Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 67
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir leiðtoga-
hæfileikum og kemur
miklu í verk. Þú býrð yfir
hugmyndaauðgi, sjálfstæði
og atorku. Mikil vinna
og uppbygging einkenna
komandi ár.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert tilfinningamikil(l) í
dag. Ekki festast svo í nafl-
anum á þér að þú gefir við-
horfum annarra ekki gaum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sambönd þín við konur munu
reynast krefjandi í dag. Þig
langar alls ekkert til að
blanda geði við fólk í dag,
heldur eiga stund í einrúmi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér er mikið í mun að vernda
vin þinn í dag. Þig langar til
að hjálpa þessari manneskju,
sumpart vegna þess að þér
þykir vænt um hana og sum-
part vegna þess að þú vilt að
henni þyki mikið til þín koma.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dagurinn er kjörinn til sölu-
mennsku eða kynninga. Þér
reynist auðvelt að sýna öðr-
um tillitssemi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú kannt að afla þér nýrra
vina í dag sem hafa annan
menningarlegan bakgrunn en
þú. Þar sem þér leiðist dálítið
í dag finnst þér gaman að
kynnast fólki sem er þér ólíkt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það kann að vera að þig langi
í eitthvað sem tilheyrir öðr-
um. Þú verður að átta þig á
því að þetta er ekki raunveru-
leg þörf heldur aðeins ávísun
á vandræði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vinir þínir og maki eru þér
mikilvægari í dag en alla
jafna. Viðræður við þetta fólk
eru tilfinningaríkar, ástríkar
og hlýjar því að þú þráir
hvatningu þess og samþykki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú snýst til varnar samstarfs-
manneskju þinni í dag. Aðrir
mega telja sig lánsama fyrir
það að þú skulir standa með
þeim.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hjartað tekur kipp í dag
vegna daðurs eða ástarneista.
Þú elskar augnablikið sem er
hugsanlega kveikjan að nýju
ástarsambandi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Kröfurnar frá umhverfinu
virðast yfirþyrmandi í dag.
Reyndu að finna þér stund í
einrúmi svo þú getir slakað á.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Léttar samræður virðast búa
yfir meiri tilfinningadýpt en
endranær. Kvenkyns ætt-
ingjar kunna að leika stórt
hlutverk á þessum degi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þig langar til að hafa muni er
tengjast fortíðinni í kringum
þig. Mundu að hluturinn
sjálfur skiptir ekki svo miklu
máli heldur tilfinningalegt
gildi hans fyrir þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Á NÓTTU
Hver eru ljósin
logaskæru,
er ég lít um ljóra?
munu það blikandi,
blíðmálugar,
heimasætur himins?
Eigi er það; –
en annað fegra
svífur mér að sjónum:
það eru augu
unnustu minnar,
þau í svartnætti sjást.
Jón Thoroddsen
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 16. nóv-
ember, er áttræður Gunnar
Bjarnason, áður bóndi Böðv-
arsholti, Staðarsveit. Hann
er að heiman í dag.
50 ÁRA áfmæli. Í dag,laugardaginn 16.
nóvember er fimmtug
Hólmfríður Kristjánsdóttir,
bóndi í Sýrnesi í Aðaldal,
S-Þingeyjarsýslu. Hún er
stödd ásamt eiginmanni sín-
um, Ragnari Þorsteinssyni,
á heimili dóttur þeirra í
Kaupmannahöfn.
VEL lesnir spilarar kann-
ast kannski við nafnið
Clyde E. Love. Ekki það?
Nú jæja; Love var banda-
rískur spilari og stærð-
fræðiprófessor sem lést ár-
ið 1960. Árinu áður kom út
bók eftir Love sem enn er
gefin út með reglulegu
millibili – Bridge Squeezes
Complete, eða „Þvingun
frá a til ö.“ Þar er að finna
þetta athyglisverða spil:
Norður
♠ KDG1032
♥ ÁG
♦ Á73
♣ÁK
Suður
♠ Á986
♥ 4
♦ KD54
♣10643
Sagnir eru aukaatriði
hjá Love, en niðurstaðan
er 7G í suður (tvímenning-
ur) og útspilið hjartakóng-
ur. Hvaða möguleika á
sagnhafi og hvernig er best
að spila?
Tólf slagir blasa við og
sá þrettándi kemur ef tíg-
ullinn liggur 3-3. Ef vestur
á tígullengd með hjarta-
drottningu þvingast hann
sjálfkrafa þegar sagnhafi
tekur síðasta svarta slag-
inn. Ennfremur gæti aust-
ur þvingast með tígullengd
og DG í laufi. En hvað er til
ráða ef austur valdar tíg-
ulinn og litlu hjónin í laufi
eru skipt?
Norður
♠ KDG1032
♥ ÁG
♦ Á73
♣ÁK
Vestur Austur
♠ 54 ♠ 7
♥ KD97652 ♥ 1083
♦ 10 ♦ G9862
♣D92 ♣G875
Suður
♠ Á986
♥ 4
♦ KD54
♣10643
„Nákvæmlega ekki
neitt,“ segir Love, en bætir
því við að suður ætti samt
að vinna slemmuna! Þving-
un er nefnilega eitt, en sál-
fræði annað. Ekkert liggur
á að kanna tígulinn eða
taka ÁK í laufi. Til að byrja
með er best að spila fimm
sinnum spaða. Austur mun
henda fyrst tveimur hjört-
um og einum tígli. En þeg-
ar fimmta spaðanum er
spilað á hann eftir gosann
fjórða í báðum láglitum og
mun vafalaust henda tígli á
þeirri forsendu að suður sé
líklegri til að eiga fjórlit í
laufi en tígli.
Það kemur margt á
óvart í lífinu. Í frægustu
„skvísbók“ fyrr og síðar
víkur tækni fyrir sálfræði.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 16.
nóvember, er fimmtugur
Ásgeir Hinrik Þorvarðar-
son. Eiginkona hans er Sól-
veig Hrafnsdóttir. Í tilefni
dagsins taka þau á móti ætt-
ingjum og vinum að heimili
sínu, Logasölum 2, Kópa-
vogi, á milli kl. 18 og 21.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6
6. Bc4 e6 7. Bb3 Bb4 8.
Rxc6 bxc6 9. O-O h6 10. e5
Bxc3 11. bxc3 Rd5 12. Dg4
g6 13. Bd2 Re7 14. Bc4 a5
15. De2 Kf8 16. Hab1 Kg7
17. Be3 Rf5 18. Bc5 h5 19.
Hfd1 Dg5 20. g3 Rh6 21. f4
Dg4 22. Dg2 h4 23. Be7 h3
24. Df2 He8 25.
Bg5 Rg8 26. Be2
Df5 27. Bf3 Rh6
Staðan kom
upp í fyrri hluta
Íslandsmóts
skákfélaga sem
fram fór í húsa-
kynnum B&L.
Gunnar Finn-
laugsson (2150)
brá sér í bæjar-
ferð frá Lundi í
Svíþjóð og leiddi
skáksveit Sel-
fyssinga til for-
ystu að fyrra
hlutanum lokn-
um. Hann hafði
hvítt gegn Halldóri Garð-
arssyni (1855). 28. g4!
Rxg4 29. Dh4 Dxc2 30.
Dxg4 Dxc3 31. Bf6+ Kg8
32. Dxh3 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Sverrir
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu kr. 3.985. Þær heita Pálína Þrast-
ardóttir, Ólafía Skarphéðinsdóttir, Ólöf María Jónsdóttir
og Dagný Ísafold Kristinsdóttir.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Mánudaginn 11. nóv. lauk 5 kvölda
hraðsveitakeppni, spilað var á 11
borðum, í efstu sætum urðu;
Karl Kalrsson og Sigurður R. Steingrímsson
– Ólafur Ingvar og Sharion 3115
Sigrún Pálsdóttir og Bragi Sveinsson –
Helgi Ketilsson og Sigþór Haraldsson 2909
Jón Úlfljótsson og Þórarinn Bech –
Sig. Björnsson og Sveinbjörn Axelsson 2897
Ingólf Ágústsson og Sigtryggur Jónsson –
Halldór Aðalsteinsson og Jósvin 2897
Bridsfélag Hreyfils
Þegar þrjár umferðir eru eftir í
aðalsveitakeppninni er staðan þessi:
Daníel Halldórsson 115
Vinir 105
Rúnar Gunnarsson 101
Jón Egilsson 97
Hlynur Vigfússon 95
Nk. mánudagskvöld verða spilað-
ar 7. og 8. umferðir. Spilað er í
Hreyfilshúsinu kl. 19.30.
Akureyrarmótið í tvímenningi
Nú er þrem kvöldum af fjórum
lokið í Akureyrartvímenningi Brids-
félags Akureyrar. Staðan að loknum
12 umferðum af 17 er þannig:
Björn Þorláksson – Stefán Stefánsson 111
Reynir Helgason – Örlygur Örlygsson 75
Pétur Guðjónsson – Stefán Ragnarsson 66
Stefán Sveinbjörnsson – Víðir Jónsson 46
Sveinn Pálsson – Jónas Róbertsson 29
Að venju var spilaður sunnudags-
brids á sunnudaginn var. Það var
góð mæting og ánægjulegt að sjá
mörg ný andlit. Spilað var á 5 borð-
um og var staða efstu manna þannig:
Stefán Vilhjálmss. – Guðm. V. Gunnl. 136
Pétur Guðjónsson – Jónas Róbertsson 134
Sveinbjörn Sig. – Sigurður Marteinss. 122
Landstvímenningurinn verður
spilaður á föstudaginn kemur. Hefst
spilamennskan kl. 19.30 og er spilað í
Hamri, félagsheimili Þórs.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gallafatnaður
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Lára Margrét áfram í 5. sæti
Kynntu flér stefnumálin á www.laramargret.is
e›a hringdu í síma 551 3339 og 861 3298
Námskeið í orkuheilun
Karina Becker frá hinum viðurkennda Barbara Brennan
School of Healing er komin aftur til landsins
Hún býður upp á tvö námskeið í orkuheilun
lau.-sun. 23.-24. nóv.: „Orkusvið mannsins“ og
lau.-sun. 30. nóv.-1. des.: „Hara-víddin“
frá kl. 10-17 í Heilsusetri Þórgunnu í Skipholti 50c, 4. hæð.
Hún býður einnig upp á einkatíma
Pantanir í síma 552 6625 og 861 3174.
Höfum opnað tannlæknastofu
í Miðstræti 12, 101 Reykjavík.
Laser tannviðgerðir og allar almennar
tannlækningar.
Ingvi Kristinn Jónsson
tannlæknir
Stefán Hallur Jónsson
tannlæknir
Tannlæknar
Tímapantanir í síma 511 4010 alla virka daga.
Bjóðum viðskiptavini velkomna.
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 561 0151
gud.run@mmedia.is
Konur
Streitulosun • Tilfinningavinna
Skapandi tjáning • Að tengjast kynorkunni
Tími til að skoða í öruggu
umhverfi það sem við höfum sett í skuggann og leita inn í hjartað.
Námskeið helgað konum
á öllum aldri frá 23.-24. nóvember
líföndun • jóga • hugleiðsla