinsælasta vetraráfangastað Evrópu. Á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Tryggðu þér síðustu sætin um jólin Verð kr. 73.600 Verð á mann, m.v. 2 í íbúð, Tanife, 17. des., 9 nætur. Flug, gisting, skattar. Verð kr. 60.262 M.v. hjón með 2 börn, Tanife, 17. des., 9 nætur. Flug, gisting, skattar. Húsi verslunarinnar og Glæsibæ Símar: 568 7305 - 568 5305

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.