Morgunblaðið - 16.11.2002, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 73
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12. Vit 444
Ó.H.T. Rás2
1/2
SV. MBL
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Vit 441. Sýnd kl. 8. Vit 455 Sýnd kl. 6 og 8. Vit 448 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 460 Sýnd kl. 2.
Frábær grínhasar
með hinum eina
sanna Jackie Chan.
Frá framleiðendum
Men in Black og
Gladiator
Sjáið
Jackie Chan
í banastuði
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 474 Sýnd kl. 2, 4 og 10. Vit 474 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 Vit 479 Sýnd kl. 8 og 10.Vit 479
Big Fat Liar
THE GURU
Pétur og kötturinn
Brandur 2
Þegar tveir ólíkir menn
deila getur allt gerst.
Stórbrotin og óvenjuleg spennumynd
með Samuel L. Jackson og Óskarsverðlaunahafanum, Ben Affleck.
Margir vilja meina að hér sé á ferðinni ein besta og eftirminnilegasta kvikmynd ársins.
FRUMSÝNING
8 Eddu verðlaun.
Yfir 49.000 áhorfendur
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 433
Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 429
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI AKUREYRI
AKUREYRI
KEFLAVÍK KEFLAVÍK
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 461 Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 461 Sýnd kl.2, 4 og 6. Vit 461
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
KEFLAVÍK AKUREYRIÁLFABAKKI
AKUREYRI
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal.
Sýnd kl. 10.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Sýnd í lúxussal kl. 4, 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 480.
FYRSTA breiðskífa Afkvæma
guðanna, Dæmisögur, gleymdist
nánast á síðasta ári, datt milli þilja
og það að ósekju, hún var með bestu
plötum ársins og gott ef hún var
ekki besta hiphopskífan, í það
minnsta ef litið er til rímnanna og
innihalds þeirra.
Það er því ekki
nema von að menn
hafi beðið nýrrar
plötu með eftir-
væntingu og
skemmst frá því að
segja að platan nýja, Ævisögur,
uppfyllir allar væntingar og gott
betur.
Líkt og með rokkið greinist ís-
lenskt hiphop í óteljandi kvíslir,
segja má að hver sveit sé með sinn
sérstaka stíl hvort sem er í rímna-
spuna eða töktum og í engri tónlist-
arstefnu skiptir einstaklingurinn
eins miklu máli, hvert lag stendur
og fellur með rímnamanninum, ef
hann er ekki góður er eiginlega ekk-
ert gott, ólíkt rokkinu.
Gróflega má skipta hiphopinu eft-
ir hlutföllum skemmtunar og inni-
halds í tónlistinni, þ.e. hversu mikla
áherslu leggja menn á að vera
skemmtilegir á kostnað þess að vera
að fjalla um hluti sem skipta máli og
öfugt; slíkur mælikvarði er vitan-
lega langt frá því að teljast vísinda-
legur og oftar en ekki getur verið
snúið að finna út hvort menn eru al-
varlega skemmtilegir eða skemmti-
lega alvarlegir. Á þeim mælikvarða
hallast þeir félagar í Afkvæmum
guðanna að innihaldinu, eða eins og
Elvar Gunnarsson segir í „Hvað get
ég gert“: „Ég geri flókin lög, ég
bæði rappa og pæli / en stelpur
skilja mig ekki og strákar segja að
ég sé allt of væminn / þau segja að
ég sé ekkert nema þunglyndisrapp-
ari.“ Það lag er reyndar hreint af-
bragð, góður taktur undir og textinn
skemmtileg úttekt á stöðu Afkvæm-
anna í rappsamfélaginu; nota bene,
menn eru ekki að taka sjálfa sig of
alvarlega (manni getur nefnilega
verið alvara án þess að taka sjálfan
sig of alvarlega). Nokkur lög á skíf-
unni ganga reyndar þvert á þá stað-
hæfingu að þeir félagar séu þung-
lyndisrapparar, sjá til að mynda
„Tínsur“ sem er frábærlega fyndið
lag með broddi, og „Stöðva partíið“
þar sem þeir félagar eru ekki síst að
gera grín að sjálfum sér. Einnig er
„Öryrkjabandalagið“ skemmtilegur
gortari, þ.e. lag þar sem rímurnar
snúast um að gera lítið úr öðrum
textasmiðum, ekki síst þeim sem
treysta sér ekki til að „frístæla“, eða
að öryrkja, nema þeir séu komnir á
skallann. Þeir fá og sneið í því lagi
sem fela sig á Netinu; það verður
enginn metinn að verðleikum nema
hann standi á sviði og „battli“ fyrir
allra augum. Í „Öryrkjabandalag-
inu“ fara þeir á kostum Afkvæma-
félagar en einnig Örn Tönsberg,
sem flestir þekkja sem 7berg í Bent
og 7berg, og Halldór Halldórsson,
Dóri DNA úr Bæjarins bestu.
Elvar Gunnarsson er stjarna
þessarar plötu, textar hans eru allir
mjög góðir og frábærir á köflum, lít-
ið um nástöðu og klaufalegt rím
finnst varla. Best þykir mér lagið
„Rigning á heiðskírum degi“ sem
hann flytur af mikilli innlifun, en það
er líka talsvert spunnið í lagið „Þjóð-
ernishyggja“ sem er áleitin og kraft-
mikil pólitísk ádeila. Kristján Þór
Matthíasson á líka sína spretti og
gerir upp gömul mál með skemmti-
lega groddalegum rímum í „F.Y.B“.
Ekki er síst gaman að heyra dissið á
liðið sem situr fast í sinni íhaldssemi
og gamaldags þröngsýni; „Fyndið,
íslenskt hiphop var best þegar eng-
inn samdi á móðurmálinu / eftir
Subta engin víð föt og engar plötu-
útgáfur“.
Útsetningar á skífunni eru yfir-
leitt til fyrirmyndar, þvælast ekki
fyrir textunum, heldur draga þá
fram og undirstrika. Á stundum
virka þær stirðar, til að mynda í
„Rigning á heiðskírum degi“, en í
„Skugga 2“, „Þjóðernishyggju“ og
þá sérstaklega „Efnishyggju“ eru
bráðskemmtilegar útsetningar.
Ólíkt því sem jafnan tíðkast í hip-
hopi er hljóðfæraleikur að miklu
leyti lifandi, þ.e. í stað þess að smala
af skífum annarra leika hljóðfæra-
leikarar takta og laglínur undir sem
gefur skífunni skemmtilega lífræn-
an blæ.
Eins og getið er í upphafi voru
Dæmisögur með bestu skífum síð-
asta árs og þar sem Ævisögur eru
enn betri þarf ekki að spyrja að
leikslokum.
Tónlist
Bæði rapp
og pæl
Afkvæmi guðanna
Ævisögur
HITT
Ævisögur Afkvæma guðanna sem eru
þeir Elvar Gunnarsson, Kristján Þór
Matthíasson, Hjörtur Már Reynisson og
Páll Þorsteinsson. Auk þeirra Elvars,
Kristjáns og Páls koma fram á plötunni
Guðmundur Steinn Gunnarsson gítarleik-
ari, Egill Antonsson bassaleikari, Dagný
Magnúsdóttir flautuleikari, Grímur
Helgason klarinettleikari, Matthías Birg-
ir Nardeau óbóleikari og rímnamennirnir
Örn Tönsberg og Halldór Halldórsson, en
útsetjarar eru auk Páls þeir Eiríkur Ásþór
Ragnarsson og Sigurður Pálmarsson.
Tekið upp og hljóðblandað í Helli Gula
drekans. Páll Þorsteinsson stýrði upp-
tökum.
Árni Matthíasson
skrefi framar
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.