Morgunblaðið - 16.11.2002, Page 47

Morgunblaðið - 16.11.2002, Page 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 47 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2002, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2002 og önnur gjaldfall- in álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2002 á stað- greiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bif- reiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumæl- um, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnað- argjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipu- lagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru: tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald- anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg- inn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frek- ari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skrán- ingarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. nóvember 2002. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum Á FUNDI fræðsluráðs á mánu- dag komu fram þær upplýsingar frá starfsmönnum Fræðslumið- stöðvar að því fer fjarri að grunn- skólinn sé fíkniefnalaus. Dæmi eru um sölumenn dauðans í miklu ná- vígi við einstaka skóla og vandi þeirra unglinga sem orðið hefur að senda í svokölluð ,,sérstök úrræði“ er mikill. Skólakerfið eitt ræður ekki við þessi mál. Í fyrsta lagi er ljóst að nemendur sem staðnir eru að sölu fíkniefna til skólasystkina sinna geta ekki átt rétt á skólavist í almennum grunn- skóla. Lög um skólaskyldu og rétt til náms geta ekki átt við þá sem svo freklega brjóta í bága við lands- lög og skólastarf. Lögregla og barnaverndaryfirvöld verða að taka á slíkum málum um leið og þeirra er vart. Í öðru lagi verður skólakerfið að greina á milli þeirra sem sendir eru í ,,sérstök úrræði“ eins og það er kallað vegna félagslegra erfiðleika, og hinna sem eru á kafi í neyslu. Vissulega eru þetta oft sömu ein- staklingarnir, en þó ekki alltaf. Það er að bæta gráu ofaná svart að blanda saman einstaklingum sem eiga við svo ólíkan vanda að etja. Það leiðir af sjálfu sér að grunn- skólabörn sem langt eru leidd í neyslu vímuefna þurfa að komast í meðferð og það fljótt. Það leysir ekki vandann að reka þau úr skóla og út á götur, eða hafa þau innan um önnur skólabörn. Við viljum auðvitað fá þau inn í skólana, heil- brigð. Staðan er nú sú að grunn- skólabörn sem þurfa á meðferð að halda standa í löngum biðröðum fyrir utan lokaðar dyr heilbirgðis- og félagsmálakerfa. Það er ekki hægt að ætlast til þess að grunn- skólarnir leysi þennan vanda, hvorki í hinu almenna kerfi né í sérskólum. Góðar fréttir og slæmar Nýleg könnun, ,,Börnin í borg- inni“ sýnir að neysla fíkniefna eykst ekki í skólum. En þótt þeim börn- um fækki hlutfallslega sem leiðast í hið hættulega fikt, þá breytir það ekki þeirri staðreynd að ástand mála er óviðunandi. Markmið um fíkniefnalausan grunnskóla er for- takslaust, en við erum fjarri að ná því. Forvarnarstarf er að einhverju leyti ómarkvisst. Könnunin sem kennd er við börnin í borginni sýnir að lítill minnihluti á við vanda að etja. Flest börn eru ekki í hættu, þeim líður vel í skóla, eiga foreldra sem fylgjast með og eru vinmörg. Lítill minnihluti kann hins vegar að glíma við stóran vanda. Þess vegna hefur fræðsluráð óskað eftir að þessi hópur verði greindur sérstak- lega eftir nýfengnum gögnum og leitast við að sýna aðstæður og or- sakir þess að honum líður illa í skóla. Er forvarnaáætlun í skólanum þínum? Enn hafa ekki allir skólar sett á laggirnar forvarnaáætlun, sem þó er stefna, og má ætla að hafi víða skilað þeim árangri að færri börn prófa hættuleg efni en áður. Sam- starfsnefnd um áfengis- og fíkni- efnavarnir hefur örugglega unnið þarft starf líka. En það blasir við að upplýsingamiðlun þurfi að auka og úrræði verða markvissari. Dæmi voru nefnd á fundi fræðsluráðs um það að lögregluaðgerðir í tilteknu hverfi, söfnun upplýsinga og kort- lagning sölumanna hefði skilað ár- angri. Skóli, lögregla og barna- verndaryfirvöld verða að vinna saman, og það hratt, um leið og upp kemur alvarlegur vandi. Skilvirk aðgerðaáætlun er nauðsynleg í skólum. Hlutfallslega fá barnaverndarmál koma til félagsþjónustunnar eftir ábendingum úr skólakerfinu. Vænt- anlega þekkja samt fáir betur en skólafólk hagi einstakra nemenda. Hugsanlega hafa foreldrar og skóli gefið of mikinn slaka í einstökum tilfellum eða í almennum aðgerð- um? Ekki verið á verði? Á fundi fræðsluráðs komu fram þær raddir að heilbrigðum og vel þenkjandi nemendum liði oft illa að sitja uppi með upplýsingar um aðstæður fé- laga og athafnir sem engin leið virt- ist til að hafa áhrif á. Einnig kom fram að í sumum skólum er til að- gerðaáætlun vegna fíkniefnamála, en svo er ekki í öllum. Því þarf að breyta. Og beintengja við lögreglu, barnavernd og meðferðarúrræði. Niðurstaðan er þessi: Skólakerfið má ekki sitja uppi með vandann. Grunnskólinn getur ekki veitt fíkni- efnaneytendum þann stuðning sem þarf. Grunnskólinn getur ekki kom- ið í veg fyrir glæpastarfsemi. En skólinn hefur ríku hlutverki að gegna í þessu samhengi – eins og mörg dæmi eru um meðal foreldra og skólafólks – og um það er góður skilningur í fræðsluráði sem vill að eftir sé tekið. Fíkniefnamálin rædd í fræðsluráði Eftir Stefán Jón Hafstein Höfundur er formaður fræðsluráðs. „Grunn- skólabörn sem þurfa á meðferð að halda standa í löngum bið- röðum fyrir utan lokaðar dyr heilbrigðiskerf- isins.“ Í APRÍL árið 2000 skilaði nefnd fé- lagsmálaráðherra um úttekt á leigu- markaði tillögum til ráðherra. Nefnd- in lagði til við ráðherra m.a.  að hætt yrði niðurgreiðslu á lánum vegna leiguhúsnæðis  að veitt yrði fé til hækkunar á húsaleigubótum  að greiddir yrðu sérstakir stofn- styrkir til leigufélaga á vegum sveitarfélaga og til félagasamtaka, einstaklinga og fyrirtækja sem ættu og rækju leiguhúsnæði  að húsaleigulög yrðu endurskoðuð til að auka öryggi leigutaka og um íbúalýðræði. Hér voru á ferðinni mjög róttækar tillögur um að brjóta upp og endur- skipuleggja leigumarkað hér á landi. Í nefndinni sátu fulltrúar félags- og fjármálaráðuneytis, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, félags- málastjórinn í Reykjavík o.fl. auk fulltrúa BSRB og ASÍ. Nefndin sat að störfum í tæp tvö ár. Á þeim tíma myndaðist breið sam- staða um þær breytingar sem gera þyrfti til þess að takast á við þann húsnæðisvanda sem við var að glíma á starfstíma nefndarinnar og hefur farið hratt vaxandi síðan hún lauk störfum. Félagsmálaráðuneytið gaf tillögur nefndarinnar út í sérstökum bæklingi í apríl 2000. Síðan þá hefur fátt annað gerst á þess vegum. Það var skoðun ASÍ, að afnám félagslega húsnæðiskerfisins á árinu 1998 myndi skapa veruleg vandræði á hús- næðismarkaði, skort á leiguhúsnæði, hærri húsaleigu og hækkun á kaup- verði. Talað var fyrir daufum eyrum og alþjóð veit í hvern farveg stjórn- völd eru nú búin að koma húsnæðis- málum almennings með illa grunduð- um og fljótfærnislegum aðgerðum sínum. Nýlega lýsti félagsmálaráðherra því yfir, að stofnstyrkjaleið sú sem nefndin mælti með að farin yrði væri ófær. Merkileg skoðun og órökstudd. Á dögunum kynntu dönsk stjórn- völd átak til þess að mæta brýnni þörf fyrir leiguhúsnæði á skikkan- legu verði. Annars vegar er sjónum beint að höfuðborginni og hins vegar að landinu öllu. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn ákváðu að greiða stofnstyrki til þess að reistar yrðu 1000 íbúðir á fjórum árum fyrir til- tekna sérhópa. Stofnstyrkir nema 7% af byggingarkostnaði og renna til sjálfstæðra húsnæðisfélaga sem fjár- magna rest. Samhliða á að tryggja byggingu 4.000 leiguíbúða í landinu öllu en gert ráð fyrir því að stór hluti þeirra verði þó byggður í Kaup- mannahöfn og nágrenni. Til þess að gera það mögulegt hyggst danska ríkisstjórnin gera róttækar breyting- ar á skattareglum vegna byggingar íbúðarhúsnæðis til útleigu í atvinnu- skyni. Reglunum er sérstaklega beint að fjárfestum á almennum markaði, tryggingafélögum, lífeyris- sjóðum og öðrum sem þörf hafa fyrir að fjárfesta til langs tíma. Ávöxtun fjármuna í einkafyrirtækjum og fé- lögum sem eiga og reka leiguhúnæði hefur ekki getað keppt við aðra ávöxtunarkosti á markaðinum um nokkuð langt skeið. Til þess að lag- færa það er lagt til að fyrirtækin megi gjaldfæra allan byggingar- kostnað á móti tekjum á 5 árum. [Hér á landi er þessi fyrningartími 25 ár.] Reglur verða og settar um hámarks- fjárfestingu á ári og hámarkskostnað á hvern fermetra. Hér á Íslandi hefur húsnæðisvandi almennings, sérstaklega lágtekju- fólks með mikla framfærslu, ungs fólks og öryrkja, vaxið hratt og nú er svo komið að óviðunandi er. Hafi ein- hvern tíma verið nauðsynlegt að hér yrði byggður upp manneskjulegur al- mennur leigumarkaður og sterkur félagslegur leigumarkaður er það nú. Það gengur ekki að ríkisstjórnum og félagsmálaráðherrum, hverjum á fætur öðrum, haldist uppi að hringla stefnulítið í húsnæðismálum. Með þeim hætti og með vanhugsuðum að- gerðum hafa þeir valdið fjölskyldum og einstaklingum óvissu og óöryggi og aukið erfiðleika og fátækt þeirra verst settu. Spjótin standa nú á Páli Péturssyni og hafa raunar gert lengi. Húsnæðismál – aðgerða er þörf Eftir Magnús M. Norðdahl Höfundur er deildarstjóri lög- fræðideildar ASÍ. „Það gengur ekki að rík- isstjórnum og félags- málaráð- herrum haldist uppi að hringla stefnulítið í hús- næðismálum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.