Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 34

Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 34
UMRÆÐAN 34 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SAMGÖNGUMÁL í hinu nýja Suðvesturkjördæmi eru eitt þeirra mála sem kjósendur í kjördæminu hljóta að setja á oddinn í væntan- legum kosningum í vor. Samgöngu- mál liggja mér nærri vegna starfs míns og er mér fullljóst hve stórt hlutverk þau spila í daglegu lífi allra sem í kjördæminu búa. Stór hluti útgjalda heimilanna stafar af sam- göngumálum, þau eru nátengd ör- yggi okkar svo sem um læknishjálp og öll aðföng til heimilishalds og fyrirtækjareksturs. Hámarksskil- virkni samgöngukerfisins skilar sér hratt í auknum tekjum, minni út- gjöldum og meira öryggi íbúanna. Hér nefni ég þrjú mál: ofan- byggðaveg sunnan Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar með nýrri Reykjanesbraut; greiðari samgöngur eftir núverandi megin- leiðum frá þessum byggðum í átt að miðbæ Reykjavíkur og tvöföldun Vesturlandsvegar milli Mosfells- bæjar og Reykjavíkur. Allt stórmál sem verður að taka föstum tökum. Ofanbyggðavegurinn hefur verið á skipulagsteikningum í einni mynd eða annarri í áratugi en ekkert hef- ur gerst í tíð núverandi ríkisstjórn- ar. Með væntanlegri stækkun ál- versins verður núverandi Reykjanesbraut að víkja þar sem álverið rís þar sem hann liggur nú. Það ætti að vera krafa okkar að of- anbyggðavegurinn og ný Reykja- nesbraut verði afgreidd saman sem eitt mál sem þurfi brýna úrlausn. Með þeim hætti væri einnig forðað því slysi að setja Reykjanesbraut í gegnum Hafnarfjörð í stokk sem engan vanda leysti. Á morgnana myndast margra kílómetra langar samfelldar bílarað- ir frá Mosfellsbæ í átt að Reykjavík með tilheyrandi sóun á tíma og elds- neyti vegfarenda. Ég er ekki í vafa um að sparnaður á því tvennu skil- aði kostnaði af tvöföldun vegarins til baka á mjög stuttum tíma. Þá þarf sem fyrst að huga að nýrri framtíðarlausn á umferð í gegnum Kópavog, þar er óhjá- kvæmilegt fyrr eða síðar að taka Hafnarfjarðarveginn í göng undir Kársnesið og gefa Kópavogsbúum færi á sameinuðum heilum bæ á nýjan leik. Að þessu þarf helst að huga strax samhliða áformum um yfirbyggingu gjárinnar. Gjáin stefn- ir í að verða of þröng og gefur ekki færi á lausnum margvíslegra vanda- mála framtíðarinnar, allt frá vanda sívaxandi þungaumferðar til vanda reiðhjólafólks um Kópavog til Reykjavíkur. Ekki minnkar heldur umferðarvandinn um Kópavog ef innanlandsflugið fer suðurfyrir Hafnarfjörð eða til Keflavíkur. Verulegur fjöldi slysa og árekstra verður frá Kópavogslæk, yfir í Fossvog alveg að Suðurhlíðum. Árekstrar á þessu svæði verða oft til að hindra alla umferð á stóru svæði, þar með talda umferð sjúkra- bíla á leið í spítalann í Fossvogi frá slysstað eða frá bæjunum okkar í Suðvesturkjördæmi. Hluta af þess- um vanda mætti leysa með ódýrri hjáleið öryggis- og sjúkrabíla sam- hliða Kringlumýrarbraut að spítal- anum. Eftir áralanga vanrækslu ríkisins á úrlausn hagkvæmra og öruggra þjóðleiða í þéttbýlinu er komið að stórum ákvörðunum. Þar er ég á heimavelli og fái ég til þess stuðning ykkar mun ég leggja þeim málum til fullt afl mitt og kostgæfni í þágu öryggis, hagkvæmni og umhverfis. Þjóðleiðir í Suðvestur- kjördæmi Eftir Þorlák Oddsson „Eftir ára- langa van- rækslu rík- isins á úrlausn hag- kvæmra og öruggra þjóðleiða í þéttbýlinu er komið að stórum ákvörðunum.“ Höfundur býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi og sækist eftir 3.–4. sæti listans. Í FLOKKSVALINU sem fram- undan er hjá Samfylkingunni býð- ur Þórunn Sveinbjarnardóttir sig fram í annað sætið í Suðvesturkjör- dæmi. Þórunn hef- ur sýnt með fram- göngu sinni á Alþingi að þar fer þingmaður með yf- irburðaþekkingu á utanríkis- og alþjóðamálum. Þór- unn hefur vakið athygli á mik- ilvægi smárra velferðarríkja í frið- ar- og mannréttindamálum og því hve illa hefur gengið að rétta hlut fátækra ríkja í þriðja heiminum. Þekkingu sína á þeim málum hef- ur hún fengið gegnum vinnu sína fyrir Alþjóða Rauða krossinn, en sem sendifulltrúi og seinna upp- lýsingafulltrúi hans fór hún víða um Afríku og Asíu. Það er líka eftir því tekið hve umhverfismál eru Þórunni hug- leikin, en þar tekur hún eigin af- stöðu mótaða af lífssýn sem ein- kennist af væntumþykju gagnvart náttúru og þjóð. Ég tel að þau mál sem Þórunn hefur beitt sér fyrir á Alþingi séu þess eðlis að Samfylk- ingarfólk verði að fylkja sér um Þórunni og leggja þannig sitt lóð á vogarskálina að rödd Þórunnar hljómi áfram á Alþingi Íslendinga. Þórunn – kraft- mikil kona Sigurður Björgvinsson, bæjarfulltrúi í Garðabæ, skrifar: SAMFYLKINGIN er breiðfylk- ing sem rúmar margar skoðanir. Mér finnst mikilvægt að Samfylk- ingin hafi tvennt að leiðarljósi við mótun stefnuskrár sinnar. Annars veg- ar að réttindi kynjanna verði jöfn- uð og hins vegar að náttúru Íslands verði ekki fórnað fyrir skammsýna stóriðjudrauma. Til að tryggja þetta ætla ég að styðja Þórunni Svein- bjarnardóttur í prófkjöri Samfylk- ingarinnar 9. nóvember næstkom- andi. Hún er málsvari minna mála. Svo lækkar hún líka meðalaldur þingfólksins. Ég styð Þórunni á laugardaginn Fríða Rós Valdimarsdóttir nemi skrifar: UMRÆÐAN um verð á matvæl- um og nauðsynjavöru hefur verið áberandi að undanförnu. þar hafa jafnvel hörðustu frjálshyggjumenn stjórnarmeirihlutans á Alþingi snú- ist upp í andhverfu sína og mælt gegn hinni frjálsu samkeppni og reynt að hengja ábyrgðina á verð- laginu um hálsinn á þeim kaup- mönnum sem þó bjóða best verð. Það er athyglisvert að í allri þessari umræðu hefur hlutur rík- isvaldsins verið vandlega undan- skilinn. Fráleit verndartollastefna er enn í fullu gildi. Og gildir hún ekki síst þegar hollar matvöruteg- undirnar á borð við grænmeti eiga í hlut. Ofan á þetta heldur rík- isstjórnin á sama tíma áfram linnu- lausum styrktargreiðslum til þeirra sem framleiða meðal annars feitt kjöt, rjóma og smjör og telur sig geta réttlætt margra milljarða útgjöld á ári hverju í nafni byggða- stefnu. Órökstutt stefnuleysi Það kórónar reyndar vitleysuna að það er einmitt þetta sama feit- meti sem heilbrigðisþjónusta okkar þarf síðan með ærnum tilkostnaði að skafa innan úr æðaveggjum þegnanna. Sumar landbúnaðarvör- ur eru að sönnu hollar, en sá hvim- leiði alhæfingarfrasi að allar land- búnaðarvörur, meira að segja þrælsykraðar mjólkurafurðir, séu hollar er ekki studd rökum. Í öllu falli gengur þetta skipulag, sem enginn veit almennilega lengur hver kom á eða hver styður, þvert gegn hagsmunum fólksins í landinu og þá ekki síst, eins og margoft hefur verið bent á, gegn hagsmun- um bænda, sem sjá lítið af þeim stuðningi sem þeim er sagður ætl- aður. Breytum til! Allt þetta ástand á matvæla- markaði á Íslandi, allir þeir millj- arðar sem fara á ári hverju í ómarkvissar og illskiljanlegar stuðningsaðgerðir, ásamt gamal- dags verndartollum á hollustuvör- um, sýna að það er löngu kominn tími til að beina umræðu um mat- vælaverð inn á aðrar brautir en hún hefur verið á undanfarið. Hátt matvælaverð er ekki búðunum að kenna, heldur því kerfi sem þær búa við. Og það segir líka sína sögu um dugleysi sitjandi ríkisstjórnar, nema auðvitað að það sé þaulskipu- lagt ætlunarverk hennar að stuðla ekki að neinum framförum á þessu sviði, að enn skuli gagnrýni af þessu tagi, á verndartolla og nið- urgreiðslur, eiga fyllilega rétt á sér eftir ríflega tíu ár í valdastóli. Fátt sýnir betur að stefna núverandi ríkisstjórnar á lítið sem ekkert er- indi við almenning og löngu er orð- ið tímabært að breyta til. Hringavitleysa í matvælaumræðu Eftir Jakob Frímann Magnússon Höfundur er frambjóðandi í flokks- vali Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Fráleit verndar- tollastefna er enn í fullu gildi.“ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Arðbær aukavinna Bandarískir dollarar, íslensk orka, asískt hugvit og þýsk mynt Byggðu upp þínar eigin lífeyristekjur. Hafið samband við Björn, s. 820 5788 eða beg@isl.is . AKTU TAKTU óskar eftir að ráða duglegt, hresst og áreið- anlegt starfsfólk til starfa við afgreiðslu og á grill. Umsóknareyðublöð á staðnum. AKTU TAKTU ehf., Skúlagötu 15, 101 Rvík. aktutaktu@simnet.is Leikskólinn Heklukot Hellu Leikskólakennarar athugið! Lausar eru til umsóknar stöður aðstoðarleik- skólastjóra og deildarstjóra við leikskólann Heklukot á Hellu. Heklukot er tveggja deilda leikskóli þar sem geta dvalið um 40 börn samtímis. Þetta er gott tækifæri fyrir leikskólakennara sem vilja starfa í náinni snertingu við umhverfið og náttúruna í fallegu héraði. Samtals eru starfræktir þrír leikskólar í sveitarfélaginu. Hella er í sveitarfélaginu Rangárþingi ytra í um 90 km fjarlægð frá Reykjavík. Á Hellu er góð þjónusta á öllum sviðum, þ.á m. grunnskóli og frábær íþrótta- og útivistarað- staða. Sveitarfélagið getur boðið væntanlegum leikskólakennurum ódýrt leiguhúsnæði. Upplýsingar veitir Kristín Sveinsdóttir, leikskólastjóri, í síma 487 5956. Heildsala NTC Óskum eftir að ráða sölumann til starfa hjá Heildsölu NTC hf. Heildsala NTC selur tískufatnað, skó og barnafatnað frá Diesel, InWear, 4-You, Saint Tropez og Sparks ásamt fleiri vin- sælum vörumerkjum. Starfið felst í sölumennsku og umsjón með heildsölu NTC þ.e. fyrirframsölu, þjónustu og vöruafgreiðslu við verslanir ásamt samskiptum við erlenda birgja. Leitum eftir jákvæðum og áhugasömum starfskrafti sem hefur reynslu af heild- sölu eða sambærilegu starfi og er með framtíðarstarf í huga. Vinnutími er frá kl. 9—17 virka daga. Umsóknir berist skriflega á skrifstofu NTC á Laugavegi 91, merktar „Heildsölustarf“ fyrir mánudaginn 11. nóv. nk. eða á netfang helga@ntc.is . Nánari upplýsingar gefur Helga í síma 511 1720. TIL LEIGU 55 fm skrifstofuhúsnæði til leigu Gott 55 fm skrifstofuhúsnæði á annarri hæð við Austurströnd, Seltjarnarnesi. Húsnæðið skiptist í forstofu, eldhúskrók, wc og sal. Möguleiki á að leigja lagerrými á fyrstu hæð. Allar nánari upplýsingar gefa Guðrún eða Sigrún í síma 562 5055.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.