Morgunblaðið - 17.11.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞAÐ síðasta sem ég mundi var
grjótgarðurinn og frussandi sjór-
inn,“ segir Tómas Sigurðsson,
vinnuvélastjóri frá Ólafsvík, sem
lokið hefur spítalavist sinni eftir
lífshættulegt vinnuslys við Ólafs-
víkurenni á mánudaginn. Hjóla-
skófla sem hann ók um Ennið lenti í
sjónum og hann var hætt kominn.
„Ég kom keyrandi eftir akrein-
inni þar sem öðrum megin var
vörubíll. Á móti mér kom síðan
Volkswagen rúgbrauð. Sennilega
hef ég ætlað að fara utarlega í
kantinn þannig að hjólaskóflan hef-
ur kannski tekið af mér stýrið. Ég
man vel eftir því þegar ég hentist
upp í loftið og högginu sem kom í
hausinn á mér þegar ég kastaðist
til inni í vélinni. Svo sá ég sjóinn
fyrir framan mig. Þetta var alveg
hrikalegt útlit,“ segir hann. „Ég
hef aldrei lent í svona löguðu fyrr,
en ég hef keyrt frá því ég var 16
ára gamall.“ Tómas er síðan ekki
til frásagnar um það sem gerðist í
framhaldinu enda komst hann ekki
til meðvitundar fyrr en daginn eftir
á Landspítalanum. „Ég er marinn
og með fjóra skurði á hausnum,“
segir hann um meiðsli sín. Hann
slapp við beinbrot en fékk vatn í
lungu og er óðum að hressast.
Í vélinni er sætisbelti þótt ekki
hafi Tómas verið spenntur að þessu
sinni en segist þó oft nota beltin,
t.d. í snjómokstri.
Þegar hann hafði stöðvast á vél-
inni í briminu 10 metrum neðan við
vegkantinn hófust strax snarpar
björgunaraðgerðir við slæmar að-
stæður. Svanur, sonur Tómasar,
bjargaði föður sínum út úr vélinni
og kom honum á land ásamt björg-
unarsveitamönnum og fleiri Ólafs-
víkingum og var hætt kominn sjálf-
ur þegar hann tók út með öldunum
og lamdist utan í klappirnar.
Þeir feðgar komu til Ólafsvíkur á
fimmtudag og var vel fagnað af
vinum og vandamönnum með blóm-
um og árnaðaróskum. Tómas segir
móttökurnar á Landspítalanum
ekki hafa verið síðri, enda þjón-
ustan þar eins og best verði á kosið
að hans mati. „Þetta var eins og
heima hjá manni á jólunum,“ segir
hann.
Af hjólaskóflunni er það að segja
að hún er komin á þurrt og virðist
ekki alvarlega skemmd eftir sjó-
baðið.
Tómas Sigurðsson gröfustjóri eftir vinnuslys við Ólafsvíkurenni
„Þetta var alveg
hrikalegt útlit“
Morgunblaðið/Alfons
Viðburðarík vika eftir miklar hremmingar er nú að baki hjá feðgunum
Svani Tómassyni og Tómasi Sigurðssyni frá Ólafsvík.
VEGNA ábendinga um að börn og
unglingar séu að sniffa kveikjara-
gas til að komast í vímu vill Holl-
ustuvernd ríkisins vekja athygli á
takmörkun á sölu slíks gass. Einn-
ig er vakin athygli á því að gasið er
stórhættulegt og hefur leitt til al-
varlegra slysa, jafnvel dauðaslysa.
Bannað er að selja gasið í al-
mennum verslunum, lofttegundirn-
ar bútan, þar með talið ísóbútan og
própan, í ílátum sem ætluð eru til
áfyllingar á kveikjara. Kveikjara-
gas má því aðeins selja á bens-
ínstöðvum og öðrum sérverslunum
og eingöngu þeim sem eru orðnir
18 ára.
Bannað að
selja kveikj-
aragas í
almennum
verslunum
GUÐJÓN Ólafur Jónsson, for-
maður kjördæmissambands
Framsóknarflokksins í Reykja-
víkurkjördæmi suður, hefur
ákveðið að taka ekki þátt í
ákvörðun stjórnar sambands-
ins um skipan uppstillingar-
nefndar eða störfum hennar að
öðru leyti þar til nefndin hefur
lokið störfum.
Guðjón Ólafur sendi frá sér
yfirlýsinu þessa efnis, þar sem
jafnframt kemur fram að nafn
hans hafi um nokkurt skeið
ítrekað verið nefnt í tengslum
við framboð fyrir Framsóknar-
flokkinn í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður. Hann hafi ekki
tekið ákvörðun um framboð en
hafi ákveðið að koma ekki að
fyrrnefndum málum til þess að
uppstillingarnefnd flokksins í
kjördæminu njóti fyllsta
trausts í störfum sínum.
Formað-
urinn kem-
ur ekki
að málum
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA telur Guðmund
Hallvarðson, stjórnarformanns Hrafnistu,
ganga nokkuð langt í gagnrýni sinni á ráðu-
neytið fyrir stefnuleysi í daggjöldum vist- og
hjúkrunarheimila enda telji hann þennan mála-
flokk vera einn þann mikilvægasta sem hann og
ráðuneytið fáist við.
Í viðtali í Morgunblaðinu gagnrýndi Guð-
mundur ráðuneytið m.a fyrir takmarkaðan
áhuga á samvinnu við Hrafnistu um lausn á
vistunar- og hjúkrunarvanda aldraðra.
Mikið unnið í
málefnum aldraðra
„Mér finnst Guðmundur reiða nokkuð hátt til
höggs,“ segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra, „ekki síst þegar tekið er mið af sam-
skiptum ráðuneytisins við þessar stofnanir upp
á síðkastið. Staðreyndin er sú að við höfum lagt
mikla vinna í þennan málaflokk síðastliðið ár og
m.a. gefið út skýrslu um öldrunarmál til þess
að meta þörfina en skýrslan er nauðsynleg til
þess að menn geti gert sér góða grein fyrir
stöðunni í heild. Í annan stað höfum við stöðugt
verið að vinna í því að leiðrétta og fá fjármagn
til þess að leiðrétta daggjöld bæði á dvalar- og
hjúkrunarheimilum. Við höfum einsett okkur að
ljúka þeirri vinnu fyrir aðra umræðu fjárlaga
og það eru þegar komnar inn verulegar upp-
hæðir í fjárlög og fjáraukalög til þess að leið-
rétta þessi gjöld.“
Ekki áhugaleysi
Jón telur ekki skorta áhuga af hálfu ráðu-
neytisins. Sjálfseignarstofnanir í öldrunarmál-
um hafi stofnað með sér samtök og hann hafi
nú í tvígang á nokkrum vikum átt fundi með
forystumönnum þeirra samtaka. „Ég hef lagt
áherslu á að þeir séu í sem bestu sambandi við
fjármáladeild heilbrigðisráðuneytisins vegna
þessara mála. Þar að auki höfum við tekið þátt
í starfi samráðsnefndar aldraðra og höfum þar
verið að ræða stofnkostnaðarmálin. Það mál
höfum við haft til meðferðar hér í ráðuneytinu
en það er einmitt verið að reyna að fá fjármagn
í þau. Þannig að ég kannast alls ekki við áhuga-
leysi, hvorki mitt né ráðuneytisins, á þessum
málaflokki undanfarna mánuði.“
Jón segist ekki vilja elta ólar við fullyrðingar
um fortíðina eða hvað mönnum hafi farið á milli
á árum áður. „Ég tel þennan málaflokk einn af
mikilvægustu málaflokkum hér í ráðuneytinu
og við höfum lagt í það mikla vinnu að reyna að
tryggja það fjármagn sem þarf til þess að leið-
rétta daggjöldin þannig að þessar stofnanir séu
á rekstrarhæfum grundvelli. Ég tel,“ heldur
ráðherra áfram, „að við Guðmundur séum sam-
herjar í því efni og finnst hann því reiða nokk-
uð hátt til höggs í Morgunblaðinu.“
Heilbrigðisráðherra telur ummæli um stefnuleysi í daggjaldamálum ómakleg
Segir reitt hátt til höggs
EKKI verður farið í uppbyggingu
hálendisvega fyrr en lokið er frá-
gangi vega á láglendi að ferða-
mannastöðum. Þetta kom meðal
annars fram í máli Sturlu Böðvars-
sonar samgönguráðherra á sam-
gönguþingi Samtaka sveitarfélaga
sem haldið var á Hótel Selfossi í gær.
Ráðherra sagði einnig að helsta
verkefni í samgöngumálum á Suður-
landi væri úrbætur í samgöngum til
Vestmannaeyja og að beðið væri nið-
urstöðu starfshóps sem ynni að út-
tekt og áætlun um bættar sam-
göngur til langs tíma milli lands og
Eyja. Nýtt skip þyrfti að taka til
allra öryggisþátta og þeir þættir
yrðu væntanlega í tillögum starfs-
hópsins.
Í ávarpi Sturlu kom einnig fram að
Selfossflugvöllur yrði mögulega fyr-
ir valinu varðandi flutning æfinga-
og kennsluflugs frá Reykjavíkur-
flugvelli. Góðir möguleikar væru fyr-
ir flugvöllinn til aukinna verkefna
vegna góðra tengsla við Vestmanna-
eyjar og við samgöngunet landsins.
Niðurstöðu vegna flutnings æfinga
og kennsluflugs frá Reykjavíkur-
flugvelli er að vænta bráðlega.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ávarpar samgönguþingið.
Æfinga- og kennsluflug
mögulega til Selfoss
LÖGÐ hefur verið inn um-
sókn til samgönguráðuneytis-
ins um leyfi til að reka nýja
ferðaskrifstofu og er umsókn-
in nú til skoðunar.
Að umsókninni stendur fé-
lag í eigu Helga Jóhannsson-
ar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Samvinnuferða-Land-
sýnar, og Gunnars Fjalars
Helgasonar hagfræðings og
Þorsteinn Guðjónsson við-
skiptafræðingur. Helgi segir
að ráðgert sé að bjóða innan
skamms upp á orlofsferðir
innanlands í samvinnu við
stéttarfélög.
„Við viljum afsanna þá
hjátrú að Íslendingar geti
ekki farið í frí innanlands,“
sagði hann. Um frekari fram-
hald á starfsemi félagsins
sagðist Helgi ekki vilja tjá sig
meðan umsóknin væri enn
óafgreidd. „Það fellur örugg-
lega ýmislegt skemmtilegt
til,“ sagði hann.
Helgi Jóhannsson
Sækir um
leyfi til
að reka
ferða-
skrifstofu