Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 42

Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss og Goðafoss koma og fara í dag. Björn og Freyja koma í dag. Anna og Bremon fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Katla fór í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvalla- götu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin miðvikud. kl. 14–17. Flóamarkað- ur, fataútlutun og fata- móttaka opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mánuði kl. 14–17, s. 552 5277. Mannamót Aflagrandi 40. Versl- unarferð í Hagkaup í dag kl. 10. Kaffiveitingar í boði Hagkaupa. Skrán- ing í afgreiðslu og í s. 562 2571. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofa, kl. 13 spilað, kl. 10–16 pútt. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 Bún- aðarbankinn, kl. 13–16.30 spiladagur, bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 10–10.45 leikfimi, kl.14.30–15 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus, hár- greiðslustofan opin kl. 9–16.45 nema mánu- daga. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9 silki- málun, kl. 13–16 körfu- gerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. kl. 13.30 bankaþjónusta Búnaðar- banka. Félagsstarfið Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, mósaik, gifs og íslenskir steinar og postulínsmálun, hár- greiðslustofan opin kl. 9–14. Félagsstarfið Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 hár- snyrting, kl. 10–12 versl- unin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska fyrir byrjendur. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Opið hús í Holtsbúð kl. 13.30. Spil- að o.fl. Bridgenámskeið byrjar í dag á Garða- bergi kl. 13 Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15–16. Skrifstofan í Gullsmára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tré- skurður kl. 9, myndlist kl. 10–16, línudans kl. 11, glerskurður kl. 13, pílu- kast kl. 13.30. Námskeið: Mótun á leir fyrir byrj- endur hefst föstudag 8. nóv. Skráning í Hraun- seli s. 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. . Miðvikud.: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Söng- félag FEB kóræfing kl. 17. Línudanskennsla kl. 19.15. Söngvaka kl. 20.45. Fræðsluferð í Þjóðmenningarhús 13. nóv. kl. 14, að skoða ís- lensku handritin, skrán- ing á skrifstofu FEB. S. 588 2111. Félag eldri borgara, Suðurnesjum, Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík. Félagsvist alla miðviku- daga kl. 14. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 9.30 boccia, kl. 10.45 hæg leikfimi, kl. 13 félagsvist, kl. 15–16 viðtalstími FEBK, kl. 16 hring- dansar, kl. 17 bobb. Handverksmarkaður verður fimmtud. 7. nóv. kl. 13. Panta þarf borð sem fyrst. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 9.05 leikfimi kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 13 keramikmálun. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, hárgreiðsla og fótaað- gerð, kl. 13 bridge, búta- saumur, harðangur og klaustur. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur og jóga, kl. 10 jóga, kl.13 dans- kennsla framhalds- hópur, kl. 14 línudans, kl. 15 frjáls dans og teiknun og málun. Fóta- aðgerðir og hársnyrting. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10– 11 samverustund, kl. 9– 16 fótaaðgerðir, kl. 13– 13.30 banki, kl. 14 fé- lagsvist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9–16 fóta- aðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 10.30–11.30 jóga, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré- skurður. Fimmtud. 7. nóv. kl.10.30 helgistund í umsjón séra Hjálmars Jónssonar dómkirkju- prests, kór Félagsstarfs aldraðra syngur undir stjórn Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur. Myndlistarsýning Sig- rúnar Huldar Hrafns- dóttur er opin virka daga á sama tíma og þjónustumiðstöðin. Sýn- ingin stendur til 8. nóv. Allir velkomnir. Þriðjud. 12. nóv. kl.13.30 verður fræðslufundur. Er sorg- in ber að dyrum. Ást- vinamissir, heilsumissir, hvernig bregst ég við? Sigrún Ingvarsdóttir fé- lagsráðgjafi og Kristín Pálsdóttir prestur. Allir velkomnir, óháð aldri, kaffiveitingar á eftir. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morgun- stund, bókband og búta- saumur, kl. 13 hand- mennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband, kl. 14.10 verslunarferð. Háteigskirkja eldri borgarar, kl. 11 sam- vera, fyrirbænastund og stutt messa í kirkjunni, allir velkomnir, súpa í Setrinu kl. 12, brids kl. 13. Hringurinn. Félags- fundur í félagsheimilinu, Ásvallagötu 1, kl. 18.30. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra, Hátúni 12, kl. 19.30 félagsvist. Áhugahópur um heil- kenni Sjögrens. Kaffi- spjall í kvöld kl. 20 á Kaffi Mílanó, Faxafeni. Bústaðakirkja, starf aldraðra, kl. 13–16.30, föndur, gáta, spil, helgi- stund. Gestur verður Benedikt Davíðsson, for- maður Landssambands eldri borgara. Bílaþjón- usta, s. 553 0048, og 864 1448, Sigrún eða s. 553 8500, kirkjuverðir. Kvenfélag Grensás- sóknar. Basar í safn- aðarheimilinu laugard. 9. nóv. kl. 14–17. Tekið móti munum föstudag 8. nóv. kl. 17–19 og laugar- dag kl. 10–12. Félags- fundur verður mánud. 11. nóv. kl. 20. Hana-nú Kópavogi. Í dag: kl. 10 mæting nema í sögu og þróun leiklistar í Ríkisútvarpið, Efsta- leiti, kl. 17–18.30 nám- skeið í leiklistarsögu í Gjábakka, kl. 20 fundur í Bókmenntaklúbbi í Kórnum á Bókasafni Kópavogs, gestur Ragn- hildur Richter bók- menntafræðingur. Um- ræðuefni: Ævisögur. Hallgrímskirkja eldri borgarar. Opið hús í dag. kl. 14, einsöngvararnir Erna Blöndal og Örn Arnarson syngja, hug- vekju flytur sr. Jón Bjarman, allir velkomn- ir. Leikfimi fyrir eldri borgara er þriðju- og föstudaga kl. 13. Jó- hanna Sigríður Sigurð- ardóttir sjúkraþjálfari annast leikfimina. Kvenfélag Hallgríms- kirkju. Fundur verður fimmtud. 7. nóv. kl. 20, gestir fundarins verða konur úr Kvenfélagi Grensáskirkju, skóla- kantorum, sr. Jón Dalbú flytur hugvekju, Sigríð- ur Norðkvist leikur á harmónikku. Kvenfélagið Hrönn heldur jólapakkafund fimmtud. 7. nóv. kl. 20 í sal flugvirkjafélagsins, Borgartúni 22, þriðju hæð. Munið jólapakk- ana. Í dag er miðvikudagur 6. nóv- ember, 310. dagur ársins 2002, Leonardusmessa. Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jóh. 20.) Víkverji skrifar... ÞAÐ var vel til fundið hjá Taliað fá Guðna Ágústsson til liðs við sig að kynna nýja talsímaþjón- ustu og leiðrétta í leiðinni þann misskilning að bændur hefðu í raun verið andvígir símanum í byrjun síðustu aldar. Eins og vel kemur fram t.d. í ævisögu Guðjóns Frið- rikssonar um Einar Benediktsson voru bændurnir, sem mótmæltu símalagningunni, ekki á móti fjar- skiptatækninni sem slíkri, heldur vildu þeir loftskeytasamband við útlönd, Marconi-skeyti eins og þá var talað um, í stað sæsímans og töldu það ódýrari kost. Á blaða- mannafundi Tals í gær leiðrétti landbúnaðarráðherrann „mestu lygi Íslandssögunnar“ og benti á að bændurnir hefðu viljað þráðlaust samband – sem er auðvitað tízkan í dag, þótt Marconi-skeytin sem slík megi muna sinn fífil fegri. Þannig má álykta sem svo að bændurnir sem riðu til Reykjavíkur hafi verið á undan sinni samtíð. Hver er bet- ur til þess fallinn að halda málstað bænda á lofti en Guðni? Sennilega ekki einu sinni Jóhannes eftir- herma, þótt hann nái Guðna stund- um betur en Guðni sjálfur. x x x VÍKVERJI á hins vegar bágtmeð að skilja hvaða vit er í því að hið nýja fjarskiptafyrirtæki, sem rekið er undir merkjum Ís- landssíma, bjóði upp á þrjú vöru- merki í hefðbundinni talsímaþjón- ustu. Undir hatti Íslandssíma er nú boðið upp á Halló jörð, TALsíma og svo almenna símaþjónustu Ís- landssíma. Sennilega eru ennþá reknar margar símstöðvar hjá hinu sameinaða fyrirtæki, hver fyrir sitt vörumerki, ef svo má segja, og hver um sig áreiðanlega illa nýtt. Hvar er öll hagræðingin og „sam- legðin“ sem átti að fást fram með sameiningu fyrirtækjanna? Vík- verji bara spyr. x x x ÞESSA dagana er verið að takavinnupalla utan af nýju húsi Orkuveitu Reykjavíkur við Réttar- háls. Endanlegt útlit hússins er því að koma í ljós. Óneitanlega er þetta glæsilegt hús enda ljóst að þeir sem að því standa hafa lagt mikinn metnað í það. Húsið er ekki hefðbundið að því leyti að útveggir þess eru hallandi. Víkverji leyfir sér samt að vona að halli verði ekki á rekstri Orkuveitunnar þó að fyr- irtækið hafi byggt þetta stóra hall- andi hús. x x x VÍKVERJI var nýlega á ferð áLaugavegi, en götumyndin er að taka talsverðum breytingum. Búið er að rífa Stjörnubíó og til stendur að gera frekari breytingar á nágrenni þess. Þó umhverfið sé ekki neitt augnayndi í dag má ljóst vera að það eru að skapast mögu- leikar á að gera þennan hluta Laugavegar skemmtilegri en hann hefur verið. Á móti Stjörnubíói er verslunin Sautján, en gerðar voru miklar endurbætur á því húsi fyrir nokkrum árum. Nýtt hús er þar skammt frá á horni Laugavegar og Snorrabrautar. Víkverji vonar að vel takist til við hönnun þeirra bygginga sem koma til með að rísa á lóð Stjörnu- bíós þannig að þarna verði til enn öflugra verslunarsvæði. Ekki er síður mikilvægt að fella nýjar byggingar vel að þeim húsum sem fyrir eru á svæðinu. Svar við fyrirspurn Sigríðar Pétursdóttur SAMKVÆMT lögum Fé- lags eldri borgara í Reykja- vík skal ákvarða félagsgjald á aðalfundi. Á síðasta aðal- fundi félagsins var sam- þykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn tveimur að félagsgjald fyrir árið 2002 yrði kr. 2.800 fyrir einstak- ling og kr. 4.000 fyrir hjón. Þessi svokallaði hjónaaf- sláttur á félagsgjaldi var fyrst samþykktur á aðal- fundi félagsins árið 1998 og hefur afslátturinn verið síð- an. Með bestu kveðju, Stefanía Björnsdóttir, framkvæmdastjóri FEB. Þakklæti til hestamanns SL. MÁNUDAG, 28. októ- ber, milli kl. 14:30 og 16:00 var ég ásamt þremur son- um mínum á leið milli Reykjavíkur og Selfoss. Öllu má um kenna, að- stæðum, klaufaskap, vanút- búnum bíl miðað við að- stæður (á fimm tímum hafði safnast töluverður snjór og hálka á veginn), of miklum hraða og eflaust fleiru en a.m.k. lentum við út af við gatnamótin í Þrengslin. Ég hafði þurft að taka skyndiákvörðun þegar bíl- inn byrjaði að spóla sig nið- ur í brekkuna við Skíða- skálann og sneri þar við áður en hann fór að renna þversum og ætlaði sem leið lá að fara Þrengslin. Á þeim gatnamótum tók bíllinn stýrivöldin og setti okkur útaf í töluverðum halla. Nú voru góð ráð dýr. Synirnir skelkaðir og skakkir og ég (sjálfsagt eins og kvenna er siður við svona aðstæður segja ein- hverjir) í titrandi sjokki. Hringt í fjölskyldumeðlim á Selfossi og hann ræstur út og nú var bara að bíða. Dálítil umferð var og alls kyns bílar fóru hjá, mis- stórir bílar og eflaust mis- vel útbúnir, þar til að kom úr Þrengslunum eldri Paj- ero með hestakerru í eftir- dragi. Úr honum steig maður sem leit yfir aðstæður og spurði hvort ég hefði kaðal í bílnum. Eftir að yfirfara í huganum hvaða öryggis- tæki ég var með var kaðall ekki eitt þeirra. Sem betur fer bjó hann betur og án þess að hugsa sig um sneri hann sínum bíl og gekk í það verk að draga mig upp. Það gekk klakklaust og horfði hann á eftir mér þar sem ég lét bílinn lötra af stað niður Þrengslin. Vil ég hér og nú segja frá þessum manni til að fólk í vanda viti að það finnast enn riddarar á þjóðvegin- um og þakka honum (og konu sem beið í bílnum meðan hann hjálpaði) inni- lega fyrir rólegheitin og yf- irvegunina sem frá honum stafaði þrátt fyrir ekki of gáfulegar spurningar mín- ar né því að mér tækist í stressinu að fara alveg eftir fyrirmælum hans (t.d. að láta bílinn ekki spóla !). Takk fyrir, hestamaður. Megi vera fleiri eins og þú á þjóðvegum landsins. Ingibjörg á bláum Mercedes Benz Vito. Vantar auðkenni ÉG fór nýlega í verslun hér í bæ og þar var ungur mað- ur sem hélt á pennum og sagðist hann vera að safna fé til hjálpar ungum fíkni- efnaneytendum. Lét ég hann fá pening og fékk penna í staðinn. Eftir að heim var komið læddist að mér sá grunur að ég hefði látið plata mig og féð hefði runnið í hans eigin vasa því maðurinn var ekki merktur neinum sam- tökum. Hvet ég þau félög sem senda fólk til að safna fyrir góðgerðastarfsemi að hafa það rækilega merkt með ljósmynd af viðkomandi og auðkenni í barminum. T.K. Tapað/fundið Veski og hringur týndust VESKI og gullhringur týndust sl. miðvikudag á leiðinni frá Breiðholti í miðbæinn. Skilvís finnandi hafi samband í síma 562 6056. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 hafurs, 4 gerir við, 7 óvani, 8 fýla, 9 dropi, 11 skjögra, 13 skott, 14 hagnast, 15 bein, 17 happs, 20 gróinn blettur, 22 þvingi, 23 frábrugðið, 24 hindra, 25 bik. LÓÐRÉTT: 1 bolur, 2 fúskið, 3 kvala- fullt, 4 skinn, 5 muldra, 6 dóni, 10 ávítur, 12 temja, 13 mann, 15 skammar, 16 losað, 18 svipað, 19 opna formlega, 20 tímabil, 21 dægur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 höfuðfati, 8 hökul, 9 nemur, 10 iðn, 11 rýran, 13 afrit, 15 hregg, 18 álfar, 21 lof, 22 lydda, 23 Arons, 24 grátklökk. Lóðrétt: 2 ölkær, 3 ullin, 4 fenna, 5 tímir, 6 óhýr, 7 þrot, 12 agg, 14 fól, 15 héla, 16 eldur, 17 glatt, 18 áfall, 19 flokk, 20 ræsa. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 ÞAÐ sem við heyrum og lesum allt of oft um er bruni í heimahúsum og sagt er að ástæðan sé oftast að það kvikni í út frá hinum ýmsum heimilistækjum. Oft eru nefnd sjónvörp, þvottavélar og fl. Mér leik- ur forvitni á að vita hvort gerð hefur verið könnun af brunasérfræðingum eða einhverjum öðrum fag- aðilum á því hvort einhver ein sérstök gerð fremur en önnur, t.d. sjónvarpsteg- und, er viðkvæmari en aðr- ar tegundir. Ef sú könnun hefur farið fram væri fróð- legt að fá vitneskju um það. Ef ekki, finnst mér orðið tímabært að kanna það og gera opinbert. Með fyrirfram þökk. Ein eldhrædd. Bruni í heimahúsum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.