Morgunblaðið - 06.11.2002, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN
32 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Prófkjör
Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði
nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram-
bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir
liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is.
Á FUNDI Norrænu ráðherra-
nefndarinnar í Osló fyrir stuttu var
fjallað um stefnumörkun Norður-
landaþjóðanna á sviði upplýsinga-
tækni, og þá helst um útbreiðslu
breiðbands. Á fundinum gerði ég
grein fyrir stöðu mála hér á landi
og þeirri stefnu sem ég hef fylgt
sem ráðherra fjarskiptamála, það
er að tryggja örugg, ódýr og að-
gengileg fjarskipti fyrir alla.
Á fundinum kom glöggt fram að
við Íslendingar erum framarlega á
sviði upplýsingatæknimála. Við
höfum verið á réttri leið, en mikils
er um vert að uppbyggingu fjar-
skiptakerfisins um land allt verði
haldið áfram með þarfir lands-
manna allra í huga, um greiðan að-
gang að öruggum og traustum fjar-
skiptum.
Breiðbandsþjónusta
um allt land
Atvinnufyrirtæki, menntastofn-
anir og heimilin í landinu eiga stöð-
ugt meira undir góðri flutnings-
getu fjarskiptakerfanna. Okkur
hefur miðað vel eftir að nýju fjar-
skiptalögin skylduðu símafyrirtæk-
in að veita öllum þeim, sem þess
óska að lágmarki ISDN. Lækkun
kostnaðar við gagnaflutninga
skipti einnig miklu máli, en með
samningi milli samgönguráðuneyt-
is og Símans var stigið mikilvægt
skref í átt að jöfnun gagnaflutn-
ingskostnaðar um landi allt. Næstu
skref, sem stefna ber að, er að
tryggja Breiðband um land allt,
sem gefur öllum færi á 2Mb/s teng-
ingu. Uppbygging þessarar þjón-
ustu verður jafnframt að miðast
við að sami kostnaður verði við
gagnaflutninga, óháð vegalengd.
Þar mun tæknin hjálpa okkur, svo
og þeir hagsmunir fjarskiptafyrir-
ækjanna að nýta sem best fjárfest-
inguna sem þegar er fyrir hendi í
ljósleiðurum og búnaði. Breið-
bandsþjónusta um land allt er
stefnumörkun sem mun verða ein-
hver sú mikilvægasta byggðaað-
gerð sem við getum ráðist í.
Stafrænt sjónvarp
Á vegum samgönguráðuneytis-
ins er unnið að samkomulagi um
uppbyggingu á einu dreifikerfi fyr-
ir stafræna útsendingu allra sjón-
varpsstöðva landsins. Myndaður
hefur verið vinnuhópur undir for-
ystu ráðuneytisins til að leiða sam-
an hagsmunaaðila. Stefnt er að út-
boði kerfisins strax á næsta ári.
Með því yrði stigið mikilvægt skref
á sviði upplýsingasamfélagsins,
með t.d. gagnvirku sjónvarpi og
ýmsum möguleikum fyrir notend-
ur. Þessar hugmyndir mínar
byggjast á því að tryggja hverjum
notanda sem einfaldastan aðgang
að dreifikerfi sem getur flutt hon-
um allar þær sjónvarpsstöðvar sem
hann kýs að vera áskrifandi að.
Með breiðbandi til allra og staf-
rænu sjónvarpi er stefna mín sú að
við verðum í fremstu röð á sviði
upplýsingatækni og þar með hvað
varðar möguleika til fjarnáms og
gagnaflutninga í þágu aukinnar
velmegunar og framþróunar.
Upplýsingatæknin
og framþróun
á landsbyggðinni
Eftir Sturlu
Böðvarsson
Höfundur er samgönguráðherra.
„Breið-
bandsþjón-
usta mun
verða ein-
hver sú mik-
ilvægasta byggðaað-
gerð sem við getum
ráðist í.“
Í MORGUNBLAÐINU í gær
var sagt frá húsfylli sem varð í
Austurbæjarbíói þar sem fólk kom
saman til að mótmæla stíflunni við
Norðlingaöldu. Þar segir frá því að
mikill tilfinningahiti hafi ríkt á
fundinum og fundarmenn hafi lok-
ið fundi með því að syngja ljóð
Eggerts Ólafssonar Ísland ögrum
skorið. Það er fátt betra en að vita
til þess að menn elski landið sitt.
En það er ekki jafnvíst að tilfinn-
ingahiti sé besti vegvísirinn þegar
við stígum þau skref sem varða
heill og hamingju þessarar þjóðar í
framtíðinni.
Stíflan við Norðlingaöldu er lyk-
illinn að því að gera raforkuverin á
Þjórsársvæðinu mjög hagkvæm.
Það er enginn annar virkjunar-
kostur sem jafnast á við þessa
framkvæmd í arðsemi. Þeir sem
halda öðru fram eru annað hvort
að tala gegn betri vitund eða vita
hreinlega ekkert um málið. Við
þessa hagkvæmni virkjananna
bætist að þegar liggur fyrir að það
er hægt að selja það rafmagn sem
yrði til við stíflugerðina við Norð-
lingaöldu og byggingu Búðarháls-
virkjunar. Norðurál hefur þegar
boðist til að kaupa þessa orku og
þau viðskipti yrðu þjóðfélaginu
öllu gríðarlega hagstæð. Með því
að ráðast á þessar framkvæmdir í
tilfinningahita er einfaldlega verið
að koma í veg fyrir að íslenska
þjóðin geti bætt kjör sín, kaup-
mátt sinn, samfélagsþjónustuna,
heilsugæsluna, menntakerfið og
allt þetta sem allir segjast þó að
vera berjast fyrir. Hið sorglega við
þetta allt saman er að þessi mót-
mæli snúast um ekki neitt. Það er
ekki verið að fremja nein voðaverk
gegn íslenskri náttúru. Það er um
að ræða lón og þar er ekki neitt
nema sandur og grjót. Jökullinn er
að hopa og verin hopa þá með hon-
um. Og áhyggjurnar sem þetta
góða fólk hefur útaf blessaðri
heiðagæsinni eru tóm fjarstæða.
Viðkoma gæsastofnsins ræðst
fyrst og fremst af vetrarskilyrð-
unum í Skotlandi og þau hafa farið
batnandi. Þessari gæs hefur fjölg-
að mikið á Íslandi svo og á Græn-
landi.
Mikið væri það gleðilegt ef þetta
góða fólk sem nú er að ofhita sig
vegna Norðlingaöldu fyndi ást
sinni á náttúru Íslands annan far-
veg því verkefnin eru mörg sem
verðugt er að sinna.
Tilfinningar
á villigötum
Eftir Einar Odd
Kristjánsson
Höfundur er alþingismaður.
„Norðurál
hefur þegar
boðist til að
kaupa þessa
orku og þau
viðskipti yrðu þjóðfélag-
inu öllu gríðarlega hag-
stæð.“
JÓHANNA Sigurðardóttir er
heiðarleg og kraftmikill þingmaður.
Jóhanna hefur sýnt í verki að loforð
þýðir loforð og að
hugur hennar er hjá
þeim sem minna
mega sín. Sem þing-
maður og ráðherra
hefur Jóhanna staðið
sig vel. Berið saman
þingmál Jóhönnu og
annara þingmanna. Eftir þá kynn-
ingu efastu ekki um hver á að vera í
forystu í öðru Reykjavíkurkjördæm-
inu.
Ég hefur unnið að málefnum fatl-
aða í hartnær fjörutíu ár. Ég hef
aldrei efast um að Jóhanna Sigurð-
ardóttir er sá ráðherra og þingmað-
ur sem hefur tekið skarpast á þeim
málum. Málaflokkur aldraða og fatl-
aðra hefur verið Jóhönnu hugleik-
inn. Í ráherratíð Jóhönnu var stuðn-
ingsfulltrúanámskeiðunum komið á,
sem lyft hefur launum þeirra veru-
lega upp.
Veitum Jóhönnu öflugan stuðning.
Stuðningsfólk skráið ykkur í flokk-
inn. Sigur Jóhönnu er sigur fólksins.
Jóhanna hefur alla tíð verið sann-
ur jafnaðarmaður. Kjósum Jóhönnu
til forustu í annað sætið 9. nóv-
ember.
Kjósum Jóhönnu í
annað sætið
Jan Agnar Ingimundarson
deildarstjóri skrifar:
Í KOMANDI flokksvali Samfylk-
ingarinnar 9. nóvember nk. í Suðvest-
urkjördæmi erum við svo heppin að
hafa margt gott fólk
sem vill beita kröft-
um sínum til betra
mannlífs.
Það er okkar að
raða á listann og hafa
þannig áhrif á hverjir
muni sitja á Alþingi
fyrir okkar kjördæmi á næsta kjör-
tímabili. Að mínu mati er kominn tími
til að leysa þá ríkisstjórn frá völdum
sem nú situr. Það er því áríðandi að
vanda valið og hugsa um hvað væn-
legast sé til árangurs. Mikilvægt er
að í forustuna veljist sterkt og dug-
mikið fólk með mikla reynslu. Fólk
sem hægt er að treysta.
Guðmundur Árni Stefánsson er
sterkur forustumaður, sem bæði er
dugmikill og fylginn sér. Hann hefur
sinnt pólitískum störfum frá ung-
lingsárum og hefur víðtæka þekkingu
á þjóðmálum. Hann beitir sér fyrir
jöfnuði og réttlæti.
Guðmundur Árni er maður sem
hægt er að treysta til að koma góðum
málum í höfn.
Þess vegna mun hann fá atkvæði
mitt í fyrsta sæti í komandi flokksvali.
Hvet ég annað samfylkingarfólk til að
gera slíkt hið sama.
Guðmundur Árni
er sterki
maðurinn
Erna Fríða Berg skrifar:
GUÐRÚN Ögmundsdóttir er ein-
stök manneskja og einstakur þing-
maður. Á Alþingi og í
borgarstjórn Reykja-
víkur hefur hún um
langt árabil verið
óþreytandi málsvari
barna og kvenna.
Guðrún hefur líka
haft kjark og þor til
þess að draga fram í dagsljósið fjölda
mála sem þjóðin hefur lengst af forð-
ast að ræða svo sem fátækt, fordóma
gegn minnihlutahópum í íslensku
samfélagi, kynferðislegt ofbeldi og
kynlífsvæðingu síðari ára. Af hispurs-
leysi hefur Guðrún sett þessi mál á
dagskrá og barist fyrir umbótum,
réttlæti og sanngirni.
Guðrún Ögmundsdóttir er sannur
Reykjavíkurþingmaður sem þekkir
borgina okkar og borgarbúa betur en
flestir aðrir. Hún fer ekki í mann-
greinarálit og er í reglulegum
tengslum við gríðarlegan fjölda
Reykvíkinga. Alls konar fólk. Fólk
sem veit að Guðrún gjörþekkir að-
stæður þeirra og hagsmuni, og fylgir
þeim fast eftir.
Þess vegna er Guðrún Ögmunds-
dóttir ómissandi í þingliði Samfylk-
ingarinnar. Ég mun af sannfæringu
kjósa hana í 4. sætið í prófkjöri
flokksins á laugardag og hvet aðra til
að gera það líka.
Guðrún Ögmunds-
dóttir er ómiss-
andi á þingi
Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona
borgarstjóra, skrifar:
ÉG hef fylgst með störfum Guð-
rúnar á Alþingi sl fjögur ár. Hún hef-
ur verið óhrædd við
að ræða mál sem áð-
ur hafa ekki heyrst í
sölum Alþingis og
með því opnað augu
margra á misrétti í
þjóðfélaginu. Guðrún
fer ekki troðnar slóð-
ir og er ötull málsvari
gegn hvers kyns mismunum, kyn-
þáttafordómum, fátækt og kúgun.
Það sem Guðrún hefur fram yfir
marga sem setið hafa á þingi er heið-
arleiki. Henni er hægt að treysta.
Ég hvet Samfylkingarfólk í
Reykjavík til þess að taka þátt í próf-
kjörinu á laugardag 9. nóvember og
tryggja Guðrúnu Ögmundsdóttur
sæti á Alþingi. Þessa rödd má ekki
vanta á Alþingi Íslendinga. Guðrúnu í
efstu sætin!
Rödd Guðrúnar
Ögmunds er
ómissandi!
Rúnar Marvinsson, matargerðarmaður á
Tjörninni, skrifar:
RANNVEIG Guðmundsdóttir
gefur kost á sér til að leiða lista
Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæmi. Það er nauðsynlegt
hverju framboði að
hafa á að skipa
traustum for-
ystumönnum. Rann-
veig er slíkur for-
ystumaður.
Ég kynntist
Rannveigu fyrir
mörgum árum, fyrst í gegnum af-
skipti okkar beggja af húsnæðis-
málum í Húsnæðismálastjórn. Hún
hefur alla tíð fylgst náið með því sem
hefur verið efst á baugi á vettvangi
verkalýðshreyfingarinnar og þekkir
því kjör íslensks launafólks vel. Okk-
ur er nauðsynlegt að hafa slíka ein-
staklinga á Alþingi. Þess vegna hvet
ég alla til að leggja henni lið í kom-
andi flokksvali, 9. nóvember nk.
Rannveigu áfram
í forystu
Grétar Þorsteinsson skrifar:
MÖRÐUR Árnason hefur um ára-
bil verið málsnjall og rökfastur
merkisberi róttækni og nýsköpunar,
jafnt í fræðistörfum
sínum sem í fjöl-
miðlum og á alþingi
þegar hann hefur
setið þar sem vara-
maður. Mörður hef-
ur farið einarðlega
fram gegn einka-
væðingu peningahyggjunnar og ver-
ið ódeigur að halda á loft sjón-
armiðum félagshyggju. Öll
framganga hans ber vott um trausta
menntun og fagra mannúðarstefnu.
Með djúpar rætur í alþýðlegum, ís-
lenskum menningararfi og ágæta út-
sýn til þeirrar fjölmenningar sem við
viljum nú rækta hefur hann skapað
sér mikla sérstöðu sem getur skilað
íslenskri pólitík langt í þá átt sem við
viljum fara. Rödd hans og hug-
myndir ná hvarvetna eyrum fólks
vegna hins eðlislæga ferskleika og
djörfungar sem einkenna málflutn-
ing hans. Slíkum manni þarf að
tryggja öruggt sæti á framboðslista
Samfylkingarinnar.
Mörður böggar
íhaldið
Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur skrif-
ar:
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930
TEPPI Á
STIGAHÚS
- got t verð -
komum og gerum verðtilboð