Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 66

Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 66
DAGBÓK 66 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: : Kur- oshio Maru No.11 fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Linda Kosan kemur og fer í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Nám- skeið í mótun á leir verð- ur föstudaga kl. 13–16 vantar fleiri þáttak- hendur. Biljardstofan er opinn virka daga frá kl. 13–16. Skráning og upp- lýsingar í Hraunseli síma 555 0142. Á mánu- dag púttað í Hraunseli kl. 10 tréskurður og fé- lagsvist kl. 13.30. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Laug- ard: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Sunnudag- ur: Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur. Mánu- dagur: Brids kl. 13 Línu- danskennsla fyrir byrj- endur kl. 18, Danskennsla Sigvalda framh. kl. 19 og byrj- endur kl. 20.30. Heilsa og hamingja, fyr- irlestrar um fjármál aldraðra í Ásgarði Glæsibæ laugardaginn 23. nóvember og hefst kl. 13. Silfurlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12. Skrifstofa fé- lagsins er að Faxafeni 12 s. 588 2111. Fé- lagsstarfið er í Ásgarði Glæsibæ. Gerðuberg, félagsstarf. Í dag og á morgun. Myndalistarsýning Brynju Þórðardóttur op- in kl. 13–16 síðasta sýn- ingahelgi. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað á Listatúni í dag, kl. 10.30. Gjábakki. Fannborg 8. Fjölskyldudagur verður í Gjábakka í dag laug- ardaginn kl. 14. Fjöl- breytt dagskrá, m.a. syngur Samkór Kópa- vogs nokkur lög, Jón Oddur og Jón Bjarni frá Þjóðleikhúsinu líta inn. Ari Trausti Guðmunds- son les úr nýútkominni bók sinni. Þorvaldur Halldórsson syngur þekkt lög. Sköp- unarhornið verður fyrir unga sem aldna. Vöfflu- hlaðborð. Alli velkomnir. Digraneskirkja, kirkju- starf aldraðra. Opið hús á þriðjudag frá kl. 11 leikfimi, léttur máls- verður, helgistund, fræðsluþáttur, kaffi. All- ir velkomnir. Heimsókn í Hjallakirkju kl. 12 og dagskrá þar. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir Félag einhleypra. Fund- ur í kvöld kl. 21 í Konna- koti Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA Síðumúla 3-5 og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8 Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14-17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Breiðfirðingafélagið. Félagsvist á morgun kl. 14 þriðji dagur í fjögurra daga keppni, Kaffiveit- ingar eftir spilið. Seyðfirðingafélagið. Vinafagnaður Seyðfirð- ingafélagsins verður haldinn í Gjábakka Fannborg 8,Kóp. laug- ardaginn 16. nóv. Matur, söngur og heimatilbúnir leikir, mætum vel og takið gesti með ykkur. Borgfirðingafélagið í Reykjavík. Spiluð vist í dag kl. 14 að Suður- landsbraut 30 Allir vel- komnir. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar, fást á eft- irtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Holta- smári 1, 201 Kópavogi, s. 535-1825. Gíró og greiðslukort. Dval- arheimili aldraðra Lönguhlíð, Garðs Apó- tek Sogavegi 108, Ár- bæjar Apótek Hraunbæ 102a, Bókbær í Glæsibæ Álfheimum 74, Kirkju- húsið Laugavegi 31, Bókabúðin Grímsbæ v/ Bústaðaveg, Bókabúðin Embla Völvufelli 21, Bókabúð Grafarvogs, Hverafold 1-3. Minningarkort Hjarta- verndar, fást á eft- irtöldum stöðum á Reykjanesi: Kópavogur: Kópavogs Apótek, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfja, Set- bergi. Sparisjóðurinn, Strandgata 8–10, Kefla- vík: Apótek Keflavíkur, Suðurgötu 2, Lands- bankinn Hafnargötu 55– 57. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Vest- urlandi: Akranes: Hagræði hf., Borgarnes: Dalbrún, Brákarbraut 3. Grundarfjörður: Hrann- arbúð sf, Hrannarstíg 5. Stykkishólmur: Hjá Sesselju Pálsd., Silf- urgötu 36. Ísafjörður: Póstur og sími, Að- alstræti 18. Stranda- sýsla: Ásdís Guð- mundsd. Laugarholti, Brú. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Aust- urlandi: Egilsstaðir: Gallery Ugla, Mið- vangur 5. Eskifjörður: Póstur og s., Strandgötu 55. Höfn: Vilborg Ein- arsdóttir Hanarbraut 37. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Norð- urlandi: Ólafsfjörður: Blóm og Gjafavörur Að- algötu 7. Hvammstangi: Verslunin Hlín Hvammstangabraut 28. Akureyri: Bókabúð Jón- asar Hafnarstræti 108, Möppudýrin Sunnuhlíð 12c. Mývatnssveit: Póst- húsið í Reykjahlíð. Húsavík: Blómasetrið, Héðinsbraut 1, Rauf- arhöfn: Hjá Jónu Ósk Pétursdóttur, Ásgötu 5. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Suð- urlandi: Vestmannaeyjar: Apó- tek Vestmannaeyja Vestmannabraut 24. Sel- foss: Selfoss Apótek Kjarninn. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroska- hjálp. Minningarsjóður Jóhanns Guðmunds- sonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endurhæfing- ardeildar Landspítalans Kópavogi (fyrrverandi Kópavogshæli), síma 560-2700 og skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna, s. 551-5941 gegn heimsendingu gíróseðils. Í dag er laugardagur 16. nóvember, 320. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. (Jóh. 10, 11.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 létta á fæti, 8 síðla, 9 refsa, 10 spil, 11 þvaðra, 13 stal, 15 karlfugl, 18 veita ráðningu, 21 hátíð, 22 kvenguð, 23 sleifin, 24 beinbrýtur. LÓÐRÉTT: 2 snjókomunni, 3 sjúga, 4 kyns, 5 lágfótan, 6 hæðir, 7 opi, 12 duft, 14 hátterni, 15 mann, 16 sjúkdómur, 17 sori, 18 æki, 19 gerði hreint, 20 hafa undan. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 bjarg, 4 sýnin, 7 rækta, 8 eiður, 9 sær, 11 aurs, 13 ásum, 14 andar, 15 karl, 17 illt, 20 hrá, 22 pútur, 23 reglu, 24 raust, 25 senda. Lóðrétt: 1 birta, 2 askur, 3 glas, 4 sver, 5 næðis, 6 nýr- um, 10 ældir, 12 sal, 13 ári, 15 kopar, 16 réttu, 18 lagin, 19 tauta, 20 hrút, 21 árás. Víkverji skrifar... AFHENDING Edduverðlaun-anna heppnaðist bara býsna vel að þessi sinni. Staðsetningin sú rétta og virðulegasta sem völ er á, um- gjörðin stílhrein. Sem sagt framfarir á ýmsum sviðum, sérstaklega frá því í fyrra og þeirri hörmung sem þá fór fram í Broadway og kennd var við sömu Eddu. Hátíðin virðist hafa spurst vel og mikið út en sérstaklega hefur mönnum þó orðið tíðrætt um meint „óvænt“ úrslit í vali almenn- ings á sjónvarpsmanni ársins. Vík- verji hefur haft lúmskt gaman af málflutningi þeirra sem hafa leyft sér að efast um að „einhver“ Sverrir Sverrisson skuli vera langvinsælasti sjónvarpsmaðurinn eins og niður- stöður margumtalaðrar netkönnun- arinnar gáfu til kynna. Fólk hefur haldið fram að ekkert sé að marka að Sveppi, eins og þeir kalla hann sem til hans þekkja, hafi fengið langflest atkvæði fyrst komið hafi á daginn að auðvelt sé að greiða atkvæði oftar en einu sinni úr sömu tölvu. Úr málflutningnum hefur mátt lesa að Sveppi og stuðningsmenn hans einir hafi vitað um þennan „leynda galla“ á kosningafyrirkomu- laginu og að víst sé að einungis þeir sem völdu Sveppa hafi nennt að bögglast við að kjósa oftar en einu sinni. Vissulega var einhver herferð í gangi á Netinu þar sem markhópi hans var bent á að greiða sínum manni atkvæði, en þetta stunduðu sjónvarpsstöðvarnar einnig grimmt milli dagskrárliða. Ósáttir hafa og bent á að ósann- gjarnt sé að efna til netkosningar vegna þess að slíkt fyrirkomulag höfði til of þröngs hóps, að nær ein- göngu ungt fólk greiði þá atkvæði og niðurstöðurnar gefi því skakka mynd og endurspegli aðeins smekk unga fólksins. Víkverji hélt samt að Netið væri opinn miðill og aðgengi- legur orðinn á flestum heimilum í landinu, bæði fyrir eldri og yngri. x x x VÍKVERJI hefur soðið samanaðra kenningu. Hann hefur nefnilega sterkan grun um að vanga- velturnar um hvort Sveppi hafi rétti- lega verið valinn vinsælasti sjón- varpsmaðurinn tengist þegar á botninn er hvolft ekki því hvort net- kosningin gefi rétta eða ranga mynd – aðstandendur keppninnar hafa enda bent á að „svindlið“ hafi í engu skekkt niðurstöður – heldur hafi miklu meira með ráðleysi hinna eldri að gera, að þeir hafi í raun ekki haft hugmynd um hver þessi Sveppi væri og ennþá minni hugmynd um að börnin þeirra hefðu svona mikið dá- læti á honum. Það sem kom með öðr- um orðum í ljós með valinu á Sveppa var það sem Víkverja hefur grunað í nokkuð langan tíma: Foreldrar hafa ekki hugmynd um orðið hvað börnin þeirra eru að horfa á í sjónvarpinu á kvöldin. Enda ekki nema von þegar flest börn eiga orðið sín eigin sjón- varpstæki sem þau góna á alein og óáreitt bak við luktar dyr. Það sem kom í ljós á Eddunni þegar foreldr- arnir og allir hinir „eldri“ litu spyrj- andi hver á annan þegar nafn vinsæl- asta sjónvarpsmanns Íslands var tilkynnt var því ekki að einhver brögð hefðu verið í tafli heldur miklu fremur það að þeir höfðu ekki hug- mynd um að Sveppi væri langvinsæl- asti sjónvarpsmaðurinn hjá dygg- asta áhorfendahópnum, unga fólkinu. Og í netkosningu hefur það kosningarrétt. Þvílíkt óréttlæti! Ég mótmæli MIG langar til þess að mót- mæla lokun á útvarpsstöð- inni Klassík FM. Ég hef hlustað mikið á þessa stöð og finnst það alveg ófært að hún skuli ekki vera starf- rækt lengur. Það eina sem er í boði á útvarpsstöðvunum er sí- byljupopp sem er afskap- lega þreytandi til lengdar. Hlustandi. Íshokkí ÉG er búinn að vera að velta því fyrir mér af hverju Stöð 2, Sýn eða RÚV sjá sér ekki fært að sýna íshokkí. Það þarf ekki endilega að vera frá NHL, þess vegna mætti það vera einhver deild í Evrópu. Þessar stöðvar fjalla lítið sem ekkert um hokkí. Ég vil samt þakka RÚV fyrir þá umfjöllun sem var í helgarsportinu fyrir skömmu síðan. Þó held ég að það hafi verið meira fjallað um hokkí í Stundinni okkar ekki alls fyrir löngu. Ég skora á þessar stöðv- ar að fjalla um Brynju-mót- ið sem fram fer á Akureyri næstu helgi þar sem yngri flokkar félaganna munu keppa. Þorsteinn Sævarsson. Þakkir fyrir jóganámskeið MIG langar að koma á framfæri þökkum til henn- ar Arnhildar S. Magnús- dóttur sem sér um jóga- námskeið fyrir krabba- meinssjúklinga. Nám- skeiðin eru haldin í Bolholti og eru alveg frábær. Hún er einstakt ljúfmenni, blíð og góð. Við fáum góða slök- un, sem er okkur afar mik- ilvæg. Hafi hún mínar bestu þakkir fyrir. Svana. Tapað/fundið Bíllykill týndist BÍLLYKILL tapaðist í Borgahverfi í Grafarvogi merktur Land Rover. Uppl í síma 892 6788. Fundar- laun. Lyklakippa í óskilum LYKLAKIPPA með fleira smádóti áföstu fannst í Dal- húsum í Grafarvogi 2. nóv- ember sl. Upplýsingar í síma 846 9824. Aberdeen-bolur týndist á Akureyri ABERDEEN-bolur týnd- ist á Akureyri í sumar. Bol- urinn er eiganda mikils virði. Skilvís finnandi hafi samband í síma 562 1643. Dýrahald Elvis er týndur ELVIS týndist frá heim- ili sínu að Lerkihlíð 13 (í Suð- urhlíðun- um) hinn 12. nóv. sl. og er hans sárt saknað. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í 456 7060, 822 7482 og 822 7483. Kötturinn Dúlli er týndur KÖTTURINN Dúlli hvarf frá heimili sínu að Drápu- hlíð 47, sunnudaginn 10. nóv. Hann ratar ekki heim til sín þar sem hann er ný- fluttur í hverfið. Dúlli er rauðbröndóttur og var með rauða hálsól þegar hann hvarf. Þeir sem kunna að hafa séð hann eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Þórð í síma 698 1801 eða Lilju í síma 698 6369. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Í VIÐTALI við Davíð Oddsson forsætisráðherra í Morgunblaðinu 12. nóv- ember sl., í tengslum við kröfur Evrópusambands- ins um hærri framlög EFTA-ríkjanna segir á einum stað: „Jafnframt höfum við talið að þeim væri skylt að tryggja að fríverslunarsamningar sem við kynnum að hafa við ríki í fyrrum Austur- Evrópu héldu þrátt fyrir breytingar“. Þetta orðalag, að tala um ríki í „fyrrum Austur- Evrópu“ hefur heyrst áð- ur og þykir mér æði und- arlegt. Hafa þessi ríki eitthvað færst til í álfunni þannig að þau séu nú í einhverjum öðrum hluta Evrópu? Það hef ég ekki orðið var við, frekar en að við einhverjar tilteknar breytingar á stjórnarfari hér á Íslandi yrði hægt að tala um „fyrrum Austur- land“. Nei, ríkin í Austur- Evrópu eru enn í Austur- Evrópu, þrátt fyrir breyt- ingar á stjórnarfari þar á síðustu árum og þrátt fyr- ir hugsanlega inngöngu þeirra í Evrópusam- bandið. Sigurður Einarsson. „Fyrrum Austur-Evrópa“ 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.