Morgunblaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Evrópuhús 2002 í Perlunni
Kynna sam-
starfsáætlanir
EVRÓPUHÚS 2002verður haldið íPerlunni í Reykja-
vík í dag og á morgun. Við
þetta tækifæri verða
kynntar nokkrar af um-
fangsmestu evrópsku
samstarfsáætlunum ESB
en í heild eru þessar áætl-
anir sem Ísland er aðili að,
32 talsins og eru á sviði
menningar, menntunar,
atvinnutækifæra, rann-
sókna og þróunar svo eitt-
hvað sé nefnt, en tilgang-
urinn er að ýta undir
samskipti á milli fyrir-
tækja, stofnana og ein-
staklinga í Evrópu. Hjör-
dís Hendriksdóttir,
forstöðumaður alþjóða-
sviðs RANNÍS, svaraði
nokkrum spurningum.
– Hvað er Evrópuhús?
„Evrópuhúsið er samstarf
nokkurra upplýsingaskrifstofa
um þessar áætlanir á Íslandi og
að þessu sinni eru það Byggða-
stofnun, Rannsóknarþjónusta HÍ,
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins,
Ungt fólk á Íslandi, RANNÍS,
Barnaheill, Heimili og skóli,
CECUA, Samtök iðnaðarins og
Madia og Menning.“
– Hvaða markmið hafið þið sett
ykkur?
„Við höfum sett okkur það
markmið, að með því að búa til
Evrópuhús í tvo daga gefst al-
menningi kostur á að kynna sér á
einum stað þá fjölmörgu mögu-
leika sem bjóðast til að taka þátt
í evrópsku samstarfi, oftar en
ekki með einhverjum fjárhags-
legum stuðningi. Evrópusamstarf
er ekki bara fyrir einhvern af-
markaðan hóp eins og fólk heldur
stundum, heldur er það á flestum
sviðum sem snerta störf okkar,
menntun, símenntun og sköpun.“
– Segðu okkur eitthvað meira
um þetta …
„Yfirleitt byggjast þessar áætl-
anir á verkefnabundnu samstarfi.
Þeir sem hafa áhuga á samstarfi
á tilteknu sviði leita til viðkom-
andi upplýsingaskrifstofu, fá upp-
lýsingar um viðkomandi áætlun,
umsóknarfresti og aðstoð við að
finna erlenda samstarfsaðila sem
hafa áhuga á að vinna að sameig-
inlegu verkefni með stuðningi
áætlunarinnar.“
– Geturðu nefnt einhverjar
áætlanir?
„Á meðal áætlana sem kynntar
verða má t.d. nefna Ungt fólk í
Evrópu sem veitir styrki til fólks
á aldrinum 15 til 25 ára í ung-
mennaskipti, sjálfboðaþjónustu
og ýmis stuðningsverkefni. Einn-
ig má nefna, á sviði menntunar
og símenntunar, Sókrates og
Leonardo da Vinci. Sókrates veit-
ir styrki til símenntunar kennara
á öllum skólastigum, til tungu-
málanáms- og kennslu, til þróun-
ar námsgagna, til fullorðins-
fræðslu, til fjarnáms, nýrrar
tækni og rannsókna. Leonardo
da Vinci styrkir síðan m.a. þróun
á nýjum kennsluað-
ferðum og námsgögn-
um auk þess sem
mannaskiptaverkefni
gefa fólki tækifæri til
að afla sér starfsþjálf-
unar í öðru Evrópuríki frá einni
viku til eins árs.“
– Og fleira?
„Já, tvær áætlanir veita styrki
til menningar, MENNING 2000,
sem nær til allra listgreina,
menningararfleifðar og menning-
arsögu, veitir styrki við sam-
starfsnet, rannsóknir, starfsþjálf-
un, námskeið, vinnubúðir,
nýsköpun, sýningar, hátíðir, ráð-
stefnur, þýðingar og fleira. Hin
áætlunin heitir MEDIA PLÚS
sem styður verkefni í hljóðmynd-
ræna geiranum í Evrópu með
þjálfun fagfólks, undirbúning
hljóðmyndrænna verkefna og
dreifingu þeirra. Þá er veittur
stuðningur til kvikmyndahátíða
og markaða sem leggja sérstaka
áherslu á evrópskt myndefni.
Þá vil ég nefna að á sviði upp-
lýsingatækninnar eru kynntar
þrjár áætlanir, E-Content, sem
er markaðsdrifin áætlun sem
styrkir þróun og notkun á evr-
ópsku rafrænu efni á veraldar-
vefnum, Safer Internet Action
Plan, eða Öryggi á Netinu, sem
miðar að því að fjarlægja ólöglegt
og skaðlegt efni af Netinu, og
Upplýsingatækniáætlun 6. RÁ,
sem styrkir rannsóknir og þróun
á sviði upplýsingatækni. Auk
þess veitir 6. rannsóknaráætlunin
styrki til rannsókna á sviði lífvís-
inda, efnistækni, umhverfis, fé-
lagsvísinda, matvæla, þjálfunar
vísindafólks svo eitthvað sé nefnt.
Að lokum er að nefna sérstak-
ar áætlanir sem styrkja verkefni
sem miða að uppbyggingu á nor-
rænum byggðum. Northern per-
ipheri styrkir verkefni sem miða
að atvinnusköpun og er sérstök
áhersla lögð á verkefni tengd
samgöngu- og fjarskiptamálum, í
öðru lagi verkefni tengd at-
vinnuþróun og vistvænni nýtingu
náttúruauðlinda og verkefni
tengd eflingu samfélaga á norð-
urslóðum. Síðan NORA-verkefn-
ið, sem miðar að eflingu sam-
starfs innan starfssvæðisins og
styðja við atvinnu- og byggð-
arþróun. NORA veitir styrki til
samstarfsverkefna er tengjast
þróun atvinnulífs, nýsköpun og
rannsóknarsamstarfi
Til viðbótar við þetta
kynna nokkrar skrif-
stofur þjónustu sína
sem tengjast evrópsku
samstarfi, t.d. EES-
vinnumiðlunin, EURO
INFO skrifstofan, IMPRA,
MENNT og SOLVIT.“
– Það er því eftir ýmsu að
slægjast í Evrópuhúsinu?
„Já. Af allri þessari upptaln-
ingu má sjá að tækifærin eru ótal
mörg á fjölmörgum sviðum og
ættu allir að finna eitthvað
áhugavert fyrir sig. Íslendingar
hafa yfir höfuð nýtt þessi tæki-
færi vel.“
Hjördís Hendriksdóttir
Hjördís Hendriksdóttir er for-
stöðumaður alþjóðasviðs RANN-
ÍS. Hún er með meistarapróf í al-
þjóðlegum samskiptum frá
University of Kent í Bretlandi.
Maki er Jón Smári Úlfarsson,
verkfræðingur hjá VSÓ og eiga
þau saman fjóra stráka.
Ekki bara fyrir
afmarkaðan
hóp
Formaður útvegsbænda í Eyjum ætti ekki að gleyma sér svo í græðginni við útflutning á
óunnu hráefni að kalla þurfi „kibba, kibba, komið þið, greyin“ líka hér í Eyjum.
Taktu þátt. Þú ferð í spor njósnara hennar hátignar 007
og rekur slóðina að svörunum inn á www.brimborg.is
Þú vinnur nítján (19)
Bond bíómyndir
Focus 007 njósnaleikur
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • brimborg.is Opið laugardaga kl.12-16
Bond-blaðið fylgir Mogganum á morgun. Lestu Ford Focus
007 auglýsinguna og njósnaleikurinn hefst. Þú gætir líka fundið
svörin á www.brimborg.is. Spurningarnar verða í Bond-blaðinu
á morgun, sunnudag.
Brimborg og Ford kynna
tæknivæddan Ford Focus 007. Bíllinn sem þú getur eignast.
Flottur bíll á flottu verði aðeins frá 1.449.000 kr.
Þú verður að reynsluaka.
Þú fyllir út svarseðil og læðir
honum í Happapott Brimborgar.
Glæsilegir vinningar
- vertu með.