Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 48
DAGBÓK
48 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss kemur í dag.
Irena Arctica kemur og
fer á morgun. Brúarfoss
fer á morgun. Freri
kemur á morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un félagsvist kl. 14, á
þriðjudag samsöngur kl.
14, stjórnandi Kári Frið-
riksson.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9-12 opin handa-
vinnustofa, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl.13-16.30 opin smíða-
stofa/útskurður, opin
handavinnustofa, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist, kl. 10-16 pútt-
völlurinn.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9-16 handa-
vinna, kl. 9-12 búta-
saumur, kl. 9-17 fótaað-
gerð, kl. 10-11
samverustund, kl. 13.30-
14.30 söngur við píanóið,
kl. 13-16 bútasaumur.
Uppl. í s. 568 5052.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15-16 bóka-
spjall, kl. 17-19 æfing
kór eldri borgara í Da-
mos. Laugard: kl. 10-12
bókband, línudans kl. 11.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á morgun
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30-18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 9 myndlist, kl. 10-12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 13.30 enska, fram-
hald.
Félagsstarfið Dalbraut
18-20. Á morgun Kl. 8-
16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9-12
myndlist, kl. 10-13 opin
verslunin, kl. 11-11.30
leikfimi, kl. 13-16 spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Á morgun Kl. 9-16
handavinnustofan opin,
kl. 9-12 myndlist, kl. 13-
16 körfugerð, kl. 11-
11.30 leikfimi, kl. 13-16
spilað, kl. 10-13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun
böðun kl. 9-12, opin
handavinnustofan kl. 9-
16.30, félagsvist kl. 14,
hárgreiðslustofan opin
9-14.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Mánudaginn
18. nóv. Kl. 14 jólakort.
fótaaðgerðastofan
899 4223.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un púttað í Hraunseli kl.
10. Tréskurður kl. 13,
félagsvist kl. 13.30. Bilj-
ardstofan er opin virka
daga frá kl. 13 til 16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
er lokuð vegna breyt-
inga í Glæsibæ. Sunnu-
dagur: Dansleikur kl.
20, Caprí-tríó leikur.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12
sími. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB. Silfurlínan er opin
á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10-12.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12 s. 588 2111.
Félagsstarfið er í Ás-
garði Glæsibæ.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag myndalistarsýning
Brynju Þórðardótt-
uropin kl. 13-16 síðasti
sýningardagur. Á morg-
un frá kl. 13-16.30 vinnu-
stofur opnar frá hádegi
spilasalur opinn, Kl.
15.15 danskennsla hjá
Sigvalda. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
9-17, kl. 10.45, hæg leik-
fimi (stólaleikfimi), kl.
9.30 gler- og postulíns-
málun, kl. 13 skák og
lomber, kl. 20 skapandi
skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Á morgun kl. 9 vefn-
aður, kl. 9.05 leikfimi kl.
9.55 róleg stólaleikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 13
brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 postlínsmálun,
perlusaumur og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13. 30 sögustund og
spjall, kl. 13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl
13.30 ganga, fótaaðgerð-
ir. Allir velkomnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud: Kl. 10, aðra
hverja viku, púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10-11 ganga, kl. 9-
15 fótaaðgerð, kl. 9-12
myndlist, kl. 9-16 opin
handavinnustofa.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9-16 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15-12
postulínsmálning, kl
9.15-15.30 almenn
handavinna, kl. 9.30-
10.30 boccia, kl.10.30-
11.30 jóga, kl. 12.15-
13.15 danskennsla,
kl.13-16 kóræfing.
Lyfjafræðingur á staðn-
um kl.13 fyrsta og þriðja
hvern mánudag.
Mánudaginn 18. nóv. kl.
13. Lyf og heilsa veitir
lyfjaráðgjöf og mælir
blóðþrýsting.
Vitatorg. Á morgun kl.
8.45 smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir, sund og
boccia, kl. 13 hand-
mennt, glerbræðsla og
spilað.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13-15, kaffi.
Gullsmárabrids. Brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45, spil hefst kl.
13. Gullsmárabrids fell-
ur niður mánudag. Áður
auglýst sveitakeppni
Bridsdeildar FEBK
Gullsmára mánudaginn
18. nóvember er frestað
til fimmtudags 21. nóv-
ember vegna jarð-
arfarar Guðmundar
Bjarna Guðmundssonar,
sem fram fer frá Digra-
neskirkju á mánudaginn
kl. 13,30.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu, Vallarbraut 4,
Njarðvík, öll mánudags-
kvöld kl. 20.
Kvenfélag Kópavogs.
Fundur miðvikudaginn
21. nóv. Félagskonur
eru hvattar til að mæta
og föndra. Basar vinnu-
kvöldin eru á mánudög-
um kl. 20 í sal okkar í
Hamraborg 10.
Kristniboðsfélag karla.
Fundur verður í Kristni-
boðssalnum, Háaleit-
isbraut 58-60, mánu-
dagskvöldið 18.
nóvember kl. 20. Allir
karlmenn velkomnir.
Kvenfélagið Keðjan
heldur fund í Húnabúð,
Skeifunni 11, mánudag-
inn 18. nóvember
kl. 20. Snyrtivörukynn-
ing verður á fundinum.
Slysavarnadeild kvenna
í Reykjavík. Slysavarna-
konur, fundur verður
miðvikudaginn 20. nóv-
ember og hefst kl. 20.
Kaffiveitingar, Þórhall-
ur miðill kemur á fund-
inn.
Félagskonur fjölmennið
og takið með ykkur
gesti.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu Hátuni 12. Á
morgun kl. 19 brids.
Minningarkort
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu hjá
Þórði Tómassyni, s. 487-
8842, í Mýrdal hjá Ey-
þóri Ólafssyni, Skeiðflöt,
s. 487-1299, í Reykjavík í
Frímerkjahúsinu,
Laufásvegi 2, s. 551-
1814 og hjá Jóni Að-
alsteini Jónssyni, Geita-
stekk 9, s. 557-4977.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Í dag er sunnudagur 17. nóvember,
321. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Fyrir því segi ég yður:
Hvers sem þér biðjið í bæn yðar, þá
trúið, að þér hafið öðlast það,
og yður mun það veitast.
(Mark. 11, 24.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 þreifa á, 4 nabbar, 7
uppnám, 8 rótarávöxtum,
9 herma eftir, 11 ránfugl-
ar, 13 þráður, 14 viljuga,
15 brjóst, 17 skaði, 20
skinn, 22 haldast, 23 spil,
24 fjasa, 25 kaka.
LÓÐRÉTT:
1 rífast, 2 hnarreista, 3
skynfæri, 4 drepa, 5
hrammur, 6 hásan, 10
gabba, 12 rödd, 13 op, 15
stubbur, 16 litla flugvél,
18 viðurkennir, 19 fífls,
20 skotts, 21 styrk.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 léttfætta, 8 seint, 9 tyfta, 10 tía, 11 rausa, 13
rændi, 15 stegg, 18 hirta, 21 jól, 22 gyðja, 23 ausan, 24
limlestir.
Lóðrétt: 2 élinu, 3 totta, 4 ættar, 5 tófan, 6 ásar, 7 gati,
12 sag, 14 æði, 15 segg, 16 eyðni, 17 gjall, 18 hlass, 19
ræsti, 20 anna.
Víkverji skrifar...
MARGAR þjóðir eru mjög stoltaraf áfengum drykkjum, sem
þær framleiða. Frakkar eru afar
stoltir af léttvínum sínum, kampavín-
um og koníaki, Spánverjar af léttvín-
um, Portúgalar af portvínum, Skotar
og Írar af miklu úrvali af viskíi og
eyjaskeggjar í Karíbahafinu bjóða
stoltir upp á romm, Rússar upp á
vodka. Í flestum löndum heims er
flaska af úrvalsvíni einhver besta
tækifærisgjöf, sem hægt er að hugsa
sér. Við Íslendingar þekkjum það
vel.
x x x
VÍKVERJI gat ekki eins lands íupptalningunni hér að framan.
Það er Holland, en Hollendingar eru
afar stoltir af miklu úrvali af séníver
(genever). Víkverji gleymir því aldrei
er hóteleigandi á Van Walsum í Rot-
terdam bauð honum og vini hans á
bar hótelsins – fór inn fyrir barborðið
og vildi gefa þeim smá innsýn í sögu
séníversins með tilheyrandi smökk-
un og fræðslu um bragðtegundir.
Hóteleigandinn bauð stoltur upp á
séníver bragðbættan með rifsberjum
(bessengenever), með sítrónusafa
(citroengenever), þurran séníver,
sterkan séníver, ungan og hráan
séníver og séníver sem var bestur
geymdur í frysti eins og íslenskt
brennivín. Hann sýndi okkur grænar
flöskur, brúnar flöskur og leirbrúsa,
smáa og stóra.
x x x
NEI, ÞETTA á ekki að vera vín-þáttur. En það er ástæða fyrir
því að Víkverji taldi Holland ekki
upp í byrjun. Stutt saga. Vinur Vík-
verja, sem á hús vestur á Ströndum,
ók fram á Hollendinga í sumar sem
leið, þar sem þeir voru á ferðinni með
bakpoka sína uppi á heiði. Vinurinn
stöðvaði bifreið sína og bauð Hol-
lendingunum far, sem þeir þáðu með
þökkum, enda búnir að vera lengi á
göngu.
x x x
VINUR Víkverja fékk bréf á dög-unum, þar sem honum var til-
kynnt að hann ætti sendingu sem
hann mætti vitja á pósthúsinu. Það
var sending frá Rika van Ryn, Hol-
lendingi, sem hann tók upp í bíl sinn
fyrr í sumar. Á póstaðflutnings-
skýrslu mátti sjá að til að fá send-
inguna afhenta yrði að greiða gjöld,
alls 3.078 krónur. Vinur Víkverja var
forvitinn um hvað van Ryn væri að
senda honum og kallaði á gjöld upp á
þrjú þúsund krónur. Þegar pakkinn
var opnaður – í annað sinn, á eftir
tollafgreiðslumönnum, kom í ljós
leirpottur af séníver, sem var þakk-
lætis- og vinargjöf. Já, dýr var mjöð-
urinn. 3.078 kr. skiptust þannig, að
537 krónur voru virðisaukaskattur,
350 kr. gjald fyrir tollmeðferð póst-
sendinga, 6 króna jöfnunargjald og
2.185 króna tollur af brúsanum, með
innihaldi.
Gjöld þessi eru nær jafn há því
sem séníverflaska kostar í vínbúðum
ÁTVR, kr. 3.280.
Á kassanum um brúsann sást að
brúsinn kostaði 960 kr. í Hollandi og
sendingarkostnaður var 1.479 kr.
Kostnaðarverð brúsans, með öllu –
kominn í vínskáp vinar Víkverja, var
5.517 kr. Er það eðlilegt?
Vinur Víkverja prísaði sig sælan
að brúsarnir voru ekki fleiri. Ef svo
hefði verið, hefði verið ódýrara fyrir
Van Ryn að koma sjálfur með gjöfina
til Íslands.
Hvað um
framsóknarfólk?
ÉG vil koma á framfæri
gagnrýni á þáttinn Ísland í
býtið fyrir að vera sífellt
með viðtöl við aðila frá
Sjálfstæðisflokknum, Sam-
fylkingunni og Vinstri
grænum en lítið hefur sést
hjá þeim af framsóknar-
mönnum.
Það er eins og það sé allt-
af sama fólkið sem talað er
við og hefur það ekkert
nýtt fram að færa.
Mér finnst að framsókn-
armenn og -konur og ungt
fólk í framboði hafi margt
fram að færa og gæti komið
á framfæri nýjum hug-
myndum.
Finnst mér að það fólk
eigi að fá tækifæri til að tjá
sig eins og fólk úr öðrum
flokkum, sérstaklega úr
Reykjaneskjördæmi.
Brynja Dögg.
Hvað er vopnaeftirlit?
SORGLEGT er að verða
vitni að hugmyndaleysi
blaða/fréttamanna sem sér-
hæfa sig í erlendum frétt-
um. Fróðir eru þeir og ekki
efast ég um það. En af
hverju reyna þeir ekki að
miðla visku sinni í meira
uppfræðandi farveg með
fréttum sínum af yfirvof-
andi átökum í Írak. T.d.
með því að upplýsa lesend-
ur um grundvallaratriðin í
framkvæmd vopnaeftirlits,
í stað þess að éta upp stein-
geldar klisjur hver eftir
öðrum um hinar endalausu
ályktanir sem eru að verða
ansi þreyttar fréttir.
Fróðleiksfúsir lesendur
hefðu gaman af því að fá að
vita hvenær vopnaeftirlit
varð löglegt verkfæri í al-
þjóðlegri stjórnsýslu.
Hvernig vita menn tækni-
lega séð þegar þjóðir eru að
koma sér upp vopnum?
Hvernig er ólöglegum
vopnum „fargað“?
Erlendir diplómatar eru
kannski með þetta allt á
hreinu en eigum við hin
bara að muna þetta frá því í
Persaflóastríðinu?
Mogginn stendur sig al-
mennt vel með því að fara
djúpt í hlutina á sunnudög-
um. – Hér ætti að vera
komið tilefni fyrir slíkt.
Brynjar.
Tapað/fundið
Blátt hjól týndist
BLÁTT Moongoose
strákahjól hvarf frá Brúna-
landi miðvikudaginn 13.
nóvember sl. Á sama stað
var skilið eftir fjólublátt
Trek-hjól. Hafið samband í
síma 581 4377.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU í gylltri um-
gjörð til hálfs, fundust við
styttuna Björgun eftir Ás-
mund Sveinsson á göngu-
stígnum við Ægisíðu. Eig-
andi getur vitjað þeirra í
síma 561 1816.
Göngustafur tapaður
SVARTLAKKAÐUR
göngustafur, með T-laga
handfangi og gúmmíhlíf á
neðri enda, tapaðist sl.
laugardag í verslunarferð í
Nettó í Mjódd. Hefur lík-
lega orðið eftir í innkaupa-
grind sem skilin var eftir
við útgöngudyrnar hjá
Bakarameistaranum. Finn-
andi er beðinn að hringja í
síma 557 1624 eða skila
stafnum í skrifstofu Nettó í
Mjódd.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
TVEIR 8 vikna kettlingar,
fress og læða, fást gefins.
Upplýsingar í síma
567 5404 eða 699 4056.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/ÓmarPollar í Tjarnarborg.