Morgunblaðið - 16.11.2002, Side 53
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 53
NÁTTÚRUVÍSINDAMENN
sem unnið hafa að rannsóknum í
Þjórsárverum hafa andmælt vinnu-
brögðum Landsvirkjunar við gerð
matsskýrslunnar. Þeir telja að mis-
farið hafi verið með upplýsingar sem
frá þeim hafi komið til þess að ná
hagstæðu mati á umhverfisáhrifum
og hafa nefnt nokkur dæmi því til
stuðnings. Viðbrögðin af hálfu ráða-
manna hafa valdið vonbrigðum,
þannig hefur iðnaðarráðherra gefið
til kynna að viðkomandi vísindamenn
skilji ekki á milli pólitískra skoðana
og vísinda. Forstjóri Landsvirkjunar
hefur snúið umræðunni á þann veg
að ekki hafi verið bent á neinn ákveð-
inn starfsmann sem hafi beitt þrýst-
ingi og formaður iðnaðarnefndar Al-
þingis hefur tekið undir þessi
sjónarmið. Á þessu sést að umræðan
er ekki aðeins orðin ósmekkleg –
heldur er hún klárlega á villigötum.
Ef einróma framburður vísinda-
mannanna fjögurra á við rök að
styðjast, að Landsvirkjun hafi í
matsskýrslu sinni valið upplýsingar
úr rannsóknaniðurstöðum til þess að
ná hægstæðu mati og komist upp
með það, þá hefur Skipulagsstofnun
brugðist hlutverki sínu eins og því er
lýst í lögum um mat á umhverfis-
áhrifum.
Hlutverk Skipulagsstofnunar
Hlutverk Skipulagsstofnunar er
að úrskurða um mat á umhverfis-
áhrifum fyrirhugaðrar fram-
kvæmdar og ber henni samkvæmt
stjórnsýslulögum að sjá til þess að
ákvörðun hennar verði efnislega rétt.
Framkvæmdaraðili vinnur að mats-
áætlun og matsskýrslu í náinni sam-
vinnu við stofnunina og nýtur ráð-
legginga hennar í matsferlinu. Þegar
framkvæmdaraðili hefur síðan lokið
matsskýrslunni metur stofnunin
hvort skýrslan uppfylli þær kröfur
sem lögin gera. Skipulagsstofnun
hefur aðgang að þeim gögnum sem
liggja til grundvallar mati, rannsókn-
arniðurstöðum og athugasemdum
sem gerðar hafa verið. Stofnunin get-
ur á síðari stigum málsins kallað eftir
frekari gögnum og upplýsingum telji
hún að málið sé ekki nægjanlega
upplýst. Á þessu sést að hafi Lands-
virkjun kosið að halda ákveðum upp-
lýsingum utan matsskýrslunnar eða
hagrætt rannsóknarniðurstöðum
hefur Skipulagsstofnun brugðist
hlutverki sínu með því að fallast á
framkvæmdina, að minnsta kosti ef
upplýsingarnar skipta máli við matið.
Landsvirkjun getur
ekki verið óháð
Fyrirkomulag umhverfismats er
mismunandi eftir þjóðum og hafa
Bandaríkjamenn farið þá leið að fela
opinberri umhverfisstofnun mat á
umhverfisáhrifum. Náttúruverndar-
samtök, fyrirtæki og almenningur
hafa síðan greiðan aðgang að dóm-
stólum til þess að fá ákvörðun stofn-
unarinnar endurmetna. – Í sjálfu sér
er það ekkert athugavert að fela
framkvæmdaraðila umhverfismatið.
Það er hann sem hefur hagsmuni af
því að framkvæmdin megi fara fram,
hann hefur á að skipa sérfræðingum
og fjárhagslegt bolmagn til þess að
ráðast í nauðsynlega rannsókna-
vinnu vegna umhverfismatsins. En
framkvæmdaraðili er auðvitað ekki
hlutlaus enda hefur hann augljóslega
hagsmuni af því að umhverfisáhrifin
verði metin ásættanleg og að fram-
kvæmdin megi fara fram.
Faglega sterk og pólitískt
óháð Skipulagsstofnun
Til þess að kerfið virki og að um-
hverfismatið verði það verkfæri sem
því er ætlað að vera, þ.e. að koma í
veg fyrir umhverfisspjöll, verður eft-
irlitið með gerð og efnistökum mats-
skýrslu að vera virkt. Það er því
brýnt að styrkja Skipulagsstofnun
og búa henni það umhverfi sem nauð-
synlegt er til þess að hún fái að sinna
hlutverki sínu. Allir muna viðbrögð
forsætisráðherra þegar stofnunin
lagðist gegn Kárahnjúkavirkjun,
enda þótt hún teldi sig vera að fram-
fylgja lögum sem hann átti þátt í að
semja. Það þarf að tryggja stofnun-
inni sjálfstæði gagnvart stjórnvöld-
um og styrkja hana faglega og fjár-
hagslega svo hún verði fær um að
leysa þetta hlutverk vel af hendi.
Norðlingaölduveita –
umræða á villigötum?
Eftir Katrínu
Theodórsdóttur
„Það þarf að
tryggja
stofnuninni
sjálfstæði
gagnvart
stjórnvöldum.“
Höfundur er lögmaður stjórnar
Landverndar vegna kæru á úrskurði
um Norðlingaölduveitu.
sérsniðin innheimtulausn