Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 65
Virkjunarframkvæmdirnar við Kára-
hnjúka munu hafa í för með sér miklu
fleiri möguleika fyrir þjóðina en flest-
ir gera sér í hugarlund eða hægt væri
að reifa í stuttu bréfi. Eina góða hug-
mynd setti vinur minn Simmi sjóari
fram á góðri stund uppi í fjalli:
Það má taka yfirfallsvatnið af Háls-
lóni og leiða í minna lón þar sem
gruggið fengi að setjast og síðan væri
vatnið látið renna sjálfkrafa til sjávar.
Menn setja nokkrar síur á leiðsluna
og þá er komið þangað kristalstært
ísvatn sem tappað verður beint á risa-
olíuskip. Vatnið þrýstir svo hráol-
íunni sem fyrir er í tönkum skipsins
beint í land en síðan siglir skipið nið-
ureftir með vatnið og sækir meiri ol-
íu. Vindmyllur á dekkinu knýja loftun
vatnsins svo það helst ferskt og gott
(á viðunandi verði) og við fáum nóg af
olíu (langbest að fara strax að venja
sig við væntanlegan olíuiðnað á Norð-
austurlandi) sem duga myndi stórri
olíuhreinsunarstöð, sérstaklega ef
20–30 risaskip verða á þessari rútu.
Ég ætti kannski ekki að útmála
þessa hugmynd neitt nánar að sinni.
Maður getur varla til þess hugsað að
rauðasti þingmaðurinn af svæðinu
reki augun í þessi skrif, það verður
nógu slæmt að hlusta á úrtölurnar
vegna olíu- og gasfundarins þarna úti
á miðunum.
Það má fullyrða að nú séu komnir
fram á sjónarsviðið nógu margir vel
menntaðir Íslendingar, að ekki sé nú
minnst á alla útlendingana sem vilja
vinna með okkur og eru alls góðs
maklegir, svo varla er hætta á að við
verðum gabbaðir í svona risaviðskipt-
um, ef einhver skyldi halda það.
Við hina hikandi vil ég segja: Því
fleiri risafyrirtæki sem borga mikla
skatta í þjóðarbúið (milljarða hvert)
þess fleira getur ríkið gert til hags-
bóta fyrir alla. Öll ráðuneytin fá
hærri fjárhæðir til að spila úr og eft-
irspurn eftir menntun og vinnuafli
vex.
Það er næstum ósvífið að enda
þessi tilskrif á einni setningu um
Norðlingaölduveitu en menn vita að
ég á þetta til: Viltu gull eða garg- end-
ur inni á fjöllum?
PÁLL P. DANÍELSSON
Vogatungu 25, Kópavogi.
Fleiri hliðar á
framkvæmdun-
um miklu
Frá Páli P. Daníelssyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 65
Ertu slæm í húðinni?
Micro Peeling húðhreinsi-
klúturinn er lausnin
Klúturinn fjarlægir mjúklega allar dauðar
húðfrumur og „djúp-hreinsar“ húðina.
Klúturinn hreinsar farðaleifar, jafnvel úr
fínustu svitaholum, gefur húðinni ferskt út-
lit og örvar blóðstreymi til húðarinnar.
Hann hentar því sérstaklega vel fyrir við-
kvæma húð. Klúturinn er margnota og þol-
ir þvott í 100 skipti.
Lyfja, Lyf & heilsa, Plús-apótek
Apótekið, Apótek og Hagkaup
UNDANFARNA daga hefur mikil
umræða verið í þjóðfélaginu um
prófkjör sjálfstæðismanna í Norð-
vesturkjördæmi og eru flestir á einu
máli um að allmikið hafi þar farið úr-
skeiðis. Vilhjálmur Egilsson hefur
farið mikinn í þessari umræðu og
skilgreint sjálfan sig sem fórnarlamb
í þessu máli. Talar hann þar alger-
lega gegn betri vitund enda er hon-
um fullljóst að sá „misskilningur“
sem Guðjón Guðmundsson og stuðn-
ingsmenn hans stóðu að beindist að
öllu leyti gegn Sturlu Böðvarssyni en
ekki gegn Vilhjálmi sjálfum. Þessi
„misskilningur“ var hins vegar
nærri búinn að færa Vilhjálmi 1. sæt-
ið á silfurfati.
Spurningin sem eftir stendur er sú
hvað gengur Vilhjálmi til með þess-
um ósannindum. Kann að vera að
hér sé um leikþátt að ræða sem enda
á með sérframboði Vilhjálms undir
listabókstöfunum DD og eiga þar
með möguleika á uppbótarsæti sem
annars gæti fallið Sjálfstæðisflokkn-
um í skaut.
Hvað sem öllu þessu líður má það
ljóst vera að ágallar á prófkjörinu
sjálfu og framkvæmd þess eru svo
miklir að skynsamlegast væri að
endurtaka prófkjörið og þá eingöngu
með þátttöku flokksbundinna sjálf-
stæðismanna.
BJARNI EINARSSON,
Tröðum,
Snæfellsbæ.
Prófkjör í Norð-
vesturkjördæmi
Frá Bjarna Einarssyni:
ÍSLENSKU skákmennirnir urðu
að sætta sig við tap gegn úrvalsliði
Katalóníu í keppni sem haldin var á
heimaslóðum hinna síðarnefndu nú
í vikunni. Tefldar voru tvær um-
ferðir. Í fyrri umferðinni tapaði ís-
lenska liðið naumlega, 3½–4½. Það
voru íslensku skákkonurnar, þær
Guðlaug Þorsteinsdóttir og Áslaug
Kristinsdóttir, sem komu í veg fyr-
ir stærra tap með því að sigra í sín-
um skákum. Síðari umferðin tap-
aðist hins vegar 2-6 og lokaúrslitin
urðu því 5½-10½, þeim katalónsku í
vil.
Guðlaug Þorsteinsdóttir stóð sig
best íslensku keppendanna, en hún
hlaut 1½ vinning. Fyrir jafnteflið í
síðari umferðinni hafði Guðlaug
sigrað í sjö kappskákum í röð. Ár-
angur íslensku skákmannanna:
Guðlaug Þorsteinsdóttir 1½ v.
Jón Viktor Gunnarsson, Sigurð-
ur Daði Sigfússon, Áslaug Krist-
insdóttir 1 v.
Bragi Þorfinnsson, Davíð Kjart-
ansson ½ v.
Arnar E. Gunnarsson, Halldór
Brynjar Halldórsson 0 v.
Farar- og liðsstjóri íslenska liðs-
ins var Jóhann H. Ragnarsson. Að-
alstyrktaraðili íslenska liðsins var
Guðmundur Arason og einnig
styrkti Edda mótið.
Skák frá Ólympíu-
skákmótinu
Íslenska liðinu gekk vel í seinni
hluta Ólympíuskákmótsins og náði
sínum langbesta árangri frá 1996.
Helgi Áss Grétarsson hrökk heldur
betur í gang í síðustu umferðunum
og átti drjúgan þátt í góðum ár-
angri liðsins. Eftirfarandi skák var
tefld í næstsíðustu umferð mótsins.
Hvítt: Sadvakasov (Kazakstan)
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Skoski leikurinn
1.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3.d4 exd4
4.Rxd4 Rf6 5.Rxc6 bxc6 6.e5 De7
7.De2 Rd5 8.c4 Rb6 9.Rd2 a5 10.b3
a4 11.Bb2 axb3 12.axb3 Hxa1+
13.Bxa1 Da3 14.Dd1 Bb4 15.Bd3
Da5 16.Ke2 d6
Önnur leið er 16...d5 17.Dc2 Be6
18.Rf3 dxc4 19.bxc4 Da4 20.Dxa4
Rxa4 21.Rd4 c5 22.Rb5 Kd7 23.Hd1
Kc8 24.Hc1 Hd8 25.Rc3 Rxc3+
26.Bxc3 Bxc3 27.Hxc3 Hd4 28.Ke3
g6, með jafnri stöðu (Þröstur Þór-
hallsson-Pedersen, Þórshöfn 1997).
17.Dc2 dxe5 18.Rf3 Bg4 19.Be4
Ke7!?
Nýr leikur. Í skákinni, Keskinen-
Nevanlinna, Finnlandi 1998, náði
hvítur vinningsstöðu, eftir 19...0–0
20.h3 Bxf3+ 21.gxf3 g6 22.Hd1 Dc5
23.Db2 He8 24.f4 f6 25.fxe5 Hxe5
26.Kf1 De7 27.Bxc6 De6 28.Bf3
Dxh3+ 29.Bg2 De6 30.Dc1 Hg5
31.Df4 Bd6 32.Dxf6 Dxf6 33.Bxf6
Hf5 34.Bd4 Rc8 35.Bh3 Re7
36.Bxf5 Rxf5 o.s.frv.
20.Hd1 Hd8 21.Bb2 --
Líklega er betra að leika
21.Hxd8 Kxd8 22.Bb2, t.d. 22. --
Rd7 23.h3 Bxf3+ 24.Bxf3 Ba3
25.Bxa3 Dxa3 26.Bxc6 Rc5
27.Dd2+ Ke7 28.Bd5 Dxb3
29.Dg5+ Kd6 30.Dd8+ Rd7
31.Bxf7 Db2+ 32.Ke3 Dd4+
33.Ke2 Db2+, með jafntefli.
21...Hxd1 22.Kxd1 g6 23.Bxc6 f6
24.h3 Bf5 25.Be4 Bxe4 26.Dxe4
Da2 27.Dc2 Rd7 28.Bc3 Da5
Eða 28....Dxc2+ 29.Kxc2 Bc5
30.Ba5 Kd8 31.Be1 e4 32.Rh2 f5
33.f3 e3 34.f4 Bd6 35.g3 h6 36.Rf3
Ke7 37.Rd4 (37.b4 c5 38.b5 g5!?)
37. -- Ba3 38.Kd3 Rc5+ 39.Kxe3
Bc1+ 40.Kf3 Bb2 41.Rb5 Rxb3
42.Rxc7 Kd6 43.Rd5 Kc5 44.Re7
Kxc4 45.Rxg6 og hvítur stendur
betur.
29.Bxb4+ Dxb4 30.Rd2 --
Betra er 30.Re1 Dd6+ 31.Dd2 h5
32.Kc2 c5 33.Rf3 e4 34.De3 De6
35.Rg1 f5 36.Re2 o.s.frv.
30...Rc5 31.Da2 --
Í þessari stöðu bauð hvítur jafn-
tefli, en boðinu var hafnað.
31...Dc3 32.Da7 Re6 33.g3 --
Eftir 33.Da3+ Kf7 34.Da4 f5
35.Dd7+ Kf6 36.Dxh7 Da1+
37.Kc2 Rd4+ 38.Kd3 e4+
39.Rxe4+ fxe4+ 40.Kxe4 Rxb3
ætti svartur að vinna.
33...h5 34.Da3+ Kf7 35.Dc1 Dd4
36.Ke2 h4 37.Rf3 De4+ 38.De3
Dc2+ 39.Dd2 Dxd2+ 40.Rxd2 hxg3
41.fxg3 c5! 42.Rf3 e4 43.Re1 Rd8
44.Rc2 Rc6 45.Ke3 f5 46.Kf4 Kf6
47.h4 --
Ekki 47.Re3 g5+ mát.
47...Rd4! 48.Rxd4 --
Ekki 48.Re3 Re6+ mát. Svartur
vinnur, eftir 48.Ra1 Re2+ 49.Ke3
Rxg3 50.Rc2 Ke5 51.b4 f4+ 52.Kf2
cxb4 53.Rxb4 Rf5 o.s.frv.
48...cxd4 49.b4 --
Eða 49.g4 fxg4 50.Kxe4 g3
51.Kf3 d3 52.b4 g2 53.Kxg2 d2
54.Kf3 d1D+ o.s.frv.
49...Ke6 50.b5 Kd6 51.b6 Kc6
52.c5 Kb7!
Skemmtileg leikþröng. Hvítur
gafst upp, því að hann getur ekki
komið í veg fyrir fæðingu nýrrar
svartrar drottningar: 53.g4 d3
54.Ke3 fxg4 55.Kd2 g3 56.Ke3 g2
57.Kf2 d2 58.Kxg2 d1D o.s.frv.
Ingvar Þór Jóhannesson efst-
ur á Atskákmóti Reykjavíkur
Ingvar Þór Jóhannesson er efst-
ur á Atskákmóti Reykjavíkur þeg-
ar fjórum umferðum af sjö er lokið.
Ingvar hefur unnið allar sínar
skákir, en annar er Björn Þorfinns-
son með 3½ vinning:
1. Ingvar Þór Jóhannesson 4 v.
2. Björn Þorfinnsson 3½ v.
3.-4. Stefán Þór Sigurjónsson,
Vigfús Ó. Vigfússon 3 v.
5.-10. Benedikt Jónasson, Páll
Þórarinsson, Jón Árni Halldórsson,
Elsa María Þorfinnsdóttir, Gunnar
Nikulásson, Ingvar Ásmundsson
2½ v.
11.-13. Björgvin Kristbergsson,
Atli Freyr Kristjánsson, Sigurður
Ingason 2 v. o.s.frv.
Athygli vekur að sjá unga og
efnilega stúlku, Elsu Maríu Þor-
finnsdóttur, með sama vinninga-
fjölda og þrautreyndir skákmenn.
Hún hefur verið í mikilli framför að
undanförnu og er m.a. Íslands-
meistari stúlkna.
Keppendur á mótinu eru 20.
Mótinu lýkur mánudaginn 18. nóv-
ember með þremur síðustu umferð-
unum. Mótið er jafnframt Atskák-
mót Hellis.
Unglingameistaramót Hellis
Unglingameistaramót Hellis
2002 hefst mánudaginn 18. nóvem-
ber kl. 16:30, þ.e. nokkru fyrr held-
ur en venjulegar mánudagsæfing-
ar. Mótinu verður svo fram haldið
fimmtudaginn 21. nóvember kl.
16:30. Tefldar verða 7 umferðir eft-
ir Monrad-kerfi. Fyrri keppnisdag-
inn verða tefldar fjórar skákir og
þrjár þann seinni. Umhugsunar-
tími á hverja skák er 20 mínútur.
Mótið er opið öllum 15 ára og yngri
en titilinn sjálfan getur aðeins fé-
lagsmaður í Helli unnið. Núverandi
unglingameistari Hellis er Hilmar
Þorsteinsson.
Teflt verður í Hellisheimilinu,
Álfabakka 14a í Mjódd. Ókeypis er
fyrir félagsmenn í Helli en fyrir
aðra er þátttökugjald kr. 500. Með-
an á mótinu stendur falla venjuleg-
ar barna- og unglingaæfingar nið-
ur. Næsta barna- og unglingaæfing
verður mánudaginn 25. nóvember.
Verðlaun:
1. Unglingameistari Hellis fær
farandbikar til varðveislu í eitt ár.
2. Þrír efstu fá verðlaunagripi til
eignar.
3. Fimm efstu fá bókaverðlaun.
4. Dregnar út tvær pizzur frá
Dominós
5. Dregin út þrenn bókaverðlaun.
Tap gegn Katalóníu
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
SKÁK
Katalónía
ÍSLAND – KATALÓNÍA
12.–13. nóv. 2002
dadi@vsk.is
SENN fara fjölskyldur og einstak-
lingar að umdirbúa jólin, fæðing-
arhátíð frelsarans, hátíð kennda við
ljós og frið.
Gjarnan er talað
um hátíð ljóssins,
hátíð friðarins,
hátíð barnanna
og fleira í þeim
dúr.
Undir þetta er
svo sannarlega
hægt að taka,
þetta er ein mesta
hátíð kristinna manna. Hátíð gleði
og gjafmildi. Mestu skiptir að taka
við boðskap frelsarans af einlægni og
tendra ljós jólahátíðarinnar í hjarta
sínu.
Kaupa jólatré, gera betur við sig
og fjölskylduna í mat og gleðja sína
nánustu með gjöfum.
En er þá nokkuð að!
Er ekki bara að opna hjarta sitt og
huga og taka við kærleik frelsarans,
er einhver ástæða að staldra við og
hugsa málið?
Já, það er rík ástæða til að staldra
við! Það hljómar eins og öfugmæli að
segja, miða við það sem stendur hér
að ofan að þetta sé sá tími sem flestir
öryrkjar og fjölskyldur þeirra kvíða
hvað mest fyrir.
Það er á þessum tíma sem það
verður hvað sárast að hafa hvorki of-
an í sig né á. Það er á þessum tíma
sem það er hvað sárast að geta ekki
gefið sínum nánustu gjafir eða keypt
nýja flík á börnin. Það er á þessum
tíma sem öryrkjar flykkjast til líkn-
arfélaga eftir stuðningi, flykkjast í
betligöngur stofnana á milli eftir
nauðþurftum.
Er ekki mál að linni!
Undanfarin misseri hefur talsvert
verið fjallað um málefni öryrkja,
flestir eru sammála um að kjör ör-
yrkja verður að leiðrétta, örorkulaun
verði umsvifalaust hækkuð verulega
og tengd launaþróun í landinu og sú
staðreynd verði afmáð að missi fólk
heilsuna sé það ávísun á fátækt.
Kosningar til Alþingis eru næsta
vor og stjórnmálamenn í óða önn að
dusta rykið af gömlum kosningalof-
orðum og reyna hvað þeir geta til að
hljóma trúverðugir í eyrum kjós-
enda en með misjöfnun árangri þó.
Það er alveg ljóst og það hafa ör-
yrkjar reynt á eigin skinni að sú rík-
isstjórn sem nú situr hefur ekki og
mun ekki hafa það á stefnuskrá sinni
að bæta kjör þeirra að einu eða neinu
leyti. Það hefur engin ríkisstjórn
þjarmað eins að öryrkjum eins og sú
sem nú situr!
MARGRÉT
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skipholti 16.
Málefni öryrkja!
Frá Margréti Guðmundsdóttur:
Úr • Skart • Silfurborðbúnaður
www.erna.is
Ársskeið
sterling silfur
Tilvalin gjöf
við öll tækifæri
Sif gullsmíðaverkstæði
Laugavegi 20b
s. 551 4444
Gull- og silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 s. 552 0775
Verð 5.900
SMS FRÉTTIR mbl.is