Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Átti aldrei að vera fámen M eð lögreglulög- um, sem tóku gildi 1. júlí 1997, var sett á fót embætti ríkislög- reglustjóra og um leið var Rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður. Hlutverk rík- islögreglustjóra er margþætt. Hon- um ber að kynna lögreglustjórum boð og ákvarðanir æðstu handhafa ríkisvaldsins sem snerta starfsemi lögreglunnar og fylgjast með að þeim ákvörðunum sé fylgt. Hann hefur upplýsingaskyldu um málefni lögreglunnar gagnvart dómsmála- ráðherra og gerir tillögur til ráð- herra um fyrirmæli til lögreglu- stjóra, vinnur að hagræðingu, samræmingu, framþróun og öryggi í starfsemi lögreglunnar, annast al- þjóðasamskipti á sviði löggæslu og veitir lögreglustjórum aðstoð og stuðning í lögreglustörfum. t.d. við rannsókn alvarlegra brota. Emb- ættið hefur með höndum samræm- ingu eða miðstýringu starfa lög- reglu og stýrir verkefnum sem kalla á viðamikinn undirbúning eða þátttöku lögreglumanna úr fleiri en einu umdæmi. Þá heldur embættið málaskrá og er úrvinnsla tölfræði- legra gagna verulegur þáttur í starfseminni. Auk þessara starfa hefur emb- ætti ríkislögreglustjóra sérstök verkefni. Þar eru rannsökuð skatta- og efnahagsbrot, landráð og brot gegn æðstu stjórn ríkisins, emb- ættið skráir upplýsingar um lög- reglumálefni og hefur umsjón með bíla- og tækjakaupum lögreglu. Starfsemin er umfangsmikil og verður ekki öll tíunduð hér. Lögregla nýtur trausts almennings Haraldur Johannessen hefur gegnt embætti ríkislögreglustjóra frá 1. febrúar 1998, en áður var hann fangelsismálastjóri frá stofn- un Fangelsismálastofnunar ríkisins 1. október 1988 og þar til í upphafi árs 1997 að hann hóf undirbúning að starfi embættis varalögreglu- stjóra í Reykjavík. Því gegndi hann frá 1. júlí 1997 og þar til hann tók við af Boga Nilssyni sem ríkislög- reglustjóri. Nýtt fimm ára skipun- artímabil Haraldar hefst 1. febrúar á næsta ári. Haraldi er ofarlega í huga það traust, sem almenningur ber til lög- reglunnar. „Gallup hefur mælt af- stöðu almennings til ýmissa stofn- ana í Þjóðarpúlsi sínum undanfarin ár. Í niðurstöðum mælinga á þessu ári, sem birtar voru í apríl, kom í ljós að frá 1997 hefur traustið til lögreglu aukist um sjö prósentustig og er nú 71%. Háskóli Íslands nýt- ur einn stofnana meira trausts en lögreglan, en alþingi, dómskerfið, heilbrigðiskerfið og þjóðkirkjan njóta ekki trausts í sama mæli. Lögreglulögin tóku gildi um mitt ár 1997 og frá þeim tíma hefur traust almennings á lögreglunni vaxið jafnt og þétt. Ég fullyrði ekki að þarna séu bein tengsl á milli, en breytingin á skipulagi lögreglunnar hefur að minnsta kosti ekki leitt til þess að traust almennings á lög- reglu hafi minnkað.“ – Telur þú að sú miðstýring, sem komið var á í málefnum lögregl- unnar með stofnun embættis rík- islögreglustjóra, eigi sinn þátt í auknu trausti á störfum hennar? „Ég vona að embættið eigi þarna einhvern hlut að máli og einnig að almenningur, sem og lögreglumenn, líti svo á að nú séu gerðar ríkari kröfur um fagleg vinnubrögð lög- reglu. Að sama skapi vona ég að um- fjöllun um lögreglumál verði smám saman faglegri og málefnalegri, en mér finnst stundum sem stjórnmál blandist um of inn í slíka umfjöllun. Við höfum, sérstaklega á undanförn- um vikum og misserum, þurft að svara ýmsum fullyrðingum sem sett- ar hafa verið fram um starfsemi lög- reglunnar og þessa embættis sér- staklega, og það höfum við reynt að gera með málefnalegum hætti. Hægt og sígandi breytist umræðan von- andi. Ef hún er ekki á málefnalegum grunni er grafið undan lögreglunni í landinu og um leið öryggi borgar- anna. Hér duga engir sleggjudóm- ar.“ – Hvernig getur lögreglan brugð- ist við því sem þú kallar ómálefna- lega gagnrýni á vinnubrögð henn- ar? „Lögreglan á ekki hægt um vik þegar vinnubrögð hennar við rann- sókn mála eru gagnrýnd. Hún á skiljanlega erfitt með að verjast í málum þar sem þess er beinlínis krafist, bæði að lögum og sam- kvæmt siðferðisvitund almennings, að lögreglan tjái sig ekki um hvað sem er opinberlega. Almenningur verður að geta treyst því að vitn- eskja lögreglunnar berist ekki út úr stofnunum hennar, eða frá einstaka lögreglumönnum. Það er stutt á milli frétta og slúðurs og almenn- ingur á heimtingu á að lögreglan fari með upplýsingar lögum sam- kvæmt. Ef lögreglan bregst því trúnaðartrausti, þá grefur hún sína eigin gröf.“ Nýlega gaf ríkislögreglustjóri út leiðbeiningar um samskipti lögreglu við fjölmiðla, sem lögreglustjórum er ætlað að fara eftir. „Mikilvægt er að samskipti lögreglu og fjöl- miðla séu góð. Leiðbeiningarnar gera greinarmun á hvernig lögregl- an getur aðstoðað fjölmiðla og veitt upplýsingar um mál og því hvað á að liggja í þagnargildi og á ekki er- indi til almennings. Lögreglan fær oft á tíðum upplýsingar sem eru þess eðlis að við fyrstu sýn mætti ætla að tilefni væri til rannsóknar máls. Síðar kemur í ljós að tilefnið er ekkert og þá er betra að hafa veitt minni upplýsingar en meiri. Lögreglan hefur þó að sjálfsögðu ákveðnar skyldur um upplýsinga- gjöf til fjölmiðla og þar með al- mennings.“ Leiðbeiningar á landsvísu um samskipti fjölmiðla og lögreglu hafa ekki verið til áður, en ríkislögreglu- stjóri skipaði nefnd, með aðild Blaðamannafélags Íslands, til að vinna þær. Þær eru aðgengilegar á lögregluvefnum, www.rls.is, þar sem lögregla kemur gjarnan upp- lýsingum á framfæri. „Lögreglan hefur eðlilega þurft að aðlaga sig breyttum fjölmiðla- heimi, eins og frekast er kostur. Auðvitað vilja fjölmiðlamenn marg- ir vita hvaðeina sem lögreglan veit, en ég held að best sé að fara var- lega í þeim efnum.“ Lögreglan ein megin- stoð réttarríkisins – Embætti ríkislögreglustjóra hefur verið gagnrýnt í tengslum við rannsóknir á umfangsmiklum og viðkvæmum málum, s.s. hinu svo- kallaða Baugsmáli og máli Árna Johnsens. Í Baugsmálinu var m.a. sagt að viðskiptahagsmunum fyr- irtækisins væri ógnað vegna fram- göngu lögreglunnar gegn forsvars- mönnum fyrirtækisins. „Ég hef vissulega orðið var við að einhverjir telji að ríkislögreglu- stjóri eigi ekki að rannsaka meintar sakargiftir í þessu svokallaða Baugsmáli, heldur taka tillit til markaðssjónarmiða og sérhags- muna fyrirtækja. Mér finnst þetta afar sérkennilegur málflutningur. Ef lögreglan er í þeirri stöðu að meta hvaða mál hún á að rannsaka út frá slíkum sjónarmiðum, þá er réttarríkið í uppnámi. Þá er lög- reglan í þeim sporum að huga að því hvort um sé að ræða hina ríku og áhrifamiklu, eða þá sem minna mega sín. Og þá erum við jafnvel farin að tala um pólitík hinna ráð- andi afla í þjóðfélaginu. Ef unnið er á þessu hála svelli, þá er engin lög- regla til sem stofnun lengur og ekk- ert réttarríki. Hér er rík lýðræð- ishefð og þingræðishefð, en ekki hvað síst réttlætiskennd og rétt- arríkisvitund. Við búum í landi þar sem dómstólar eru sjálfstæðir, embætti ríkissaksóknara er sjálf- stætt og lögreglan er ein af grund- vallarstoðum réttarríkisins. Ef hún hagar störfum sínum í þá veru sem ég lýsti, þá hrynur ein af meg- instoðum réttarríkisins. Á meðan ég sit í embætti mun ég reyna allt til þess að lögreglan verði áfram sterk og sjálfstæð. Embættið var einnig gagnrýnt í máli Árna Johnsen, fyrrverandi al- þingismanns. Þá heyrði ég að vísu aldrei sjónarmið í þá veru að lög- reglan skyldi ekki rannsaka sak- argiftir á hendur honum, heldur að embættið hefði kannski átt að tak- marka sig og ekki ganga jafnlangt og raunin varð á í niðurstöðu ákæruvaldsins. Umræðan um störf lögreglunnar er því oft sérkennileg, en ég held að langflestir landsmenn sjái í gegnum þetta og átti sig á að hún er harla ómálefnaleg, svo ekki sé meira sagt. Það verður að hafa í huga að allir eru jafnir fyrir lög- unum. Þannig er það í reynd, þótt ýmsir vilji halda því fram að þessu sé á annan veg farið. Eftirlitsstofn- anir ríkisins eru enda með því móti að enginn embættismaður kæmist upp með slíka misnotkun. Ég undr- ast því þegar fólk setur fram þær kenningar, í fullri alvöru, að lög- reglan misbeiti valdheimildum sín- um með slíkum hætti.“ – Hafa breytingar á skipulagi lögreglunnar gengið að óskum frá því að embætti ríkislögreglustjóra var stofnað? „Já, en hafa ber í huga að lög- reglan er í eðli sínu íhaldssöm stofn- un og nokkuð langan tíma tekur að gera breytingar innan hennar, miðað við einkafyrirtæki eða ýmsar aðrar opinberar stofnanir. Það ber líka að líta til þess að ekki er endilega skyn- samlegt að gera snöggar og illa und- irbúnar breytingar á starfi lögreglu, því ekkert má fara úrskeiðis. Þær breytingar sem hafa orðið hafa verið vel ígrundaðar. Hins vegar líta ýmsir innan lögreglunnar svo á að breyt- ingarnar sem urðu með lögreglulög- unum séu aðeins fyrsti áfangi í nokk- uð löngu ferli. Við höfum fylgt þróun löggæslumála á Norðurlöndunum og sótt fyrirmyndir þangað, einkum til Noregs og Danmerkur. Þar er fyr- irkomulagið með þeim hætti að nán- ast öll verkefni lögreglunnar eru á hendi ríkislögreglustjóra. Í Noregi eru sérstakir lögreglustjórar undir norska ríkislögreglustjóranum og fara ekki með annan starfa. Hér á Rúm fimm ár eru frá stofnun embættis ríkislög- reglustjóra og tæp fimm ár frá því að Haraldur Johannessen var skipaður ríkislögreglustjóri. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við Harald um traust almennings á lögreglunni, ómálefnalega umræðu, Baugsmálið, hugmyndir um breytt skipulag lögreglustjórnar, afbrotagreiningu og uppbyggingu embættisins. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri: „Ég hef aldrei verið varðhundur fyrir ríkisstofnanir, en reynt að ganga þannig til verka að ég þurfi ekki að skammast mín að loknum vinnudegi.“ Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri segir uppbyggingu embættisins hafa gengið að óskum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.