Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið: ritstj
@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 51
DAGBÓK
Arnbjörg Finnbogadóttir
896 4655
Svæðanudd - unaður fyrir fætur
Gallafatnaður
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Til sölu málverk
eftir Ásgrím Jónsson
Frá Þingvallasveit. Olía 110x85
Sími 871 0170.
Skólavörðustíg 42 - Pöntunarsími 511 1551
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 561 0151
gud.run@mmedia.is
Konur
Streitulosun • Tilfinningavinna
Skapandi tjáning • Að tengjast kynorkunni
Tími til að skoða í öruggu
umhverfi það sem við höfum sett í skuggann og leita inn í hjartað.
Námskeið helgað konum
á öllum aldri frá 23.-24. nóvember
líföndun • jóga • hugleiðsla
TVEIMUR kvöldum af
þremur er lokið í svokölluð-
um Kauphallartvímenningi
hjá Bridsfélagi Reykjavík-
ur. Þátttaka er mjög góð,
eða 54 pör. Þröstur Ingi-
marsson og Bjarni Einars-
son eru efstir, en skammt á
eftir koma Jón Baldursson
og Þorlákur Jónsson, og
hjónin Ljósbrá Baldursdótt-
ir og Matthías Þorvaldsson
eru þriðju. Keppnisformið
býður upp á miklar svipting-
ar og má búast við spenn-
andi keppni fram á síðasta
spil á þriðjudaginn. En lít-
um á skondið spil frá síðasta
kvöldi:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ ÁKDG2
♥ 7653
♦ D5
♣54
Vestur Austur
♠ 953 ♠ 10864
♥ K8 ♥ ÁDG10
♦ Á76 ♦ 82
♣ÁG987 ♣KD2
Suður
♠ 7
♥ 942
♦ KG10943
♣1063
AV eiga 24 punkta sín á
milli og þrjú grönd er mjög
eðlilegur samningur á spilin.
En legan í spaðanum er slík
að gröndin þrjú fara beint
niður. Fimm lauf er líka
andvana geim, en hins vegar
vinnast fjögur hjörtu á 4-2
samlegu! Ekkert par „náði“
þó því glæsilega geimi.
Á nokkrum borðum stálu
NS sögninni í þremur tígl-
um, til dæmis eftir opnun á
veikum tveimur:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 2 tíglar
Dobl 2 spaðar Dobl 3 tíglar
Pass Pass Pass
Eftir þessar sagnir spilaði
vestur út spaða. Sagnhafi
tók fjóra efstu og henti niður
hjörtum heima. Vestur
trompaði fjórða spaðann og
spilaði tígulás og tígli. Þar
með var blindur inni og gat
tekið slag á spaðatvistinn.
Vestur missti þarna af fal-
legri vörn – hann átti að
spila LITLU trompi undan
ásnum öðrum. Austur getur
þá stungið í spaðatvistinn og
síðar tekur vestur tígulásinn
og þrjá slagi á lauf.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert iðjusamur og upp-
byggilegur en átt það til að
ganga fulllangt í því að
ráðskast með aðra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það getur verið erfitt að út-
skýra málin fyrir öðrum þeg-
ar þeir eru ekki inni í fræð-
unum. Mundu að einn góðan
veðurdag kannt þú að vera í
þeirra sporum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur tekið fullmörg verk-
efni að þér og sýpur nú seyðið
af því skipulagsleysi. Það
heldur manni líka ungum að
breyta til.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér er það óvænt ánægja
hvað þú uppskerð fljótt ár-
angur erfiðis þíns. Njóttu
þess og efldu styrk þinn fyrir
átakameiri tíma.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er ástæðulaust að hafa
horn í síðu annarra fyrir það
eitt að þeir eru ekki alltaf
sammála þér. Þér er ráðlagt
að ígrunda vel aðgerðir þínar
í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vertu stoltur af starfi þínu
þótt einhverjum finnist ekki
mikið til þess koma. Haltu
þínu striki og láttu neikvæðar
raddir ekki hafa áhrif á þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Farðu þér hægt í þeim fjár-
festingarplönum, sem þú ert
að hugsa um. Hafðu í huga að
þótt leiðin á tindinn sé torsótt
þá getur fallið niður tekið
fljótt af.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það getur vakið upp ýmsar
tilfinningar þegar ganga þarf
frá persónulegum málum.
Láttu ekkert hindra þig í því
að framkvæma það sem þú
veist að er rétt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að leyndarmál þín
liggi ekki á borðum þeirra
sem kunna ekki með þau að
fara. Láttu stríðni annarra
sem vind um eyru þjóta.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú vilt gera lítilsháttar breyt-
ingar heima fyrir en skalt
ekki hefja þær fyrr en þú hef-
ur tekið allt inn í dæmið.
Gefðu þér nægan tíma til að
undirbúa hlutina.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það getur reynst nauðsynlegt
að taka smávægilega áhættu
til þess að hlutirnir gangi upp
eins og best verður á kosið.
Aðalatriðið er að halda sig við
efnið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Allt hefur sinn stað og stund.
Það þarf ekki mörg orð né
mikla tilburði, heldur aðeins
að láta vita af tilfinningum
þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Skrifaðu niður allt sem þú
þarft að gera og raðaðu svo
verkefnunum eftir mikilvægi
þeirra. Reyndu að láta fjár-
hagsáætlanir þínar standast.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SPORÐDREKI
90 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 10.
nóvember, er Aðalheiður
Tómasdóttir frá Brimils-
völlum í Fróðárhreppi ní-
ræð. Eiginmaður hennar
var Ingvar Agnarsson sem
lést 1996.
Lengst af bjuggu þau á
Hábraut 4 í Kópavogi en
dvelur hún nú á Hrafnistu í
Reykjavík. Aðalheiður verð-
ur að heiman í dag.
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur er í dag, sunnu-
daginn 10. nóvember,
Hjálmar Örn Jónsson verk-
stjóri, Hvannalundi 17,
Garðabæ.
Hann og eiginkona hans,
Ásta Dungal, verða að heim-
an á afmælisdaginn.
50ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 11.
nóvember, er Kolbeinn
Kristinsson, forstjóri Myll-
unnar-Brauðs hf., fimm-
tugur. Í tilefni af þessum
tímamótum munu Kolbeinn
og eiginkona hans, Ruth S.
Gylfadóttir, verða með mót-
töku á Grand hóteli á afmæl-
isdaginn kl. 18–20.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júní sl. í Beru-
fjarðarkirkju af sr. Sjöfn Jó-
hannesdóttur þau Karin
Hammer og Sigurður Ei-
ríksson. Heimili þeirra er á
Svinair, Færeyjum.
Ljósmynd/Jóh. Valg.
LJÓÐABROT
FYLGJURNAR
Þögn fylgir morgni,
þunglyndi degi,
söknuður kvöldi,
sár tár nóttu.
Sælt er því að sofna,
sárt að vakna,
langt að lifa.
Líður allt um síð.
Páll Ólafsson
1.d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. Dc2 0–0 5. a3 Bxc3+
6. Dxc3 b6 7. Bg5 Bb7 8. e3
d6 9. f3 c5 10. dxc5 dxc5 11.
Bd3 Rbd7 12. Hd1 h6 13.
Bf4 e5 14. Bg3 e4 15. Bc2
exf3 16. gxf3 He8 17. e4
De7 18. Bd6 De6 19. Re2
Staðan kom upp í Meist-
araflokki Mjólkurskák-
mótsins sem lauk fyrir
skömmu á Hótel Selfossi.
Helgi Ólafsson (2.476)
hafði svart gegn Ivan Sok-
olov (2.684). 19... Bxe4! 20.
Rf4 Bxc2+ 21. Rxe6
Hxe6+ 22. Kf2 Bxd1 23.
Hxd1 Hae8 24. Hd2 Re5?!
Eins og bent
hefur verið á
gat svartur
unnið af meira
öryggi og glæsi-
leika eftir 24...
Re4+!! 25. fxe4
Rf6 26. He2
Hxe4! 27. Hd2
H4e6! og hvítur
er varnarlaus. Í
framhaldinu er
svarta staðan
vænleg en
hugsanlega
hefði hvítur
getað varist
betur en hann
gerði. 25. Bxe5
Hxe5 26. Hd8 He2+ 27.
Kf1 Hxd8 28. Kxe2 a5 29.
Db3 Hd6 30. Db5 g5 31.
Da6 Rh5 32. Dc8+ Kg7 33.
Dc7 Rf4+ 34. Kf1 Hf6 35.
h4 g4 36. Kg1 gxf3 37. Kf1
f2 38. De5 Rg6 39. Dg3 h5
40. Dg5 Hf4 41. b3 Hxh4
42. Dd8 Hf4 43. Dxb6 Hf5
44. Dxa5 Re5 45. Dxc5
Kg6 46. Dd6+ f6 47. b4
Rg4 48. Dg3 Kg5 49. b5 h4
50. Dh3 He5 51. Dc3 h3 og
hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.