Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FELLDU 12 ÍSRAELA
Tólf Ísraelar biðu bana og 15
særðust í launsátri palestínskra
hermdarverkamanna í borginni
Hebron á Vesturbakkanum. Þrýst
er á Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, að svara með fullum þunga.
Aukin virkni í Mýrdalsjökli
Tveir nýir sigkatlar hafa myndast
í Mýrdalsjökli og eldri katlar hafa
dýpkað og hefur almannavarna-
nefnd Víkur í Mýrdal verið vöruð við
því að aukinn hiti sé í jöklinum og
þensla í jarðskorpunni. Talið er
sennilegt að eldgos sé í nánd í jökl-
inum.
Bólusetningar ganga vel
Stefnt er að því að öll börn fimm
ára og yngri hafi verið bólusett gegn
heilahimnubólgu af C-stofni fyrir
áramót. Vel á annan tug þúsunda
barna hafa þegar verið bólusett.
Jón Böðvarsson heiðraður
Jón Böðvarsson hlaut í gær Verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar, sem
veitt eru í tilefni af Degi íslenskrar
tungu. Menntamálaráðherra hrósaði
Jóni fyrir að „opna ögrandi heim Ís-
lendingasagna fyrir nýjum les-
endum“.
Karl fulltrúi Vestfjarða
Meirihluti 30 fundarmanna á fé-
lagsfundi Samfylkingarinnar í Ísa-
fjarðarbæ hefur sent uppstilling-
arnefnd flokksins í Norðvestur-
kjördæminu áskorun um að þeir líti
svo á að Karl V. Matthíasson, þing-
maður Vestfirðinga, sé fulltrúi
þeirra í einu af þremur efstu sætum
listans fyrir kosningarnar í vor.
Fundur vegna læknadeilu
Borgarafundur verður á Suður-
nesjum annað kvöld vegna ástands-
ins í málum heilsugæslulækna.
Helga Valdimarsdóttir, íbúi í Njarð-
vík, hefur hvatt til setuverkfalls í
heilsugæslustöðinni til að þrýsta á
um lausn deilunnar. Gert er ráð fyrir
að heilbrigðisráðherra og bæjar-
stjórinn í Reykjanesbæ sitji fundinn.
Jól í útvarpinu
Jólalögin munu byrja að hljóma á
útvarpsstöðinni Létt 96,7 um
helgina. Norðurljós, sem reka stöð-
ina, segjast ekki vera að taka nema
vikuforskot í að leika jólalög og
benda á að Kringlan sé þegar komin
í jólabúning.
2002 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
STÓRVELDASLAGUR REAL MADRID OG AC MILAN / B4
ARNAR Grétarsson og Arnar Þór Viðarsson
leika ekki með íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu gegn Eistlandi í Tallinn næsta miðviku-
dag. KSÍ varð við ósk frá félagi þeirra í Belgíu,
Lokeren, um að gefa þeim frí vegna stórleiks
Lokeren við Anderlecht tveimur dögum síðar.
Í staðinn hefur Atli Eðvaldsson valið þá
Helga Kolviðsson frá Kärnten í Austurríki og
Atla Svein Þórarinsson frá Örgryte í Svíþjóð í
landsliðshópinn. Helgi Kolviðsson hefur leikið
28 landsleiki og var fastamaður í landsliðinu
um nokkurt skeið en hefur ekki spilað með því
á þessu ári. Síðasti leikur Helga var vináttu-
leikur gegn Póllandi á Laugardalsvellinum 15.
ágúst í fyrra. Atli Sveinn Þórarinsson lék sinn
fyrsta og eina landsleik til þessa gegn Ung-
verjalandi í september en hann kom þá inn á
sem varamaður rétt fyrir leikslok.
Helgi og Atli
með til Eistlands
Eins og staðan er þá er Convers-ano sýnd veiði en ekki gefin og
jóst að við verðum að fara í leikinn
með réttu hugarfari. Lið Conversano
r skipað reyndum og sterkum leik-
mönnum sem eiga samtals yfir eitt
þúsund landsleiki að baki,“ segir
Viggó sem telur að leikmenn Con-
ersano hafi vanmetið Hauka í fyrri
eiknum því við undirbúning leiksins
hafi þeir skoðað upptöku af tveimur
af slökustu leikjum Hauka-liðsins á
leiktíðinni. „Síðan náðum við alveg
toppleik ytra. Slíkan leik verðum við
að endurtaka til þess að vinna og
komast áfram í næstu umferð. Við
höfum eigin örlög í höndum okkar.“
Viggó segir ljóst að rík krafa sé
gerð til leikmanna Conversano að
þeir vinni þennan leik. Miklir pen-
ingar séu í spilinu hjá félaginu og
skýlaus krafa gerð um góðan árang-
ur. Af þeim sökum geti spennustig
leikmanna verið hátt.
„Málið hjá okkur snýst fyrst og
fremst um réttan undirbúning þann-
ig að allir leikmenn komi með réttu
hugarfari til leiks, geri sér grein fyrri
mikilvægi hans. Við þurfum að leggja
hlutina upp á svipaðan hátt og í fyrri
leiknum. Þá héldum við einbeitingu
frá upphafi til enda, létum aldrei slá
okkur út af laginu þótt dómgæslan
væri hreint hroðaleg sem kostaði
okkur fjögur til fimm mörk. Því mið-
ur er hlutdræg dómgæsla mikill ljóð-
ur á leikjum í Evrópukeppninni og
viðureign okkar við Conversano ytra
var engin undantekning þar á.
Heimavöllurinn á hins vegar að
vera nægur styrkur fyrir okkur til
þess að klára dæmið og komast í
næstu umferð ef við skilum okkar
hlutverki á leikvellinum,“ segir
Viggó og telur nauðsynlegt að hans
menn stjórni hraðanum í leiknum til
þess að vinna.
„Boltinn er í okkar höndum auk
þess sem við eigum tromp á hendi
sem við notuðum ekki í fyrri leiknum.
Þannig að við förum af fullri bjart-
sýni í leikinn en gerum okkur hins
vegar fyllilega grein fyrir að Con-
versano hefur á að skipa afar góðu
liði. Það er óhætt að lofa spennandi
og skemmtilegum leik,“ segir Viggó
og vill eðlilega ekki upplýsa hvernig
tromp hans lítur út.
Haukar mæta Conversano í Evrópukeppni bikarhafa að Ásvöllum
Viggó með tromp á hendi
ÞAÐ er enginn vafi á að við eigum fyrir höndum erfiðan leik gegn
sterku liði,“ segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, sem kl. 16.30 í
dag mæta á Ásvöllum ítalska liðinu Conversano með Guðmund
Hrafnkelsson landsliðsmarkvörð innanborðs, í síðari viðureign lið-
anna í Evrópukeppni bikarhafa. Fyrri leik liðanna ytra sl. sunnudag
auk með jafntefli, 27:27, og því útlit fyrir hörkuleik í dag.
„JÚ, ég verð að viðurkenna
það að þessi sigur okkar kem-
ur mörgum á óvart hérna í
Portúgal, og þá sérstaklega
rúmlega 3.000 áhorfendum
sem voru vel með á nótunum,“
sagði Ágúst Jóhannsson þjálf-
ari Gróttu/KR í gærkvöldi eftir
að lið hans hafði lagt Francisco
de Holanda frá Portúgal,
24:21, í áskorendakeppni EHF.
„Það var gríðarlega mikil-
vægt að halda þeim í 21 marki
enda var þetta heimaleikur
okkar en síðari leikurinn er
útileikurinn,“ bætti Ágúst við
en báðir leikirnir fara fram
ytra.
Ágúst sagði ennfremur að
aðstæður væru óvenjulegar, ís-
kalt væri í íþróttahöllinni og
menn með sultardropa á nef-
broddinum í stað svitadropa.
„Ég er vanur að kófsvitna á
leikjum í jakkafötunum en að
þessu sinni þarf ekki einu sinni
að strauja þau fyrir seinni leikinn.
Við lékum framarlega í vörninni
fyrstu mínútur leiksins en breyttum
í 6:0 vörn eftir það og þetta er besti
varnarleikur sem við höfum leikið í
vetur. Að auki varði Hlynur Mort-
hens mjög vel og Guðmundur Jó-
hannesson tók síðan tvö víti frá
þeim á mikilvægum augnablikum,“
sagði Ágúst en lagði áherslu á að
síðari leikurinn væri enn eftir og
ekkert væri í hendi. „Við ætlum að
verjast af krafti, þora samt sem áð-
ur að gera hlutina eins og alltaf, en
með varfærnislegu ívafi þó.“ sagði
þjálfarinn spekingslega um taktík-
ina í síðari leiknum á sunnudag.
„Það fer vel um okkur hér í Portú-
gal og allar aðstæður fyrir utan
keppnishöllina eru eins og best
verður á kosið.“
Um 3.000 áhorfendur voru á
leiknum sem fór fram í miklum
kulda en keppnishöllin var óupp-
hituð og var aðeins um 4 stiga hiti
meðan á leiknum stóð.
Vesturbæ-
ingar heitir
í kuldanum
í Portúgal
Morgunblaðið/Kristinn.
Ragna Ingólfsdóttir úr TBV stóðst undir væntingum í fyrsta leik
sínum á alþjóðlega mótinu í badminton sem hóft í gær í TBR-
húsinu - lagði þar Simone Prutche frá Austurríki. Úrslit B2. Guðmundur
lék ekki með
Conversano
GUÐMUNDUR Hrafnkels-
son, landsliðsmarkvörður,
lék ekki með Conversano
þegar liðið lagði Bologna,
34:19, á heimavelli í ítölsku
1. deildinni í handkattleik í
vikunni áður en liðið hélt til
Íslands þar sem það mætir
Haukum í síðari viðureign
liðanna í Evrópukeppni bik-
arhafa á Ásvöllum í dag.
Þjálfari Conversano kaus
að tefla fram fimm útlensk-
um útispilurum í leiknum
en það er sá hámarksfjöldi
sem nota má af erlendum
handknattleiksmönnum í
hverjum leik á Ítalíu og
hefur Guðmundur af þeim
sökum aðeins leikið tvo af
átta leikjum liðsins í deild-
inni á leiktíðinni.
L a u g a r d a g u r
16.
n ó v e m b e r ˜ 2 0 0 2
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 42
Viðskipti 16/19 Menntun 42/43
Erlent 22/25 Kirkjustarf 44/45
Höfuðborgin 26 Minningar 55/59
Akureyri 27 Staksteinar 62
Suðurnes 28 Myndasögur 64
Árborg 29 Bréf 64/65
Landið 30 Dagbók 66/67
Listir 31/33 Leikhús 68
Úr Vesturheimi 34 Fólk 70/73
Neytendur 35 Bíó 70/73
Heilsa 36/37 Ljósvakamiðlar 74
Forystugrein 38 Veður 75
* * *
JÓN Böðvarsson hlaut í gær Verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar, sem
veitt eru í tengslum við Dag ís-
lenskrar tungu, sem er í dag.
Það var Tómas Ingi Olrich, ráð-
herra menntamála, sem afhenti
verðlaunin formlega í hátíðarsal
Menntaskólans á Egilsstöðum að
viðstöddu fjölmenni. Hann sagði í
ávarpi að athygli Íslendinga væri
beint að tungumáli sínu á Degi ís-
lenskrar tungu, gildi hennar fyrir
þjóðarvitundina og menningu.
Í reglum menntamálaráðuneytis
um verðlaunin segir, að veita beri
þau einstaklingum sem hafa unnið
íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti,
með skáldskap, fræðistörfum eða
kennslu og stuðlað að eflingu henn-
ar, framgangi eða miðlun til nýrrar
kynslóðar.
Við veitingu verðlaunanna sagði
menntamálaráðherra að Jón Böðv-
arsson væri landsþekktur sagna-
maður og fræðaþulur. „Hann hefur
ætíð verið trúr þeirri sannfæringu
sinni að íslenskar fornsögur ættu
brýnt erindi við nútímann,“ sagði
ráðherra. „Þannig hefur hann átt
stærri þátt en flestir núlifandi Ís-
lendingar í að opna ögrandi heim Ís-
lendingasagna fyrir nýjum les-
endum, tilgerðarlaust með öllu og
með sagnagáfuna að vopni.“
Jón kenndi íslenskar bókmenntir
í framhaldsskólum um árabil, en hin
síðari ár hafa kvöldnámskeið hans
um fornsögur og leiðsögn um
sagnaslóðir Njálu notið mikilla vin-
sælda meðal almennings.
Verðlaunin eru ritsafn Jónasar
Hallgrímssonar í skinnbandi og hálf
milljón króna. Íslandsbanki leggur
til verðlaunaféð.
Fýsnin til fróðleiks og skrifta
Jón sagði í þakkarávarpi sínu
m.a. að unga og aldna þyrsti í sögur.
„Jafnframt er löngun og hæfni til
þess að segja sögur almenn og iðka
margir þá fornu list. Fáa mun undra
að í fábreyttu hversdagslífi voru
sagna- og fræðamenn vel metnir.
Orðstír þeirra með þjóðinni lifði
góðu lífi löngu eftir að blómaskeið
sagnaskemmtunar var að baki.
Virðing fyrir þessum menningar-
skemmtikröftum var mér innrætt
frá bernsku. Fram að sextán ára
aldri dvaldi ég sumarlangt hjá föð-
urforeldrum mínum á litlu bænda-
býli sunnan undir Akrafjalli. Þar og
heima í Reykjavík lærði ég að virða
móðurafa minn, rímnakvæðamann-
inn sem ég er heitinn eftir. Síðan
hefur mér fundist ég eiga hans lík-
um, nafnlausum menntamiðlurum
um land allt, skuld að gjalda og
reynt að greiða hana með því að
kynna eftir megni bókmenntir okk-
ar frá öllum skeiðum í þjóðarsög-
unni, þótt ég hafi á síðari árum nær
einskorðað þá kynningu við Íslend-
ingasögur. Ég ber líkan hug til
sagnafólks og Jón Helgason til
skrifara bókfells er hann situr í
Árnasafni og segir „Lífskjörin önn-
ur, en fýsnin til fróðleiks og skrifta,
finnst okkur báðum úr dustinu hug-
anum lyfta“. Ég þakka þann heiður
að vera í dag skipað með sagna-
mönnum þjóðarinnar,“ sagði Jón
einnig.
Veitt í sjöunda sinn
Þetta er í sjöunda sinn sem Verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar eru
veitt, en þau hafa áður komið í hlut
Ingibjargar Haraldsdóttur, Magn-
úsar Þórs Jónssonar, Matthíasar Jo-
hannessen, Þórarins Eldjárns, Gísla
Jónssonar og Vilborgar Dagbjarts-
dóttur.
Einnig hlutu viðurkenningar fyr-
ir störf í þágu íslenskrar tungu þau
Hörður Kristinsson grasafræðingur
fyrir orðabókarverkefnið Íslensk
plöntuheiti í rafrænni útgáfu og Sig-
ríður Dóra Sverrisdóttir, fyrir hönd
menningarnefndar Vopnafjarðar,
fyrir hagyrðingakvöld Vopnfirð-
inga, Með íslenskuna að vopni. Við-
urkenningarnar voru listaverk eftir
Steinunni Þórarinsdóttur.
Hefur opnað
ögrandi heim
Íslendingasagna
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Jón Böðvarsson tekur við verðlaun-
unum úr hendi Tómasar Inga Ol-
rich menntamálaráðherra.HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra mun sækja leiðtogafund
Atlantshafsbandalagsins sem hald-
inn verður í Prag í Tékklandi dagana
21. og 22. nóvember nk.
Utanríkisráðherra mun eiga fund
með Josef Bonnici, viðskiptaráð-
herra Möltu, næstkomandi mánudag
og daginn eftir opnar hann formlega
verksmiðju lyfjafyrirtækisins
Pharmaco hf. á Möltu sem búið er að
endurnýja frá grunni.
Þá mun ráðherrann heimsækja
nýtt fyrirtæki í eigu Lánstrausts hf.
sem hefur verið stofnað á Möltu.
Með embættisverkum sínum á
Möltu og í Tékklandi hefur ráð-
herrann opinber störf að nýju en
hann hefur að undanförnu verið í
veikindaleyfi.
Halldór aftur til vinnu
HUNDAR þurfa að þola víðtækar takmarkanir á
ferðafrelsi sínu. Lausaganga þeirra er bönnuð í
þéttbýli og einmitt þar sem helst væri þægilegt
fyrir þá að hlaupa um er búið að setja upp skilti
sem minna eigendurna á bannið. Engin önnur
gæludýr þurfa að þola slíkar opinberar ferða-
hömlur, t.d. er hvergi að finna skilti sem á stend-
ur að bannað sé að sleppa köttum lausum og
fuglar mega fljúga um óáreittir. Hver sem
ástæðan er fyrir þessari frelsisskerðingu hunda
þá er alveg öruggt að ákveðnum fjórfætlingum
finnst þetta alveg hundfúlt.
Morgunblaðið/Ingó
Hundfúll yfir banni
ÍSLENSKA ríkið var í gær sýknað
af tveggja milljóna króna miskabóta-
kröfu konu sem varð ólétt þrátt fyrir
ófrjósemisaðgerð 1999.
Eftir þungunina undirgekkst kon-
an legtæmingu rúmum tveimur
mánuðum eftir aðgerðina. Við skoð-
un í kviðsjá eftir legtæmingu kom í
ljós að klemman sem vera átti á
vinstri eggjaleiðaranum sat á líf-
himnufellingu en ekki eggjaleiðaran-
um sjálfum og því þótti ljóst að kon-
an hafði orðið þunguð í gegnum
vinstri eggjaleiðarann.
Það var álit sérfróðra meðdóms-
manna af aðgerðarlýsingu og fram-
burði læknis þess er aðgerðina fram-
kvæmdi, að ekki yrði annað ráðið en
að rétt og tilhlýðilega hefði verið
staðið að henni. Ekkert hefði komið
fram í málinu sem benti til að mistök
hefðu átt sér stað við aðgerðina. Það
að klemman var ekki á eggjaleiðar-
anum yrði því ekki rakið til annars
en að hún hafi ekki náð að loka hon-
um fullkomlega og runnið út af hon-
um vegna krampa sem myndist í
eggjaleiðaranum. Um óhappatilvik
hafi því verið að ræða.
Þá væri á það að líta að konan und-
irritaði fyrir aðgerðina yfirlýsingu
um að henni væri ljóst í hverju hún
væri fólgin og hvaða afleiðingar hún
gæti haft. Lægi því ekki annað fyrir
en að hún hafi verið upplýst um aðr-
ar mögulegar getnaðarvarnir og að
ófrjósemisaðgerðin veitti ekki full-
komna vörn gegn þungun. Þá hafi
henni verið veitt lögbundin ráðgjöf
og fræðsla. Skilyrði bótaábyrgðar
væru því ekki fyrir hendi í málinu.
Þorgerður Erlendsdóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn, meðdóm-
endur læknarnir Arnar Hauksson og
Sigurður Thorlacius og til varnar
ríkinu var Guðrún M. Árnadóttir hrl.
Þungun eftir ófrjósem-
isaðgerð verður ekki
rakin til læknamistaka