Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Styrkur til námsmanna
Steinsteypufélag Íslands stefnir að því að veita árlega, á
Steinsteypudegi, 1—2 styrki til námsmanna sem vinna að
lokaverkefnum í tækniskóla eða að meistara- eða doktorsverkefnum
í háskóla. Áskilið er, að verkefnin fjalli um grunnrannsóknir á
steinsteypu eða rannsóknir tengdar notkun steinsteypu, sem a.m.k.
að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við
íslenskar aðstæður.
Hér með er auglýst eftir umsóknum og skal þeim skilað fyrir
15. desember ár hvert til Steinsteypufélags Íslands,
Suðurhrauni 6, 210 Garðabæ, eða með tölvupósti til
steinsteypufelag@steinsteypufelag.is.
Í umsókn skal koma fram nafn umsækjanda, heiti verkefnis ásamt
ítarlegri lýsingu, heiti stofnunar sem verkefnið er unnið við og
nafn/nöfn leiðbeinanda.
Frekari upplýsingar veitir Leó Jónsson
í síma 585 5044 eða 860 5044.
Steinsteypufélag Íslands.
BORÐ og tveir stólar sem banda-
ríski listamaðurinn Donald Judd
hannaði og lét smíða úr maghony
árið 1988, seldust fyrir rúmar 25
milljónir króna á uppboði hjá
Christie’s í fyrrakvöld.
Judd, sem lést árið 1994, var
einn af frumherjum listhreyfingar
sem kennd hefur verið við míni-
malisma. Samhliða því að vinna
myndverk hannaði hann húsgögn
og byggingar. Judd gerði grein-
armun á listaverkum og hús-
gögnum, sem hann hannaði með
notagildið í huga. Engu að síður
voru borðið og stólarnir á upp-
boði á samtímalist og seldust hátt
yfir matsverði, sem var um tíu
milljónir króna.
Húsgögnin voru meðal þeirra
fyrstu sem Judd lét smíða eftir
þessari hönnun og er borðið árit-
að af listamanninum.
Listaverk Judds seldust talsvert
yfir matsverði á uppboðum
Christie’s og Southeby’s á sam-
tímalist sem fóru fram í New
York í vikunni.
Borð og tveir stólar sem bandaríski myndlistarmaðurinn Donald Judd
hannaði og lét smíða árið 1988 seldust á uppboði hjá Christie’s í fyrrakvöld
fyrir rúmar 25 milljónir króna.
Borð og stólar á
25 milljónir króna REYKJAVÍK Dansfestival hófhátíð sína á fimmtudaginn var. Að
hátíðinni standa að þessu sinni sjö
danshöfundar. Höfundarnir eiga það
sameiginlegt að vera sjálfstætt
starfandi og er markmiðið að skapa
sjálfstætt starfandi danshöfundum
vettvang til kynningar á verkum sín-
um.
Fyrsta kvöldið samanstóð af
þremur dansverkum eftir þau Ást-
rósu Gunnarsdóttur, Cameron Cor-
bett og Sveinbjörgu Þórhallsdóttur.
Verk Ástrósar Gunnarsdóttur
hefst á tónum úr óperu eftir Verdi.
Niður úr loftinu hanga rauðir kaðlar
og dansarinn, Emelía Benedikta,
hreyfir sig mjúklega um sviðið undir
viðkvæmum söngnum. Verkið er
sjónrænt og stílfast.
Lýsingin ýkir rauða litinn í köðl-
unum í mótvægi við grámann í um-
hverfinu og í búningi dansarans. Það
er óperusöngurinn sem ákvarðar
túlkun tilfinninga í verkinu. Fallegt
hreyfiflæði er í því sem skapast af
hreyfingum dansarans svo og sveifl-
um kaðlanna. Kaðlarnir eru ekki
nýttir á nýstárlegan máta og þjóna
fremur þeim tilgangi að skreyta
verkið. Ekki reynir mikið á þolrif
dansarans þar sem dansgerðin er
fremur einföld. Emelía skilaði sínu
hlutverki engu að síður vel og er
óhætt að segja að hún eigi framtíðina
fyrir sér.
Skin er byggt upp á einfaldan
máta en það takmarkast af því að
vera stílfast. Dansgerð og leikmynd
annarsvegar og óperusöngurinn
hinsvegar eru af ólíkum meiði, bæði
afgerandi á sinn hvorn mátann og ná
ekki að styðja hvort annað. Engar
upplýsingar lágu fyrir um hvað var
sungið en verkið er augljóslega hlað-
ið trega. Þetta var áferðarfallegt
verk og um margt skemmtilegt
áhorfs.
Solo2 eftir Cameron Cor-
bett samanstendur af tveim-
ur dans- og tónlistarköflum.
Fyrri kaflinn er saminn
við hljóð af rennandi vatni.
Hreyfingar sem efri hluti
líkama dansarans fram-
kvæmir má einna helst líkja
við hreyfiflæði sem tekur
engan enda. Seinni hlutinn
er saminn við tónlis J.S. Bach
og færast hreyfingarnar í all-
an líkamann. Kaflarnir tveir
runnu ljúflega saman í eina
heild í meðförum höfundar/
dansara. Corbett hefur yfir-
vegaða nærveru og ró á sviði. Hreyf-
ingar hans voru vel mótaðar og er
augljóslega fagmaður á ferð.
Verkið var vel uppbyggt. Þetta tíu
mínútna langa dansverk var sjón-
rænn konfektmoli sem fyllti vitin og
hélt alveg til enda.
Rúsínan í pylsuendanum var dans-
leikhúsverk Sveinbjargar Þórhalls-
dóttur, Rokstelpan. Á sviðinu eru
þrír einstaklingar; kona full gremju
sem prjónar í endaleysu. Hún er
klædd blóðrauðri pilsdrakt og hreyf-
ir sig stíf um sviðið. Í mótvægi við
hana er par sem dansar ljóðrænt
hvort í sínu lagi.
Dans þeirra er draumkenndur og
endurtekinn í sífellu. Þetta er mynd-
rænt, huglægt dansverk. Það síast
inn sem abstrakt og á mörkum þess
að vera raunverulegt. Textinn segir
til um hugarástand konunnar en
hana túlkar Harpa Arnardóttir. Hún
er föst í rokinu sem er í huga hennar.
Rokið tengist ástinni sem Jóhann
Freyr og Sveinbjörg túlka í dansi.
Tengingin milli konunnar annars-
vegar og parsins hinsvegar var óljós
og opin til túlkunar.
Mörkin voru óskýr sem hentaði
verkinu vel og ýtti undir óraunveru-
leika þess. Parið gat verið að túlka
fortíðina sem konan eða rokstelpan
rifjaði upp. Sársaukafullur hugar-
heimur þar sem spáð er í fortíðina.
Persónurnar voru ýktar í verkinu.
Þær voru jafnframt einangraðar á
sviðinu og létu eins og þeim kæmi
nærvera hvorrar annarar ekki við.
Þær voru óraunverulegar á köflum
eins og þær væru ekki lífs. Þakkar-
ræða konunnar minnti á miðil sem er
með annan fótinn í okkar heimi, hinn
hinum megin. Vatnshljóðið ýtti undir
hráslagaleikann og rokið undir átak-
anlegt hugarástandið. Flytjendum
tókst að endurspegla þetta hugar-
ástand rokstelpunnar á sviðinu. Þau
gerðu verkið abstrakt, jafnvel abs-
úrd á köflum án þess að það yrði
ruglingslegt. Þetta var athyglisvert
og vel unnið dansverk.
Reykjavík Dansfestival saman-
stendur af ólíkum danshöfundum.
Höfundum með mismikla reynslu
sem eiga það sameiginlegt að vera
sjálfum sér trúir.
Dansverk þeirra bera þess glöggt
merki. Reykjavík Dansfestival er
allrar athygli vert.
Merkis-
viðburður í
danslistinni
LISTDANS
Tjarnarbíó
Skin: Höfundur: Ástrós Gunnarsdóttir.
Dansari: Emelía Benedikta. Tónlist:
Verdi. Leikmynd: Rebekka Rán Samper.
Lýsing: Kári Gíslason. Tjarnarbíó 14.-17.
nóvember.
REYKJAVÍK DANSFESTIVAL
Reykjavík Dansfestival samanstendur af
ólíkum danshöfundum. Höfundum með mis-
mikla reynslu sem eiga það sameiginlegt að
vera sjálfum sér trúir. Úr verki Ástrósar
Gunnarsdóttur, Skin.
Lilja Ívarsdóttir
Solo2: Höfundur: Cameron Cor-
bett. Dansari: Cameron Cor-
bett. Tónlist: Trevor Wishart,
J.S. Bach. Lýsing: Kári Gísla-
son.
Rokstelpan: Höfundur: Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir. Dansarar/leikarar: Harpa
Arnardóttir, Jóhann Freyr Björgvinsson,
Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Leikstjórn:
Sveinn Geirsson, Sveinbjörg Þórhalls-
dóttir. Tónsmíð: Matthías Hemstock.
Texti: Elísabet Jökulsdóttir. Rödd og
spuni: Tena Palmer. Búningar: Hildur Haf-
stein. Lýsing: Kári Gíslason.