Morgunblaðið - 10.11.2002, Page 24

Morgunblaðið - 10.11.2002, Page 24
24 SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N/ SI A. IS T O Y 19 32 4 1 1/ 20 02 Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S. 570 5300 • www.arctictrucks.is markaður jeppamannsins RX-1 er kominn, ert þú tilbúinn? YAMAHA er komið í Arctic Trucks MEIRA TOG 65% meira tog en 800cc tvígengisvél Á LAUGARDAG FRÁ 12-16 OG SUNNUDAG FRÁ 13-16 Í ARCTIC TRUCKS KOMDU OG SJÁÐU RX-1 VÉLSLEÐA ÁRSINS 2003 Okkur er tamt að halda að þeir sem fluttu til Vesturheims á síð- ustu áratugum 19. aldar hafi undantekningalaust verið að flýja óáran, fátækt og óblíða veðráttu. Aukinn áhugi Íslendinga á vest- urferðunum hefur hins vegar leitt í ljós að fólk flutti vestur um haf af ýmsum öðrum ástæðum. Saga Er- lendar Guðmundssonar frá Mörk í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu varpar nýju ljósi á þessa fólks- flutninga. Fæddur árið 1863 að Ás- um í Svínavatnshreppi, bjó Erlend- ur lengst af með foreldrum sínum á Mörk í Laxárdal og síðar á Sæ- unnarstöðum í Hallárdal á Skaga- strönd. Eiginkona hans, Ingibjörg Kristmundsdóttir frá Vakurs- stöðum, fluttist vestur til Kanada árið 1898 með dætur þeirra tvær og Erlendur ári síðar. Í sjálfs- ævisögu Erlends, sem telja má til áhugaverðari rita íslenskra alþýðu- manna, rekur hann ævi sína og aldarhátt heima á Íslandi og í Kan- ada. Erlendur lést í Gimli árið 1949, en í kaflanum sem hér fer á eftir lýsir hann aðdraganda bú- ferlaflutninganna til Kanada. Svört blika Á MEÐAN ég hafði hug-ann troðfullan af ráða-gerðum fyrir framtíðinadró upp svarta bliku áþeim framtíðarhimni. Ég hafði að vísu veitt henni eft- irtekt og hugði að úr þeirri bliku félli aðeins ósaknæm skúr, en brást spádómsgáfan því það laust niður eldingu um áramótin 1897–98. Sú var eldingin að Ingibjörg sagði sig uppgefna á landbúskapnum. Hún vildi ekki þetta amstur sem jafnan fylgir landbúnaði, hún ætlaði helst til Akureyrar eða þó ekki væri nema til Sauðárkróks, þar væru engar skepnur og engir moldarkof- ar. Ég gæti verið daglaunamaður. Ég ætla ekki að lýsa hvernig mér varð við. Fyrst trúði ég þessu ekki, en þegar ég vissi að þetta var henni alvara þá varð ég ráðalaus. Ég að fara að verða burðarkarl við uppskipun á Sauðárkrók. Ég sem hafði verið dálítið upp með mér af því að vera að nokkru leyti bóndi á Mörk. Nei, ég gat ekki hugsað til að birtast þar sem burðarkarl, svo hafði ég mikið sjálfsálit eður sjálfsvirð- ingu. Því hefur oft verið haldið fram að konur stjórnuðust af tilfinningum en minna af vitsmunalegri rannsókn og ég er fremur á að svo hafi verið í þetta sinni. Ingibjörgu fannst hún vera að bjarga sér úr einhverjum langpínandi og steindrepandi þján- ingum þar sem var búkonustaðan og sér bæri að leita sér bjargar í tíma. Lengra mun hugsunin ekki hafa náð. Í þessum skelfingum gerði hún sér enga grein fyrir því hvort ég gæti tekið þessa stöðu eð- ur afleiðingarnar af þessari ráða- breytni. Þegar ég sá að hér var stofnað til hneykslis, sagði ég við skyldum þá heldur flytja til Vesturheims og hverfa öllum sem okkur hefðu þekkt og treysti ég því að hún gæti ekki farið frá foreldrum sínum. Og hversu sem ég hafði hatað vest- urferðirnar virtist mér það þó fremur gerandi heldur en láta kunningja mína geta bent á þessa heimskingja sem ímynd auðnuleys- isins. En Ingibjörg vildi heldur fara til Vesturheims. Hún hafði heyrt að konur réðu þar yfir mönnum sínum eins og dauðri innstæðu. Svo var þá helst ráðgert að fara vestur og þegar ég kom að Mörk til móður minnar veikrar, var það mesta hugg- unin að geta komist hjá að baka henni jafn þungbæra sorg og segja henni frá þessu flani. En hvert viltu maður fara og flýja Þegar búið var að jarða móður mína stakk ég upp á því við Ingibjörgu að úr því sem gera væri, mundi best að ég færi laus og tæki af eigunum aðeins til ferðarinnar vestur en fengi uppeld- isbróður minn, Þorstein frá Mörk, til þess að vera fyrir búinu. Þá gæti ég dæmt um hve mikið vit væri í þessu. En það vildi Ingibjörg ekki, hún sagðist vita að mér litist illa á mig og þá kæmist hún ekki. Nú var þá ekki um annað að gjöra en selja eigurnar fyrir hvað lítið sem væri og rífa sig upp frá kunningjum og foreldrum sárnauðugur. En Ingi- björg gat það, frelsið og sælan sem beið hennar þar vestur frá höfðu gagntekið svo ímyndunaraflið. En nú varð hún að fara ein með börnin því ég varð að vera næsta ár við innheimtubrask, að nokkru leyti á þremur búum. Svo var þá búið selt á uppboði 15. maí 1898. Fór ég um sumarið að Höskuldsstöðum til Jóns prests og var allt næsta ár til þess að ég fór sjálfur vestur. En hvert viltu maður fara og flýja, þú flýrð þig aldrei sjálfur þó. (J. Ólafsson.) Það er haft að orðtaki að lítið verði stundum úr dánarbúum. Þótt- ist ég kenna þess. Mér fannst ég vera á leið til grafar og bú mitt dánarbú. Það kostaði líka mikið út- búningur á Ingibjörgu, og bar við- skiptareikningurinn úr Höfðakaup- stað þess vitni sem von var til, því nú þurfti hún að búa sig undir að komast hjá að kaupa næsta ár nema sem allra minnst þangað til ég kæmi að ári liðnu. Við fórum með allt sem við héldum að okkur yrði að notum þar vestra. Mér virt- ist líka eigurnar fjara út og ekki Bókarkafli Óáran, fátækt og óblíð veðrátta voru ekki einu ástæður vesturfaranna og ekki sáu allir ferðalangar Ameríku í hillingum. Erlendur Guðmundsson frá Mörk í Laxárdal var einn þessara manna. Hér er gripið niður í aðdragandanum að vesturferð hans. Skapadómurinn Húsið sem Erlendur byggði fyrir þau á Loni Beach þar sem hann bjó allt til þess að Ingibjörg kona hans lést árið 1942. Heyskapur á Skagaströnd upp úr 1900. Næst til hægri eru gamla pakkhúsið og íbúðarhúsið, en lengra til vinstri assistentastofa, pakkhús og Sæmundarbúð. Erlendur Guðmundsson árið 1888. Ingibjörg Kristmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.