Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 39
Herra Jesú hjá mér ver
hallar degi rökkva fer
Leið þú mig er ljósið dvín
líka þegar sólin skín.
(V.V. Snævarr.)
Á sjöunda áratug síðustu aldar
var umhverfið kargt á Kópavogs-
hálsinum þar sem ungur drengur
sleit barnsskóm. Mold og melar og
vart stingandi strá. Fyrir drenginn
unga var það líkast ævintýri að
fljúga austur til Egilsstaða til afa
og ömmu. Á flugvellinum beið afi.
Ferðataskan varð ógnarsmá kom-
inn upp á pallinn á stóra Scanian-
um. Á grösugu Héraðinu uxu tré,
meira að segja skógur. Og mann-
lífið litaðist af allri þessari grósku
og veðurblíðunni rómuðu. Birkihlíð
var eitt af fyrstu íbúðarhúsunum
sem reist var í þorpinu. Það var fal-
legt hús, reisulegt og snyrtilegt og
bar vitni myndarbrags og metnað-
ar. Þar voru vistarverur margar,
gestir og gangandi velkomnir og í
mörg horn að líta. Staður ömmu
var í stóru eldhúsinu og óvenju
stóru þvottahúsi, en þar var sér-
stök lykt sem endurspeglaði hið
margþætta hlutverk þvottahússins.
Á hlaðinu í Birkihlíð dittaði afi að
vörubílum sínum undir lyktar-
synfóníu dísilútblásturs og koppa-
feiti. Í stofunni í Birkihlíð var ein-
hver stemmning, menningar-
stemmning. Forláta grammófónn
fyllti stofuna af tónlist sem kitlaði
tónnæmt eyra. Orgelið hafði yfir
sér dulúð og var tákn tónlistar-
menningarinnar sem var órjúfan-
legur hluti lífsins í Birkihlíð.
Afi og amma settust síðar að í
vesturbænum í Reykjavík, fluttu af
æskuslóðum sínum til að setjast að
í nágrenni við afkomendur sína.
Þau bjuggu sér hlýlegt heimili sem
ekki hafði eins margar vistarverur
og Birkihlíð. Lyktin af þvottahúsi,
dísilútblæstri og koppafeiti til-
heyrðu sögunni.
Afi var hár og grannvaxinn,
ávallt teinréttur í fasi, hægur, með
þýðan bassaróm og reykti pípu sem
lyktaði vel. Amma hafði þann
mjúka faðm sem bara ömmur
höfðu, hún var húsmóðirin sem
stjanaði við gesti. Hún var stál-
minnug, með mikinn áhuga á ætt-
fræði og bjó yfir mikilli þekkingu á
því sviði. Bæði voru þau trúuð. Afi
þjónaði kirkjunni árum saman með
orgelleik og kórstjórn í kirkjum á
Héraði. Amma komin frá heimili
þar sem guðstrúin átti ríkan sess,
enda hafði hún gjarnan þann fyr-
irvara á flestu sem snerti framtíð-
ina og lýsti lotningu hennar fyrir
lífinu: „ef Guð lofar“. Ungur dreng-
ur sem fyrrum flaug austur, settist
ungur maður á skólabekk þar sem
stutt var að koma við á Hjarðar-
haganum og þiggja mat eða kaffi
og njóta hlýju og hvatningar. Há-
tíðarstundir fjölskyldunnar voru
hátíðlegar, afi spilaði á orgelið og
söng undir með sinni þýðu bassa-
rödd og amma vissi upp á hár núm-
er sálmanna bæði í nýju og gömlu
sálmabókinni.
Ævikvöldið bjuggu þau í þjón-
ustuíbúðum við Dalbraut þar sem
þau nutu öryggis og einstakrar um-
hyggju starfsfólksins alls, um-
hyggju sem seint verður þökkuð.
Minningin mun lifa sem ljós á
lífsvegi okkar sem eftir lifum.
Jón Steinar.
Við eigum telpu með augun blá,
með engillokka er silkigljá –
og nebbakörtu
sem væna vörtu.
Ó, viltu sjá.
(Valdemar V. Snævarr.)
Fyrir stuttu sat ég við rúmstokk
ömmu minnar. Er hún skynjaði
nærveru mína heyrði ég hana fara
með ljóðlínur. Ég teygði mig í
ljóðabók langafa sem stóð á org-
elinu og fann ljóðið um telpuna með
bláu augun og engillokkana. Ég las
öll erindi ljóðsins upphátt og það
var augljóst að amma naut lesturs-
ins. Það hvíldi yfir henni ró og hún
sagði stolt: „Þetta samdi pabbi um
mig.“ Ég horfði á myndina fyrir of-
an rúm hennar, mynd af lítilli fal-
legri stelpu með ljósa lokka. Þó að
mynd mín af ömmu sé önnur er hún
ekki síður falleg. Hún er af ömmu
sem ávallt var til staðar, hafði næg-
an tíma til að hlusta, átti hlýjan
faðm, virti skoðanir mínar og var
stolt af því sem ég tók mér fyrir
hendur. Hún kenndi mér að prjóna,
baka og strauja. Hún kenndi mér
að biðja. Hún hafði að geyma allt
sem góða ömmu prýðir og miklu
meira til.
Samverustundir okkar hafa allar
verið mér dýrmætar en ekki síst
þessi. Með sitt óbrigðula minni rifj-
aði amma upp atburði úr fortíð og
nútíð rétt eins og hún vildi að ég
fengi sýn á lífshlaup sitt. Ég skynj-
aði að hún var sátt og var tilbúin að
kveðja, tilbúin að fara á fund afa
Stefáns. Ég vissi að það var komið
að kveðjustund. Ég átti erfitt með
að yfirgefa ömmu en hún ýtti við
mér. Hún breiddi út faðm sinn, bað
okkur öllum guðs blessunar og
sagði svo: „Farðu nú heim til strák-
anna þinna.“
Ævi bláeygðu telpunnar með
engillokkana er nú lokið. Ég er
þakklát fyrir að hafa fengið að
fylgja henni í rúm 34 ár. Ég vil trúa
því að amma Laufey hafi fundið afa
Stefán á ný og að þau vaki yfir okk-
ur eins og þau hafa ávallt gert.
Bestu þakkir fyrir allt, elsku
amma.
Þín nafna
Laufey.
Ömmur eru ekki eilífar þó manni
finnist oft sem svo eigi að vera.
Ömmur eru eins og sólin. Alltaf til
staðar. Jafnvel þó að við finnum
ekki alltaf þörf til að nýta okkur
geislana sem frá þeim stafar.
Þannig var amma Lullú. Alltaf til
staðar fyrir börn sín, tengdabörn
og aðra niðja. Alin upp í nánast
öðrum heimi, á fyrri hluta 20 aldar,
þegar lífsbaráttan var harðari en
nú er. Heimavinnandi nánast allt
sitt líf með fremur lítinn áhuga á
því sem við myndum kalla lífs-
gæðakapphlaup. Nægjusöm. Lítil-
lát. Hjartahlý.
Nú er amma dáin. Hefur dvalið í
nokkur ár á Dalbraut við góða að-
hlynningu. Búin að vera heilsulítil
síðustu misserin en með sama
áhugann á því sem henni þótti dýr-
mætast, fjölskyldunni. Margur
kveður þetta líf með langa afreka-
skrá og háreista minnisvarða. Það
gerir amma ekki. Hún kveður
þessa tilveru hins vegar við mikinn
kærleik, hlýjar bænir og þökk allra
sem þekktu.
Það voru forréttindi að eiga
ömmu Lullú.
Stefán Pétursson.
Fleiri minningargreinar
um Laufeyju Valdemarsdóttur
Snævarr bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
OPIÐ HÚS - BAKKAGERÐI 13
Mjög gott lítið einbýli ásamt stórum bílskúr í algerri „draumagötu“ í Smá-
íbúðahverfinu. Grunnflötur 80 fm, ris með 2 herbergjum og geymslu-
plássi. Bílskúr er 34 fm. Eign í góðu standi. Parket og flísar á stærstum
hluta hússins. Tvær bjartar og rúmgóðar stofur. Tvö svefnherbergi. Ris
panelklætt. Bílskúr frístandandi, einangraður að hluta.
Rafmagn í bílskúr. Lóð 462 fm. Leyfi er fyrir viðbygg-
ingu. Verð 18,4 millj.
Björgvin Ibsen Helgason hjá RE/MAX Þingholt sýnir
eignina í dag á milli kl. 14 og 16. Verið velkomin.
Björgvin Ibsen
Helgason
GSM 896 1945
Heimilisfang: Bakkagerði 13.
Byggingarár: 1957
Stærð: 80 fm og ris.
Bílskúr 34 fm.
Opið hús: Sunnud. 17. nóv.
kl. 14-16.
Skoðunartímar virka daga :
Þriðjud. og föstud.
kl. 18-20
í samráði við
Björgvin Ibsen.
Frekari upplýsingar:
www.thingholt.is
Sigurbjörn
Skarphéðinsson
lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS - VESTURGATA 35B
Mikið endurnýjað sérbýli, 128 fm hæð og ris ásamt 18 fm aukaíbúð. Fal-
legt gegnheilt parket o.fl. á gólfum. Rúmgóðar stofur og
eldhús, þrjú svefnherbergi í risi. Nýtt gler og gluggar,
lagnir endurnýjaðar. Stór sólpallur. Sögulegt hús, byggt
1902. Verð 18 millj. Áhvílandi hagstæð lán
Opið hús í dag, sunnudag, kl. 12 og 14. Þórður,
sölufulltrúi RE/MAX, sýnir húsið. Verið velkomin.
Þórður
Grétarsson
897 3640
Heimilisfang: Vesturgata 35b.
Byggingarár: 1902
Stærðir: 199-201 fm.
Opið hús: Sunnudag 17. nóv.
milli kl.12 og 14.
Frekari upplýsingar:
www.thingholt.is
Sigurbjörn
Skarphéðinsson
lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS - NAUSTABRYGGJA 43-49
Sýni í dag glæsileg og vönduð raðhús á sjávarlóð við smábáta-
höfnina í Bryggjuhverfi. Húsin verða afhent fullfrágengin að utan
með einangrun og innbrenndum lituðum álplöt-
um, fokheld að innan og frágenginni lóð.
Kristinn Gestsson hjá RE/MAX Þingholt, sími
694 1930, sýnir eignirnar í dag milli kl. 14 og
16.
Kristinn
Gestsson
694 1930
Heimilisfang: Naustabryggja 43-49.
Byggingarár: 2001
Stærðir: 199-201 fm.
Opið hús: Sunnudag 17. nóv.
milli kl.14 og 16.
Frekari upplýsingar:
www.thingholt.is
Sigurbjörn
Skarphéðinsson
lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS - HAGAMELUR 51
Góð 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð (í raun á 3. hæð) í fjölbýl-
ishúsi í vesturbænum. Húsið hefur allt verið ný-
lega tekið í gegn að utan. Stutt í sundlaug,
skóla og verslun.
Guðmundur Valtýsson hjá RE/MAX Þingholti
sýnir eignina í dag milli kl. 14 og 16.
Guðmundur
Valtýsson
865 3022
Heimilsfang : Hagamelur 51,
107 Reykjavík.
Byggingarár : 1977
Stærð : 79,7 fm.
Verð : 11.900.000.
Opið hús : Sunnudag 17. nóv.
milli kl. 14 og 16.
Frekari upplýsingar:
www.thingholt.is
Sigurbjörn
Skarphéðinsson
lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS - ENGIHJALLI 25 KÓPAVOGI
Snyrtileg, 4ra herb. íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi. Björt og rúmgóð stofa
með útgangi út á austursvalir. Hjónaherb.með útgangi
út á norð-vestursvalir. Þvottahús á hæðinni. Verð 11,8
millj.
Elísabet sölufulltrúi RE/MAX
mun sýna eignina í dag á milli kl. 12-14.
Elísabet
Agnarsdóttir
Gsm 822 0336
Heimilisfang: Engihjalli 25
Stærð: 97 fm
Opið hús: Sunnudagur
17. nóv
kl. 12-14
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Samt. ca 4000 fm. Kjallari/lager ca 2000 fm. 2. hæð öll hæðin,
ca 2000 fm. Hæðin er í dag innréttuð undir tölvuskóla. Skrifst.,
kennslust., opin vinnurými o.fl. Hagst. kaup/leiga.
Til sölu/leigu
Faxafen Rvík
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson
s. 588 4477 eða 822 8242.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Melabraut - Hf.
Vandað fjölnotahús (atvhúsn.) á tveimur hæðum, samtals ca
1.500 fm. Innkeyrsludyr. Selst í einu eða tvennu lagi. Fullbú-
in eign. Ath. að öll fiskvinnslutæki geta fylgt. Hagstætt verð
og kjör. Eigandi bankastofnun. 55429
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Alltaf á þriðjudögum