Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 40
FRÉTTIR 40 SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ á þessum vinsæla stað. Hér hefur aldeilis verið tekið til hendinni og endurnýjað. Falleg eldhúsinnrétting, upptekin loft, nýlegir gluggar og gler. Þak, rafmagn, neysluvatnslagnir allt nýlegt. Suðurgarður. Verð 14,9 millj. Hulda tekur vel á móti ykkur. Fasteignasalan Bakki, Skeifunni 4, s. 533 4004. Árni Valdimarsson lögg.fasteignasali. Fasteignasalan Bakki, Skeifan 4, Reykjavík. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16 Borgarholtsbraut 5, Kópav. - Fallegt krúttlegt einbýlishús Þetta stórglæsilega húsnæði er staðsett á mjög áberandi stað upp við Reykjanesbraut- ina í Garðabæ. Um er að ræða 5080 fm sem skiptast m.a. í 3400 fm jarðhæð með 9 m lofthæð undir mæni og steypt milligólf til endanna með svöl- um til suðurs og norðus. 8 stórar innkeyrsludyr. Húsnæði sem auð- veldlega má skipta upp í 2-4 einingar. Rafmagn frágengið með góðri lýsingu í loftum. Malbikuð lóð tæplega 9.000 fm að stærð. Gert er ráð fyrir í skipulagi að lögð verði aðrein frá Reykjanesbraut- inni beint inn í hverfið að þessari húseign. Nánar upplýs. veita Agnar í s. 820 8657 eða Óskar í s. 866 8808. ER FYRIRTÆKI ÞITT Í HÚSNÆÐISLEIT? TIL LEIGU EÐA SÖLU 533 4300 564 6655 Erum með í sölu glæsilegt 3ja íbúða hús á einum besta stað í Þingholtunum. Örstutt í miðbæinn. Allar íbúðirnar eru nýuppgerðar þ.e. gólfefni, eldhús o.fl. Húsið var klætt fyrir fáum árum. Kjallaraíbúð er 3ja herbergja, nýtt eldhús og gólfefni. Þessi íbúð fylgir íbúð á 1. hæð. 1. hæð: 3ja herbergja íbúð með nýju eldhúsi, gólfefnum, þvottahúsi o.fl. Ásett verð fyrir þessar tvær íbúðir er kr. 17,4 millj. 2. hæð og ris: 5 herb. íbúð með góðum suðursvölum. Nýtt verulega vandað eldhús, ný gólfefni. Skemmtileg íbúð. Verð 13,4 millj. Hægt er að kaupa þetta í einu eða tvennu lagi. Uppl. veita Jason í s. 899 3700 og Ólafur í s. 893 9291. ÞINGHOLT - GRUNDARSTÍGUR Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Í dag milli kl. 14 og 16 sýnum við gullfallega 105 fm efri hæð í fallegu 4-býli neðst í Barmahlíð- inni. Tvær samliggjandi skiptan- legar stofur og tvö stór svefn- herbergi. Nýlegt eldhús og ný- legt parket. Góður bílskúr. Eignin getur losnað fljótlega. Áhv. hagstæð lán u.þ.b. 7 millj. V. 16,9 millj. 3628 Opið hús í dag Barmahlíð 5 - m. bílskúr Langagerði Gullfallegt og mikið endurnýjað 147 fm einbýlishús, hæð og ris, auk 28 fm bílskúrs á þessum eftirsótta stað. Húsið, sem er vel staðsett innst í botnlanga, skiptist í forstofu, gang, gesta wc, þrjár stofur, eldhús með þvottaherb. inn af og 1 herb. á neðri hæð og í risi eru 4 herbergi og flísalagt baðherbergi. Vandaðar innréttingar, parket og flísar á gólfum. Falleg ræktuð lóð með stórri timburverönd og suðursvalir út af efri hæð. Allar nánari uppl. veittar á skrifstofu. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. FÉLAG leiðsögumanna hefur sent frá sér ályktun þar sem harðlega er mótmælt hvers konar áformum sem valda óafturkræfum náttúru- spjöllum, t.d. virkjanaframkvæmd- um, sem eru andstæð ferðaþjónust- unni. „Ferðaþjónustan er vaxandi at- vinnugrein á Íslandi og skilar nú um 45 milljörðum á ári til þjóð- arbúsins. Hún byggist á þeirri ímynd sem kynnt hefur verið á er- lendri grundu og miklum fjármun- um hefur verið varið í. Ímynd Íslands sem ferðamanna- staðar grundvallast á fjölbreyttri og einstakri náttúru og víðernum hálendisins. Hálendisvíðernin eru einstök náttúruauðlind og aðför stjórnvalda að þeim grefur undan ímynd og trúverðugleika landkynn- ingarinnar og rýrir vaxtarmögu- leika í ferðaþjónustunni. Stóriðja og náttúruvernd fara ekki saman. Við mótmælum því að áratuga kynningarstarf sé skrumskælt á þennan hátt. Við styðjum hugmynd um þjóðgarð norðan Vatnajökuls, þjóðgarð sem stendur undir nafni og höfnum hugmyndum um virkj- anaþjóðgarð,“ segir í ályktuninni. Félag leiðsögumanna Mótmælir náttúru- spjöllum Grunnskólar í ólíkum byggð- arlögum. Jónas Pálsson sálfræð- ingur, fyrrverandi rektor Kenn- araháskóla Íslands, heldur fyrirlestur á vegum Rannsókn- arstofnunar KHÍ næstkomandi mið- vikudag, 13. nóvember, kl. 16.15. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal 2 í nýbyggingu Kennaraháskóla Ís- lands v/Stakkahlíð og er öllum op- inn. Kynnt verður aðferð til að skoða grunnskóla í ólíku félagslegu og efnahagslegu umhverfi. Til þess að prófa þessa aðferð hefur verið gerð forkönnun í þremur grunnskólum í einum landshluta, í þéttbýli, sjáv- arþorpi og sveit. Farnar hafa verið tvær umferðir og könnunin nær því nú til samtals sex grunnskóla. Í fyr- irlestrinum verður fyrst greint frá þeirri hugmynd sem verkefnið bygg- ist á, síðan sagt nokkru nánar frá markmiðum könnunarinnar sem sett voru fram í upphaflegri áætlun, svo sem hugsanlegum tengslum milli annars vegar starfsskilyrða skólans, viðhorfa og væntinga fólks til skóla síns og hins vegar árangurs af skólastarfinu. Gefin verður stutt lýsing á verkþáttum könnunarinnar og vinnuaðferðum á vettvangi. Þá verður greint frá nokkrum nið- urstöðum úr viðhorfakönnun meðal sex starfendahópa grunnskólans og rakin fáein efnisatriði úr viðtölum við fulltrúa úr röðum þeirra. Að end- ingu verður vikið að því hvernig GÓB-verkefnið er nú á vegi statt og hvort það gæti komið að einhverju gagni. Spænskunámskeið Þriðjudaginn 12. nóvember hefst námskeið hjá Endurmenntun Há- skóla Íslands fyrir þá sem eru læsir og skrifandi á spænsku. Margvísleg verkefni eru lögð fyrir þátttakendur sem miða að því að fínpússa spænskukunnáttu þeirra og unnið er á virkan hátt með málið bæði í ræðu og riti. Jöfnum höndum er farið í málfræði, ritað og talað mál. Rit- þjálfun, bókmenntarýni og samræð- ur byggjast á bókmenntatextum sem unnið er með. Meðal annars er lesið verkið Yerma eftir Federico García Lorca, smásögur eftir Man- uel Rivas og skoðuð er kvikmyndin Le lengua de la mariposas sem byggist á þessum sögum. Kennt verður þriðjudaga og fimmtudaga 12. nóvember til 12. desember kl. 20:15–22:15, 10 skipti. Kennari á námskeiðinu er dr. Mar- grét Jónsdóttir lektor í spænsku við HÍ. Skráning fer fram á vefslóðinni www.endurmenntun.is. Á NÆSTUNNI ♦ ♦ ♦ DILBERT mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.