Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gunnlaugur Sig-urbjörnsson, fyrr- verandi bóndi á Tóka- stöðum, fæddist á Ketilsstöðum í Vallnahreppi hinn 7. febrúar 1917. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum hinn 24. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sigurbjörn Snjólfsson, bóndi í Gilsárteigi í Eiða- þinghá, f. 22. septem- ber 1893, d. 13. júlí 1980, og Gunnþóra Guttormsdóttir, húsmóðir á Gilsár- teigi, f. 14. október 1895, d. 4. júlí 1988. Gunnlaugur var næstelstur af 15 systkinum. Þau eru, auk Gunnlaugs, í aldursröð: Aníta, f. 17.11. 1911, d. 22.10. 1972; Gutt- ormur, f. 27.9. 1918; Sigurður, f. 27.5. 1920, d. 7.5. 1979; Snæþór, f. 15.3. 1922, d. 3.10. 1980; Vilhjálm- ur, f. 1.6. 1923, d. 28.10. 1973; Magnús, f. 19.12. 1925, d. 12.8. 1927; Þórhalla, f. 5.4. 1927, d. 5.6. 1934; Guðfinna, f. 10.5. 1928; Sig- urborg, f. 5.8. 1929; Halldóra, f. 24.2. 1931; Sigurlaug, f. 23.1. 1933, d. 19.7. 1985; Heiðrún, f. 10.9. 1934; Benedikt, f. 3.10. 1935, d. 24.4. 1981; og Ari, f. 13.11. 1936. Gunnlaugur ólst upp á Ketilsstöðum hjá afabróður sínum, Gunnari Pálssyni, og konu hans, Þor- björgu Þórarinsdótt- ur, sem hann kallaði fóstru sína Kona Gunnlaugs var Kristín Eyjólfs- dóttir, f. á Fáskrúðs- firði 4. október 1912, d. 4. október 1992 á Sjúkrahúsinu á Nes- kaupstað. Gunnlaugur kynntist konuefni sínu á Ketilsstöðum. Þau bjuggu á ýmsum stöðum en lengst af á Tókastöðum í Eiðaþinghá og síðustu árin á Egilsstöðum. Gunn- laugi og Kristínu varð sex barna auðið. Þau eru: Eyjólfur, f. 23.4. 1936, d. 15.5. 1997; Þorbjörg, f. 14.5. 1939; Björnþór, f. 23.6. 1940; Snjólfur, f. 27.3. 1945; Gunnar, f. 22.1. 1951; Kristbjörg, f. 16.9. 1952. Afkomendur Gunnlaugs og Krist- ínar eru orðnir 97 talsins. Útför Gunnlaugs fór fram í kyrr- þey 30. nóvember að ósk hins látna. Nú er komið að kveðjustund hjá okkur, gamli minn, að minnsta kosti um stundarsakir. Fráfall þitt bar brátt að, segja má að loknum vinnu- degi. Þessum síðasta degi þínum hér á jarðríki varðir þú hjá Diddu systur og Atla, syni hennar. Didda sagði mér að þið Atli hefðuð setið við spil, en þú hafðir gaman af því að taka í spil og þá sérstaklega Marías sem var í miklu uppáhaldi hjá þér. Manstu eftir því þegar við spiluðum í lestinni alla leiðina frá Malmö til Gautaborgar í Svíþjóð? Hafdís sagði að það hefði verið von- laust að ná sambandi við okkur, en þú sagðir að þetta hefðu nú bara verið 65 slagir. Við vorum búnir að ákveða að þú yrðir hjá okkur Hafdísi núna um jólin, en það verður bara að bíða betri tíma. Síðast þegar þú varst hjá okkur fyrir tveimur mánuðum er mér mikils virði. Mér þótti vænt um að sjá hversu hraustur þú varst þrátt fyrir háan aldur og að þú skyldir geta verið við brúðkaup okkar Hafdísar er ómetanlegt. Þessa fáu daga sem þú stoppaðir hjá okkur notuðum við til að spjalla og spila. Þú rifjaðir upp gamla daga og sagðir okkur frá uppvexti þínum á Ketilsstöðum, fóstra og fóstru þinni þar á bæ og hestunum. Eftir á að hyggja virðist þú hafa þurft að tala heilmikið um Ketilsstaði og for- eldra þína í Gilsárteigi. Það var gaman að hlusta á sögurnar þó svo að ég þekkti ekki hestana sem þú sagðir frá né fóstra þinn sem þú skírðir mig í höfuðið á. Ég man vel eftir dvölinni á Tóka- stöðum þar sem ég ólst upp hjá ykkur mömmu, en þar varstu bóndi lengst af og lærði ég að umgangast dýrin eftir þinni leiðsögn. Þetta var góður tími og mikið að gera eins og ávallt er til sveita. Þú byggðir upp þessa jörð og þar áttu nánast hvert handtak sem sjá má en því miður gekk þessi búskapur ekki upp. Tún- in kól og ekki var hægt að fá fyr- irgreiðslu fyrir ræktun svo bústofn- inn var seldur. Þú byrjaðir með hestaleigu og þar varst þú braut- ryðjandi, að minnsta kosti á Héraði, að því er ég best veit. Þótt öll dýr hafi verið þér hugstæð er hesturinn það dýr sem þú hélst mest upp á. Flestar þínar sögur frá því í gamla daga og fram á síðasta dag snerust að einhverju leyti um hesta. Þú áttir góða hesta. Ég man t.d. eftir Þokka, Lýsingi og Gáska. Margt hefði ég getað rifjað upp en einhvers staðar þarf að stoppa og því segi ég takk fyrir samfylgd- ina og takk fyrir mig. Það biður öll fjölskyldan í Keflavík fyrir ykkur mömmu. Megið þið njóta ykkar sem best á nýjum slóðum, kæru foreldr- ar. Ég veit að þú skilar kveðju til Eyjólfs. Kær kveðja frá Hafdísi, börnum okkar og barnabörnum. Sjáumst síðar. Gunnar. GUNNLAUGUR SIGURBJÖRNSSON Kæri bróðir, ævinlega kemur að hinstu kveðju. Hugurinn er hjá þér, þótt ég hafi ekki verið við- stödd útför þína. Mikilvægar eru mér minningarnar frá síðasta sumri er við hittumst á Egils- stöðum er ég var þar í fríi, margt var spjallað um liðna daga. Ekki síður er þú á haustdögum komst í heimsókn til sona þinna. Eyddir þú lunga úr degi hjá mér. Þar sem þú gast verið pínulítið kerskinn léstu þau orð falla að jafnvel nú væri þetta okkar hinsta kveðja, er hundgamall karl ætti í hlut. Kveðjur urðu engu að síður hlýj- ar. Dauðinn kom með sama hætti og þú lifðir. Þín systir, Halldóra Sigurbjörnsdóttir. HINSTA KVEÐJA Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt- ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr- irbænum í síma 520 9700. Grensáskirkja. Jólasamvera eldri borgara kl. 12.10 (ath. tímann). Helgistund, jóla- matur, happdrætti. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Fræðsla: Kynning á glasafrjóvgun. Sigríður Brynja Snorradóttir, hjúkrunarfræðingur. Samverustund fyrir 6–8 ára börn kl. 15 í kórkjallara. 910 klúbb- urinn kl. 16. 112 klúbburinn kl. 17.30. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð með orgelleik og sálmasöng. Allir velkomn- ir. Kl. 12.30 súpa og brauð í safnaðarheim- ilinu (300 kr.). Kl. 13–16 opið hús fyrir eldri borgara. Litlu jólin með góðum veitingum og dagskrá. Söngur, spjall, föndur og tekið í spil. Kl. 17–18.10 Krúttakórinn, 4–7 ára. Kl. 18–18.15 kvöldbænir í kirkjunni. Neskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Slysavarnir ungbarna. Herdís Storgaard kemur í heimsókn. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. Kirkjustarf fyrir 7 ára börn kl. 14.30. Sögur, leikir, föndur og fleira. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall. Biblíufræðsla kl. 17. Rætt um bakgrunn jólaguðspjallsins. Umsjón sr. Frank M. Halldórsson. Fyrir- bænamessa kl. 18. Sr. Frank M. Halldórs- son. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur hádegisverður eftir stundina. Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há- degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbænir og íhugun. Kl. 13–15 opið hús. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM & K og kirkjunnar kl. 20. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. 12-spora námskeið kl. 20. Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börn- um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börn- um, TTT, á sama stað kl. 17.45–18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni í síma 567 0110. Æskulýðsfund- ur fyrir unglinga 14–15 ára kl. 20. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl- mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður eða Er- lendur sjá um akstur á undan og eftir. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnað- arheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hittumst og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir með eða án barna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn- ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Bókakynning. Í tilefni af áttræðisafmæli sr. Jörg Zink verður bóka- kynning í safnaðarheimilinu í kvöld kl. 20. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.20 TTT-yngri hópur, 9–10 ára. Jólaföndur. Kl. 17.30 TTT-eldri hópur, 11–12 ára. Jóla- föndur. Kl. 20 Opið hús í KFUM & K-húsinu hjá Æskulýðsfélagi KFUM & K – Landa- kirkju. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði, allir aldurshópar. Umsjón Ólafur Oddur Jónsson. Hugleiðing: Samspil ljóss og skugga. (í síðasta skipti fyrir jól). Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá kl. 19–22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, hugleiðingar, fróðleiks- molar og vitnisburðir. Allt ungt fólk velkom- ið. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma kl. 20.30. Skúli Svavarsson tal- ar. Allir hjartanlega velkomnir. Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10. Jólaföndur fyrir börnin. Kaffi og spjall, safi og dót. Fundur í Æskulýðsfélagi Akureyr- arkirkju, yngri deild, kl. 20 í safnaðarheim- ili. Þingvallakirkja. Aðventustund við kerta- ljós verður föstudagskvöldið 13. desember kl. 20. Safnaðarstarf Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför KRISTJÁNS KRISTJÁNSSONAR frá Þingvöllum, dvalarheimilinu Stykkishólmi. Ingibjörg, Unnur, mágur og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar systur okkar, GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR, Fagurhólsmýri, Öræfum. Sérstakar þakkir færum við Brynjari Viðarssyni lækni og starfsfólki á 11G, Landspítalanum við Hringbraut. Fyrir hönd aðstandenda, Nanna Sigurðardóttir, Tryggvi Sigurðsson, Ari B. Sigurðsson. KIRKJUSTARF ✝ Björn Ólafssonfæddist á Stóra- Bakka í Hróars- tungu 14. október 1906. Hann lést á Seyðisfjarðarspítala 17. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Ólafur Magnús- son og Steinunn Þor- láksdóttir og var hann einkabarn þeirra. Björn kvæntist 1966 Valborgu Þor- steinsdóttur, f. 18. júlí 1915, d. 15. febr- úar 2001. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Magnússon og Ingi- björg Magnúsdóttir, sem lengi bjuggu í Litluvík. Foreldrar Björns voru í vinnu- mennsku framan af árum, fyrst á Héraði en til Borgarfjarðar fluttu þau 1913. Árið 1918 keyptu þau húsið Brautarholt í Bakkagerð- isþorpi, sem þá hét Einbúi og þar var heimili Björns alla tíð síðan. Björn missti föður sinn ungur og bjó eftir það með móður sinni þar til hún lést. Framan af árum stundaði Björn sjó á sumrum og verkamanna- vinnu, sem til féll, einkum hjá Kaup- félaginu, en þar hafði hann síðar verkstjórn með höndum í áratugi við afgreiðslu strandferðaskipa og sauðfjárslátrun. Björn byggði upp búskaparaðstöðu í Bakkalandi og hafði þar bland- aðan smábúskap framan af árum en hin síðari ár eingöngu sauðfé, um 150 fjár. Björn vann mikið að félagsmálum framan af ævi. Bindindismaður á vín og tóbak var hann alla tíð. Hann var lengi formaður Ungmennafélagsins og heiðursfélagi þess hin síðari ár. Útför Björns var gerð frá Bakkagerðiskirkju laugardaginn 26. október. Þegar ég frétti, að hann Bubbi í Borgarfirði eystra væri allur, kom mér það lítt á óvart. Hann var orð- inn vel hálftíræður, fæddur 1906. Þegar ég kom sem skólastjóri til Borgarfjarðar eystri haustið 1980 var Bubbi einn af þeim fyrstu sem ég kynntist í þorpinu Bakkagerði. Hann bjó, ásamt konu sinni, Val- borgu Þorsteinsdóttur, í húsi því, sem Brautarholt nefnist og er rétt við sjóinn. Oft hittumst við og ræddum málin. Bubbi var vinsæll maður og naut trausts á heimaslóð- um. Þannig var hann lengi formað- ur ungmennafélags þar og gerður að heiðursfélaga þess. Sýndi hann mér innrammað skjal þess efnis. Bubbi, en það var hann oftast nefndur af kunnugum, var reglu- maður sem kallað er. Hann fór stundum með vísu um böl áfeng- isins, á þessa leið: Ef þú vilt, að ævin þín öll í hunda fari, daglega þá drekktu vín, – dýrum vitlausari. Ég gat að mér gert að minnast á Bubba með nokkrum orðum í bók minni „Kennari á faraldsfæti“, sem út kom 1990. Það endurtek ég ekki hér, en ég verð að segja, að fáum mönnum heilsteyptari hef ég kynnst en honum Birni Ólafssyni, eða Bubba í Brautarholti. Að lokum langar mig til að birta hér vísu, sem Hjalti Pétursson, bóndi í Snotru- nesi, orti eitt sinn um Bubba, og er í fullu gildi, þegar hann er kvaddur hinstu kveðju: Heim þá Bubbi héðan fer, hérna sést ei lengur, þögnin hvíslar því að mér: þar fór góður drengur. Undir það munu allir þeir, sem kynntust honum Bubba, taka heils hugar. Vandamönnum votta ég samúð við brottför hans. Auðunn Bragi Sveinsson. BJÖRN ÓLAFSSON Það er komið að leiðarlokum. Hann afi minn kvaddi heiminn með sömu reisn og hann lifði lífinu og fyrir það er ég þakk- lát. Hann var mikið glæsimenni, allt- af óaðfinnanlega til fara og var á leiðinni í klippingu þegar kallið kom. Allar mínar fyrstu minningar eru tengdar honum afa mínum, afi JÓHANNES EGGERTSSON ✝ Jóhannes Egg-ertsson fæddist í Reykjavík 31. maí 1915. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 20. nóvember síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Bú- staðakirkju 28. nóv- ember. að æfa sig á selló- ið…afi glæsilegur að vanda kominn í lúðr- arsveitargallann á leiðinni í skrúðgöngu á 17. júní og ég alltaf fast á hæla honum svo ekki færi á milli mála að þetta væri afi min- n…ég og afi í sveit- inni, bæði að læra á traktor…afi að kenna mér á trommur, þvílík þolinmæði…ég loksins að sjá hann á sinfón- íutónleikum, stolt…afi og ég saman á sveita- balli, mikið hlógum við þá, enda var hann óborganlegur húmoristi sem alltaf sá spaugilegar hliðar á lífinu. Vertu sæll, afi minn, kankvísa blikið gleymist aldrei. Steinunn B. Egg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.