Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 17
www.hagkaup.is
Helgarsprengja
Tilboðin gilda
aðeins í dag!
Jólaskraut
Grenilengja
99kr.
299 kr.
Verð frá:
Nóa konfekt
1.599kr./kg
Verð áður 2.295 k
r./kg
Tryggðu þér síðustu sætin í haust til Prag sem er vinsælasti áfangastað-
ur Íslendinga í haustferðum enda ein fegursta borg heimsins sem geym-
ir mörg hundruð ára sögu á hverju horni og mannlíf og andrúmsloft
sem á ekki sinn líka í Evrópu. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri
til að kynnast þessari ótrúlegu borg. Í boði eru góð 3 og 4 stjörnu hótel
og spennandi kynnisferðir um kast-
alahverfið og gamla bæinn, eða til
hins einstaklega fagra heilsubæjar
Karlovy Vary, með íslenskum farar-
stjórum Heimsferða.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.250
Flugsæti til Prag, út 18. nóv, heim
21. nóv. 31.400/2 = 15.700 + 3.550 kr.
skattar. Almennt verð með sköttum.
Verð kr. 2.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
Parkhotel, per nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Verð kr. 39.950
Helgarferð til Prag, 21. nóv. – 3 nætur.
Flug, hótel og skattar. Verð á mann í
tveggja manna herbergi m. morgunmat.
Hótel Corinthia Panorama, glæsilegt 4
stjörnu hótel.
Flug fimmtudaga og mánudaga í nóvember
Síðustu sætin í haust til
Prag
frá kr. 19.250
Hvenær er laust ?
11. nóv. - Uppselt
14. nóv. - Uppselt
18. nóv. - 25 sæti
21. nóv. - 19 sæti
„Nei, ég held að fólk sýni henni
mikinn áhuga hafi það tækifæri til
þess. Það er til dæmis mikið fjallað
um sögu Bretlands í sjónvarpi um
þessar mundir og ýmislegt af því efni
er hreint afbragð. Slíkir þættir verða
til þess að fólk fyllist áhuga, heyrir
um eða sér eitt og annað sem það hef-
ur ekki haft hugmynd um, og fer því
að lesa sér nánar til um það. Sjón-
varpið er einmitt mjög gott í þessum
tilgangi, það hvetur fólk til þess að
lesa bækur.“
Magnús hætti í fullu starfi hjá
BBC 1997, þegar Mastermind lauk
göngu sinni eftir 25 ár á skjánum.
„Síðan hef ég bara gert hitt og þetta,
til dæmis skrifað bækur. Og það er
alltaf nóg að gera.“ Hann er sem sagt
fráleitt sestur í helgan stein. „Ég
heyrði Sigurð Nordal einu sinni heita
því í stúdentaveislu í Kaupmanna-
höfn að verða hundrað ára en detta
niður dauður ella og ég ætla mér að
fara eins að.“
Nú vinnur hann að bók um falsanir
af margívslegum toga, t.d. á sviði ým-
iss konar lista og fornleifafræði.
„Þetta verða 25 kaflar um ýmsar
merkilegar falsanir, og ég reyni í
fyrsta lagi að komast að því hvers
vegna fólk gerir svona nokkuð og
hins vegar hvers vegna það kemst
upp með það.“
Í eftirmála bókarinnar hyggst
Magnús fjalla um „falsarann“ úr
samnefndri bók Björns Th. Björns-
sonar sem út kom fyrir nokkrum ár-
um. „Blessaður strákurinn, auming-
inn. Hann er eflaust misheppnaðasti
falsari allra tíma,“ segir Magnús og
hlær enn. Frekari fanga leitar hann
ekki á Íslandi við vinnslu bókarinnar.
Foreldrar Magnúsar fóru gjarnan
með börn sín heim til Íslands í sum-
arfrí. Sigldu með Gullfossi yfir hafið
og seinna fór hann iðulega heim sjálf-
ur í því skyni að fræðast um landið;
fór t.d. á Njáluslóðir þegar hann
vann að þýðingu Njálssögu. „Svo
skipulagði ég söguferðir til Íslands
um tíma – fór með Breta um slóðir
Laxdælasögu, Njálssögu, Eyr-
byggjasögu og Egilssögu og það var
dásamlegt. Þá lærði ég eiginlega best
hvað Ísland var; kynntist eigin rót-
um.“
Það segir hann dýrmætt. „Viti
maður ekki hvaðan hann er veit hann
heldur ekki hver hann er.“
Magnús segist einmitt í fyrrasum-
ar hafa fundið húsið sem faðir hans
bjó í á Akureyri. „Ég fór þangað með
Sally dóttur minni – hún vildi endi-
lega fara og sjá hvar rætur hennar
liggja. Ég hef oft sagt að ég sé af
keyraraætt! Afi minn var nefnilega
fyrsti maðurinn sem keyrði um Ak-
ureyri með grænmeti á vagni; Magn-
ús keyrari!“
Þegar Magnús gekkst fyrir sögu-
ferðum til Íslands á sínum tíma var
landið lítt þekkt, nema hjá ákveðnum
hópum – t.d. fólki sem hafði lesið Ís-
lendingasögurnar og vildi kynnast
söguslóðum. „Og það upplifði í raun
ekki Ísland samtímans, heldur eins
og það var fyrir þúsund árum. Nú
veit fólk mun meira um landið, Ís-
lendingar hafa staðið sig svo vel,
Björk og fleiri, og landið þykir
spennandi. Mér finnst stórkostlegt
að Ísland skuli vera vinsælasti ferða-
mannastaður fólks í norðanverðri
Evrópu.“
Að blóta á íslensku
Eftir heimsstyrjöldina var Magn-
ús eitt sinn háseti á Snæfellinu frá
Akureyri á síldarvertíð í tvo mánuði.
Hann var þá 17 ára. Það var harður
skóli, segir hann, „en þetta var mjög
elskulegur tími, þegar maður lítur til
baka. Það er gott að vera í þannig
vinnu að þurfa alltaf að vera tilbúinn;
alltaf klár í bátana“.
Það er kannski eins og í sjónvarp-
inu; þar þýðir ekki að bregðast í
beinni útsendingu?
„Alveg eins. Menn verða að standa
sig; það er annaðhvort að duga eða
drepast!“
Hann var á Snæfellinu 1948. „Það
hafði tognað vel úr mér og ég var orð-
inn mjög vöðvastæltur á upphand-
leggjunum þegar ég kom heim. Og ég
lærði að blóta þetta sumar! Heyrði
þá eiginlega í fyrsta skipti „raun-
verulega“ íslensku, ekki bóka-ís-
lensku.“
Og hvernig blótuðu karlarnir á
Snæfellinu?
„Nei, nei! Það hvarflar ekki að mér
að upplýsa það…“ segir Magnús og
hlær dátt. Aftekur með öllu að hafa
það eftir: „Það var ekki pent, og ekki
prenthæft.“
Magnús ásamt svarta stólnum, hluta
af sviðsmynd Mastermind.
skapti@mbl.is
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík