Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 43
sérsniðin innheimtulausn
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
BUGÐUTANGI 32 - MOSFELLSBÆ
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18
Gott 205 fm endaraðhús á 2 hæðum
með innbyggðum bílskúr. Á efri hæð-
inni eru stofur, eldhús, baðherbergi og
2 svefnherbergi og á neðri hæð er
miðrými og út frá því þvottahús, bað-
herbergi og 3 svefnherbergi. Mögu-
leiki að útbúa aukaíbúð. Fallegur og gróinn suðurgarður með verönd og
heitum potti. Verð 19,2 millj.
HEIÐRÚN ELSA SÝNIR HÚSIÐ Í DAG MILLI KL. 16 OG 18.
OPIÐ Á LUNDI Í DAG Á MILLI KL. 12 OG 14
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali,
Skrifstofan er opin í dag frá kl. 12-14
NÝJAR EIGNIR Á SKRÁ
HJÁ OKKUR
SLÉTTUVEGUR - ELDRI BORGARAR
Fallega innréttuð 3ja herb. íbúð á 6. hæð. Íbúðin snýr í austur, norður
og vestur. Íbúðin er laus eftir samkomulagi. Verð 16 millj. Stærð 88
fm. Nr. 2338
HRAUNBÆR - ELDRI BORGARAR
Þ.E. 60 ÁRA+
Rúmgóð og björt 3ja herb. íbúð á jarðh. Ein íbúð á hæð, tvær stofur,
gott sv.herb. Parket á gólfum, stutt í miðbæ og Háskólann. Verð 11,7
millj. Stærð 68 fm. Nr. 2850
LJÓSVALLAGATA
Fallegt og huggulega innréttað 3ja herbergja hús ásamt sérlóð. Stærð
80,0 fm. Sérbílastæði við húsið. Góð staðsetning. Laust fljótlega. Verð
12,9 millj. Nr. 2377
GRUNDARTANGI - RAÐHÚS
Mjög gott einbýlishús sem er hæð og ris ásamt sérbyggðum bílskúr á
góðum stað innarlega í lokuðum botnlanga. Um 181 fm. Verð 21,0
millj. Nr. 2369
NEÐSTABERG
Auk fjölda annarra eigna á skrá.
Hafið samband við sölumenn vegna frekari uppl.
Góð 3ja herb. íbúð á 3ju hæð, um 67 fm. Rúmgóð stofa, nýtt eldhús, suður-
svalir, parket á stofu og holi. Flísar á eldhúsi. Verð 10,7 millj. Nr. 2400
ÁLFTAMÝRI
Rúmgóð 4ra til 5 herbergja íbúð á 4. hæð. Tvennar svalir, fallegt
parket á gólfi. Góðir skápar. Verð 13,9 millj. Nr. 2375
BÓLSTAÐARHLÍÐ + BÍLSKÚR
Mikið endurnýjuð og góð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð, um 98 fm, m.
sérinng. Parket og flísar á gólfum, hús og sameign í góðu ástandi.
Verð 13,1 millj. Nr. 2374
ÁLFHEIMAR
Falleg og sérlega vel hönnuð 2ja-3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu
steinhúsi. Tvennar svalir, íbúð um 77 fm. Verð 12,5 millj. Nr. 9991
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR
Rúmgóð 2ja til 3ja herbergja endaíbúð, um 73,2 fm á 1. hæð ásamt
sértimburverönd og sérgarði í suður. Verð 9,3 millj. Nr. 2336
HJALTABAKKI
Rúmgóð og falleg 2ja herb. íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Stærð 69,3 fm.
Íbúð fyrir 55 ára og eldri. Glæsilegt útsýni. Mikill sameign. Húsvörður.
Laus fljótlega. Verð 13,9 millj. Nr. 2376
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Samt. ca 4000 fm Kjallari/ lager ca 2000 fm. 2. hæð öll hæðin,
ca 2000 fm. Hæðin er í dag innréttuð undir tölvuskóla. Skrifst.,
kennslust., opin vinnurými o.fl. Hagst. kaup/leiga.
Til sölu/leigu
Faxafen Rvík
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson
s. 588 4477 eða 822 8242.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Opið hús frá kl. 14-16
Vorum að fá í sölu á þessum góða stað
endaraðhús ásamt bílskúr, samtals um
190 fm. Fallegar nýlegar innréttingar. 3-4
herb. S-garður. Verð 20,5 millj. Erla og
Skúli taka á móti áhugasömum væntan-
legum kaupendum í dag milli kl. 14 og 16.
Hátún 2- Álftanesi
Opið hús frá kl. 13-17
Nýkomið í einkasölu stórglæsilegt einbýli
með innbyggðum bílskúr, samtals 240 fm.
Glæsilegt stórt eldhús, 4-5 svefnherbergi,
stofa, borðstofa, sjónvarpsskáli, sólstofa
og fleira. Glæsilegur garður með hellu-
lagðri verönd og bílaplani. Eign í sérflokki. Verð 26,5 millj. Daði og Ósk taka á móti
áhugasömum væntanlegum kaupendum í dag milli kl. 13 og 17.
Hófgerði 19 - Kóp. - einb.
Opið hús í dag frá kl. 14 og 17
Nýkomið í einkas. skemmtil. einb. á 1 hæð,
149 fm auk 24 fm bílskúrs. Húsið býður
upp á mikla mögul. en þarfnast endurn. að
hluta. Fallegur garður m. trjám. Fráb.
staðs. Stutt í skóla, sundlaug, þjón. o.fl.
Verið velkomin. Verð 14,9 millj. 93151
Fagrihjalli - Kóp. - raðh.
Nýkomið í einkas. á þessum góða stað
gott endaraðh. á tveimur hæðum með
innb. bílskúr, samtals 190 fm. 3-4 herb., 2
baðherb. Gufubað. Frábær afgirt verönd.
Ákv. sala. Laust strax. Verð 21 millj.
93781
Þrastarás 39 - Hf. - parh. - útsýni
Nýkomið í sölu mjög vel skipulagt parh. á
einni h. með með innb. bílskúr, samtals
um 226 fm. Eignin afhendist í núverandi
ástandi, það er málað og tilbúið til innrétt-
ingar. 3-5 herb., tvö baðherb. Frábærar út-
sýnissvalir. Tilbúið til afh. Áhv. 9 millj.
húsbr. Uppl. á skrifstofu Hraunhamars.
Mosarimi - Rvík - 3ja
Nýkomin í einkas. glæsil. 87 fm íb. á
þriðju hæð (efstu) í mjög góðu fjölb. Sér-
inng. Vandaðar innréttingar. Laus fljót-
lega. Áhv. 6,7 millj. húsbr. Verð 11,9 millj.
Vallarbarð 5 - Hf. - raðh.
HERBORG Hauksdóttir varð
doktor í örverufræði frá Kaliforn-
íuháskóla í Davis í mars síðastliðnum.
Titill doktorsritgerðarinnar er ,,Ret-
inoic Acid Recept-
ors: The Effects
of Differences in
DNA Recognition
and Corepressor
Binding on
Transcriptional
Regulation“, sem
gæti útlagst Ret-
insýruviðtakar:
Áhrif DNA- og
meðbælisbindingar á stjórnun umrit-
unar. Leiðbeinandi Herborgar var
dr. Martin L. Privalsky, prófessor við
örverufræðideild skólans.
Retinsýruviðtakar (RAR) eru um-
ritunarþættir sem hafa víðtæk áhrif á
frumuþroskun, fósturþroskun og
stjórnun efnaskipta með því að bind-
ast erfðaefninu í nálægð markgena
og örva eða letja umritun þeirra.
Stökkbreytt RAR-prótein finnast í
sjúklingum með ákveðna gerð hvít-
blæðis. Rannsóknir Herborgar hafa
sýnt að munur er á bindingu
villigerðar-RAR og stökkbreyttu
próteinanna við erfðaefnið sem gæti
verið þáttur í APL-hvítblæði. Annar
þáttur rannsóknanna fjallaði um
náttúrulegar undirgerðir (isotypes)
RAR-viðtaka og var sýnt að fylgni er
á milli getu viðtaka til að bindast
sterkt meðbælipróteini (corepressor)
og getu hans til að letja umritun í
fjarveru hormóns. Niðurstöður rann-
sóknanna hafa birst í bandarískum
vísindatímaritum.
Herborg lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík vorið
1992. Vorið 1996 lauk hún BS-prófi í
líffræði frá Háskóla Íslands og hóf
doktorsnám sitt þá um haustið.
Að námi loknu tók Herborg til
starfa hjá dr. Judy Callis, prófessor
við sameindalíffræðideild Kaliforn-
íuháskóla í Davis. Þar stundar hún
rannsóknir á fjölskyldu um 500
próteina sem leika stórt hlutverk í
reglubundnu niðurbroti próteina í
svokölluðu ubiquitin-niðurbrotsferli.
Foreldrar Herborgar eru Haukur
Björnsson viðskiptafræðingur og
Kristín Jónsdóttir mennta-
skólakennari. Herborg á tvö systkini,
Agnesi Kristjónsdóttur söngkonu og
Höskuld Ara Hauksson, doktor í
stærðfræði. Eiginmaður Herborgar
er Sveinn Óli Pálmarsson, dokt-
orsnemi í umhverfisverkfræði við
Kaliforníuháskóla í Davis. Sonur
þeirra er Haukur Sveinsson.
Doktor
í líffræði
KRABBAMEINSFÉLAG Reykja-
víkur, Styrkur og Stómasamtök Ís-
lands halda opinn fræðslufund um
ristilkrabbamein í húsi Krabbameins-
félagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík
þriðjudaginn 12. nóvember kl. 20.
Ásgeir Theódórs læknir ræðir um
ristilkrabbamein og kynnir vitundar-
vakningu sem nú stendur yfir.
Nokkrir einstaklingar sem greinst
hafa með sjúkdóminn segja frá
reynslu sinni. Síðan verða pallborðs-
umræður og fyrirspurnum svarað.
Þeir sem vilja fræðast um sjúkdóm-
inn eru hvattir til að koma á fundinn.
Fundur um rist-
ilkrabbamein
Alltaf á þriðjudögum
mbl.isFRÉTTIR