Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 29
GUNNAR Þórðarson heldur tón-
leika á Hótel Selfossi í kvöld,
sunnudag, kl. 21 ásamt hljómsveit
og söngvurum. Hljómsveitina
skipa Sigfús Óttarsson, trommur,
Haraldur Þorsteinsson, bassi,
Þórir Úlfarsson, píanó, Jón Kjell
Seljeseth, hljómborð, auk Gunn-
ars sem leikur á gítar. Söngvarar
eru Hjördís Elín Lárusdóttir,
Guðrún Árný Karlsdóttir og
Kristján Gíslason. Á efnisskrá eru
lög eftir Gunnar sem spanna 40
ára feril, „þekkt lög og óþekkt,
hröð og róleg, döpur og glaðleg,“
eins og Gunnar kemst sjálfur að
orði.
Tónleikarnir standa í tvo
klukkutíma, með hléi.
Tónleikarnir eru liður í tón-
leikaferð Gunnars um landið. „Ég
er búinn að vera með konserta á
Hólmavík, Keflavík, Stykk-
ishólmi, Akranesi og Akureyri og
fer víðar á næstu vikum,“ segir
Gunnar.
Gunnar Þórðarson
leikur á Selfossi
Morgunblaðið/Jim Smart
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar verður á Selfossi í kvöld.
Nútímadanshátíð stendur yfir í
Tjarnarbíói og lýkur í dag. Tvö verk
verða flutt kl. 17: Rosered eftir Jó-
hann Frey Björgvinsson og Í draumi
eftir Nadiu Katrínu Banine.
Eitt verk kl. 20.30: Bylting hinna
miðaldra eftir Ólöfu Ingólfsdóttur
og Ismo-Pekka Heikinheimo.
Bíósalur MÍR Kvikmyndin Tund-
urskeytaflugsveitin verður sýnd kl.
15. Myndin er frá árinu 1983, byggð
á stríðsfrásögnum rússneska rithöf-
undarins Júrí Germans og segir frá
lífi og hernaðaraðgerðum sovéskra
flugsveita á norðurslóðum í seinni
heimsstyrjöldinni. Höfundur töku-
rits Svetlana Karmalita, leikstjóri
Semjon Aranovits. Skýringar með
myndinni á ensku. Aðgangur er
ókeypis.
Opnuð hefur verið sýning í félags-
heimili MÍR, Vatnsstíg 10, á mynd-
verkum eftir hvít-rússnesku lista-
konuna Alenu Los. Um er að ræða
15 myndir, grafík og bókaskreyt-
ingar, en Alena Los hefur um langt
skeið verið þekktust í heimalandi
sínu fyrir myndskreytingar sínar í
þjóðsagna-, ævintýra- og barnabók-
um. Sýningin verður opin til jóla á
sunnudögum, mánudögum og
þriðjudögum kl. 15–17.
Norræna húsið Danska barna-
myndin Hjálp! Ég er fiskur verður
sýnd kl. 14.
Börnin Plum, Svip og Stella eru á
ströndinni þegar þau villast inn í
helli þar sem hinn sérvitri prófessor
MacKrell gerir tilraunir sínar.
Leikstjórar eru Stefan Fjeldmark
og Michael Hegn. Handrit: Stefan
Fjeldmark og Karsten Kiilerich.
Hjallakirkja Douglas A. Brotchie
organisti leikur á orgelið kl. 17.
Flutt verður prelúdía og sálm-
forleikur eftir Dietrich Buxtehude,
sálmforleikir eftir Georg Böhm og J.
S. Bach, tvö tilbrigðaverk eftir Jean
Langlais. Þá flytur hann þrjá sálm-
forleiki yfir skosk sálmalög eftir
Robin Orr.
Kirkja Óháða safnaðarins, Há-
teigsvegi Jón Sigurðsson leikur á
píanó verk eftir J.S. Bach, R. Schu-
mann, S. Barber, M. Moszkowski og
A. Scriabin kl. 17.
Kl. 17.00 leikur Douglas A. Brotchie
organisti Háteigskirkju á orgel
Hjallakirkju í Kópavogi.
Douglas leikur prelúdíu og sálm-
forleik eftir Dietrich Buxtehude,
sálmforleiki eftir Georg Böhm og J.
S. Bach, tvö tilbrigðaverk eftir
Jean Langlais og þrjá sálmforleiki
yfir skosk sálmalög eftir Robin Orr.
Þriðjudaginn 19. nóvember heldur
Trausti Valsson skipulagsfræð-
ingur heldur fyrirlestur í hádeg-
isfundaröð Sagnfræðingafélags Ís-
lands í Norræna húsinu kl. 12.05–13.
Erindið, sem haldið er í samstarfi
við Borgarfræðasetur, nefnist
„Skipulag byggðar á Íslandi. Út-
koma yfirlitsrits“. Trausti mun
kynna helstu niðurstöður úr nýrri
bók sinni sem nefnist Skipulag
byggðar á Íslandi. Frá landnámi til
líðandi stundar.
Trausti Valsson er prófessor við
verkfræðideild HÍ. Hann lauk námi
af skipulagslínu arkitektadeildar TU
í Berlín 1972 og starfaði síðan um
nokkurra ára skeið við Þróun-
arstofnun Reykjavíkurborgar, m.a.
við grænu byltinguna og gerð að-
alskipulags fyrir Úlfarsfellssvæðið.
Hann lauk doktorsprófi í umhverf-
isskipulagi frá UC Berkeley 1987.
Trausti hefur gefið út níu bækur um
arkitektúr og skipulag, en auk þess
liggur eftir hann fjöldi tímarits-
greina.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Jóhann Freyr Björgvinsson
Á NÆSTUNNI