Morgunblaðið - 16.11.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
RÚMLEGA þrítugur maður, sem
villti á sér heimildir við akstursbrot
og kom því til leiðar að saklaus mað-
ur var ákærður, var dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Maðurinn játaði að hafa að nóttu
til ekið bifreið undir áhrifum áfengis
og ökuréttindalaus vestur Útnesveg
í Ólafsvík uns lögregla stöðvaði akst-
ur hans. Jafnframt gekkst hann við
því að hafa haft í frammi rangar sak-
argiftir með því að hafa, þegar lög-
reglan hafði afskipti af akstri hans,
gefið upp nafn annars manns og
þannig komið því til leiðar að sá var
ákærður fyrir ölvunarakstur og fyrir
að hafa ekki haft ökuskírteini með-
ferðis.
Maðurinn bar því við að hann hefði
ekki áttað sig á alvarleika hinna
röngu sakargifta. Var þetta í þriðja
sinn frá í apríl 2000 sem hann er
fundinn sekur um ölvunarakstur og
akstur sviptur ökurétti. Auk tveggja
mánaða fangelsisdóms, sem er óskil-
orðsbundinn, var maðurinn sviptur
ökurétti ævilangt og dæmdur til að
borga allan sakarkostnað. Vínanda-
magn í blóði hans er hann var tekinn
mældist 1,81 prómill.
Guðjón St. Marteinsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Ákærði
varði sig sjálfur fyrir dómi en Sigríð-
ur Jósefsdóttir saksóknari sótti mál-
ið fyrir ákæruvaldið.
Reyndi að
koma sök á
annan en
fékk dóm
ÍBÚÐ í tveggja hæða raðhúsi við
Dalsel í Breiðholti, gereyðilagðist í
miklum eldsvoða í fyrrinótt. 43 ára
gömul kona, sem var ein í íbúðinni,
komst út af sjálfsdáðum og var flutt
á slysadeild til skoðunar vegna
gruns um reykeitrun.
Nágranni konunnar, sem sá eld-
tungurnar teygja sig út um glugga
hússins, tilkynnti húsbrunann og var
mikill viðbúnaður settur í gang hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Sendir voru 20 slökkviliðsmenn á
vettvang á dælubílum frá þremur
stöðvum auk körfubíls og fjögurra
sjúkrabíla. Þegar þeir komu að hús-
inu var það nánast alelda og allar
rúður í því sprungnar. Konunni hafði
þá tekist að flýja út undir bert loft,
en vegna gruns um að fleiri væru í
íbúðinni fóru fjórir reykkafarar inn í
hana til leitar til að fullvissa sig um
að hún væri orðin mannlaus.
Töluverð hætta var á að eldurinn
læsti sig í næsta hús, en slökkviliðs-
mönnum gekk greiðlega að slökkva
eldinn og hefta frekari útbreiðslu
hans. Var slökkvistörfum lokið á
rúmri klukkustund. Samkvæmt upp-
lýsingum frá slökkviliðinu er íbúðin
gjörónýt. Lögreglumenn voru á vakt
við húsið um nóttina og er rannsókn
á tildrögum brunans hafin hjá lög-
reglunni. Eldsupptök eru ókunn, en
íkveikja hefur ekki verið útilokuð að
svo stöddu.
Morgunblaðið/Júlíus
Brunasérfræðingar tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík hófu rannsókn
á vettvangi í gær. Íkveikja hefur ekki verið útilokuð.
Íbúð gereyði-
lagðist í eldsvoða
Mikill viðbúnaður var vegna brun-
ans en greiðlega gekk að slökkva
eldinn.
KAUP Columbia Ventures, fyrir-
tækis Kenneth Peterson, aðaleig-
anda Norðuráls, á Hibernia-sæ-
strengnum milli Kanada og
Skotlands koma ekki til með að hafa
nein áhrif á Farice-verkefnið að
sögn Brynjólfs Bjarnasonar, for-
stjóra Landsímans.
„Áform okkar eru áfram þau að
leggja Farice í gegnum Færeyjar og
til Skotlands. Það er mikið framboð
á strengjum yfir Atlantshafið svo ég
held að við séum ágætlega sett með
því að koma Farice inn í Skotland,
þaðan til London og vestur um haf.
En kaupin [á Hibernia-strengnum]
breyta engu í áformum okkar.“
Eigið fé nemi fjórðungi
kostnaðarins
Gert er ráð fyrir að heildarkostn-
aður við lagningu Farice-sæstrengs-
ins milli Íslands, Færeyja og Skot-
lands verði á bilinu 4,2–4,5
milljarðar króna. Í viðskiptaáætlun
vegna þessarar framkvæmdar er
nauðsynlegt talið að eigið fé félags
sem stofnað var um lagningu
strengsins, Farice hf., nemi um
fjórðungi af kostnaði eða um 1,2
milljörðum króna.
Íslendingar þurfa að leggja fram
960 milljónir en Færeyingar 240. Þá
er gert ráð fyrir að félagið taki einn
milljarð að láni en aðilar sem standa
að Farice láni eða veiti ábyrgð fyrir
tveimur milljörðum til viðbótar. Af
því tryggir Faroya tele 400 milljónir
og íslenskir aðilar 1,6 milljarða.
Rætt hefur verið um að íslenska rík-
ið tryggi allt að helming þeirrar fjár-
hæðar.
Skrifað undir
26. nóvember
Þetta kemur fram á minnisblaði
sem lagt var fram á ríkisstjórnar-
fundi á þriðjudagsmorgun. Gert er
ráð fyrir að Landssíminn leggi fram
400 milljónir í eigið fé Farice og
reynt verði að fá önnur fjarskipta-
fyrirtæki til að leggja fram það sem
upp á vantar á hlut Íslendinga, 560
milljónir. Jón Birgir Jónsson, ráðu-
neytisstjóri samgönguráðuneytisins,
segir að samingaviðræður um þátt-
töku sameinaðs fyrirtækis Íslands-
síma og Halló, sem Tal sé nú orðinn
aðili að, gangi vel. Aðspurður segist
hann þó ekki búast við að þau leggi
fram jafnmikið fjármagn og Lands-
síminn. Það sem upp á vanti falli á
ríkið. Aðspurður um flutningsgetu
strengsins segir Jón að ekki sé búið
að ganga frá samningum við fram-
leiðendur strengsins. Verið sé að
ræða um margfalda flutningsgetu
Cantat3. Hann býst við að skrifað
verði undir samninga vegna lagning-
ar strengsins 26. nóvember.
Telja verkefnið spennandi
viðskiptatækifæri
Columbia Ventures á stærstan
hlut í Íslandssíma eftir sameiningu
við Halló-Frjáls fjarskipti. Bjarni K.
Þorvarðarson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Columbia Ventures,
segir að fyrirtækið hafi verið að
skoða kaup á Hibernia-sæstrengn-
um í marga mánuði. „Sýn Columbia
Ventures er sú að þarna sé um
spennandi viðskiptatækifæri að
ræða við að flytja símtöl og gögn
milli Evrópu og Bandaríkjanna.“
Bjarni segir árlegan vöxt á um-
ferð gagna um strenginn mikinn.
„Þessi iðnaður er í vandræðum
vegna þess að mikið hefur verið of-
fjárfest. Þess vegna fór t.d. fyrir-
tækið á hausinn sem við kaupum
strenginn af.“
Bjarni sagði í Morgunblaðinu í
gær að lauslega hefðu verið skoðaðir
möguleikarnir á því að koma á teng-
ingu við strenginn frá Íslandi en það
yrði vart fýsilegt ef Farice-streng-
urinn yrði að veruleika.
Styttist í undirritun samninga
vegna Farice-sæstrengsins
Hibernia-streng-
urinn engin
áhrif á Farice
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir rauðum Izusu Trooper-jeppa, ár-
gerð 1982, með skráningarnúmerið
U 3949. Jeppinn og ökumaður hans
sáust síðast aðfaranótt sunnudags.
Að sögn Valgeirs Elíassonar, upp-
lýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, munu björgunarsveit-
ir af Suður- og Vesturlandi hefja um-
fangsmikla leit að jeppanum í birt-
ingu í dag. Þeir sem hafa upplýsingar
um ferðir hans eru beðnir að láta lög-
regluna í Reykjavík vita.
Leitað að manni
á rauðum jeppa
♦ ♦ ♦
HVER er réttur brotaþola til að fá
að vita um afdrif kæru til lögreglu og
hvað felst í orðunum nálgunarbann
og vitnavernd? Hvert skal beina
kæru og hver er leiðbeiningarskylda
lögreglunnar varðandi réttindi
brotaþola? Þessum spurningum og
fjölmörgum öðrum er svarað í nýút-
komnum bæklingi dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins: Upplýsingar fyr-
ir þolendur afbrota.
Ýmsar ranghugmyndir eru um
rannsókn og meðferð opinberra
mála og m.a. af því tilefni er bækling-
urinn gefinn út svo og vegna þess að
margvíslegar breytingar hafa und-
anfarin ár verið gerðar á lögum til að
bæta réttarstöðu þolenda afbrota.
Ranghugmyndir geta jafnvel orðið
til þess að þolandi kærir ekki brot,
veit ekki hvernig hann á að bera sig
að því og telur ranglega fyrirfram að
það sé gagnslaust. Þetta kom m.a.
fram í máli Sólveigar Pétursdóttur
dómsmálaráðherra og Jóns Þórs
Ólasonar lögfræðings í dómsmála-
ráðuneytinu sem var formaður
nefndar er vann að bæklingnum.
Verðskulduð athygli
„Málefni brotaþola hafa hlotið
verðskuldaða athygli undanfarin ár
og mikil vinna hefur verið lögð í úr-
bætur á lagaumgjörð og málsmeð-
ferð,“ sagði Sólveig á blaðamanna-
fundi í gær þar sem bæklingurinn
var kynntur. Nefndi hún breytingar
á lögum um meðferð opinberra mála,
sem tryggja brotaþola í ofbeldismál-
um, aðstoð réttargæslumanns í
tengslum við rannsókn og rekstur
sakamanns gegn meintum brota-
manni, auk breytinga til þess að hlífa
börnum og ungmennum við því álagi
sem fylgir meðferð opinberra mála.
Í bæklingnum er í tímaröð farið
yfir það ferli sem fer af stað í kjölfar
afbrots og kæru og þar til málin eru
til lykta leidd. Þá er þar að finna
orðalista þar sem ákveðin hugtök
eru útskýrð sérstaklega.
Sólveig sagði mikilvægt að brota-
þolar væru vel upplýstir um hver
réttur þeirra er í kjölfar afbrots og
að það væri skylda opinberra aðila
að gera þeim málsmeðferðina eins
skýra og framast er unnt.
Sólveig tók sérstaklega fram að í
bæklingnum væri að finna kafla um
nálgunarbann og vernd vitna „og
mikilvægi þess að svonefndir hand-
rukkarar séu þegar í stað kærðir til
lögreglu, en ef brotaþolar treysta sér
ekki til þess að kæra slíka aðila þá sé
æskilegt að þeir upplýsi lögregluna
um slíkar hótanir. Ég vil árétta að
mál þessi eru í sérstakri skoðun bæði
hjá löreglu og í ráðuneytinu og mun
allra leiða leitað til að stemma stigu
við þessum vanda.“
Verður dreift víða
Bæklingnum verður dreift til allra
lögregluembætta landsins og til ým-
issa stuðningssamtaka utan og innan
ríkisstofnanna s.s. Stígamóta,
Kvennaathvarfs, Barnahúss og
Neyðarmóttöku vegna nauðgana en
um þessi samtök er sérstaklega
fjallað í bæklingnum.
Nýr bæklingur með upplýsingum fyrir þolendur afbrota
Mikilvægt að þolendur
séu upplýstir um rétt sinn
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra og Jón Þór Ólason, lögfræð-
ingur hjá dómsmálaráðuneytinu,
kynntu bæklinginn í gær.