Morgunblaðið - 17.11.2002, Page 4

Morgunblaðið - 17.11.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ fer ekki mikið fyrir Hýsingu við Skútuvoginn í Reykjavík en þar er um 11.000 fermetra vöruhús með fullkomnu tölvustýrðu færibanda- kerfi á þremur hæðum. Allar vörur koma í vöruhúsið í kössum á brett- um í gámum og fyrst eru þær settar á svonefnt biðsvæði. Guðmundur Oddgeirsson, fram- kvæmdastjóri Hýsingar, segir að þar fari fram skoðun á þeim og í raun endurspegli Hýsing búðirnar. „Ef vörurnar eiga að hanga á herðatrjám í verslununum setjum við þær á herðatré.“ Tæknin í fyrirrúmi Vörurnar eru flokkaðar og merktar og eru síðan hengdar á svonefnda „ketti“ sem koma þeim á réttan stað á lagernum eftir færi- bandi í loftinu, en hluti hverrar sendingar fer reyndar beint í versl- anirnar eftir móttöku og flokkun. Kerfið er tölvustýrt og er því ekki um neinn burð að ræða. Eftir að varan hefur selst er herðatréð látið í sérstakan kassa við afgreiðsluborðið og er tæmt úr honum í annan stærri sem síðan er fluttur til Hýsingar og þaðan til Örva, sem er verndaður vinnu- staður í Kópavogi. Þar eru herða- trén flokkuð og síðan send aftur til Hýsingar þar sem hringrásin hefst á nýjan leik, jafnvel tveimur vikum eftir að herðatrén fóru frá sama stað hulin flíkum. „Við setjum fatn- að á um og yfir 100.000 herðatré á mánuði,“ segir Guðmundur, en um þessar mundir er mesti annatími ársins. Margar tegundir 30 manns vinna við vörumót- tökuna hjá Hýsingu og þar af 22 við merkingu á fatnaði. Sumar flíkur koma með herðatrjám og þarf að hengja þær upp eins og annan fatn- að en síðan er mikilvægt að hver tegund fatnaðar fái rétta stærð og tegund af herðatré. Hlutverk starfsfólks Hýsingar er m.a. að sjá til þess en úr um 20 tegundum er að velja. Þegar pantanir eru afgreiddar eru vörurnar settar á „ketti“ merkta viðkomandi búð og fara þeir síðan sína leið í afhending- arrýmið, þar sem vörurnar eru settar í sérstakar flutningagrindur, sem síðan er ekið með í versl- anirnar. Góð nýting Tvisvar í viku er farið með kassa af óflokkuðum herðatrjám til Örva. Þar eru herðatrén fyrst gróf- flokkuð og um 30 gerðum hent, en eftir standa um 20 tegundir sem eru aðgreindar í kassa og sendar þannig til Hýsingar tilbúnar til notkunar á ný. Í Örva er unnið á tveimur 16 manna vöktum og eru tveir starfs- menn í grófflokkun herðatrjáa hverju sinni og jafnmargir sjá um lokaflokkunina. „Við fáum um það bil 12 stóra kassa með óflokkuðum herðatrjám vikulega,“ segir María Guðmunds- dóttir starfsráðgjafi og María Sig- urjónsdóttir verkstjóri bætir við að góð nýting sé á herðatrjánum. „Það slæðast alltaf með einnota tegundir en við komum miklu frá okkur til Hýsingar í hverjum mánuði.“ Morgunblaðið/Þorkell Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar, gengur um lagerinn á þriðju hæð í Skútuvoginum. Íris Jóhanna Ólafsdóttir setur herðatré í kassa eftir sölu vöru. Edda Margrét Kjartansdóttir gróf- flokkar herðatré hjá Örva. Kristín Sveinsdóttir setur peysur á herðatré í Hýsingu. Fatnaðurinn sett- ur á um 100.000 herðatré á mánuði ÁKVEÐIÐ hefur verið að hækka laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna í Kópavogi en oddvitar Framsókn- arflokks, Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingarinnar lögðu fram sameig- inlega tillögu þar um á fundi bæjarráðs í síðustu viku. Hækkunin nemur á bilinu 4,8 prósent til 104,5 prósent en í einum flokki nefnda lækka nefndarlaun um 10 prósent. Nefndarlaun eru reiknuð sem hlutfall af þingfararkaupi og var hækkunin því framkvæmd með því að hækka hlutfall frá því sem það var áður. Þannig hækka laun for- manns bæjarráðs úr 144.731 krón- um á mánuði í 151.623 krónur sem er 4,8 prósenta hækkun. Laun almennra bæjarstjórnarfull- trúa hækka um 22,7 prósent úr 75.811 krónum í 93.041 krónu á mán- uði en hækkunin er hæst hlutfalls- lega hjá nefndarmönnum í stærri nefndum, sem eru tilgreindar fé- lagsmálaráð, skólanefnd, skipulags- nefnd og íþrótta- og tómstundaráð. Hækka laun almennra nefndar- manna í þessum nefndum úr 7.581 krónu á fund í 15.507 krónur og laun formanns nefndarinnar hækka úr 11.372 krónum á fund í 23.260 krón- ur. Nemur hækkun þessara nefnd- armanna því 104,5 prósentum. Í einu tilfelli lækka nefndarlaun og það er laun fulltrúa í sérnefndum bæjarráðs og bæjarstjórnar. Þau fara úr 17.230 krónum á fund í 15.507 krónur og nemur lækkunin því 10 prósentum. Lengi verið langlægstir Að sögn Gunnars I. Birgissonar, oddvita sjálfstæðismanna og for- manns bæjarráðs, hefur lengið verið beðið með að hækka nefndarlaun í Kópavogi en hingað til hafi þau verið mun lægri en gengur og gerist í ná- grannasveitarfélögunum. Við hækk- unina nú hafi verið miðað við með- altal þeirra bæjarfélaga að undan- skilinni Reykjavík en að sögn Gunnars hafa nefndarlaun í Reykja- vík verið töluvert hærri en í ná- grannasveitarfélögunum. „Þegar ég kom að þessu árið 1991 lagði ég til að nefndarlaun yrðu lækkuð,“ segir hann. „Þá fóru nefnd- arlaun bæjarins úr 32 milljónum á ári í 18 milljónir. Þetta gerðum við þegar var erfitt um vik og litlar tekjur en nú er þetta orðið það lágt að það fæst varla nokkur maður til að sinna þessu. Hin sveitarfélögin eru að auki með bílastyrki og annað slíkt sem við höfum ekki haft.“ Verið að samræma launin Aðspurður hvers vegna laun séu lækkuð hjá fulltrúum í sérnefndum bæjarráðs og bæjarstjórnar segir hann að með því sé verið að sam- ræma laun í nefndum bæjarins. „Þessi laun voru mun hærri hjá þeim en öðrum og árið 1990 voru þau um þreföld miðað venjulegar nefndir. Nú verða launin nokkurn veginn þau sömu milli nefnda. Með þessu erum við að hækka hinn al- menna nefndarmann sem er að fá 12–15 þúsund á fund, eða 25–30 þús- und á mánuði.“ Gunnar telur að heildarkostnaður bæjarsjóðs vegna nefndarlauna á næsta ári verði á bilinu 30–40 millj- ónir króna en breytingarnar taka gildi hinn 1. janúar næstkomandi. 4,8–104% hækk- un nefndalauna TVEIR menn á þrítugsaldri voru handteknir aðfaranótt laugardags vegna innbrota í fimm raðhús og eitt einbýlishús í Breiðholti í Reykjavík á föstudagskvöld. Innbrotin voru til- kynnt hvert af öðru seint á föstu- dagskvöld og tókst lögreglunni að handsama mennina skömmu eftir miðnætti. Annar þeirra var með þýfi í fórum sínum er hann var handtek- inn en þegar félagi hans var gripinn fannst taska með þýfi í nágrenni við handtökustaðinn. Þótt innbrot á heimili séu hlut- fallslega fátíð miðað við innbrot í bíla og fyrirtæki þekkist það engu að síð- ur að þjófar leggist á heimili með skipulögðum hætti. Dæmi eru um að þeir fylgist með mannaferðum í hverfinu dögum og vikum saman áð- ur en þeir láta til skarar skríða þegar þeir telja minnstar líkur á að til þeirra sjáist. Handteknir vegna innbrota í Breiðholti ÁKVEÐIÐ var að auka úthafskarf- akvótann á Reykjaneshrygg um 20%, úr 95 þúsund tonnum á þessu ári í 119 þúsund tonn á því næsta, á fundi Norðaustur-Atlantshafsfisk- veiðinefndarinnar (NEAFC) í London á föstudag. Ísland er ekki aðili að samkomu- lagi NEAFC um úthafskarfaveiðar og ákveður kvóta sinn einhliða. Verði kvóti Íslendinga hins vegar aukinn sem nemur aukningu á heildarkvótanum verður hann um 52 þúsund tonn á næsta ári eða 7 þúsund tonnum meiri en á yfir- standandi ári. Lauslega áætlað er verðmæti þessa viðbótarafla upp úr sjó um 560 milljónir króna. Sendinefnd Íslands lagði á fund- inum fram tillögu um að veiðum úr úthafskarfastofninum á Reykjanes- hrygg verði stjórnað með svæða- skiptingu enda sé þar um tvo stofna að ræða og vernda beri karfa sem haldi sig fyrir ofan 500 metra dýpi, hinn eiginlega úthafs- karfa. Ísland hefur áður lagt fram tillögur þess efnis á vettvangi NEAFC en þær hafa ekki fengið þar hljómgrunn. Íslendingar ákváðu því einhliða að stjórna veið- unum með svæðaskiptingum á síð- asta ári til að skilja að veiðar úr stofnunum. Grænlendingar og Færeyingar stóðu að þessu sinni að tillögunni ásamt Íslandi en hún var engu að síður felld. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands, sem átti sæti í nefndinni, segir að tillagan hafi þó aldrei verið jafn- nærri því að vera samþykkt. „Evr- ópusambandið óskaði til að mynda eftir því að skipuð yrði nefnd til að skoða málið og kynna niðurstöður sínar á næsta fundi. Þó að tillagan hafi ekki verið samþykkt tel ég að þarna hafi náðst mikilvægt skref í rétta átt,“ segir Helgi. Úthafskarfakvótinn eykst ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.