Morgunblaðið - 16.11.2002, Page 28
SUÐURNES
28 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bæjarstjóra sérstaklega til fundar-
ins. Hjálmar vonast til að íbúar
svæðisins fái upplýsingar um deiluna
á fundinum og að þar verði málefna-
legar umræður og samstaða sem
sýni deiluaðilum fram á nauðsyn
þess að setja deilurnar niður.
Áskorun um setuverkfall
Nú eru rúmar tvær vikur síðan all-
ir læknar við Heilsugæslustöð Suð-
urnesja létu af störfum. Ekki er vit-
að til þess að lausn sé í sjónmáli og
vandræði íbúanna aukast.
Helga Valdimarsdóttir, íbúi í
Njarðvík, hefur hvatt íbúana til að
fara í setuverkfall á heilsugæslustöð-
inni til að þrýsta á stjórnvöld um að
leysa deiluna, setjast að á stöðinni
þar til deilan leysist. Helga sagðist
raunar í gær lítil viðbrögð hafa feng-
ið við þessari áskorun sinni og var
undrandi á því.
Helga er ósátt við aðgerðaleysi
heilbrigðisráðherra, segir að hann
virðist svo upptekinn af Kínaferð og
umhverfismati Norðlingaöldu að
hann hafi engan tíma til að renna til
Reykjanesbæjar og leysa deiluna.
HJÁLMAR Árnason alþingismaður
hefur tekið áskorun um að boða til
borgarafundar um læknadeiluna á
Suðurnesjum. Fundurinn verður á
sunnudagskvöld. Læknaleysið veld-
ur sífellt meiri vandræðum og öryrki
í Njarðvík er að reyna að efna til
setuverkfalls á Heilsugæslustöðinni
en hefur ekki fengið miklar undir-
tektir.
„Sem íbúi hér og þingmaður hef
ég haft verulegar áhyggjur af lækna-
deilunni og lít á hana sem neyðar-
ástand. Ég hef verið í stöðugu sam-
bandi við heilbrigðisráðherra til að
þrýsta á um lausn en geri mér líka
grein fyrir því að deilan er viðkvæm.
Þar sem tveir deila verða báðir að slá
af kröfum sínum,“ segir Hjálmar
Árnason, þingmaður Framsóknar-
flokksins.
Í dálki sem nefnist Kallinn á kass-
anum og birtist í Víkurfréttum var
skorað á Hjálmar að boða til opins
borgarafundar um læknadeiluna.
Hann segist hafa tekið þessari
áskorun strax og hann sá hana og
fundurinn verður haldinn á Ránni í
Keflavík klukkan 20.30 á sunnudags-
kvöld. Hefur Hjálmar boðið Jóni
Kristjánssyni heilbrigðisráðherra,
fulltrúa lækna, og Árna Sigfússyni
„Við íbúarnir hér erum líka fólk sem
á rétt á þjónustu heilsugæslulækna,
ég vona að hann fari að átta sig á
því,“ segir Helga.
„Mér finnst svona hugmyndir
ótrúlegar og ekki til þess fallnar að
leysa málið,“ segir Kristján Pálsson
alþingismaður og vísar þar til fréttar
í Fréttablaðinu þar sem aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra upplýsir
að til standi að auglýsa eftir læknum
erlendis í stöður heilsugæslulækna á
Suðurnesjum.
Kristján segir að ástandið sé orðið
alvarlegt á Suðurnesjum. Það taki
hins vegar langar tíma að auglýsa
eftir og ráða erlenda lækna og ekki
hægt að láta fólkið bíða á meðan.
Kristján telur að heilbrigðisráðherra
hafi ekki sinnt þessu máli sem skyldi
og á meðan hlaðist vandamálin upp.
Samningar náðust
ekki í Grindavík
Fulltrúar meirihluta bæjarstjórn-
ar í Grindavík og bæjarstjórinn
reyndu að ná samningum við ráðu-
neytið og Grindavíkurlækna um
þjónustusamning til að leysa málið
þar. Við heilsugæslustöðina þar var
yfirlæknir í fullu starfi og læknir í
hálfu starfi. Bærinn náði samkomu-
lagi við heilbrigðisyfirvöld en ekki
við læknana og var þá þessari tilraun
hætt. Í bókun sem fulltrúar meiri-
hlutans, Samfylkingar og Sjálfstæð-
isflokks, gerðu á síðasta bæjar-
stjórnarfundi var þessi niðurstaða
hörmuð.
Heilbrigðisráðherra
mætir á fundinn
Suðurnes
„MÉR er alveg sama hvað þessir menn hafa í laun, ég vil
bara fá Teit aftur,“ segir María Valdimarsdóttir, öryrki í
Njarðvík, sem vakið hefur máls á alvarlegum afleiðingum
læknaleysisins á Suðurnesjum.
Hún segist þurfa að leita til læknis viku- eða hálfsmán-
aðarlega, meðal annars til að fá lyf sem henni eru nauð-
synleg. Nú sé henni vísað í Kópavog en þangað muni hún
ekki fara. Hún eigi og ætlist til að fá þessa þjónustu í sín-
um heimabæ.
María segist hafa brúað bilið með því að fá lánuð lyf
hjá konu sem notaði sams konar lyf og hún. Svo reyni
hún að treina sér skammtinn.
Lætur María þess getið að góðir læknar hafi verið komnir til starfa við
heilsugæslustöðina og minnist sérstaklega á Teit Guðmundsson sem hún
hafi leitað mikið til. Hann sé yndislegur maður sem hafi hjálpað henni mik-
ið. Því komi það sér afar illa að læknadeilan skuli ekki vera leyst.
„Vil bara fá Teit aftur“
María
Valdimarsdóttir
Vandræði aukast vegna læknaleysis og boðað hefur verið til borgarafundar um deiluna á morgun
ELSTU börnin í leikskólum
Reykjanesbæjar héldu skemmtun
í Frumleikhúsinu í Keflavík síð-
astliðinn fimmtudag, í tilefni af
Degi íslenskrar tungu. Dagurinn
hefur verið haldinn hátíðlegur
síðan 1996, en þetta er í þriðja
sinn sem leikskólarnir halda
daginn hátíðlegan á þennan hátt.
Aðstandendum leikskóla-
barnanna var sérstaklega boðið
á dagskrána, þó skemmtunin
hafi fyrst og fremst verið fyrir
börnin, eins og fram kom í máli
Brynju Aðalbergsdóttur, leik-
skólastóra á Vesturbergi, sem
brá sér í hlutverk kynnis. Bekkir
leikhússins voru þétt skipaðir og
þurftu margir foreldrar að
standa meðfram sætaröðunum.
Hver leikskólahópurinn steig á
svið á fætur öðrum og flutti þá
dagskrá sem börnin hafa verið
að æfa undanfarnar vikur, sem
gerði það að verkum að hún
varð mjög fjölbreytt og
skemmtileg. Fluttar voru vísur
sem allir kannast við eins og
„Urð og grjót“, „Fuglinn í fjör-
unni“ og „Krummi krunkar úti“
en einnig sænsk vísa, sem einnig
var flutt í íslenskri þýðingu og
frumsamdar rímur. Börnin luku
svo skemmtuninni með því að
syngja öll saman „Íslenskuljóð“
Þórarins Eldjárn við lag Atla
Heimis Sveinssonar.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fuglinn í fjörunni var framlag Heiðarsels á hátíðinni og skreyttu börnin
flutning lagsins með máluðum fuglamyndum.
Frumsamd-
ar rímur
og annar
kveðskapur
Reykjanesbær
Hljómsveitin Flugan leikur á
Mamma Mía í Sandgerði í kvöld,
laugardag. Húsið verður opnað kl.
23 og er 18 ára aldurstakmark.
Í byrjun kvöldskemmtunarinnar
verður róleg og notaleg stemnning
að hætti Flugunnar, en þegar líður
á nýjan dag munu leikar æsast og
fjörið vaxa.
Flugan er skipuð fjórum tónlist-
armönnum sem hafa komið við í
ýmsum hljómsveitum. Hljómsveitin
hefur verið að vinna að upptökum í
Geimsteini og er stefnt að útkomu
plötunnar Háaloftið á fyrstu mán-
uðum nýs árs.
Reykjanesbær á réttu róli í sam-
starfi við við Samsuð (samtök fé-
lagsmiðstöðva á Suðurnesjum) efn-
ir til námskeiðs fyrir starfsfólk
félagsmiðstöðva á Suð-
urnesjum í dag, laugardag. Nám-
skeiðið hefst klukkan 16 í Kjarna í
Keflavík.
Starfsfólki félagsmiðstöðvanna
verður kennd sálræn skyndihjálp
og mikilvægi þess að vera til stað-
ar þegar ungmennin þarfnast þess.
Í DAG
AFMÆLISTÓNLEIKAR í
tilefni þess að í haust eru liðin
þrjátíu ár frá stofnun Tónlist-
arskóla Grindavíkur verða
haldnir í Grindavíkurkirkju í
dag, laugardag, klukkan 16.30.
Á tónleikunum koma fram
bæði nemendur og kennarar
skólans. Aðgangur er ókeypis
og í hléi verður kaffisala til
styrktar barnakór skólans.
Afmælisins hefur verið
minnst með ýmsum hætti í
vikunni. Að sögn Gunnars
Kristmannssonar skólastjóra
fer starfið vaxandi. Við skól-
ann eru alls 185 nemendur og
er kennt á flest helstu hljóð-
færi. Þar af eru 75 í einka-
námi og hefur þeim fjölgað
um 22 frá síðasta hausti.
Afmælis-
tónleikar í
kirkjunni
Grindavík