Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 61
ÚTRÁS íslenskra poppara er í
fullum gangi um þessar mundir og
rétt að tæpa á því helsta sem er að
gerast hjá þeim „stærri“.
Af gulldrengjunum okkar í Sig-
ur Rós er það helst að frétta að
sala á ( ) er nú komin í rúmlega
þúsund eintök hérlendis. Fyr-
irframpantanir á plötunni úti í
heimi voru 250.000 en sölutölur á
því upplagi liggja enn ekki fyrir.
Platan fór inn á sölulista í Ástr-
alíu, Austurríki, Belgíu, Kanada,
Danmörku, Finnlandi, Frakklandi
(19. sæti), Þýskalandi, Hollandi,
Írlandi (17), Ítalíu, Japan, Noregi
(6), Portúgal (13), Svíþjóð, Sviss,
Bretlandi og Bandaríkjunum, þar
sem hún fór í 51. sæti Billboard-
sölulistans, sem þykir mjög gott.
Hér á landi er hún í toppsæti Tón-
listans.
Á stærstu netverslun heims,
Amazon, er Sigur Rós á lista yfir
mest seldu plöturnar í helstu
útibúum verslunarinnar. Hún er í
45. sæti í Bretlandi, 53. í Banda-
ríkjunum, 39. í Frakklandi og 31. í
Þýskalandi.
Dómar um sveitina hafa líka
birst undanfarið, birti New York
Times t.d. tónleikadóm um sveit-
ina er hún lék í Beacon Theater
þar í borg síðustu helgi. Höfundur
fer ekki hina venjubundnu „hale-
lúja“-leið, heldur kýs að lýsa
hrifningu sinni hæversklega.
Einkum er hann hrifinn af „tign“
þeirri, eins og hann orðar það,
sem felst í rólegum og seiðandi
stemmum piltanna.
Þá er breska blaðið NME búið
að birta dóm um ( ), en blaðinu
hefur verið nokkuð uppsigað við
sveitina undanfarið. Í því ljósi er
dómurinn furðugóður og fá þeir
einkunnina 7 af 10. Gagnrýnand-
inn leggur þetta faglega fyrir sig;
átelur vinnubrögðin þar sem það á
við og hrósar því sem vel er gert.
Á mánudaginn var komu út tvö
verk eignuð Björk, annars vegar
safnplatan Greatest Hits og hins
vegar safnkassinn Family Tree.
Báðir þessir hlutir prýða hina
ýmsu lista og Greatest Hits var
plata vikunnar á BBC-útvarps-
stöðinni þessa viku.
Rafpoppkvartettinn múm er nú
búinn að selja 75.000 eintök af
nýrri plötu sinni, Finally we are
no one, um heim allan. Í ljósi þess
að tónlist múm myndi seint teljast
markaðsvæn, ekki frekar en tón-
list Sigur Rósar og Bjarkar, er
þessi árangur stórgóður.
Rapprokksveitin Quarashi er þá
á líkan hátt búin að selja 220.000
eintök af plötu sinni Jinx.
Sigur Rós á sölulistum 19 landa
Sigur Rós dvelur ekki lengur í djúpinu, ef marka má vinsældalistana.
Íslensk dægurtónlist selst vel erlendis
ENGA vestræna snápa hér. Það er 85 ára afmæli byltingarinnar í Rússlandi
og nokkuð hundruð gamlir kommúnistar hafa safnast saman á torginu fyrir
framan Bolshoi-leikhúsið og hlýða á háværar ræður, þar sem núverandi vald-
höfum og kapítalistum heimsins er úthúðað. Enga vestræna blaðasnápa hér,
hrópar æstur maður sem linsunni er beint að. Hann snýr síðan aftur að vöru-
bílnum sem ræðumaðurinn stendur á og hrópar. Bravó, félagi!
Dagbók ljósmyndara
Morgunblaðið/Einar Falur
Enga vestræna snápa!
Moskvu 7. nóvember 2002.
Yfir 43.000 áhorfendur
Sýnd kl. 6. Mán 6.
HJ Mbl
1/2 HK DV
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12. Vit 444
Ó.H.T. Rás2
1/2
SV. MBL
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Vit 441. Sýnd kl. 2. Vit 441.
Mán kl. 4 og 6.
Kvikmyndir.com 1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
SV. MBL
DV
Sýnd kl. 10.10. Bi. 16. Vit 453
Stundum er það sem að
þú leitar að.. þar sem þú
skildir það eftir.
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50 og 8. Mán kl. 3.40, 5.50 og 8. B.i. 12. Vit 433 Sun. kl. 4. Sýnd kl. 8. Vit 455
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 461
Mán kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 2, 4, 8 og 10.
Mán 8 og 10. Vit 461Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Mán 4, 6, 8 og 10.10 Vit 474 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mán 6, 8 og 10. Vit 474
1/2
Kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 429
ÁLFABAKKI AKUREYRI ÁLFABAKKIÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur
og er nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd í lúxussal kl. 4, 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 475
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK AKUREYRI
Frábær grínhasar með hinum eina
sanna Jackie Chan.
Frá framleiðendum Men in Black og
Gladiator
Sjáið
Jackie Chan
í banastuði
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
HK. DV
Kvikmyndir.com
AKUREYRI
AUK
ASÝ
NING
kl.
9
Sýnd kl. 4, 8 og 10.
Mán 8 og 10.
Sýnd sunnudag kl. 2 og 4.
KEFLAVÍK
Kl. 6, 8 og 10. Mán 8 0g 10. Vit 448
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 448