Morgunblaðið - 06.11.2002, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 37
Hinn 28. október sl.
voru liðin 100 ár frá
fæðingu Ásgeirs Þ.
Ólafssonar fv. héraðs-
dýralæknis í Borgar-
nesi. Ásgeir var fæddur
28. október 1902 í
Keflavík, sonur
hjónanna Þórdísar Ein-
arsdóttur frá Kletti í
Geiradal og Ólafs V.
Ófeigssonar kaup-
manns frá Fjalli á
Skeiðum.
Ásgeir gekk í Flens-
borgarskóla og
Menntaskólann í
Reykjavík þaðan sem hann útskrif-
aðist 1922. Síðan stundaði hann nám
í dýralækningum við Tierartztliche
Hochschule í Hannover og útskrif-
aðist þaðan 1927.
Eftir heimkomuna varð hann að-
stoðardýralæknir Magnúsar Einars-
sonar í Reykjavík þar til hann fékk
embætti sem héraðsdýralæknir í
Vestfirðingafjórðungi 7. nóvember
1928 með aðsetur í Borgarnesi þar
sem hann bjó alla sína starfsævi eða
til 1973. Á þeim tíma náði umdæmi
héraðsdýralæknisins frá Hvalfjarð-
arbotni og vestur í Ísafjarðardjúp,
þannig að oft voru löng og ströng
ferðalög fyrir hinn unga dýralækni
og bílaöld ekki gengin í garð enda
mest ferðast á hestbaki, fótgangandi
eða sjóleiðis. Í dýralæknisstörfum
var Ásgeir óragur, farsæll og mjög
nákvæmur að öllu því er laut að sótt-
hreinsun og hreinlæti. Hann var
duglegur ferðamaður og átti góða
hesta sem honum var mjög annt um.
Fyrir utan það að starfa í stóru
héraði þá voru honum hugleikin
rannsóknarstörf og öflun aukinnar
þekkingar og í því skyni hélt hann í
annað sinn til Þýzkalands og dvaldi í
Hannover árin 1937–1938 við fram-
haldsnám. Á árunum 1929–1953 var
Ásgeir kennari við Bændaskólann á
Hvanneyri, jafnframt því skrifaði
hann fjölda greina í bæði erlend og
innlend fræðitímarit. Árið 1934 var
Dýralæknafélag Íslands stofnað, var
Ásgeir einn af stofnendum þess
ásamt Ásgeiri Einarssyni, Braga
Steingrímssyni, Hannesi Jónssyni
Jóni Pálssyni og Sigurði Hlíðar.
Hann tók alla tíð virkan þátt í starfi
félagsins, sat í stjórn þess frá 1945
og var formaður frá 1958.
ÁSGEIR Þ.
ÓLAFSSON
Hann var kjörinn
heiðursfélagi Dýra-
læknafélags Íslands á
50 ára afmæli þess
1984, einnig var hann
kjörinn heiðursfélagi
Norska dýralækna-
félagsins árið 1963. Ás-
geir var einn af stofn-
endum Rotaryklúbbs
Borgarness og í fyrstu
stjórn og forseti um
tíma. Hann var einnig
stofnfélagi í Norræna
félaginu í Borgarnesi
og Íslenzk-ameríska
félaginu sem starfaði
um tíma.
Hann kvæntist 6. september 1931
Guðrúnu S. Árnadóttur, dóttur Árna
Eiríkssonar kaupmanns og leikara
og Vilborgar Runólfsdóttur í
Reykjavík, þau eignuðust þrjá syni,
fyrir hjónaband átti Ásgeir eina
dóttur.
Ásgeir og Guðrún bjuggu alla tíð í
Borgarnesi eða til ársins 1973 þegar
Ásgeir lét af störfum fyrir aldurs
sakir. Þau bjuggu í Reykjavík til árs-
ins 1992 þegar þau fluttust á Dval-
arheimilið í Borgarnesi þar sem þau
létust, Guðrún 1993 og Ásgeir 1995.
Bragi Ásgeirsson.
Stofnendur Dýralæknafélags Íslands: Bragi Steingrímsson, Ásgeir Ein-
arsson, Jón Pálsson, Sigurður Hlíðar og Ásgeir Þ. Ólafsson. Á myndina
vantar Hannes Jónsson.
25. – Db3 26. Dh5 Dc4 27. Bh6
Dc6
Gerir við hótuninni 28. Hxg7+
Hxg7 29. De8+ mát.
28. Rf4 Dd7 29. Dg5 De7 30. Dh5
–
30. – Hc4?
Eftir 30. – Dd7 kemur 31. Dd1
Kh8 32. Bg5, ásamt 33. Rh5 o.s.frv.
31. Bg5 Dd7 32. Bxd8 Dxd8 33.
Rxe6 De7 34. Rg5 g6 35. Rxf7
Dxf7 36. Dg5 –
Tímahrakið er löngu farið að
segja til sín hjá báðum keppendum.
Lokin eru einkennandi fyrir tíma-
mörkin hér í Bled. Hvítur leikur
nokkra leiki til að vinna sér inn
tíma fyrir lokasóknina.
36. – Rc6 37. h5 Re7 38. hxg6
hxg6 39. Hh3 Dg7 40. He3 Hc6 41.
g3 Kf8 42. Kg2 Ke8 43. a5 b5 44.
a6 Df7 45. Ha5 Hb6 46. He1 Rc6
47. Ha3 Rb8 48. Hh1 Rxa6 49.
Hh8+ Kd7 50. Hd8+ Kc7 51. Hd6
Kb7 52. Dd8 Rc7 53. Hd7 og svart-
ur gafst upp, því að drottningin
fellur vegna yfirvofandi máthótun-
ar.
Atskákmót öðlinga 2002
Atskákmót öðlinga 2002 hefst
miðvikudaginn 6. nóvember kl.
19:30. Teflt verður í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni
12. Þetta mót er opið öllum skák-
mönnum 40 ára og eldri. Tefldar
verða 9 umferðir eftir Monrad-
kerfi, með umhugsunartímanum 30
mínútur á skák. Teflt verður næstu
þrjú miðvikudagskvöld, þ.e. 6., 13.
og 20. nóvember. Tefldar verða
þrjár skákir á kvöldi.
Þátttökugjald er 1.500 kr. Veittir
verða verðlaunagripir fyrir þrjú
efstu sætin.
Áhugasömum er bent að skrá sig
hjá Ólafi S. Ásgrímssyni í síma 895-
5860, vinnusími 560-5763.
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
ALDARMINNING
aðstöðu til að veita slíkum hugvits-
mönnum öflugri stuðning og stuðla
að því að hugmyndir þeirra verði
að veruleika, fylgja þeim eftir.
Ég hitti Magnús síðast á sl.
sumri. Við ræddum þá það verkefni
sem verið hafði í gangi sl. ár og
hugsanlegt framhald. Líkamlegu
þreki Magnúsar hafði hrakað mjög
síðustu misserin en hugurinn var
jafn virkur og áður, enginn skortur
á nýjum hugmyndum eða hugleið-
ingum um hvernig nýta mætti eldri
uppfinningar á nýjan hátt. Ekki
læddist þá að manni sá grunur að
svo stutt væri í endalokin.
Við sem störfum við Tæknihá-
skóla Íslands og áttum því láni að
fagna á undanförnum árum að fá
tækifæri til að vinna úr hugmynd-
um og uppfinningum Magnúsar
Thorvaldssonar munum ekki
gleyma framlagi hans til starfs
okkar í þágu tæknimenntunar. Við
sendum aðstandendum hans inni-
legar samúðarkveðjur.
Guðbrandur Steinþórsson.
Magnús Thorvaldsson var fé-
lagi okkar í Landssamtökum
hjartasjúklinga. Hann var einn
þeirra sem ætíð mátti hringja í til
sjálfboðaliðsstarfa og hann mætti
glaður til þeirra starfa. Magnús
hafði frá mörgu að segja og smit-
aði út frá sér með sínu létta skapi
og hugmyndaauðgi.
Fyrir hönd LHS sendi ég eig-
inkonu og nánustu ættingjum
samúðarkveðju.
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson,
formaður LHS.
HINSTA KVEÐJA
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
Eiginkona mín, ástkær móðir, tengdamóðir og
amma,
STEINUNN GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugar-
daginn 2. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju laug-
ardaginn 9. nóvember kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
MS-félagið eða Minningarsjóð Skógarbæjar.
Guðmundur Vikar Einarsson,
Edda Vikar Guðmundsdóttir, Jón Örn Guðmundsson,
Þóra Vikar Guðmundsdóttir, Jahmel Toppin,
Guðmundur Vikar Jónsson.
Móðir okkar,
SVAVA BERNHARÐSDÓTTIR,
Hrauntungu 50,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju í Reykja-
vík föstudaginn 8. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar afbeðnir, en bent er á Svövu-
sjóð til eflingar kyrrðardögum í Skálholti, sem
móðir okkar bar mjög fyrir brjósti. (Bankareikningur 0151-05-060560).
Bernharður Guðmundsson,
Margrét Guðmundsdóttir,
Kristján Guðmundsson,
Þórhallur Guðmundsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SVERRIR HARALDSSON
frá Æsustöðum í Langadal,
til heimilis í Hamraborg 28,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Þingeyrakirkju laugardaginn 9. nóvember
kl. 14.00.
Jóhanna Þórarinsdóttir,
börn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
ÞÓRHALLUR HELGASON,
Aðalgötu 1,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 8. nóvember kl. 14.00.
Ingibjörg Þórhallsdóttir, Gunnsteinn Agnar Jakobsson,
Ragnar Þórhallsson,
Ásmundur Þórhallsson,
Helga Þuríður Þórhallsdóttir, Jóhann Bergur Hlynsson,
barnabörn og
Hermann Helgason.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR ESTHER EINARSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
lést að morgni þriðjudagsins 5. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gurðríður Sigfúsdóttir, Thormod Haugen,
Margrét Sigfúsdóttir, Sigurður Petersen,
Einar Sigfússon, Anna K. Sigþórsdóttir,
Dómhildur Sigfúsdóttir,
María Sigfúsdóttir, Kristbjörn Theódórsson,
Sigurður Sigfússon, Sjöfn Björnsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNATANS KRISTLEIFSSONAR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Aðstandendur.