Morgunblaðið - 16.11.2002, Page 26
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
26 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
afsláttur
af vönduðum sokkum
og nærfötum
25%
HJALLASTEFNAN ehf. hefur
sótt um heimild til að byggja við
leikskóla á lóð við Hjallabraut.
Jafnframt hefur hún óskað eftir
heimild til skólareksturs fyrir
yngstu bekki í grunnskóla. Skólinn
yrði einkaskóli með sama rekstr-
arform og Ísaksskóli í Reykjavík.
Málið er til umfjöllunar hjá skipu-
lags- og byggingarráði Hafnar-
fjarðar sem hefur óskað eftir um-
sögn fræðsluráðs bæjarins.
Að sögn Margrétar Pálu Ólafs-
dóttur, stofnanda og eiganda
Hjallastefnunnar ehf., hafa verið
uppi hugmyndir um að stækka
leikskólann Hjalla í nokkurn tíma,
meðal annars vegna vöntunar á
leikskólarýmum í bænum. „Við
höfum óskað eftir því að bærinn
hlutist til um nýbyggingu við skól-
ann með mögulegri samvinnu um
að Hjallastefnan komi að bygging-
unni sjálfri, bæði á faglegum og
fjárhagslegum forsendum.“ Segir
hún að nýta mætti hluta nýja hús-
næðisins undir tilraun með grunn-
skóla fyrir 1.–3. bekk.
Leita að húsnæði fyrir
skólarekstur næsta haust
Margrét segir að upphaflega
hafi verið hugmyndir um að leggja
upp með grunnskólarekstur strax í
fyrravetur. „Við vorum þá búin að
leita að húsnæði og áttum í við-
ræðum við skátana sem völdu síð-
an á lokastigum að draga sig út úr
þeirri samvinnu þannig að ekkert
varð af því að við legðum af stað
með grunnskólann síðasta haust.“
Aðspurð hvenær slíkur grunn-
skóli gæti tekið til starfa segir
Margrét að erfitt sé að segja til
um það. „Ég myndi halda að tvö ár
væri varlega áætlað. Við erum aft-
ur á móti núna að leita að húsnæði
til leigu undir grunnskólann á
meðan við erum að vinna að fram-
tíðarlausninni. Þannig að við erum
ekki út úr myndinni næsta haust
heldur erum þvert á móti að vinna
að því hörðum höndum.“
Leikskólinn Hjalli er rekinn
samkvæmt þjónustusamningi við
Hafnarfjarðarbæ og kæmi til
stækkunar myndi fyrirtækið að
sögn Margrétar óska eftir því við
bæjaryfirvöld að það form yrði
áfram haft á leikskólarekstrinum.
„Hvað varðar grunnskólaþáttinn,
hvort sem við myndum byggja
hluta af þeirri byggingu sjálf eða
fara í annað húsnæði, þá yrði það
einkarekstur. Við myndum taka
rekstrarform Ísaksskóla nákvæm-
lega upp enda er það þaulreynt í
alla staði.“
Í fundargerð fræðsluráðs kemur
fram að það samþykki fyrir sitt
leyti að Hjallastefnan fái heimild
til að reisa skólabygginguna. Lýsir
það yfir ánægju sinni með sýndan
áhuga á auknum leikskólarekstri
og rekstri einkaskóla að því gefnu
að öll ákvæði laga og reglugerða
varðandi húsnæði, lóð og innra
starf leik- og grunnskóla verði
uppfyllt.
Að sögn Magnúsar Baldursson-
ar, fræðslustjóra í Hafnarfirði, á
hann ekki von á að grunnskóli á
vegum Hjallastefnunnar taki til
starfa næsta haust enda segir
hann mikla skipulagsvinnu fram-
undan áður en af því geti orðið.
Hjalli óskar
eftir að reka
grunnskóla
Hafnarfjörður
„NEMANDI með malt fer inn í stof-
ur og truflar kennslu“ – „Fimoleir
og trölladeig“ – „Fótboltafíklar.“
Þetta er meðal fyrirsagna á grein-
um sem ungir fréttahaukar í Garða-
skóla hafa skrifað undanfarna daga
á svokölluðum Gagn- og gam-
andögum í skólanum.
Gagn- og gamandagarnir voru
haldnir á miðvikudag, fimmtudag
og föstudag en að sögn Ingu Maríu
Sverrisdóttur, kennsluráðgjafa í
tölvu- og upplýsingamennt, eru þeir
haldnir til að brjóta upp skóla-
starfið með því að leyfa krökkunum
að fást við ýmislegt annað en hefð-
bundið nám. Boðið hefur verið upp
á margvíslega hópa, bæði innan og
utan skólans, sem krakkarnir hafa
getað valið samkvæmt áhugasviði
hvers og eins.
Fréttaflutningur af þessum dög-
um hefur svo verið í höndum frétta-
hópsins. „Krakkarnir hafa verið að
taka viðtöl við hina hópana og tekið
myndir. Fréttirnar eru svo settar
inn á heimasíðu skólans auk þess
sem við höfum verið að útbúa lítil
plaköt sem við hengjum upp hist og
her um skólann með fréttum og
auglýsingum frá Gagn- og gam-
andögunum.“
Fréttamennskan hefur að sögn
Ingu Maríu gengið vonum framar.
„Þau hafa verið mjög áhugasöm og
gengið hér um og tekið myndir og
viðtöl. Fyrsta daginn var svo gam-
an hjá þeim að þau voru lengur en
þau þurftu og einn sagði að þetta
væri miklu skemmtilegra en að fara
heim og gera ekki neitt,“ segir hún
enda sjálfsagt ekki á hverjum degi
sem námið fær slíkar viðtökur.
Góðar fréttir
Öll vinna við fréttirnar og útgáfu
þeirra hefur verið í höndum krakk-
anna í hópnum. Árni Þór Skúlason í
10. bekk ÁP hefur haft það verkefni
með höndum að koma fréttunum
inn á heimasíðuna, www.garda-
skoli.is. „Ég hef mest verið að vinna
í vefsíðugerð og svo hef ég aðeins
verið að taka myndir,“ segir hann
og heldur áfram. „Þetta er mjög
skemmtilegt enda ég hef mikinn
áhuga á vefsíðugerð en ég hef ekk-
ert verið í því að skrifa fréttirnar.“
Hann er þó ánægður með frétta-
skrif félaga sinna í hópnum. „Ég
myndi segja að þetta væru mjög
áhugaverðar fréttir, að minnsta
kosti miðað við hvað við erum
óreynd og held að þær veki áhuga
krakkanna í skólanum.“
En gæti hann hugsað sér að snúa
sér alfarið að þessu í framtíðinni?
„Ég veit ekki alveg með frétta-
mennskuna en ég hef alltaf haft
gaman af vefsíðugerð og myndi al-
veg vilja leggja hana fyrir mig. Mér
finnst líka mjög gaman að taka
myndir af fólki og svoleiðis.“ Hann
er því alveg á því að vinnan hjá
fréttahópnum hafi hitt í mark. Hér
til hliðar má sjá tvö dæmi um fréttir
nemendanna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stund milli stríða: Katrín Björk, Kristján Einar, Ingibjörg kennari, Kjartan Óli, Birkir Ísak, Elvar Örn og Árni
Þór. Nokkrir fréttahaukanna voru hins vegar uppteknir við fréttaöflun þegar ljósmyndari Mbl. átti leið hjá.
Vel heppnaðir Gagn- og gamandagar í Garðaskóla
Fréttahaukar í hverju horni
Árni Þór og Inga María upptekin við að koma fréttum inn á heimasíðuna.
Garðabær
VIÐ töluðum við hann Palla,
kennara og trommara í
Svörtum fötum. Við spurðum
hann í sambandi við trommu-
brjálæðið, sem er einn hópur
í Gagni og gamni. Palli ætl-
aði að fara yfir sögu tromm-
unnar með hópnum sínum og
leyfa honum að heyra í
nokkrum efnilegum tromm-
urum. Palli er mjög ánægður
með hópinn sinn og segir að
nokkrir krakkar hafi hæfi-
leika til að ná langt í
trommubransanum.
Trommu-
brjálæði
STELPURNAR í tré og
tuskum skemmtu sér rosa-
lega vel þegar við litum inn
til þeirra. Við töluðum við
Söru Kristínu Sigurðardóttur
í 9-GU og hún sagði okkur að
það væri rosalega gaman að
búa til alls konar myndir og
hún hafði valið tré og tuskur
í fyrsta vali. Hún var búin að
ákveða að gefa vinkonu
mömmu sinnar það sem hún
myndi búa til. Stelpurnar
voru allar að gera þrívídd-
armyndir úr alls konar serv-
éttum. Þetta var rosalega
flott.
Gaman í
tré og
tuskum
SMS FRÉTTIR mbl.is