Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 43
DAGBÓK
PAUL Soloway er gífurlega
„rútíneraður“ spilari, sem
dvelur ekki lengi yfir hlutun-
um og lætur í slagina fyrir-
hafnarlaust með jöfnum
hraða. „Snilldin“ gerir engin
boð á undan sér og er þeim
mun hættulegri fyrir vikið.
Norður
♠ Á96
♥ 7532
♦ K742
♣G4
Vestur Austur
♠ 853 ♠ D1042
♥ KD106 ♥ 8
♦ ÁG8 ♦ 10963
♣Á107 ♣9653
Suður
♠ KG7
♥ ÁG94
♦ D5
♣KD82
Soloway og Dave Tread-
well unnu eins-dags tví-
menningskeppni í upphafi
haustleikanna í Phoenix og
er spilið frá því móti. Suður
vakti á einu grandi og var
kyrrsettur þar. Soloway var í
vestur og kom út með hjarta-
kónginn og fékk að eiga slag-
inn. Hann skipti yfir í spaða,
sem sagnhafi tók heima og
spilaði laufi á gosann og aftur
laufi á kónginn. Soloway tók
með ásnum og spilaði spaða.
Ásinn í borði tók þann slag
og síðan kom tígull á drottn-
ingu og ás. Og enn spilaði
Soloway spaða.
Sagnhafi á sjö slagi, en
hann vildi meira. Hann tók
laufdrottninguna og spilaði
tígli að blindum. Soloway lét
gosann, eins og ekkert væri
sjálfsagðara, og sagnhafi tók
með kóng. Sagnhafi þóttist
viss um að skipting vesturs
væri 3-4-3-3. Tígulgosinn
benti til að vestur ætti ÁG10
og sagnhafi stóðst ekki
freistinguna að senda meist-
arinn inn á tígul og fá send-
ingu upp í hjartagaffalinn.
En það fór á annan veg –
austur lagði upp í vörninni
með spaðatíu, 109 í tígli og
laufníu! Einn niður.
Sagnhafi spilaði þetta
ógætilega, en spurningin er
þessi: Myndi hann hafa reynt
innkastið ef vestur hefði látið
tígulgosann eftir umhugsun?
Tæplega. Hann hefði jafnvel
fundið besta leikinn – að
dúkka tígulgosann.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 11.
desember, er áttræð Hulda
Thorarensen, Öldugötu 61,
Reykjavík. Hún tekur á
móti gestum í félagsheimili
Fáks í Víðidal laugardaginn
14. desember kl. 16–19.
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 11.
desember, er sextugur Ein-
ar Friðrik Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Auð-
bjargar ehf. í Þorlákshöfn.
Hann og eiginkona hans,
Helga Jónsdóttir, munu
taka á móti gestum föstu-
daginn 13. desember í Ver-
sölum (Ráðhúsinu) í Þor-
lákshöfn. Húsið verður
opnað kl. 19.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
ákveðið og fast fyrir og á erf-
itt með að taka ósigri. Því
ber að muna að enginn verð-
ur óbarinn biskup.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nú eru það fjármálin og
fjölskyldan sem þú þarft að
beina athyglinni að. Fagn-
aðu þessu sem tækifæri til
að sinna eigin hagsmunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það skiptir engu máli
hvernig viðrar hið ytra ef
þið gætið þess að hafa sól í
sinni. Vertu því á verði
gagnvart þeim sem ala á
illu umtali um aðra.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Til þín kann að verða leitað
um forustu fyrir ákveðnum
hópi. Taktu samt lífinu með
ró og láttu hlutina hafa sinn
gang.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur verið dýrkeypt að
blanda sér í annarra mál að
ástæðulausu. Hlustaðu vel
og gefðu af sjálfum þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að gefa sjálfum
þér tíma þessa dagana.
Gefðu þér tíma til þess að
kanna allar hliðar þess
vandlega áður en þú afræð-
ur nokkuð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver er afbrýðisamur út
í þig. Láttu það engin áhrif
á þig hafa. Leita þú þíns
sannleika í friði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Oft eru það smáatriðin, sem
gera útslagið um árangur-
inn. Þeim tíma sem þau
taka er því vel varið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er enginn heimsendir
þótt þú fáir ekki allt það út
úr samstarfsmanni þínum
sem þú vilt. Sinntu honum
og leggðu allt annað til hlið-
ar á meðan.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Heppnin er oft í liði með
þeim duglegu, það færð þú
að reyna nú. Fjárhagslegur
sem og annar hagnýtur
stuðningur er kannski ekki
það sem hann virðist vera.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú munt sjá að þú átt
margt sameiginlegt með
samstarfsfélögum þínum.
Þú getur alltaf lært eitthvað
af öðrum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þetta er dagur athafna svo
þá er bara að ríða á vaðið
og fara sínar eigin leiðir.
Treystu innsæi þínu og því
að hollur er heimafenginn
baggi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ýmsir möguleikar standa
þér til boða sem er bara það
sem þú átt skilið. Kannaðu
hvort fleiri vilja vera með.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BRÚÐKAUP. Hinn 31. ágúst sl. voru Júlía Rissinger og
Jamie Costabilo gefin saman í hjónaband í Little Church by
the Wayside í Wayne, Illinois, USA. Júlía er dóttir Guðrúnar
Halldórsdóttur og Karls Sævars Jónssonar sem eru búsett í
Trumbull, Connecticut, USA. Jamie er sonur Jim og Debbie
Costabilo sem eru búsett í Rolling Meadows, Illinois. Ungu
hjónin hafa nú stofnað heimili í Rolling Meadows.
LJÓÐABROT
JÓLAVÍSA
Jólum mínum uni eg enn –
og þótt stolið hafi
hæstum guði heimskir menn:
hef eg til þess rökin tvenn,
að á sælum sanni er enginn vafi.
Jónas Hallgrímsson
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4.
e3 Rc6 5. Rc3 Rf6 6. cxd5
exd5 7. Bb5 Be7 8. dxc5
Bxc5 9. O-O O-O 10. b3 Bg4
11. Bb2 a6 12. Bxc6 bxc6
13. Hc1 Bd6 14. Re2 Hc8
15. Rg3 He8 16. Dd3 Re4
17. Hc2 Rxg3 18. hxg3 Be6
19. Dxa6 Ha8 20.
Dd3 Hxa2
Staðan kom
upp á Ólympíu-
skákmótinu í
Bled sem lauk
fyrir nokkru. Al-
exander Moi-
seenko (2.570)
hafði hvítt gegn
Priit Leito
(2.372). 21. Bf6!
Dxf6 21...Da5
gekk ekki upp
vegna þess að
eftir 22. Hxa2
Dxa2 23. Ha1
yrði svarta
drottningin innikróuð. 22.
Hxa2 c5 23. Hfa1 Bf8 24.
Ha8 Hd8 25. e4 d4 26. Rd2
g6 27. f4 Hxa8 28. Hxa8
Kg7 29. Db5 De7 30. Db8
Dd6 31. Rc4 Dxb8 32. Hxb8
Be7 33. He8 Bf8 34. Hb8
Be7 35. Kf2 h5 36. Ke2 Bf8
37. Hb7 Kg8 38. Re5 Bd6
39. Kd3 Bxe5 40. fxe5 Kg7
41. Kc2 Kh6 42. Hb5 c4 43.
b4 Bd7 44. Hd5 Ba4+ 45.
Kc1 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Peysur og pils
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt.
oroblu@islensk-erlenda.is
Kynnum
OROBLU jólavörurnar
í dag kl. 13-17 í Lyf og heilsu Hamraborg,
á morgun kl. 13-17 í Lyf og heilsu Melhaga,
föstudag kl. 13-17 í Lyf og heilsu Austurstræti.
Glæsilegur kaupauki
ef keypt er tvennt frá Oroblu
20%
kynningarafsláttur
KYNNING í dag frá kl. 14-18
í Árbæjarapóteki
Mikið úrval af vönduðum
ítölskum bolum úr ull-silki,
ull-bómull og ull-microfibra
frá Vajolet.
Einnig gott úrval af
frábærum Vajolet
nærfatnaði úr bómull og
microfibra.
JANNIZZI óskar eftir ís-
lenskum pennavini sem
safnar símakortum.
Jannizzi Robert,
37. rue de Tetange,
3672 Kayl,
Luxembourg.
DANIS óskar eftir ís-
lenskum pennavini sem
safnar nýjum og notuðum
frímerkjum, peningaseðl-
um og mynt.
Danis Abas,
a/d 1651,
2010 Vilnius – 10,
Lithuania.
PASCAL óskar eftir ís-
lenskum pennavini sem
safnar frímerkjum. Europa
cept., hefur áhuga á íþrótt-
um, dýrum og landslagi.
Pascal Restiaux,
51, Rue Delfosse,
B – 7170 Manage,
Belgium.
KEVIN Gilles, sem er
19 ára frá Skotlandi, óskar
eftir íslenskum pennavini.
Hann hefur m.a. áhuga á
Íslandi, kvikmyndum, tón-
list og fótbolta. Vinsam-
lega skrifið á netfangið:
kevin04yessa@aot.com.
AMOS óskar eftir ís-
lenskum pennavini.
Amos Nnanna,
Medical School,
Ulyanovsk,
State University,
Russia.
Pennavinir