Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATKVÆÐASEÐLAR um hvort
boða eigi til verkfalls hafa verið
sendir til lausráðinna hljóðfæra-
leikara við Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Hljóðfæraleikararnir krefj-
ast þess að Sinfóníuhljómsveitin
hlíti félagsdómi og hækki laun
þeirra miðað við kjarasamning sem
gerður var við fastráðna starfs-
menn hljómsveitarinnar árið 2001.
Niðurstöðu úr atkvæðagreiðslunni
er að vænta þann 21. nóvember og
verði boðað til verkfalls, mun það
skella á þann 3. desember næst-
komandi.
Björn Árnason, formaður Félags
íslenskra hljómlistarmanna og laus-
ráðinn fagottleikari við Sinfóníuna
frá árinu 1968, segir að greitt hafi
verið samkvæmt dómi félagsdóms,
sem kveðinn var upp í júní, yfir
sumarmánuðina, en kveðið hafi við
annan tón í haust. „Frá 1. sept-
ember hafa þeir verið að rembast
við að fara fram hjá þessum kjara-
samningi með því að bjóða mönnum
verktakasamninga. Þeir eru að
reyna að komast hjá því að virða
niðurstöðu félagsdóms,“ segir
Björn. Hljóðfæraleikarar hafi stað-
ið saman og hafnað öllum slíkum
samningum.
Um 60 hljóðfæraleikarar eru
lausráðnir við Sinfóníuna og kall-
aðir til eftir verkefnavali en um 80
eru fastráðnir við hljómsveitina.
Björn segir að samningur hafi verið
gerður við lausráðna starfsmenn
hljómsveitarinnar árið 1985, sem
hafi ætíð verið tengdur aðalkjara-
samningi hljómsveitarinnar.
Nýr aðalkjarasamningur var
undirritaður í fyrra og töldu laus-
ráðnir starfsmenn að samningur
þeirra yrði áfram tengdur við að-
alkjarasamninginn. Björn segir að
Sinfóníuhljómsveitin hafi þó ekki
viljað það og því hafi málið verið
farið fyrir félagsdóm, sem síðan
staðfesti kröfur hinna lausráðnu.
FÍH svipt samningsumboði
„Þetta strandar á ríkinu og á lög-
um um starfsemi Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands frá 1982. Lögin
segja til um að fjármálaráðuneytið
eigi að sjá um samninga við starfs-
menn SÍ, en þar er eingöngu átt við
fastráðna starfsmenn. Það hefur
alltaf verið túlkað sem svo, enda
var samningurinn við lausafólkið
gerður árið 1985, þremur árum eft-
ir að lög um Sinfóníuna fóru í gegn-
um þingið. Við höfum sagt við
framkvæmdastjóra Sinfóníunnar að
við værum alveg tilbúin að ræða
hugsanlegar breytingar á þessum
kjarasamningi, enda væri það ekki
óeðlilegt eftir allan þennan tíma.“
Björn segir að FÍH hafi nýlega
fengið bréf frá fjármálaráðuneytinu
þess efnis að félagið hafi ekki um-
boð til að semja fyrir hönd lausráð-
ins starfsfólks. „Það þykir okkur
allsérstakt, að með einu pennastriki
sé hægt að taka umboð af stétt-
arfélagi hljómlistarmanna. Við er-
um á engan hátt sátt við þetta,“
segir hann og bendir á að allir
hljóðfæraleikarar Sinfóníunnar séu
félagsmenn í FÍH.
Trúnaðarráð FÍH hafi lagt til að
farið verði út í verkfallsaðgerðir til
að knýja það fram að niðurstöðu fé-
lagsdóms verði framfylgt. Björn
segir að nú sé verið að undirbúa
póstatkvæðagreiðslu um hvort boða
eigi til verkfalls, atkvæðaseðlarnir
verði sendir út innan skamms.
„Ég reikna með því að verkfall
gæti orðið langvarandi miðað við
hvernig þeir eru búnir að haga sér
fram til þessa. Tónlistarmönnum er
sýndur ótrúlegur dónaskapur þeg-
ar kaup og kjör eru rædd,“ segir
Björn.
Lausráðnir hljóðfæraleikarar við Sinfóníuna
Greiða atkvæði um
verkfallsboðun
ÚTVARPSSTÖÐIN Létt 96,7 ætlar að byrja að spila
jólalög um helgina. „Stöðin ætlar að byrja að leika
eitt og eitt jólalag, segir Ágúst Héðinsson, for-
stöðumaður dagskrárdeilar útvarpssviðs Norðurljósa.
„Við höfum undanfarin ár verið með eitthvað af
okkar stöðvum í jólagír og höfum tekið ákvörðun um
það að setja jólahúfuna á Létt í þetta sinnið,“ segir
hann
Ekki of snemmt
„Við ætlum að fara varlega af stað,“ segir Ágúst.
Hann útskýrir að varlega þýði að eitt til tvö lög af
þeim fimmtán, sem leikin séu á hverjum klukkutíma á
stöðinni, verði jólalög fyrstu dagana. Hann segir að
forðast verði að spila hátíðlegustu jólalögin fyrst um
sinn.
Létt verður komin alveg í jólasveinabúninginn
næstu helgi, 23. og 24. nóvember, þegar jólalögin
taka alfarið völdin.
Ágúst óttast ekki að þetta sé of snemmt en við-
urkennir þó að Létt sé vissulega að taka forskot á
jólasæluna.
„Létt er í rauninni að taka viku forskot,“ segir
Ágúst og miðar þá við hvenær jólaspilunin hefjist al-
farið. „Aðrar stöðvar byrja venjulega með jólalögin á
föstudegi eða laugardegi fyrir fyrsta sunnudag í að-
ventu,“ segir hann.
„Við höfum alltaf fengið góðar viðtökur vegna
þessa jólaefnis,“ bætir hann við og segir jólaefnið
vera hugsað fyrir verslanir og fyrirtæki auk fólks,
sem er heimavinnandi í jólaundirbúningnum. „Sem
dæmi er Kringlan að byrja sína jólaherferð núna um
helgina,“ segir Ágúst og segir stefnu útvarpsstöðv-
arinnar markast að einhverju leyti af því.
Rás 2 byrjar 1. desember
Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður hjá Rás 2,
segir að stefna stöðvarinnar sé óbreytt í þessum mál-
um. Hann segir að í fyrra hafi verið byrjað að spila
jólalög 1. desember og býst við því að sami háttur
verið hafður á í ár. „Mér finnst það ágætis hefð,“ og
segir þetta alveg nógu snemmt þrátt fyrir að Kringl-
an sé löngu skreytt.
„Fólk er alveg tilbúið að heyra eitt og eitt jólalag
þegar komið er fram í desember til að koma sér í
jólagírinn,“ segir hann en vill ekkert endilega heyra
jólalögin fyrr þrátt fyrir að játa að hafa gaman af
jólatónlist.
Jólalög byrja að hljóma
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN á Bifröst
hefur skrifað undir samning við
Evrópusambandið um 60 milljóna
króna styrk í rannsóknarverkefnið
„Frá velferðarsamfélagi til þekk-
ingarsamfélags“.
Verkefnið er fyrsta alþjóðlega
rannsóknin sem styrkt er af fimmtu
rammaáætlun ESB á sviði félags-
og hagvísinda og stjórnað er af sér-
fræðingi við íslenskan háskóla, að
því er segir í tilkynningu frá Bif-
röst. Heildarkostnaður verkefnisins
er áætlaður 70 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum Runólfs
Ágústssonar, rektors Viðskiptahá-
skólans á Bifröst, er meginmarkmið
rannsóknarverkefnisins að meta
þær leiðir sem ráðherraráð og
framkvæmdastjórn ESB, annars
vegar, og Austurrríki, Danmörk,
Finnland, Holland, Ísland, Spánn og
Ungverjaland, hins vegar, hyggjast
þróa í átt að þekkingarsamfélagi.
Greint verður hvort stefna og að-
gerðir ESB og viðkomandi lands til
að koma á þekkingarsamfélagi
muni leiða til aukins samruna í Evr-
ópu, tryggja fulla atvinnu og koma
á félagslegu jafnvægi, sérstaklega
hvað varðar stöðu karla og kvenna.
Rannsóknarverkefnið hefst 1.
desember nk. og lýkur í árslok
2005. Stjórnandi þess er dr. Lilja
Mósesdóttir, fræðimaður við Við-
skiptaháskólann á Bifröst, en í því
taka þátt sjö sérfræðingar á sviði
hagfræði, félagsfræði og stjórn-
málafræði frá Austurríki, Dan-
mörku, Finnlandi, Hollandi, Íslandi,
Spáni og Ungverjalandi auk sér-
fræðings frá Rannsóknarstofnun
Evrópsku verkalýðshreyfing-
arinnar (ETUI).
Nemendur á Bifröst niðursokknir í prófi.
60 milljóna króna
rannsóknarsamn-
ingur við ESB
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
Íþróttafélagið Fylki og ábyrgðar-
mann félagsins til að greiða dreng,
sem slasaðist er hann var að leik
við áramótabrennu félagsins á ný-
ársdag árið 1997, 661.475 krónur í
bætur vegna líkamstjóns sem hann
varð fyrir er hann datt og flæktist
við brennuna.
Samkvæmt dómnum skulu
skaðabæturnar bera 2% ársvexti
frá 1. janúar 1997 til 26. mars 2000
en dráttarvexti frá þeim degi til 1.
júlí 2001 og vexti og verðtryggingu
frá þeim degi til greiðsludags. Þá
er félaginu og ábyrgðarmanninum
gert að greiða drengnum 350.000
krónur í málskostnað í héraði og
ríkissjóði 250.000 krónur í máls-
kostnað fyrir Hæstarétti.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að drengurinn hafi verið að ganga
ofan á harðri hvítri ösku í brennu-
kantinum þegar askan hrundi und-
an honum og hann datt á spýtur
sem voru þar undir og flæktist í
vír.
Þá segir að félagið hafi fengið
leyfi til brennuhalds með því skil-
yrði að ábyrgðarmaður væri við-
staddur meðan brennan logaði og
uns öll hætta af henni væri liðin
hjá. Óumdeilt sé að ekki hafi logað
í brennunni er slysið varð en hins
vegar hafi verið í henni hiti og glóð
sem hafi reynst hættuleg.
Ábyrgðarmanninum hafi verið
kunnugt um að glóð var í brenn-
unni eftir hádegi á nýársdag og að
börn voru þar að leik. Honum hafi
því átt að vera hættan ljós og borið
sem ábyrgðarmanni brennunnar
að grípa til varúðarráðstafana til
að afstýra þessari hættu.
Hins vegar segir að drengurinn
hafi verið rúmlega níu ára gamall
þegar tjónið varð og að hann hafi
því átt að gera sér grein fyrir því
að hættulegt væri að ganga í leif-
um brennunnar. Hann hafi því
einnig sýnt af sér nokkurt gáleysi
og því þyki hæfilegt að hann beri
þriðjung tjóns síns sjálfur.
Stór biti fyrir félagið
Að sögn Birgis Finnbogasonar,
formanns aðalstjórnar Fylkis, er
dómur Hæstaréttar stór biti að
kyngja fyrir félagið fjárhagslega.
„Þetta er svona eins og gengur í
þessum félögum þá eru menn að
nurla saman til þess að láta enda
ná saman og félögin mega ekki við
neinum áföllum,“segir hann.
Hann segir að þá fjármuni sem
aðalstjórn hafi til ráðstöfunar sé
yfirleitt búið að njörva niður og
eyrnamerkja, svo sem eins og í lán
sem hafi verið tekin til að kosta
uppbyggingu mannvirkja á vegum
félagsins.
Hann segir að félagið muni meta
hvernig hægt sé að mæta kostn-
aðinum og hvort það muni koma
niður á starfsemi þess.
Dæmdar bætur vegna
slyss á áramótabrennu
ALLS nema kröfur í þrotabú
Frjálsrar fjölmiðlunar, FF, um 1,8
milljörðum króna. Þegar Sigurður
Gizurarson var skipaður skipta-
stjóri fundust engar eignir í búinu.
Fyrir skömmu féllust Landsbank-
inn, Búnaðarbankinn og Íslands-
banki á að greiða 330 milljónir
króna vegna sölu á 60% hlut FF í
útgáfufélagi DV og eru það einu
eignir búsins. Um leið og bankarnir
samþykktu að greiða féð til baka
öðluðust þeir rétt til að lýsa jafn-
háum kröfum í búið.
Stuttu áður en frestur til að lýsa
kröfum í búið rann út voru þær
komnar í 1.100 milljónir. Síðan
bættust við ofangreindar kröfur frá
bönkunum auk kröfu frá fyrrum
eiganda FF, Sveini R. Eyjólfssyni.
Alls nema kröfurnar því 1,8 millj-
örðum króna. „Þetta er mjög stórt
gjaldþrot. Það voru heilmiklar eign-
ir í þessu búi nokkru áður en það
varð gjaldþrota sem segir sína
sögu,“ segir Sigurður. Nokkrum
mánuðum áður en fyrirtækið varð
gjaldþrota hafi eignir verið seldar
úr búinu og peningarnir færðir eitt-
hvert annað. „Það er hlutverk mitt
að reyna að ná þessum peningum
inn.“ Ekki hefur verið tekin afstaða
til krafnanna en skiptafundur fer
fram 27. nóvember nk.
Gjaldþrot Frjálsrar fjölmiðlunar
Kröfurnar urðu
1,8 milljarðar