Morgunblaðið - 16.11.2002, Side 30
LANDIÐ
30 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FISKE-HÁTÍÐIN annar „þjóðhátíð-
ardagur“ Grímseyinga á ári hverju
var haldinn að venju með pomp og
pragt. 11.11. afmælisdagur vel-
gjörðarmannsins dr. Daníels Will-
ard Fiske hefur verið í hávegum
hafður hér í eyju síðan elstu menn
muna. Dagurinn byrjaði ekki vel –
vindar blésu ógurlega og hafið
gnauðaði. Íbúarnir biðu spenntir
eftir að heyra hvort ferjan okkar,
Sæfari, treysti sér til að sigla sund-
ið. Góðir gestir voru farþegar og
heilmikið í húfi.
Það hafði verið ákveðið að hefja
Fiske-daginn að þessu sinni með
messu í Miðgarðakirkju og „blessa“
húsið eins og prestarnir kalla það,
eftir gagngerar breytingar og end-
urbætur á kirkjunni. Séra Magnús
Dalvíkur- og Grímseyjarprestur
mætti og með honum prófasturinn
séra Hannes Örn Blandon. Séra
Hannes Örn sá um messuna en séra
Magnús um músíkina. Ritningarorð
dagsins voru um kraftverk Jesú og
séra Hannes Örn byrjaði ræðu sína
svo skemmtilega á því að hann liti
nánast á það sem kraftaverk að þeir
prestarnir hefðu náð til Grímseyjar
í þessu veðri.
Eftir messu var haldið beina leið í
Félagsheimilið Múla, þar sem Fiske-
nefnd kvenfélagsins beið með
veisluborð hlaðið hnallþórum og
kræsingum að grímseyskum sið.
Skemmtidagskrá hátíðardagsins
hófst undir stjórn skólastjórans
Dónalds Jóhannessonar með ótal at-
riðum sem skólabörnin léku af
fingrum fram.
Kvenfélagið Baugur og Kiwanis-
klúbburinn Grímur notuðu hátíð-
arstundina til að þakka fyrrverandi
oddvita til 20 ára Þorláki Sigurðs-
syni og konu hans Huldu Reykjalín,
góð og farsæl störf í þágu sveitarfé-
lagsins.
Útsýnisskífa afhent
á Fiske-pallinum
Kiwanisklúbburinn Grímur hafði
lengi unnið að og látið útbúa útsýn-
isskífu til að hafa á Fiske-pallinum í
miðju þorpsins. Hér kemur árlega
fjöldi ferðamanna og því mikið gagn
að fá grip af þessu tagi. Grímsfélag-
arnir Dónald Jóhannesson, Garðar
Ólason og Gylfi Gunnarsson afhentu
oddvitanum, Óttari Jóhannssyni,
skífuna á Fiske-deginum, íbúum og
ferðamönnum til ánægju því nú
verður sannarlega auðvelt um vik
að sjá og lesa um þá staði sem blasa
stórkostlega við á Íslandi héðan frá
Grímsey séð á björtum dögum.
Skemmtiatriðin héldu svo áfram
með leiktilburðum félaga úr báðum
félögum staðarins, Baugi og Grími.
Um kvöldið var svo stiginn dans
við harmonikkuleik, gítarspil,
trommuívaf og bassa Prestabands-
ins.
Fiske-hátíðin, þessi stórhátíð eyj-
arbúa, var fjölbreytt, fjölmenn og
frábær.
Félagar í Kiwanisklúbbnum Grími afhentu oddvitanum í Grímsey útsýnis-
skífu sem sett verður upp í miðju þorpinu. F.v.: Dónald Jóhannesson, Óttar
Jóhannsson oddviti, Gylfi Gunnarsson og Garðar Ólason.
Fyrrverandi oddvita Grímseyinga, Þorláki Sigurðssyni, og konu hans,
Huldu Reykjalín, voru þökkuð góð og farsæl störf í þágu sveitarfélagsins.
Með þeim á myndinni eru Sigrún Þorláksdóttir, t.v., og Magnús Bjarnason.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Fiske-dagurinn hófst með messu í Miðgarðskirkju og húsið blessað eftir
breytingar og endurbætur. Hér eru séra Hannes Örn Blandon og séra
Magnús G. Gunnarsson með sóknarnefndinni, Þorgerði Einarsdóttur,
Steinunni Stefánsdóttur og Alfreð Garðarssyni.
Kirkjan blessuð og
útsýnisskífa afhent
Grímsey
Fjölmenni á árlegri Fiske-hátíð í Grímsey með fjölbreyttri dagskrá
HEIMILISFÓLKI á Há-
konarstöðum á Jökuldal tókst
að koma í veg fyrir stórbruna
er það slökkti eld sem kviknaði
í húsinu á miðvikudagskvöld.
Tveir af þremur heimilismönn-
um voru færðir undir læknis-
hendur að loknu slökkvistarf-
inu.
Annar þeirra hlaut 3. stigs
brunasár á hendi og var fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur
á Landspítalann. Hinn var
sendur á heilsugæsluna á Eg-
ilsstöðum vegna reykeitrunar.
Lögreglan á Egilsstöðum rann-
sakar brunann og segir hann
hafa kviknað þegar bensíni var
fyrir mistök hellt á gamla elda-
vél sem notuð er til kyndingar,
en hún gengur vanalega fyrir
steinolíu.
Að sögn Rúnars Pálssonar,
slökkvistjóra Brunavarna á
Héraði, kviknaði í eldstæði í
einu herbergi í húsinu. Mikill
reykur var í húsinu er slökkvi-
liðsmenn komu á vettvang og
hlutust af honum óvenju miklar
skemmdir, aðallega þó í her-
berginu þar sem kviknaði í.
„Bærinn er á svonefndum
Efra-Jökuldal og langt að fara,
70 kílómetrar, og vatnsöflun
erfið,“ sagði Rúnar. „Þá eru
vegirnir ekki góðir og kominn
snjór sem tefur ferð og allt eyk-
ur þetta á erfiðleika okkar. Því
verður að hafa mikinn viðbúnað
þegar tilkynnt er um eld á
svona stað.
Við gripum til mikilla ráð-
stafana en fljótlega kom í ljós
að heimamenn voru búnir að
slökkva eldinn áður en við náð-
um á vettvang og því ekki leng-
ur þörf fyrir tankbíl. Við send-
um því aðeins einn bíl alla leið
til að reykræsta húsið.“
Heimilis-
fólk kom í
veg fyrir
stórbruna
Jökuldalur
Á ÞRIÐJUDAG var skrifað undir
samning á milli Lionsklúbbs Ólafs-
víkur og Snæfellsbæjar um að Lions-
klúbburinn sjái um bíósýningar í Klifi
næstu tvö og hálft ár. Ætlunin er að
kvikmyndasýningar verði að jafnaði
fjórar í mánuði, yfir vetrarmánuðina,
tvær barnasýningar og tvær fullorð-
inssýningar, en fækki niður í tvær
sýningar yfir sumarmánuðina.
Fyrsta bíómyndin sem sýnd er
samkvæmt þessum samningi er hin
margverðlaunaða mynd Hafið sem
sópaði til sín Eddu-verðlaunum á
dögunum.
Á sunnudag verður sýnd teikni-
myndin Villti folinn og verður frítt
inn á hana á meðan húsrúm leyfir,
það er Sparisjóður Ólafsvíkur í sam-
starfi við Lionsklúbbinn sem býður
upp á þá sýningu.
Tjaldið sem sýnt hefur verið á í
Klifi er orðið gamalt og lúið en á
næstu vikum er von á nýju tjaldi til
landsins. Tjaldið ásamt öðrum búnaði
í félagsheimilið sem lionsklúbbur
Ólafsvíkur er að festa kaup á er af-
mælisgjöf klúbbsins til Klifs, en
klúbburinn mun afhenda þann búnað
formlega á 30 ára afmæli klúbbsins í
janúar nk. Meðal þess sem klúbbur-
inn er að festa kaup á er viðbót við
hljóðkerfi hússins sem m.a. kemur til
með að auka áhrif hljóðs á bíósýn-
ingum og einnig er verið að kaupa
skjávarpa af fullkomnustu gerð sem
mun án efa bæta félagsheimilið enn-
frekar.
Morgunblaðið/Alfons
Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Kristján Helgason, formaður Lionsklúbbs
Ólafsvíkur og Snæfellsbæjar, handsala samninginn.
Samið um bíósýningar
í Klifi til næstu ára
Ólafsvík
SKÓLASKIPIÐ Dröfn var í Grund-
arfirði fyrir skömmu til að bjóða
nemendum 10. bekkjar upp á kynn-
ingu á starfi sjómannsins. Að sögn
Jóns Skjaldar Helgasonar, starfs-
manns Fiskifélags Íslands, er þessi
kynningarstarfsemi samstarfsverk-
efni Hafró og Fiskifélagsins og kost-
uð með sérstöku framlagi á fjár-
lögum Alþingis. Sagði Jón að þessi
starfsemi hefði mælst ákaflega vel
fyrir meðal skólanna. Í sjóferðinni
sem yfirleitt tekur um þrjá tíma eru
nemendum kynnt helstu stjórn- og
öryggistæki. Þá eru veiðafæri sýnd í
notkun og virkni þeirra útskýrð, s.s.
handfæra og fiskitrolls. Þá fer fram
fræðsla um það svæði sem verið er á
hverju sinni auk þess að kynnt er
starfsemi Hafrannsóknastofnunar.
Það eru skipstjórnarmenn sem sjá
um fræðsluna hverju sinni en einnig
annast fiskifræðingar þá fræðslu
sem tengist lífríki sjávar.
Nemendur
10. bekkjar
kynnast sjó-
mennskunni
Morgunblaðið/Gunnar KristjánssonLagt frá bryggju í Grundarfirði.
Grundarfjörður
ÍBÚÐARHÚSIÐ í Viðvík við Stykk-
ishólm heyrir nú sögunni til. Ákveðið
var að brenna húsið og hafa verklega
æfingu hjá slökkviliðinu í leiðinni.
Húsið var í eigu Stykkishólmsbæjar
og var búið að dæma það til niður-
rifs. Menn frá Brunamálastofnun
voru á staðnum til aðstoðar og leið-
beininga, en þeir fara um landið og
kenna réttu handbrögðin við slíkar
æfingar. Æfingin gekk mjög vel,
kveikt var í húsinu þrisvar sinnum
og slökkt aftur, en að lokum fékk það
að brenna til grunna.
Viðvík var ein af hjáleigum frá
Grunnasundsnesi, en sú jörð átti allt
land er Stykkishólmur er byggður á.
Húsið í Viðvík var orðið mjög gam-
alt, og hafði oft verið byggt við það í
gegnum árinu. Lengst bjó í Viðvík
Pétur Jónsson frá Kóngsbakka.
Hann flutti þangað árið 1946 og bjó
þar í yfir 30 ár. Síðustu 20 árin hefur
ekki verið búið í Viðvíkurhúsinu og
hefur slökkviliðið notað það til æf-
inga.
Æfðu brunavarnir með
því að kveikja í Viðvík
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Íbúðarhúsið í Viðvík í ljósum log-
um. Það var í eigu Stykkishólms-
bæjar og hafði lokið hlutverki sínu.
Stykkishólmur