Morgunblaðið - 17.11.2002, Page 1
HIÐ umfangsmikla málverkafölsunarmál, sem
komst í hámæli upp úr miðjum síðasta áratug,
hefur haft vond áhrif á listaverkamarkað á Ís-
landi svo ekki sér fyrir endann á, en talið er að
allt að 900 verk gætu hafa verið fölsuð. „Ég
hreifst af þessum verkum, sem ég fékk,“ segir
viðmælandi Morgunblaðsins, sem uppgötvaði
að þrjú fölsuð verk héngu á veggjum heimilis-
ins. „Þannig að það var mjög auðmýkjandi
svona eftir á að uppgötva að verkin voru fölsuð
og það svo greinilega að ekki er hægt að líta
framhjá því þegar farið er að skoða þau.“
Rannsókn embættis ríkislögreglustjóra á
meintum málverkafölsunum er senn að ljúka.
Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrota-
deildar embættis ríkislögreglustjóra, sagði að
um væri að ræða umfangsmestu rannsókn lög-
reglunnar frá upphafi og skipti kostnaður tug-
um milljóna, en hann vildi ekki tjá sig um
hversu mörg verk hefðu verið til rannsóknar.
Ólafur Ingi Jónsson, forvörður hjá Mork-
inskinnu, hefur kannað umfang málsins og
skráð þá listamenn, sem urðu fyrir barðinu á
fölsurunum. Einnig hefur hann skoðað hundr-
uð verka. Ólafur Ingi er sannfærður um að ein-
ar 900 falsanir á verkum 16 látinna íslenskra
listamanna hafi farið í sölu hér á landi og í Dan-
mörku.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur segir að
málverkafölsunarmálið hafi haft vond áhrif á
listaverkamarkaðinn hér á landi og fólk hafi
hvorki þorað að selja né kaupa verk í langan
tíma.
Listunnendur hafi ekki aðeins haldið sig frá
viðskiptum með verk gömlu meistaranna, held-
ur veigrað sér við að kaupa málverk yngri kyn-
slóðar myndlistarmanna. Aðalsteinn er þeirrar
hyggju að niðurstaða málsins ráði miklu um
hvenær málverkamarkaður hér á landi færist í
fyrra horf.
Auðmýkjandi að uppgötva að verkin voru fölsuð
Í nafni meistaranna/B 1–7
STOFNAÐ 1913 270. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 mbl.is
Sjálfstæð
lögregla
Haraldur Johannessen um
uppbyggingu lögreglunnar 10
Ný plata bítilsins sáluga
kemur út á morgun Fólk 58
Nútíma
öskubuska
Birna Anna fjallar um markaðs-
setningu og ímyndir Listir 26
„HÚN er spennandi en maður verður samt
ekkert hræddur,“ segir ellefu ára gamall
breskur drengur, Dominic Howard, um nýju
Harry Potter-myndina sem var frumsýnd á
föstudagskvöld bæði í Bandaríkjunum og í
Bretlandi. „Persónurnar eru frábærar, sagan
er frábær, þetta er bara alveg ótrúleg mynd,“
sagði táningurinn Courtney Smith en hún beið
lengi í biðröð í Ontario í Kaliforníu eftir að fá
keyptan miða á myndina, sem heitir á íslensku
Harry Potter og leyniklefinn.
Fastlega er gert ráð fyrir því að nýja Harry
Potter-myndin slái fyrri sýningarmet í Banda-
ríkjunum en hún er sýnd í 3.682 sýningarsölum
um helgina. Í Bretlandi er hún sýnd fyrstu dag-
ana í meira en eitt þúsund sýningarsölum og
þar var búið að selja um 350 þúsund aðgöngu-
miða í forsölu.
Sums staðar í Bandaríkjunum bárust jafnvel
fréttir af því að foreldrar tilkynntu skólum að
börn þeirra væru veik – til að þau gætu eytt
deginum í biðröð eftir bíómiða þá um kvöldið.
Harry Potter og leyniklefinn er eins og fyrri
myndin, Harry Potter og viskusteinninn, gerð
eftir sögu J.K. Rowling en bækur hennar hafa
notið mikilla vinsælda meðal barna og ung-
linga um heim allan. Harry Potter og leyniklef-
inn verður frumsýnd hér á landi nk. föstudag.
„Spennandi en samt ekkert hræddur“
AP
Los Angeles. AFP.
Emma Watson, Rupert Grint og Daniel
Radcliffe í nýju Harry Potter-myndinni.
HU Jintao mátti sætta sig við það í
gær að vera áfram í skugga forseta
landsins, Jiangs Zemins, en Hu tók á
föstudag formlega við helstu valda-
embættum í kínverska kommúnista-
flokknum af Jiang. Rætt hefur verið
um að leiðtogaskipti væru nú að eiga
sér í kínverskum stjórnmálum en
umfjöllum ríkisfjölmiðla í landinu í
gær virtist staðfesta þann grun
margra að Jiang væri hvergi nærri
horfinn af sjónarsviðinu.
Dagblöð hrósa Jiang
Á forsíðu Dagblaðs alþýðunnar,
málgagns kínverska kommúnista-
flokksins, gat að líta myndir af þeim
Jiang og Hu hlið við hlið og þar fyrir
neðan mátti sjá Jiang ásamt níu
manna framkvæmdanefnd flokksins.
Í ríkissjónvarpinu kínverska fór
mest fyrir Jiang, eins og í flestum
öðrum fjölmiðlum landsins, og var
þar m.a. sýnt frá fundi sem hann átti
með fulltrúum kínverska hersins á
flokksþingi kommúnistaflokksins.
Sást hvar Hu kom í humátt á eftir
Jiang sem líklega mun láta Hu eftir
forsetaembættið í mars á næsta ári.
Var Jiang hrósað mjög í leiðurum
helstu dagblaða en umfjöllun um
hinn nýja leiðtoga kommúnista-
flokksins var hins vegar stillt í hóf.
Jiang Zemin hvergi nærri horfinn af sjónarsviðinu
Skyggir
áfram á
Hu Jintao
Peking. AFP.
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra hættir þingmennsku í vor en
hann hafnaði í fjórða sæti í fyrstu
umferð kosninga um fyrsta sætið á
væntanlegum framboðslista Fram-
sóknarflokksins á kjördæmisþingi
flokksins í Norðvesturkjördæmi sem
haldið var á Laugum í Dalasýslu í
gær. Hann hlaut 61 atkvæði, eða
14,09%.
Páll sagði við Morgunblaðið að
hann hefði átt von á þessum úrslitum.
„Þessar kosningar eru mjög svæðis-
bundnar. Það er að segja menn kjósa
eftir gömlu kjördæmunum og þar
sem ég var búinn að fá fyrrverandi
aðstoðarmann minn í mótframboð
var augljóst að það yrði mjög á bratt-
ann að sækja fyrir mig þegar fylgið
klofnaði og skiptist á milli tveggja,“
sagði hann. „Skagfirðingar munu
hafa valið þann kostinn að styðja
Árna Gunnarsson í meirihluta.“
Magnús Stefánsson alþingismaður
mun fara fyrir lista Framsóknar-
flokksins í kjördæminu eftir að hann
hafði betur í baráttu við Kristin H.
Gunnarsson þingflokksformann um
fyrsta sætið. Kristinn fékk fleiri at-
kvæði eftir fyrstu umferð en úrslitin
breyttust í annarri umferð. Magnús
tryggði sér þá fyrsta sætið með 231
atkvæði eða 53,97% atkvæða en
Kristinn hlaut 197 atkvæði eða
46,03%. Í 3. umferð tryggði Kristinn
sér annað sætið með 226 atkvæðum
eða 53,8% atkvæða.
Páll Pétursson hefur verið þing-
maður Norðurlandskjördæmis
vestra frá árinu 1974 en hann hefur
verið félagsmálaráðherra frá árinu
1995. Þá var hann formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins á árun-
um 1980 til 1994 auk þess sem hann
hefur setið í utanríkismálanefnd, iðn-
aðarnefnd og sérnefnd um stjórnar-
skrármál.
Magnús leiðir
og Páll hættir
Kristinn H. Gunnarsson kosinn í annað
sæti hjá Framsókn í Norðvesturkjördæmi
Magnús StefánssonPáll Pétursson
Heilaþveginn
Harrison
KÍNVERSK kona flettir Dagblaði alþýðunnar í gær þar sem fjallað var um
flokksþing kommúnistaflokksins. Fæstir Kínverjar vita ýkja mikið um Hu
Jintao jafnvel þó að lengi hafi verið gengið út frá því að hann tæki við sem
leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins.
Hu lítt kynntur í Kína
AP