Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 33
TVÆR sýningar verða opnaðar í
Galleríi Skugga, Hverfisgötu 39, í
dag, laugardag, kl. 16, Minni og
Flugufótur. Á efri hæð sýnir Rósa
Sigrún Jónsdóttir verkið Minni og
er efniviðurinn smáhlutir sem hún
hefur tekið úr náttúrunni á ferða-
lögum sínum um hálendi Íslands.
Verk Rósu eru gjarnan rýmis-
innsetningar eða tengjast sérstak-
lega aðstæðum á hverjum stað.
Handverk kvenna er henni hand-
gengið og hún flækist mikið um há-
lendi Íslands og gætir þess í verk-
um hennar.
Um sýninguna í Skugga segir
hún m.a.: „Úr þessum ferðum um
landið kem ég stundum með minja-
gripi, oftast einhverja smáhluti,
bein, stein eða kannski bara nagla.
Ég er samt alltaf með hálfgert
samviskubit þegar ég færi eitthvað
úr skorðum og með brottnáminu
hef ég breytt ásýnd staðarins var-
anlega og líður þess vegna eins og
ég hafi unnið náttúruspjöll sem
mér finnst tímabært að bæta fyr-
ir.“
Rósa Sigrún útskrifaðist úr
skúlptúrdeild Listaháskóla Íslands
2001.
Hún hefur verið virk í listsköpun
og sýningarhaldi frá því að hún út-
skrifaðist og stafar nú um stundir
með listhópnum Viðhöfn og rekur
m.a. Opna galleríið.
Flugufótur nefnist sýning í klefa
og kjallara Skugga. Þar sýnir
Stella Sigurgeirsdóttir verk unnin í
ólíka miðla; gifs, plast, bývax,
pappír og hljóð. Öll tengjast verkin
flugnaríkinu á einn eða annan hátt.
„Kveikju verkanna má rekja til
tungumálsins og þess fjölbreytta
forða flugnaorðtaka sem þar er að
finna. Hér eru túlkuð á nýjan hátt
kunn orðtök eins og „að fá flugu í
höfuðið“, „að gera úlfalda úr mý-
flugu o.s.frv.,“ segir Stella.
Stella útskrifaðist frá Listahá-
skóla Íslands úr grafíkdeild árið
2000 og hefur starfað óslitið að list
sinni síðan. Flugufótur er sjötta
einkasýning Stellu en hún hefur að
auki tekið þátt í samsýningum.
Sýningarnar standa til 1. desem-
ber og eru opnar alla daga kl. 13–
17, nema mánudaga.
Verk úr
réttu
samhengi
Morgunblaðið/Kristinn
Stella og Rósa Sigrún líta upp frá verkum sínum í Skugga.
alltaf á föstudögum
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn
EK skrifar um KK
KK ólst upp í faðmi ameríska draumsins
í Kaliforníu sem á endanum snerist upp
í martröð. Á Íslandi uppgötvaði hann
tónlistina og við honum blasti taumlaust
frelsið með öllum sínum fylgifiskum.
Á erlendri grund átti KK svo eftir að bragða
á mörgu af því óvenjulegasta sem lífið
hefur upp á að bjóða.
Liðnir tímar lifna við í meðförum Einars
Kárasonar og ógleymanlegar persónur
og sögur spretta upp.
Saga úr veruleikanum sem gefur skáld-
skapnum ekkert eftir.
Einar Kárason
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
ED
D
1
93
85
11
/2
00
2
Geisladiskur með fjórum
gömlum blúslögum fylgir.
www.edda.is
KOMIN Í VERSLANIR