Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 37 Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 MOSAIK  Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Malmö í Svíþjóð, lést miðvikudaginn 16. október. Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 12. nóvember kl. 13.30. Björgvin Kristjánsson, Guðmundur Björgvinsson, Andrea Elísdóttir, Indriði Björgvinsson, Trausti Björgvinsson, Aðalheiður Halldórsdóttir, Halldór Björgvinsson, Jóna Guðrún Elísdóttir, Ósk Guðmundsdóttir, Reynir Brynjólfsson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, fósturföður, tengdaföður og afa, ÖGMUNDAR FRIÐRIKS HANNESSONAR, Stórholti 35. Sérstakar þakkir til starfsfólks 4. hæðar og 3-N á hjúkrunarheimilinu Eir. Ragnhildur Sigurjónsdóttir, Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, Kristinn Tómasson, Ögmundur Kristinsson, Þorkell Kristinsson, Ragnhildur Kristinsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANDRÉS H. VALBERG framkvæmdastjóri, Langagerði 16, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 12. nóvember kl. 15.00. Jóhanna Þuríður Jónsdóttir, Gunnar V. Andrésson, Anna Ágústsdóttir, Guðný A. Valberg, Ólafur Eggertsson, Gústaf A. Valberg, Kanlaya Sitthichot, Hallgrímur A. Valberg, Ingveldur Donaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR JÓHÖNNU MAGNÚSDÓTTUR, Austurvegi 34, Seyðisfirði, áður til heimilis á Kirkjuvegi 57, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrun- arfólki og öðru starfsfólki Sjúkrahúss Seyðisfjarðar fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Sigurður Magnússon, Þórunn Sigurðardóttir, Finnur Jónsson, Magnús Helgi Sigurðsson, Ásdís Sigurðardóttir, Sveinn Valgeirsson, Ólafur Már Sigurðsson, Sigrún K. Ægisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, LÁRUSAR SUMARLIÐASONAR, Garðvangi, Garði, áður Aðalgötu 5, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og starfsfólks hjúkrunarheimilisins Garðvangs, Garði. Guð blessi ykkur öll. Guðný Ólafía Einarsdóttir, Lárus Ólafur Lárusson, Ingibjörg Magnúsdóttir, Guðrún Ágústa Lárusdóttir, Marinus Schmitz, Steinunn M. Lárusdóttir, Haukur S. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og bróður, ERLENDAR GUÐMUNDSSONAR, Heiðmörk 62, Hveragerði. Anna S. Egilsdóttir, Erla Erlendsdóttir, Stefán Erlendsson, Guðmundur Erlendsson, tengdabörn, afabörn, Svava Guðmundsdóttir, Gyða Guðmundsdóttir. Hann lét þó ekki verða af því fyrr en hann var 65 ára en þá tók hann að sér rekstur og viðhald á leiguíbúð- um sem þau hjón höfðu eignast. Kjartan var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni, Arndísi Sigurðar- dóttur, eignaðist hann tvö börn. Þau eru Lára, deildarstjóri hjá Flugleið- um-frakt, og á hún tvo syni, en mað- ur hennar, Hrannar G. Haraldsson, lést fyrir nokkrum árum; og Sigurð- ur Ragnar, sem er flutningabílstjóri í New York, en auk þess rekur hann hestabúgarð ásamt konu sinni, Candice. Þau eiga þrjú börn. Börn Kjartans og seinni konu hans, Sally Mae Tolbert, eru fjögur. Lynne, fullu nafni Lois Lenore, og maður hennar, Kent Richmond, eru bæði háskólakennarar og eiga þrjá syni; Lance Arthur býr í Oregon, hann er framleiðandi og eigandi tómstundaverslunar ásamt Tammy, konu sinni; Vala Mary er deildar- stjóri hjá kvikmyndafyrirtæki, gift Robert C. Groome, kerfisfræðingi, og eiga þau eina dóttur; og Anne Marie, söngkona á Broadway, gift Tony Adams, kvikmyndaframleið- anda, og eiga þau eina dóttur. Þau Sally hafa alltaf verið sam- rýnd og átt miklu barnaláni að fagna. Ég heimsótti þau hjón og dvaldi á heimili þeirra nokkrum sinnum. Þá dvaldist okkur Kjartani oft úti í bílskúrnum sem hann hafði útbúið sem einkavinnustofu sína. Þar rifjaði hann upp ýmislegt frá gamalli tíð, sýndi mér myndir frá farmennskuárunum, spilaði gamlar plötur og einnig nýjustu upptökurn- ar frá Broadway með Anne dóttur sinni. Hann minntist líka gömlu vin- anna á Íslandi, æskufélaganna af Hallveigarstígnum og þeirra sem hann spilaði með í hljómsveitunum. Hann minntist laxveiðiferðanna sem hann fór með pabba í Laxá í Kjós, Brúará og Sogið, en pabbi var ann- álaður laxveiðimaður. Hann saknaði Sverris, bróður síns, sem lést fyrir nokkrum árum. Þeir voru miklir vin- ir og voru saman úti á lífinu í gamla daga. Og heimsóknirnar til Íslands voru honum ofarlega í huga, ætt- armótin á Lómatjörn og ferðirnar um landið með vinum og ættingjum. Og ekki gleymdi hann að minnast á íslenska matinn, sem Svana systir hans sendi honum alltaf um jólin, hangikjötið og harðfiskinn, skötuna og gellurnar, að ógleymdum „smok- ed redbelly“ (reyktum rauðmaga) sem hann sagði Völu dóttur sinni að væri sérstakt hnossgæti. Hún trúði honum ekki. En mest talaði hann um fjölskyld- una sína, hvað hann hefði verið ótrú- lega heppinn að eignast Sally fyrir konu og þessi yndislegu börn með henni, og hvað barnabörnin lífguðu upp á tilveruna hjá gömlum manni. Það var auðfundið hve vænt honum þótti um fjölskylduna sína, en hann saknaði líka þess að geta ekki um- gengist meira elstu börnin sín og þeirra börn vegna fjarlægðarinnar, Sigga Ragga í New York og Láru uppi á Íslandi. Mér hefur alltaf þótt óskaplega vænt um Lilla bróður. Ég þekkti hann aðeins sem skapgóðan, ljúfan og skemmtilegan félaga, sem alltaf var reiðubúinn að taka þátt í glens- inu og hvetja viðstadda í sönginn með sér. Ég held að hann hafi aldrei talað illa um nokkurn mann heldur bar í bætifláka ef hallað var á ein- hvern í návist hans. Þessi góði drengur er nú genginn á vit forfeðra sinna. Megi allar góðar vættir fylgja honum á ókunnri braut. Farðu vel, kæri bróðir. Valgarð Runólfsson. Í dögun mánudagsins 28. október var ég vakin með símhringingu. Lynne, stjúpsystir mín, tilkynnti mér andlát föður okkar. Það var sunnudagskvöld í Kaliforníu. Ég var alls ekki viðbúin þessari frétt, jafn- vel þótt ég hafi fylgst með hrakandi heilsufari föður míns síðustu dag- ana, eftir seinna hjartaáfall hans á þessu ári. Faðir minn var einstakur maður. Hann lifði lífinu lifandi. Hann var sögumaður af lífi og sál. Minni hans var alveg einstakt. Hann mundi nöfn, atburði og staðhætti í smáat- riðum og það var algeng sjón að sjá hóp manna í kringum hann með eyr- un sperrt í hlustun á fjörlegar frá- sagnir hans frá liðinni tíð. Það var sama hvort um var að ræða sögur frá barnæsku hans úr sveitinni norður á Lómatjörn, krassandi sög- ur frá hljómsveitarárunum eða sög- ur frá framandi slóðum siglingaár- anna. Þegar ég hugsa til föður míns er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt hann að föður. Hann bar ást og umhyggju fyrir fjölskyldu sinni og fylgdist vel með lífi okkar og störfum. Ég er þakklát fyrir að börnin mín og barnabörn fengu að kynnast og njóta samverustunda með afa sínum og langafa og að for- eldrar mínir báru gæfu til þess að vera áfram vinir. Ég er þakklát fyrir að honum auðnaðist að fara á ætt- armót á Lómatjörn, með stærstum hluta fjölskyldu sinnar, fyrir fimm árum. Það var sterk upplifun að vera þarna með honum innan um alla ættingjana og deila minningum hans frá barnæsku. Ég er þakklát fyrir að hann eignaðist Sallý að konu, en hjónaband þeirra hefur verið langt og farsælt. Ég er þakklát fyrir að yngsta systir mín lagði sönginn fyrir sig og náði frama, en það var honum sérstakt áhugamál og gleði að fylgjast með ferli hennar og senda okkur, hér heima, úrklipp- ur og hljóðritanir af söng hennar. Ég minnist föður míns með stolti, virðingu, ást og gleði og kveð hann með trega. Minning hans mun lifa sterkt meðal okkar, barna hans og nánustu ættingja, og við munum við- halda henni með því að segja sögur hans áfram um ókomna tíð. Lára Kjartansdóttir. Mig langar að minnast góðs vinar með nokkrum orðum. Guðmundur Kjartan Runólfsson, oft kallaður Lilli Run, lést í Kaliforníu 27. okt. sl. 82 ára að aldri. Ég hafði nýverið átt við hann langt símtal, aðeins nokkrum dögum áður en hann veiktist og var fluttur á spítala. Ekki datt mér þá í hug að þetta yrði síðasta samtal okkar. Við Kjartan kynntumst fyrst þeg- ar ég var 14 ára og hann 18. Ég hafði farið á dansæfingu í Verslunarskóla Íslands. Hann var þar og lék undir dansi, ýmist á harmoniku eða trommur. Þetta var áður en hann byrjaði að leika á trompetinn, sem varð seinna hans aðalsmerki í tón- listinni. Leiðir okkar Kjartans lágu þó ekki saman fyrr en nokkrum ár- um eftir þetta atvik og gengum við í hjónaband í mars 1946. Húsnæði var af skornum skammti í Reykjavík og flutti Kjartan inn á heimili foreldra minna í Vonarstræti 2. Þar var fyrir 12 manna fjölskylda og varð Kjartan fljótlega hluti af fjölskyldu minni og eftir að við bætt- ust tvö börn okkar urðum við öll hluti af þessari einstöku, hlýju og gestrisnu fjölskyldu í Vonarstræt- inu. Hjónaband okkar Kjartans entist ekki og við skildum eftir 10 ár en vináttan hélst. Eftir að við vorum bæði flutt til Bandaríkjanna höfðum við alltaf samband í síma og urðu símtölin stundum löng, sérstaklega þegar ég var nýkomin til baka úr heimsóknum til Íslands, því hann var fréttaþyrstur og vildi fá fréttir af öllum sameiginlegum kunningj- um og ættingjum heima. Kjartan og seinni kona hans, Sallý, áttu langt og farsælt hjóna- band að baki. Ég átti því láni að fagna að fá þau bæði í heimsókn á heimili mitt í New York, ásamt tveimur dætrum þeirra. Sallý konu hans, börnum og öðr- um ættingjum sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Ég minnist vinar míns, Kjartans, eins og hann var þegar hann var ungur, fullur af lífi, fjöri og tónlist en einnig á efri árum og þakka hon- um langa vináttu. Arndís Sigurðardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.