Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins getur ekki á þessu stigi gripið inn í samhljóða og ágreiningslausar ákvarðanir kjörnefndar og stjórnar kjördæmisráðs Norðvesturkjör- dæmis vegna utankjörfundarat- kvæðagreiðslu fyrir prófkjör flokks- ins í haust. Kjördæmisráð á enn eftir að fjalla endanlega um uppstill- ingu og miðstjórn þarf formlega að samþykkja hvort listinn verði að því loknu lagður fram í nafni Sjálfstæð- isflokksins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinargerð sem var sam- þykkt samhljóða á fundi miðstjórn- ar Sjálfstæðisflokksins í gær. Samkvæmt prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins er miðstjórn endanlegur úrskurðaraðili um túlk- un reglnanna. Forsenda þess að ágreiningi um prófkjör verði þó að- eins skotið til miðstjórnar sé að ágreiningur sé um málið innan stjórnar kjördæmisráðs. Sú for- senda hafi ekki verið til staðar í þessu máli. Enginn vafi á göllum Tilefni greinargerðarinnar er að félagar í fulltrúaráðum sjálfstæðis- félaganna í Húnavatnssýslum og Skagafirði vildu að miðstjórnin úr- skurðaði um hvaða áhrif annmarkar á framkvæmd prófkjörsins hefðu á gildi þess. Vilhjálmur Egilsson al- þingismaður hefur haldið því fram að brotalamir við framkvæmd próf- kjörsins hafi verið mjög alvarlegar og mun umfangsmeiri en að mati kjörnefndar og kjördæmisráðs sem töldu að með ógildingu 81 atkvæðis á Akranesi hefði verið bætt úr ágöll- um á framkvæmdinni. Í greinargerð miðstjórnar segir að ekki sé vafi á því að verulegur misbrestur hafi verið á framkvæmd utankjörfund- aratkvæðagreiðslu fyrir prófkjörið. „Dæmi þess má finna í öllu kjör- dæminu, þó mest á Akranesi. Ekki verður fullyrt að framkvæmdinni hafi verið beint gegn einum fram- bjóðanda fremur en öðrum, né held- ur verður fullyrt hver áhrif mis- bresturinn hafði á niðurstöðuna.“ Prófkjörsreglum breytt Þar kemur ennfremur fram að við þessar aðstæður sé mikilvægasta verkefni miðstjórnarinnar að tryggja að slík mál endurtaki sig ekki. Því var samþykkt að breyta prófkjörsreglum flokksins þannig að einungis félagsbundnir sjálfstæð- ismenn og þeir sem gerast félagar í síðasta lagi samhliða prófkjöri, geti tekið þátt í prófkjöri. Reglur um ut- ankjörfundarkosningu verði endur- skoðaðar til að tryggja enn betur en er að ekki verði unnt að mistúlka eða misskilja reglur um utankjör- fundaratkvæðagreiðslu. Jafnframt verði öllum frambjóðendum veittur sjálfstæður kæruréttur til mið- stjórnar vegna framkvæmdar próf- kjörs. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins fjallar um prófkjörið í Norðvesturkjördæmi Telur sig ekki geta gripið inn í málið að svo stöddu Morgunblaðið/Kristinn Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson og Geir H. Haarde, ræðast við fyrir miðstjórnarfundinn í gær. Í forgrunni eru Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, og Kristján Guðmundsson, formaður verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. GERT er ráð fyrir að formlegar samningaviðræður hefjist 9. janúar milli Íslands og annarra EFTA-ríkja í EES, þ.e. Noregs og Liechtenstein, við fulltrúa Evrópusambandsins um aðlögun EES-samningsins að stækkun ESB til austurs. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Snorra Gunnarssonar, ráðuneytis- stjóra utanríkisráðuneytisins, er bú- ið að fastsetja viðræðufundi við framkvæmdastjórn ESB, sem haldnir verða í hverjum mánuði á tímabilinu frá janúar og fram í apríl á næsta ári. Ekki er búist við að neinar við- ræður fari fram milli fulltrúa EFTA- ríkjanna og ESB fyrir 9. janúar nema þá til að ræða frekara skipulag samningaviðræðnanna sem fram- undan eru, enda beinist athygli Evr- ópusambandsins um þessar mundir fyrst og fremst að því að ná sam- komulagi við umsóknarríkin tíu um aðildarskilmálana í viðræðunum um stækkun bandalagsins. Viðræður EES/EFTA- ríkjanna við ESB Viðræður hefj- ast í janúar„MÁLIÐ er áfram opið vegna þess að mið- stjórnin tekur ekki efnislega á því,“ segir Vilhjálmur Egilsson alþingismaður. „Það er ákveðinn misskilningur í gangi því stjórn kjördæm- isráðsins hefur í raun aldrei fjallað um þetta mál. Þannig að málið snýst núna um að koma kæru vegna prófkjörsins til stjórn- ar kjördæmisráðsins og óska eftir því að hún ógildi prófkjörið,“ segir hann. Aðspurður segist Vil- hjálmur gera ráð fyrir að innan stjórnar kjördæmisráðsins séu menn sem telja að það eigi að ógilda prófkjörið. „Mér finnst að miðstjórnin hafi gefið býsna skýr skilaboð um hvert álit hennar er á prófkjörinu með því að breyta reglum snarlega um prófkjör í Sjálfstæðisflokknum um alla framtíð í til- efni af framkvæmd þessa prófkjörs,“ segir hann. Í greinargerð mið- stjórnar segir að ekki verði fullyrt að fram- kvæmd utankjörfund- aratkvæðagreiðsl- unnar hafi verið beint gegn einum frambjóð- enda fremur en öðrum, né verði fullyrt hvaða áhrif misbresturinn hafði á niðurstöðuna. Aðspurður segir Vilhjálmur að að þetta hafi fyrst og fremst bitnað á honum. „Málið áfram opið“ Vilhjálmur Egilsson HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur framlengdi í gær gæsluvarðhald um 10 daga yfir tveimur 25 ára konum sem grunaðar eru um innflutning og sölu fíkniefna, að kröfu lögreglunnar í Reykjavík. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli handtók aðra konuna við komuna frá París 2. desember sl. eftir að á henni fannst um hálft kíló af hassi. Lög- reglan í Reykjavík handtók hina konuna samdægurs í íbúð í vesturbæ Reykjavíkur sem þær höfðu báðar aðgang að. Í íbúðinni fannst um hálft kíló af hassi til viðbótar, 140 grömm af amfetamíni og nokkrar e-töflur. Konurnar höfðu ekki áður komið við sögu lögreglunnar í Reykjavík. Rannsókn lokið á kókaínmáli Lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á máli tæplega sextugs Þjóðverja sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli með 1½ kíló af kókaíni hinn 24. október sl. Þetta er mesta magn kókaíns sem lagt hefur verið hald á í einu lagi hér á landi. Rannsókn málsins hefur ekki leitt í ljós að fleiri séu viðriðnir málið. Annar tæplega sextugur Þjóðverji situr nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á innflutningi á um 900 grömmum af amfetamíni og um hálfu kílói af hassi. Hann var hand- tekinn á Keflavíkurflugvelli með fíkniefnin innanklæða og í kjölfarið handtók fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík tvo Íslendinga um þrí- tugt og sitja þeir báðir í gæsluvarð- haldi. Meintir fíkniefna- salar áfram í haldi VEITINGAHÚSUM í Reykjavík verður heimilt að veita áfengi aðfara- nætur 27. desember og 2. janúar næstkomandi til klukkan 3.00 hafi þau heimild til áfengisveitinga til kl. 3.00 eða lengur um helgar. Borgarráð samþykkti þetta á fundi sínum í gær. Önnur veitinga- hús fá heimild til að veita áfengi þessar nætur eins og um almenna frídaga væri að ræða. Segir í bréfi frá skrifstofu borg- arstjórnar að hefð sé fyrir því að rýmka veitingatíma áfengis um- ræddar nætur. Annar í jólum og nýársdagur Veitingatími áfengis lengdur ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.