Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 47
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
| Y
D
D
A
/
si
a.
is
N
M
0
7
6
4
7 • Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.30.
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.30 og 8.30. B.i.12 ára
BOND ER MÆTTUR
FLOTTARI EN
NOKKRU SINNI FYRR
ÍSLAND Í
AÐALHLUTVERKI-
ÓMISSANDI
I
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
www.regnboginn. is
RadíóX
DV
YFIR 30.000 GESTIR Á 10 DÖGUM
Sýnd kl. 6 og 8.
www.laugarasbio.is
BOND ER MÆTTUR
FLOTTARI EN
NOKKRU SINNI FYRR
ÍSLAND Í
AÐALHLUTVERKI-
ÓMISSANDI
I
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER
Sýnd kl. 10. B. i. 16. .
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10. B. i. 12 ára.
RadíóX
DV
YFIR 30.000 GESTIR Á 10 DÖGUM
EINN fremsti Elvis-skemmti-
kraftur í heiminum skemmtir á
Broadway um helgina og hann
er norskur. „Ég byrjaði í alvöru
að syngja Elvis þegar ég var 19
ára,“ segir Kjell Elvis, sem hef-
ur ekki látið staðar numið síðan
og verið að í 15 ár.
Elvis (norski) hreifst fyrst af
Elvis þegar hann sá myndina
Love Me Tender þegar hann
var sjö ára gamall. Hann segist
ferðast mikið vegna þessa óvenjulega
starfs. Eða eins og Elvis (norski)
orðar það sjálfur „Ég ferðast um all-
an heim.“
Kjell hefur tekið þátt í fjöldamörg-
um Elvis-keppnum og hefur unnið
þær nokkrar. Hann var kosinn besti
Elvis-skemmtikrafturinn í Evrópu
árið 2001 og einnig í Skandinavíu
sama ár. Hann hefur jafnframt skipað
sér í röð fimm bestu í heiminum á
heimsráðstefnu Elvis-skemmtikrafta.
Kjell stefnir á að mæta til annarrar
keppni á næsta ári í Memphis eða Las
Vegas. Hann hefur að sjálfsögðu
heimsótt Graceland og það þrisvar
sinnum.
Kjell varð vinsæll árið 1997 eftir að
norska ríkissjónvarpið gerði heimild-
armynd um kappann, sem sýnd var
víða um Evrópu. „Hún var sýnd í
mörgum löndum og breytti lífi mínu.“
Hann segir mörg lög með kóngin-
um vera í uppáhaldi en í dag geti hann
nefnt bæði „Always On My Mind“ og
„For The Good Times“. „Góðu lögin
er svo mörg. Ég gæti líka nefnt „In
The Ghetto“ og „Jailhouse Rock“.“
Hann hefur gefið sjálfur út tvo
diska með Elvis-lögum og kemur sá
þriðji út á næsta ári.
Á tónleikum tekur Kjell lög sem
spanna allan feril rokkkóngsins.
Hann leggur einnig að sjálfsögðu
mikið uppúr því að ná hreyfingum og
söngstíl Elvis.
„Ég haga mér svipað og leikari og
reyni að gera mitt besta,“ segir hann.
Hann á fjölmarga Elvis-búninga og
kemur með tvo hingað til lands.
Hvítan galla og svo leðurdress.
Fólk má búast við að heyra Kjell
taka 20 lög á Broadway um helgina en
hann kemur þar fram ásamt íslenskri
hljómsveit undir stjórn Gunnars
Þórðarsonar.
Norskættaður Elvis á leið til Íslands
Hermt eftir
kónginum í 15 ár
Ekki kóngurinn sjálfur heldur Kjell Elvis.
Kjell Elvis treður upp á Broadway
næsta föstudags- og laugardags-
kvöld.
Í HIPHOPFLÓÐINU fyrir jól eru
tvær plötur sem eiga sér óvenju-
legan aðdraganda; fyrir tveimur
mánuðum kviknaði hugmynd að
setja saman safnplötu með ís-
lensku hiphopi og áður en varði
var sú plata tilbúin, Bumsquad, og
ekki bara safnplata heldur líka
breiðskífa með Bæjarins bestu;
allt unnið á innan við tveimur
mánuðum. Þær koma báðar út í
vikunni.
Þeir Gísli Gunnarsson og Arnar
Helgi Aðalsteinsson hafa starfað
saman að þessu plötum en Gísli
rekur útgáfuna Castor og Pollux
en Arnar hljóðverið Desibel hljóð-
vinnslu. Þeir segja að útgáfan hafi
átt sér skamman aðdraganda –
hugmyndin hafi kviknað fyrir
tveimur mánuðum. „Ég var fram-
kvæmdastjóri á Gauknum,“ segir
Gísli, „og kynntist þar hiphop-
menningunni. Svo aðstoðaði ég
líka strákana sem eru með
Bumsquad vefsvæðið og þekki þá
einnig. Svo þegar ég hætti hjá
Gauknum fór ég til Arnars og
stakk upp á við myndum gefa út
safndisk með nokkrum skemmti-
legum hljómsveitum og áður en
varði vorum við komnir í samband
við fimmtán hljómsveitir og það
voru allir til í þetta, en við tókum
þá ákvörðun um að gefa öllum
færi á að vera með á meðan það
væri pláss á disknum.“
Tónlist til að slást við
Arnar Helgi sá um hljóðvinnsl-
una og segir að þeir Desibel-menn
hafi lagt mönnum lið þar sem
þurfti, spilað bassalínur og ým-
islegt fleira eftir því sem lögin
kölluðu á það, en eins og hann
getur um þá eru flestir rapp-
ararnir að vinna með taktsmiðum
sem sjá um tónlistina að mestu
eða öllu leyti. „Við vorum mis-
mikið með puttana í þessu, vorum
aðallega að tryggja að allt hljóm-
aði eins vel á disknum.“
Það er meira en Bumsquad-
diskurinn í vændum því á þessum
tveimur mánuðum settu þeir líka
saman geisladisk með hiphopsveit-
inni Bæjarins bestu, Tónlist til að
slást við. Að sögn Gísla kom sú
hugmynd upp er þeir voru að
setja saman safndiskinn en Bæj-
arins bestu eiga einmitt lag á hon-
um. „Við vorum þá eðlilega að
vinna með Kjarra, Danna og Dóra
DNA og kunnum mjög vel við það,
þeir eru svo ferskir, hæfileikaríkir
og metnaðarfullir. Þegar við kom-
umst að því að þeir áttu átta lög
ákváðum við að kýla á það, fá þá
til að bæta við nokkrum lögum og
gefa út fyrir jól. Það var enn
meiri hamagangur í því, við vor-
um ekki nema tíu daga að klára
þá plötu,“ segir Gísli og Arnar
skýtur inn í: „Þetta eru mjög klár-
ir strákar, snöggir að vinna og
vita nákvæmlega hvað þeir vilja,
en við vorum líka meira í þessu,
spiluðum trommur og bassa.“
Til í allan andskotann
Að sögn þeirra stendur til að
gera aðra plötu með Bæjarins
bestu næsta vor, gefa sér góðan
tíma til að vinna að þeirri plötu í
vetur. „Að okkar mati erum við
með besta hiphopdiskinn í hönd-
unum með besta bandinu,“ segir
Gísli ákveðinn, „svo það er ljóst
að við eigum eftir að geta skilað
frábærum diski þegar við fáum
meiri tíma til að vinna.“
Þeir ætla líka að vinna með
fleiri listamönnum af disknum,
segjast vera að hefja samstarf við
Tiny til að mynda, og segja að
það sé sérstaklega gaman að
vinna með hiphopliðinu. „Það er
svo gaman að því hvað þau eru
fordómalaus og opin fyrir nýjum
hugmyndum,“ segir Arnar, „ólíkt
mörgum popptónlistarmönnum
sem maður hefur kynnst.“ „Þau
eru náttúrulega flest svo ung sem
eru í þessu og til í ýmislegt ef það
skilar þeim áfram í hiphopinu,“
segir Gísli en leggur áherslu á að
sú hljómsveit sem eigi eftir að
standa uppúr í íslensku hiphopi
verði sú sem er með bestu tónlist-
ina og bestu sviðsframkomuna.
„Þær eru margar með góða músík
og góða texta en eru yfirleitt
slappar á sviðinu.“ „Það er eins
og það sé hallærislegt að vera
undirbúinn,“ segir Arnar, „en fólk
vill fá að sjá eitthvað skemmtilegt
og ég held að þetta eigi eftir að
skipta máli þegar við spáum í
hvað hiphopið á eftir að ná langt.“
Þeir félagar segjast ætla að
halda útgáfutónleika eftir jól,
segja að það skipti ekki svo miklu
máli fyrir plötusölu að halda svo-
leiðis fyrir jól, stefna að því að
halda tónleika á annan í jólum á
Gauknum „þegar fólk er búið að
venjast disknum“, eins og Gísli
orðar það.
Bumsquad og Bæjarins bestu eru nýjar hiphopplötur
Ungt
og for-
dóma-
laust
Morgunblaðið/Jim Smart
Gísli og Arnar Helgi gefa út Bumsquad og Bæjarins bestu.