Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 42

Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 42
MINNINGAR 42 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför GUÐMUNDÍNU ÞÓRUNNAR SAMÚELSDÓTTUR, Heiðargerði 24, Akranesi. Þórunn Selma, Hafþór Örn, Albert Máni og systkini hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför okkar ástkæra JÓHANNESAR B. SVEINBJÖRNSSONAR, Sæviðarsundi 35, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Halla Hjálmarsdóttir, Margrét J.S. Jóhannesdóttir, Ólafur Daði Jóhannesson, Viktor Már Kristjánsson, Maríanna Rún Kristjánsdóttir og systkini hins látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS MATTHÍASAR HAUKSSONAR, Löngumýri 1, Akureyri. Sigurður Jónsson, Júlía Sjöfn Sigurjónsdóttir, Kristján Jónsson, Margrét Rósa Jónsdóttir, Árni Haukur Gunnarsson, Elísabeth Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum af einlægum huga, öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför RÖGNVALDS RÖGNVALDSSONAR bifreiðarstjóra, Víghólastíg 17, Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Albertsdóttir, börn og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður og ömmu, SÆUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Kambsvegi 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun. Daði Daníelsson, Elín I. Daðadóttir og dóttursynir. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, KRISTINS GESTSSONAR píanóleikara, Kársnesbraut 11, Kópavogi. Ásdís Gísladóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ RögnvaldurJónsson fæddist á Marbæli í Óslands- hlíð, Skagafirði 23.2. 1918. Hann lést á lyfjadeild FSA 8. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Jón Er- lendsson, f. 18.12. 1870, d. 26.9. 1960, og Anna Rögnvalds- dóttir, f. 5.8. 1878, d. 2.3. 1955. Rögnvald- ur var yngstur sinna systkina en þau voru: Guðrún, f. 1900, d. 1978, Sigurlaug, f. 1904, d. 1979, Ingibjörg, f. 1907, d. 1955, Ásta, f. 1909, d. 1975, Þór- leif, f. 1911, d. 1927, og Ragn- heiður, f. 1915, d. 1997. Rögnvaldur kvæntist 4. ágúst 1945 Huldu Jónsdóttur, f. 1.9. 1921. Hún er dóttir Jóns Pálma- sonar frá Svaðastöðum, f. 7.10. 1900, d. 12.8. 1955, og Sigurlaug- ar Sigurðardóttur, f. 6.5. 1903, d. 23.2. 1971. Börn Rögnvaldar og Huldu eru: 1) Anna Sigfríður, f. 9.1. 1946, búsett á Akureyri. 2) Sig- urður Pálmi, f. 14.7. 1949, kona hans er Bryndís Óladóttir. Þau eru búsett á Hofsósi og eiga fjög- ur börn og fimm barnabörn. Jón Grétar, f. 29.2. 1960, kona hans er Svanfríður Sigurðardóttir. Þau eru búsett á Akureyri og eiga fjögur börn. 3) Margrét Hulda, f. 14.10. 1962, maður hennar er Árni Ragnarsson. Þau eru búsett á Sauðár- króki og eiga þrjár dætur. Margrét á eina dóttir úr fyrri sambúð með Birgi Arasyni. 4) Rögn- valdur Bragi, f. 2.9. 1965, kona hans er Birna Guðrún Bald- ursdóttir. Þau eru búsett á Akureyri og eiga einn son. Rögnvaldur ólst upp hjá for- eldrum sínum við almenn sveita- störf og gekk í barnaskóla í Ós- landshlíð. Eftir það vann hann að búi foreldra sinna þar til hann fór í bændaskólann á Hólum og lauk þaðan prófi árið 1940. Eftir að þau Hulda giftu sig tóku þau alfarið við búinu og breyttu því frá fortíð til nútímans, byggðu öll hús frá grunni og ræktuðu upp tún. Árið 1972 ákváðu þau að bregða búi og fluttu þá til Ak- ureyrar þar sem Rögnvaldur hóf störf hjá Byggingarvörudeild KEA og starfaði þar við af- greiðslu þar til hann lét af störf- um fyrir aldurssakir. Útför Rögnvaldar verður gerð frá Glerárkirkju á morgun, mánudaginn 18. nóvember, og hefst athöfnin klukkan 14. Á morgun, 18. nóvember, verður til moldar borinn frá Glerárkirkju á Ak- ureyri góður vinur minn og velgerð- armaður, Rögnvaldur Jónsson, fyrr- um bóndi að Marbæli í Óslandshlíð, en hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 8. nóvember sl. eftir stutta legu. Kynni okkar hófust einn vordag 1947 þegar hann kom í heim- sókn út í Tumabrekku og sagði mér að þau hjónin hefðu verið að ræða saman og ákveðið að bjóða mér að vera kaupamaður hjá þeim í sumar ef ég vildi. Mér fannst þetta góður kostur fyrir mig og fann að þetta var boðið fram af vinarhug og samkennd með aðstæð- um mínum og þáði þetta góða boð. Ég hafði misst föður minn þá um vetur- inn og heimilið átti að leysa upp og koma þurfti okkur systkinunum fyrir á góðum heimilum, en ég átti að ferm- ast þá um vorið. Rögnvaldur var ná- granni okkar og kona hans Hulda Jónsdóttir frá Svaðastöðum hafði ver- ið kaupakona hjá föður mínum á Hofi í Hjaltadal sumarið 1943. Við Hulda urðum um sumarið góðir vinir og unn- um saman á teignum, hún tuttugu og tveggja ára en ég tíu ára. Ég fór að Marbæli og var þar um sumarið en um haustið fór ég til náms í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar, Hulda og Rögnvaldur tóku mér afar vel, veittu mér hlýju og öryggi og á heimili þeirra leið mér vel og átti þar heimili og öruggt skjól á næstu árum og alltaf vinum að mæta. Rögnvaldur var fæddur á Marbæli, en þar hófu foreldrar hans búskap rétt um aldamótin 1900 og bjuggu þar farsælu búi í yfir fjörutíu ár. Þau eign- uðust sjö börn, sex dætur og soninn Rögnvald sem var yngstur. Systkinin eru nú öll látin. Rögnvaldur naut al- mennrar barnafræðslu á Hlíðarhús- inu sem var félagsmiðstöð sveitarinn- ar og barnaskóli til margra ára og stendur á mel rétt neðan við túnið, en faðir hans hafði gefið væna landspildu undir húsið áður en það var byggt. Hann vann að búi foreldra sinna, fór í Bændaskólann á Hólum og lauk þar búfræðinámi vorið 1940 með láði, enda næmur og áhugasamur nem- andi. Fljótlega eftir námið á Hólum hóf hann búskap á Marbæli, fyrst í samvinnu við foreldra sína en tók al- farið við búinu 1945, þá nýgiftur sinni yndislegu og góðu konu Huldu Jóns- dóttur og þar bjuggu þau góðu búi til ársins 1972, er þau seldu jörðina og fluttu til Akureyrar. Þegar þau hófu búskap var enn bú- ið í gamla bænum á Marbæli, túnið fremur lítið og útihús öll úr torfi og grjóti. En ungu hjónin voru full af bjartsýni og trú á lífið og framtíðina, voru kát og hress. Þrátt fyrir að þröngt væri í bænum var þar nægt rými fyrir alla, þar ríkti góður heim- ilisbragur, hjartahlýja og tillitssemi og Jón og Anna, foreldrar Rögnvald- ar, áttu hjá þeim notalegt ævikvöld. Með dugnaði og ráðdeild var hafist handa og í áranna rás, reis nýtt íbúð- arhús á Marbæli, túnið var stækkað á hverju ári og ný fjárhús og fjós urðu að veruleika. Hjónin áttu barnaláni að fagna, þau eignuðust fimm hraust og mannvænleg börn, sem þegar aldur leyfði, hjálpuðu til við búreksturinn og fjölskyldan var einstaklega sam- taka og samhent. Starf einyrkjabónd- ans er erfitt og reynir á þrek og heilsu og um 1970 fór Rögnvaldur að finna fyrir heymæði og hafði af því tals- verðan baga, en var að öðru leyti hraustur. Vegna þessa huguðu þau hjón til þess að hætta búskapnum og selja jörðina og hverfa til annarra starfa. Vorið 1972 seldu þau jörð og bústofn og fjölskyldan flutti til Akur- eyrar og keyptu þar ágætt einbýlis- hús, Víðimýri 5, og þar stóð glæsilegt heimili þeirra til margra ára, en síðar færðu þau sig um set í Skarðshlíð 14 A. Rögnvaldur fór að vinna hjá Bygg- ingavöruverslun KEA og starfaði þar í mörg ár eða fram yfir sjötugt, en Hulda starfaði í hlutastarfi hjá Gefj- un. Þau fóru frá Marbæli með nokkr- um trega og eftirsjá, en voru mjög ánægð með að dugandi bóndi keypti jörðina og hélt þar áfram uppbygg- ingarstarfi þeirra. Rögnvaldur fann sig og líkaði vel í starfi sínu hjá byggingadeildinni, þar var hann í góðu sambandi við bændur sem voru að kaupa aðföng til bygg- inga á jörðum sínum og að geta að- stoðað þá var honum mjög ljúft. Þannig hafa árin liðið, þau hjón voru alla tíð ástfangin og hamingju- söm enda einstakir öðlingar bæði tvö. Lífið var þeim gjöfult, þau eignuðust fimm börn, sem öll eru mannkosta- fólk, barnabörn og barnabarnabörn, sem elskuðu afa sinn og ömmu og komu oft í heimsókn til þeirra og áttu þar margar hamingjustundir. Fyrir fjórum árum bar skugga á, Hulda veiktist illa fékk heilablóðfall og hefur síðan dvalist sem sjúklingur á Krist- neshæli, lifir hún mann sinn að mestu heimi horfin. Svo mikið var ástríki fjölskyldunnar og samheldni að flesta daga þessi fjögur ár fóru Rögnvaldur eða börnin í heimsókn til hennar inn að Kristnesi. Á kveðustund leitar þakklátur hug- ur minn til ljúfra samverustunda á liðnum áratugum. Við hjónin sendum innilegar sam- úðarkveðjur til Huldu, barna hennar og fjölskyldna þeirra og biðjum þeim öllum blessunar. Farðu í friði, góði vinur og fóstri, og Guð blessi þig. Sigurður Þórhallsson. Nú ertu horfinn á braut, en minn- ingarnar um þig, elsku afi minn, munu aldrei hverfa úr hjarta mér. Minningarnar um þig eru svo hlýjar og góðar og mér líður svo vel þegar þær koma upp í huga minn. Þú varst svo góður og mér fannst svo notalegt að vera í kringum þig. Ég man svo vel þegar ég var lítil og amma passaði mig á daginn, þá sat ég svo oft í afa- stól og lúrði þangað til að þú komst heim. Þegar ég vaknaði sagðir þú yf- irleitt góðan daginn eða komdu nú sæl, Inga litla. Um helgar þegar ég gisti hjá ykkur ömmu svaf ég alltaf á milli, með annan fótinn undir þinni sæng og hinn undir ömmusæng og svo héldumst við öll í hendur. Þegar ég vaknaði á morgnana fórum við út og gáfum litlu fuglunum okkar fugla- korn og svo þurftir þú að fara inn og elda grautinn, afagraut, sem er besti mjólkurgrautur í öllum heiminum. Það getur enginn gert eins góðan graut og þú afi. Ég er þakklát fyrir það að fá að kynnast þér svona vel eins og ég gerði og fá að vera svona mikið með þér. Ég ætla að vera dug- leg að segja litlu systrum mínum frá þér því þær fengu því miður ekki að kynnast þér eins vel og ég. Elsku afi, ég veit að þú ert sáttur, það er ég líka, þó að mér finnist erfitt og skrýtið að þú sért farinn. Þú varst veikur og þú vildir að þetta færi svona. Nú ert þú kominn til elsku litlu Rakelar okkar og ég veit að þið passið hvort annað. Ég verð svo góð við ömmu fyrir þig, það veistu, og við pössum hana öll. Elsku afi minn. Ég kveð þig með söknuð í hjarta og tár á hvarmi, minning þín lifir og hvílir í hjarta mér svo lengi sem ég lifi. Hvíl í friði, þín Inga Berglind. Ævibraut vor endar senn, er vér hljótum sjá, allir Drottins munu menn mætast heima þá. Ef ei dauðinn undan fer, ástkær frelsarinn kemur senn og burt oss ber beint í himininn. Ó, er okkar vinir allir mætast þar, ganga á geislafögrum grundum eilífðar, lofa Guð og Lambið lífið sem oss gaf. Sorgin dvín, sólin skín, sjá Guðs náðarhaf. (Sigríður Halldórsd.) Elsku afi. Nú kveðjum við þig í hinsta sinn. Okkur finnst skrítið að hugsa til þess að eiga ekki eftir að fara oftar til þín í Skarðshlíðina, sjá þig annaðhvort sitja í rauða stólnum þínum í stofunni, með bók í hendi, líta upp og segja: Nei ert þú komin heillin mín! Eða sjá þig bardúsa eitthvað í eldhúsinu, leggja á borð eða þvo upp. Nú skreppum við ekki oftar til þín og spjöllum um svo ótal margt. Þú varst alltaf svo ótrú- lega ljúfur og góður við okkur systk- inin. Við munum öll svo vel eftir því þeg- ar þú varst að kenna okkur Svarta- Pétur þegar við vorum lítil, svo þegar við tókum að eldast reyndir þú að kenna okkur „vist“. Ekki varð árang- urinn eins góður þar og með Svarta- Pétur en við kunnum þó orðið eitt- hvað fyrir okkur í þessu. En elsku afi, við þökkum þér fyrir alla þína væntumþykju og góðu stundirnar sem við höfum átt með þér og hugsum til þín með hlýju í hjarta. Hvíli í friði elsku afi. Kveðja Sigurður, Hulda Dröfn, Val- dís Anna og Ásta Heiðrún. Þegar ævigöngu lýkur er ljúft fyrir þá sem eftir eru að eiga góðar minn- ingar til að orna sér við. Þessar minn- RÖGNVALDUR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.