Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 7
SJÓR var kominn upp á miðja vél í trébátnum Hafborgu SI 4 þegar björgunarskip Slysa- varnarfélagsins Landsbjargar kom að honum um sjö sjómíl- ur frá Siglufirði um klukkan 13 í gær. Leki hafði komið að bátnum og höfðu dælur hans ekki undan en vélin var þó enn í gangi. Einn maður var um borð í bátnum og segir Sveinn Björnsson, formaður Björg- unarbátasjóðs Norðurlands, að hann hafi brugðist hárrétt við aðstæðum. Maðurinn kall- aði eftir aðstoð um klukkan 12.30 og það tók björgunar- skipið Sigurvin aðeins hálf- tíma að sigla út að bátnum í stafalogni. Sjónum var dælt úr bátnum og hann sigldi síð- an fyrir eigin vélarafli til hafnar á Siglufirði. Þar var báturinn þurrausinn og lekinn stöðvaður. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 7 IS200 LEXUS STYRKIR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S TO Y 19 62 0 1 2/ 20 02 LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS J Ó L A T Ó N L E I K A R Í H Á S K Ó L A B Í Ó I , L A U G A R D A G I N N 1 4 . D E S E M B E R K L . 1 5 . 0 0 M I ‹ A P A N T A N I R O G S Í M A S A L A Í S Í M A 5 4 5 2 5 0 0 FJÓRTÁN ára gömul vann hún sinn fyrsta Ís- landsmeistaratitil í skák og endurtók leikinn sjö árum síðar, árið 1982. Síðan liðu önnu sjö ár og þriðji Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. Það var árið 1989. Ári seinna fór hún til Sví- þjóðar þar sem hún bjó til ársins 1996 og stundaði framhaldsnám í geðlækningum. Guð- laug Þorsteinsdóttir, geðlæknir á Landspít- alanum, tók upp þráðinn í sumar og er nú orð- in Íslandsmeistari í skák enn á ný, eftir 13 ára hlé. Íslandsmeistaratitlarnir eru því orðnir jafnmargir og börnin hennar fjögur, sem eru á aldrinum fjögurra til sextán ára. „Ég bjóst ekkert við því að ég færi að tefla aftur,“ segir Guðlaug. Ég hélt að það yrði rosalega erfitt að byrja aftur, því skáklands- lagið hefur breyst mikið með öllum skák- tölvumótunum sem haldin eru og tölvuforritum sem komin eru til sögunnar. En endurkoman gekk ótrúlega vel.“ Í sumar byrjaði Guðlaug að tefla aftur og það var í gegnum Taflfélag Garðabæjar sem hún lét „plata“ sig á hin og þessi skákmót eins og hún kemst sjálf að orði. Frá því í sumar hefur hún teflt á alls konar skákmótum innan- lands sem utan og vatt taflmennskan upp á sig þangað til komið var að Íslandsmóti kvenna í desember. Lauk því með sigri Guðlaugar sem tryggði sér sigurinn sl. laugardag, Hún tefldi sjö skákir og vann allar. „Þetta var hörku- keppni og sigurinn ekki auðveldur, en ætli maður hafi ekki haft einhvern meðbyr. Þetta voru allt eftirminnilegar skákir þar sem hart var barist. Það var virkilega gaman að sjá hvað stelpunum hefur farið mikið fram og það verður gaman að fylgjast með þeim í framtíð- inni.“ Smitaðist af skákvakningunni Guðlaug segist hafa merkt ákveðna vakningu í skákinni á þessu ári eftir mikla lægð und- anfarin ár. „Það hefur verið talsvert um skák- mót, Hrafn Jökulsson hefur verið duglegur að vekja athygli á skákinni og taflfélögin eru orð- in virkari. Ég held að maður hafi smitast svo- lítið af þessari vakningu og byrjað að tefla aft- ur í krafti hennar. Þegar maður er byrjaður er eins og það verði ekki aftur snúið. En ég stefni samt ekki á að byggja upp neinn skákferil, heldur er þetta fyrst og fremst tómstundagam- an.“ – En hvert er gildi skákarinnar fyrir manns- hugann, að mati geðlæknisins? Guðlaug hlær. „Skákin er eins og hver önnur íþrótt og krefst þjálfunar og einbeitingar. Að tefla á mótum útheimtir gríðarlega orku og þeim fylgir mikið andlegt álag. Það er líka nauðsynlegt að vera vel undirbúinn og niðri á jörðinni og fara ekki í rúst þótt maður tapi,“ segir hún. Glæsileg endurkoma Guðlaugar Þorsteinsdóttur skákmeistara eftir 13 ára hlé Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Guðlaug Þorsteinsdóttir á læknastofu sinni á Landspítalanum. „Fyrst og fremst tómstunda- gaman“ BÍLVELTA varð í Eyjafirði rétt fyrir klukkan ellefu í gær- morgun. Jeppi valt við Hörg- árbrú, norðan við Akureyri, en ökumaðurinn, sem var einn í bifreiðinni, slapp ómeiddur. Töluverð hálka var þar sem jeppinn fór út af. Bifreiðin skemmdist talsvert og var fjar- lægð af vettvangi með krana- bifreið. Bílvelta í Eyjafirði Sjór var kominn upp á miðja vél

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.